Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985
33
Árni Björnsson tón-
skáld — Áttræður
Á morgun, Þorláksmessu, verð-
ur Árni Björnsson, tónskáld, átt-
ræður. Hann er fæddur í Lóni í
Kelduhverfi 23. desember 1905.
Strax í æsku kom í ljós að Árni
var gæddur óvenjulegum tónlist-
arhæfileikum og frá því hann man
fyrst eftir sér heíur tónlistin átt
hug hans allan. Hann hefur samið
mikinn fjölda tónverka, allt frá
dægurlögum til klassískra verka.
Árið 1928 fluttist hann til
Reykjavíkur, þar sem hann hóf
tónlistarnám. Hann brautskráðist
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
árið 1935 og starfaði að tónlistar-
málum hér til 1944, en þá hélt
hann til Englands, þar sem hann
stundaði nám við tónlistarskóla {
Manchester í tvö ár. Eftir heim-
komuna gerðist hann kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík,
starfaði í Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og vann við tónsmíðar,
ásamt ýmsum öðrum tónlistar-
störfum.
Árið 1952 varð hann fyrir slysi,
sem skerti starfsorku hans til
muna, en þrátt fyrir það hefur
hann haldið áfram tónsmíðum og
starfað sem organleikari á spít-
ölum borgarinnar og sinnir þeim
störfum enn í dag. Kona hans er
Helga Þorsteinsdóttir og þau hjón-
in munu taka á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar að Logalandi 25 milli klukk-
an 16 og 18 á afmælisdaginn N.N
Frá vinstri: Winni Schwerdtfeger aðstoðarstúlka frá Danmörku, Edda Levy
og Eiríkur Þóróarson eigendur stofunnar.
Ný smurbrauðsstofa tekin til starfa
Ný smurbrauðsstofa, „Danska smurbrauðið" hefur verið opnuð í
Auðbrekku 32 Kópavogi. Auk danska smurbrauðsins verða þar á boðstól-
um kaffisnittur, kokteilsnittur, snittukex og ostapinnar. Eigendur stof-
unnar eru þau Eiríkur Þórðarson og Edda Levy, sem unnið hefur á
brauðstofu í Danmörku. (FréttaUlkyantag)
í KVÖLD fETLA NÝHEIMKOMNIfl ÍSLENSKIfl NÁMSMENN
EHLENDIS AD STANDA ÞÉnifl SAMAN í KflEML
FYRIR UTAN SMÁ PENINGAVESEN HJÁ EINSTAKA MÁTTARSTÓLPUM HÉR Á KLAKANUM HEFUR ÞAÐ HELST B0RI6 TIL TÍÐINDA FRÁ ÞVÍ AÐ ÍSLENSKIR
NÁMSMENN ERLENDIS SÍÐAST VORU TIL FRÁSAGNAR AÐ NÝR SKEMMTISTAÐUR, KREML, HEFUR VERIÐ OPNAÐUR VIO AUSTURVÖLL í REYKJAVÍK
í KVÖLD Á AÐ BERJA HANN AUGUM, KYNNAST, KYSSAST. . .
Á MORGUN HEIÐRUM VIÐ SVO HEILAGAN ÞORLÁK OG HLEYPUM ÖLLUM FRÍTT INN í KREML FRÁ KL. 18:00 TIL 22:00.
OG SVO ER ÞAD NÝÁR8FA6NA0URINN
KREML OG DANSSTÚDÍÓ SÓLEYJAR STANDA FYRIR MEIRIHÁTTAR ÁRAMÓTAGLEÐI Á GAMLÁRSKVÖLD OG NÝÁRSNÓTT
- ÞAÐ VÆRI ÓFYRIRGEFANLEGT AÐ MÆTA EKKI. SÍMI: 11322
KflEML
60TT FÖLK ISÍA