Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985
5
Fiskúrgangur í
meltu fyrir hundr-
uð milljónir króna
— 70-80 þúsund lestum af slógi hent
fyrir borð í togurum á hverju ári
Á HVERJU ári fellur til mikið magn af fiskúrgangi bæði um borö í
skipum og í fiskvinnslustöðvum. Talið er að árlega sé 70—80 þúsund
lestum af slógi og fiskúrgangi fleygt fyrir borð frá skuttogurum. Þennan
úrgang er hægt að nýta í framleiðslu afurða að verðmæti 300 milljónir
króna og er þá ótalinn úrgangur frá fiskvinnslustöðvum. Á þetta bendir
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur, í 5. tölublaði Sjávarfrétta. Það er
því til mikils að vinna fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.
Undanfarin tvö ár hefur fyrir-
tækið Vélorka hf. unnið að því
að finna og þróa búnað til vinnslu
á fiskúrgangi í meltu, bæði um
borð í skipum og í fiskvinnslu-
húsum. Tilraunir til vinnslu
meltu hafa farið fram á íslandi
í nokkur ár og má nefna að
Glettingur hf. í Þorlákshöfn
hefur framleitt hana í sjö ár. Þá
hefur skuttogari Einars Guð-
finnssonar hf. í Bolungarvík
safnað meltu frá júnímánuði á
síðasta ári og hefur hann landað
um 1.100 lestum. Aflaverðmæti
skipsins hefur aukist um 3—4%.
Nýjar atvinnugreinar s.s. lax-
eldi og loðdýrarækt þurfa mikið
fóður og úrgangur sem þessi
hentar mjög vel. Sigurjón Ara-
son segir í fyrrnefndri grein að
hægt, væri að framleiða annað
hvort 15—20 þúsund tonn af laxi
eða 1—2 milljónir loðdýraskinna
á ári, með úrgangi úr togurum.
Þá hafa margir bændur notað
meltu til fóðurs húsdýra og gefist
vel.
Aðstaða þeirra hjá Glettingi
hf. í Þorlákshöfn hefur til
skamms tíma verið á margan
hátt fremur frumstæð, en nú
hefur orðið á breyting. Gletting-
ur hf. keypti fyrir skömmu og
setti upp nýtt meltuvinnslukerfi
frá Vélorku og hefur það reynst
að sögn Guðna Ágústssonar, vél-
stjóra hjá Glettingi, með ágæt-
um. Kerfið hakkar allt að 8 lestir
af fiskúrgangi á klukkustund, og
er búnaðurinn frá Vestur-Þýska-
landi. Við val á búnaði var haft
samráð við Rannsóknarráð fisk-
iðnaðarins. Glettingur hf. fær 3
krónur fyrir kílóið af meltu og
hefur 10-faldað verðmætið. Fyr-
irtækið selur afurðina til bænda
í nágrenninu.
Kristján Hermannsson hjá
Vélorku hf. sagði að við vinnslu
á meltu hefðu menn þurft að
glíma við ýmis vandamál sér-
staklega hvað varðar aukna
sjálfvirkni. Kerfið frá Vélorku
er því sem næst sjálfvirkt —
aðeins þarf að snúa lokum þegar
fært er á milli tanka.
Vinnslukerfið samanstendur
Morgunblaðið/Bjarni
Guðni Ágústsson vélstjóri hjá Glettingi hf., Þorlákshöfn, og Kristján
Hermannsson frá Vélorku hf. við hakkavélina.
af hakkavél, hringrásardælu,
sem er snígildæla með þurr-
gangsvörn, (búnaður er stöðvar
dæluna er dælingu lýkur), al-
sjálfvirku sýrukerfi, þ.e. mæling
sýru og íblöndun, hæðarrofum
bæði í meltu og sýrutönkum og
skiptilokum til að skipta á milli
tanka. Rafmagnsstjórnbúnaði og
sýrumæli er komið fyrir í einum
stjórnkassa og um þá hlið sá
Rafboði hf. í Garðabæ í sam-
vinnu við Vélorku.
Hakkavélin getur flutt, auk
þess að hakka fisk og beinaút-
gang, efnið upp í allt að 6 metra
hæð, án þess að aukadælu þurfi.
Kristján Hermannsson sagði
að nú væri búið að setja upp 3
kerfi, í Glettingi, í Heiðrúnu
Bolungarvík, og í Fóðurstöðina á
Dalvík. Þá var einnig búið að
setja upp fullbúið meltukerfi í
Skjóla HF-18, en það átti að
prófa þegar skipið brann.
Starfsfólk kirkju-
garðanna aðstoðar
fólk um hátíðirnar
STARFSFÓLK kirkjugarðanna
mun, eins og undanfarin jól, aðstoða
fólk sem kemur til að huga að leiðum
ástvína.
Kl. 11—15 á sunnudag 22. des-
ember og á sama tíma á aðfanga-
dag verða starfsmenn kirkjugarð-
anna með talstöðvarbíla í Foss-
vogsgarði og munu í samvinnu við
skrifstofuna leiðbeina fólki eftir
bestu getu.
í Gufunesgarði verða einnig
starfsmenn til aðstoðar.
Sérstök ferð verður í Gufunes-
garð með strætisvagni frá Lækj-
artorgi (stæði leiðar 15) kl. 10.30
á aðfangadag með viðkomu á
Hlemmi, ekið inn Suðurlands-
braut, Grensásveg að Miklubraut.
Tekur farþega á viðkomandi stöð-
um. Vagninn bíður í Gufunesi og
fer til baka kl. 12.00.
30 laga plata
Magnúsar tenórs
ÚT ER komin önnur útgáfa af hljóm-
plötu Magnúsar Jónssonar söngvara,
en hér er um að ræða umslag með
tveimur plötum þar sem Magnús
syngur 30 íslensk lög og ítölsk og
óperuaríur, en undirleikari er Ólafur
Vignir Albertsson. Fyrri útgáfan af
plötu Magnúsar kom út skömmu
fyrir jól í fyrra og seldist upp, en á
plötunni eru hljóðritanir frá árunum
1%4 til 1984.
Magnús Jónsson gerði garðinn
frægan í Danmörku þar sem hann
söng við Konunglegu óperuna í
áratug, en síðan 1967 hefur Magn-
ús búið heima í íslandi og sungið
umalltland.
Á plötunni eru 14 kunn íslensk
lög eftir öndvegistónskáld og ljóð-
skáld og 16 aríur úr ýmsum kunn-
um óperum.
Veislustjórar
Megas og Bubbi Morthens
Húsið opnað ki. 19.00.
Sími11440
Lristahátíð
Hótel Borgar
l.janúar 1986 áListahátíðarári
Þaö er ekki oft sem svona hlutir
gerast. Menningarviöburö mundu
sumir kalla þessa uppákomu. En viö
létum okkur nægja aö kalla þetta
konfekt fyrir eyrun, sælgæti fyrir
augun og hunang fyrir magann.
Hvaö er betra fyrir sálina í skamm-
deginu en fagrar listir, góöur matur
og fallegir skrokkar. Ljúfmeti fyrir
öll skynfæri.
Klassísk tónlist
Kvartett Arnþórs Jónssonar.
Skáld lesa úr verkum sínum:
Einar Már, Einar Kára, Þórarinn
Eldjárn, Dagur Siguröarson, Sjón,
Jóhamar, Einar Melax, Þorri.
Listdans
Dansararfrá Kramhúsinu sýna
sígilda og framandi dansa.
Matseðill
Kanadahumar í skel
Fylltar grísalundir meö ávöxtum
í sherry
Koníaksrjómarönd
Hljómsveitir
Haukur Morthens
og félagar
Djassófétinn
Inperiet
frá Svíþjóö
Voice
Dútl
Grafík