Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985 Umsjón: KRISTIN GESTSDOTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON i Jólamáltíð Góðar minningar létta okkur ferðina. Á þessum árstíma rifjast upp atburðir liðinna jóla. Börnin mín höfðu verið í sunnudagaskóla í kirkjunni við Tjörnina og þau áttu að sinna ákveðnu hlutverki í aftansöng á aðfangadagskvöld. Þegar leið á daginn var óþolinmæðin orðin ráðandi — ekki mættum við verða of sein, og þau fóru að spyrja, hvað þau gætu gert — hvort þau gætu ekki flýtt fyrir. Það er að mörgu að hyggja á aðfangadag og víst geta litlar hendur lagt lið, þótt ekki geti þær fært upp úr pottunum. Það marraði í snjónum undir fótum okkar, þegar við komum út — það var jólaveður — stjörnubjartur himinn, vægt frost, logn og snjór yfir öllu. Hált var í Túngötubrekkunni og allir önduðu léttara, þegar kom niður í Suðurgötu. Mjöllin þakti limið á stóra hlyninum á horni Vonarstrætis, það var stemmning í loftinu, það var verið að stilla strengina, börn og jafnvel fullorðnir fundu það. Svanirnir liðu tígulega um vökina við Iðnó, og stokkendur röðuðu sér á tjarn- arbakkann og bærðu ekki á sér, þótt nálægt væri gengið. En það var ys og þys innan kirkjudyra. Laga þurfti slaufu í hári, slétta úr pilsi og hnýta skóreim. Þarna skildu leiðir, foreldrarnir settust inn í kirkju. Blíðir tónar orgelsins fylltu kirkjuskipið, tvö og tvö gengu börnin í röð inn kirkjugólfið og tvö þau fremstu héldu á logandi kertum. þau röðuðu sér í tröppurnar fyrir framan altarið, snéru sér að kirkjugestum og hófu sönginn — Heims um ból, helg eru jól, signuð mær son Guðs ól... Eins og tengibandið var okkur sýnilegt með fæðingu barnsins í jötunni, stóðu orð þess okkur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum er við horfum á syngjandi barnahópinn: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki.“ Gleðileg jól. Humar er mjög góður matur enda dýr, en við leyfum okkur ýmislegt um jólin og horfum þi ekki alltaf í kostnað- inn. Humar í skel, skorinn að endilöngu, penslaður með sítrónusafa og smjöri og glóðarsteiktur í 3—4 mínútur á hvorri hlið er einhver sá Ijúffengasti réttur sem til er. Hægt er að drýja humarinn með hörpudiski og hér birtist uppskrift að mjög góðum forrétti þar sem þessar tvær skelfisktegundir njóta sín vel. Humar og hörpudiskur með camembertosti í / V * ^ >> rtW .1'., .^Heims um ból-v. :*■■... \. FtanzGruber, 181J /lO.if h A Jl JL Jk+m 1"—\ ’ 8 ( Me • g v > tr n-viU nnyrkr-urrurn ^Tn^i * f f i T 1 Mein-vill 1 rnyrkr-un-ii m lá — Handa4. 400 g hörpudiskur 1 sítróna 'k lítið þroskaður camembertostur Steinseljugrein 3 dl hvítvín eða mysa 2 dl vatn 1 tsk salt 6 svört piparkorn 6 allrahandakorn 1 xk lárviðarlauf 1 lítil gulrót 1 sellerístöngull (má sleppa) 1 sneið laukur leggirnir af steinseljugreininni 4 formfranskbrauðssneiðar 100 gr smjör Matse> 1. Afþíðið humarinn og hörpudiskinn í kæliskáp. Hellið vökvanum af. 2. Setjið hvítvín (eða mysu), vatn, salt, piparkorn, allrahandakorn, lárviðarlauf, gulrótina í sneiðum, sell- erístöngulinn í sneiðum, lauksneiðina og steinseljulegg- ina í pott. Látið sjóða við hægan hita í 5 mínútur. 3. Setjið þá humarinn í tvennu lagi út í pottinn, látið sjóða við hægan hita í 3 mínútur. Takið þá strax upp úr soðinu. 4. Setjið hörpudiskinn út í soðið og látið sjóða í 5—6 mínútur. Takið upp úr soðinu. 5. Bræðið smjörið á pönnu. Gætið þess að það brúnist ekki. Leggið brauðsneiðarnar í smjörið, látið brúnast örlítið á hvorri hlið. Bætið smjöri á ef með þarf. Brauð- ið sýgur smjörið í sig. Setjið síðan á eldfast fat eða skúffuna úr eldavélinni. 6. Raðið humrinum og hörpudisknum ofan á brauðsneið- arnar. 7. Skerið camembertinn í þunnar sneiðar og leggið ofan á brauðsneiðarnar. 8. Hitið glóðarristina í bakaraofninum eða setjið hann á hæsta straum. Glóðið þetta í 5 mínútur. Setjið hverja sneið á forréttardisk. Skerið sítrónuna í sneiðar. Leggið eina sneið á hvern disk ásamt steinseljugrein. 9. Berið strax á borð. Steiktar rjúpur með kastaníuhnetum Handa 4 6 rjúpur 4 msk. matarolía 4 msk. smjör 1 tsk. salt inn í rjúpurnar +1 tsk. til að strá yfir þær. xk tsk. pipar xk tsk. sykur 5 dl vatn 1 msk. rifsberjahlaup 1 msk. rjómaostur án bragðefna xk peli rjómi hveitihristingur sósulitur 1. Hamflettið rjúpurnar, skerið af þeim leggina og hausinn. Takið síðan innan úr þeim. Geymið fóarn, hjörtu og lifur. Þerrið rjúpurnar vel. Tákið ekki innan úr fóaminu. 2. Steikið rjúpurnar í smjöri og olíu á öllum hliðum. Reynið að brúna þær allar jafnt. Veltið þeim sitt á hvað. 3. Blandið saman salti, pipar og sykri. Stráið því inn írjúpurnar. *“mar / kas tdn'u hpe ^U,m' °9 k3Í’ .. =,Ab#íisf<aka 4. Setjið vatn í pott ásamt hjörtum, fóörnum og iifur. Raðið rjúpunum þétt ofan í vatnið. Látið bringuna snúa upp. Sjóðið við hægan hita í 60 mínútur. 5. Takið rjúpurnar upp úr pottinum, setjið á eldfast fat inn í bakaraofninn. Hafið lok eða álpappír yfir. 6. Setjið soðið á sigti, setjið síðan soðið í pott. Búið til hveitijafning og jafnið þunna sósu. 7. Merjið rifsberjahlaupið og setjið út í sósuna, setjiö rjómaostinn í sósuna. 8. Þeytið rjómann og setjið í sósuna um leið og þið berið hana fram. 9. Klippið bringurnar á rjúpunum í sundur með fugla- klippum eða eldhússkærum, leggið á fat ásamt lærunum. Hellið örlítilli sósu yfir rjúpurnar, en setjið hina sósuna í sósuskál. Meðlæti: Brúnaðar kastaníuhnetur (uppskrift hér á eftir), niðursoðnar perur, soðnar sveskjur, bláberja- eða týttuberjasulta, brúnaðar kartöflur og soðið rauðkál. Brúnaöar kastaníuhnetur 500 g kastaníuhnetur með skel xk 1 vatn 4 msk. sykur 2 msk. smjör 1 dl vatn 1. Sjóðið hneturnar í vatninu í 10 mínútur. Fjarlægið þá skelina. 2. Setjið hneturnar í skúffuna úr eldavélinni. Hitið bakaraofninn í 200°C og hitið hneturnar í 10—15 mínút- ur. Fjarlægið þá himnuna af þeim. 3. Hitið smjör á pönnu, setjið sykur og vatn saman við. Látið brúnast. Hafið ekki mikinn hita. 4. Brúnið hneturnar eins og kartöflur í sykurleginum. Hrísgrjónaábætiskaka meö saftsósu Handa 4 100 g smjördeig (keypt óbakað hjá bakara) 2 dl hráar heilbaunir, hváða tegund sem er ./''tfiiwjt- þii-krUui.timniU UMtr 'k 1 mjólk 1 peli rjómi 2 dl hvít hýðislaus hrísgrjón M tsk. salt 1 msk. vanillusykur 5eggjarauður xk bolli tvíbökumylsna 100 g orangeat (sultaður appelsínubörkur) 50 g kúrenur 10 rauð sultuð kirsuber 50gmöndlur 1 msk. sykur 1. Fletjið smjördeigið þunnt út, setjið í kringlótt mót og upp með börmunum. Setjið baunirnar yfir. 2. Hitið bakaraofninn í 180°C og bakið þetta í 10 mínútur. Takið úr ofninum og fjarlægið baunirnar. Þær er hægt að sjóða síðar. 3. Sjóðið hrísgrjónin ásamt salti, mjólk og rjóma í 45 mínútur. Hrærið öðru hverju í þessu. Setjið vanillu- sykur út í um leið og þið takið þetta af hellunni. Setjið tvíbökumylsnu út í og látið standa í 10 mínútur. 4. Hrærið eggjarauður ásamt sykri. Hrærið síðan saman við hálfkaldan grautinn. 5. Saxið appelsínubörkinn, kirsuberin og möndlurnar, setjið saman við ásamt kúrenum. Setjið í deigbotninn. 6. Hitið bakaraofnin í 200°C og bakið þetta í 20 mínútur. 7. Berið fram heitt eða kalt með saftsósu. Saftsósa 'k lítri krækiberja-, rifsberja-, sólberja- eða annars konar saft. 1 msk. kartöflumjöl Hrærið kartöflumjölið út í hluta af saftinni, setjið síðan ásamt hinum hlutanum í pott. Setjið á helluna og hrærið í þar til sósan þykknar. Takið þá af hellunni og setjið í sósuskál. Athugið: Betra ér að saftsósan sé heit, hvort sem kakan er borin fram heit eða köld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.