Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985 Lambið heiiir veriölifandi Guðs fegið aðsjámig Innlit hjá Sigríði í Máskoti í Reykjadal Á háheiðinni við Másvatn milli Lauga og Mývatns er býli sem heitir Máskot. Ég renndi þar í hlað til þess að hitta Sigríði Aradótt- ur bónda. Húsið var opið en enginn heima. Nokkru síðar kom Sigríður á Bronconum sínum og ók beint að fjárhúsinu. Hún var móð og þreytt eftir langa leit að kind sem hún var að leita að á heiðinni og fann afvelta um síðir. Hún varð að bera hana langa leið að bílnum. Þarna kom svo sannarlega góði hirðirinn. „Æ, þetta er ekki neitt,“ sagði hún, „hreint ekkert, ég er fædd hérna og uppalin og hef alltaf átt heima hér.“ Þar með átti við- talinu að Ijúka, en ég krafsaði í bakkann. „Ég er með sjötíu til áttatíu kindur á fóðrum, nokkrar pútur, hund- inn Loka og kött, það er alveg ferlegt sumarið og ég hef ekki neina sláttuvél, en ég læt slá fyrir mig og þurrka. Allan ágústmánuð var ekkert hægt að gera af viti og ég hef verið í miklu basli með þetta þó ég hafi nú lent í verra sumri en þessu, það var árið 1979. Þá var hirt í október og verra var það 1950, mun verra.“ „Æ, ég er ein af þessum for- eldraekkjum. Við vorum hér tvö systkini til skiptis á sumrin með okkar fólki, en svo giftist Björg systir mín og upp úr því var ég heima og hef ekkert róið á önnur mið í 19 ár. Svo dó pabbi 1977, föðurbróðir minn um nírætt hafði dáið áður og mamma dó í janúar 1978. Ég var með kýr til 1979, en það er engin leið að lifa af þessum fjárstofni og veiðin í Másvatni er lítil, hreint engin. Víst hef ég gaman af dýrum, en ég sé að þetta er ekkert nema þrái og sérviska, ég hef enga heilsu í þetta. Ég hef að í“ ég hafði smellt dnm^ruraðí(ynda gjg st ssss sa-—víií íjrrsasi-L-i-a »e«i nier .ketnmt^ ^ uk, ,, htn„i m,nd. Húsgagnasýning ídag sunnudag Full búö af nýjum vörum: Borgarhúsgögn Hreyfilshúsinu viö Grensásveg. Sími 686070. Nýtt Nýtt Pils, blússur, peysur, vesti, allar jóla- og áramótavörur eru komnar. Glugginn Laugavegi 40 (Kúnsthúsið) Sími 12854. Pennavinir Tvítugur pólskur piltur kveðst vilja skrifast á við sætar íslenzkar stúlkur. Hefur áhuga á tónlist, íþróttum og landafræði: Wojtek Dudkiewicz, W.Paderewskiego 29/10, 81-410 Gdynia, Poland. Bandarískur háskólastúdent vill skrifast á við íslenzkar stúlkur: Frank J. Bolyard, Box 1047, Astoria, Oregon 97103, USA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.