Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985
15
Búendatal
Ölfushrepps
SÖGUSTEINN-bókaforlag hefui
gefið út bókina Ölfusingar-Búenda-
tal Ölfushrepps 1703—1980, eftii
Eirík Einarsson og er það fyrsU
bindið í ritröðinni „íslenskt ætt
fræðisafn — Búendatöl“.
í fréttatilkynningu frá Sögu-
steini segir: „Byggðin sem hér ei
fjallað um hefur mikið breyst á
síðustu áratugum. Mörg býli hafa
lagst í eyði, nýbýli verið stofnuf
og þéttbýliskjarnar sem ekki
byggja á gróðri jarðar hafa mynd-
ast, Þorlákshöfn, Hveragerði og
hluti af Selfossi. í bók þessari
hefur Eiríkur Einarsson dregið
saman mikinn fróðleik um búend-
ur í Ölfushreppi frá 1703—1980.
Bókin mun reynast öllum áhuga-
mönnum um ættfræði og þjóðleg-
an fróðleik notadrjúgt og hand-
hægt uppflettirit. Eiríkur hefur
áður tekið saman Niðjatal Eiríks
Ólafssonar á Litlalandi í Ölfusi.
Margar ljósmyndir af bæjum og
búendum í Ölfushreppi eru birtar
í bókinni."
Bókin er brotin um í Leturvali,
prentuð í Prentsmiðjunni Grafík
og bundin inn í Félagsbókbandinu.
Bókin er 373 bls.
Áhöfnin kem-
ur fljúgandi
ÁKVEÐIÐ hefur verið að áhöfn
Höfðavíkur komi heim flugleiðis
nú fyrir jólin þar sem útséð er
um að viðgerð á skipinu, sem fer
fram í Þýskalandi, verði lokið
það tímanlega að áhöfnin nái að
komast heim til ættingjanna
fyrir jól með því að sigla heim.
Áhöfnin þarf síðan væntanlega
að fara aftur út eftir hátíðarnar
til að sigla skipinu heim.
STÓRA HUNDABÓK
Ein veglegasta bók sem séð hefur
dagsljósið (og jólaljósin) í áraraðir.
Því er Stóra Hundabókin í sérflokki
sem vegleg vinargjöf. En hún er auk
þess geysilega efnismikil bók og því
eru margir sem útvega sér hana til að
gefa sjálfum sér í jólagjöf. Sannið til
góðir hálsar, hún vekur athygli og
verðskuldaða ánægju.
STORA HUNDABÓKIN l
>
Hafsjór af fróðleik um hundana, þessa
tryggustu vini mannsins.
Lýsing í máli og myndum á 200 mismunandi
hundakynum heims.
Leiðbeiningar um hundahald, uppeldi og
þjálfun hundsins, svo hann verði góður fé-
lagi og vinur.
ÁA V