Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 14
Sönn jól haldin í klettaborgum og hólum.... Jólanóttin og aðfangadagskvöld búa yfir vissum töfrum og hver veit hvaða kraftar kunna að leysast þá úr læðingi, rétt eins og á Jónsmessu, nýársnótt og á þrettánda? Enda halda fleiri en mennskir menn hátíð ljóssins, eðaer huldufólk kannski mennskt? fe I Fjölmargir íslendingar hafa séð til ferða huldu- fólks í gegnum árin og aldirnar en þó þeir hafi týnt heldur tölunni nú á tímum raun- vísinda og rafmagns þá myndu trúlega færri en fleiri halda því fram til streitu að huldufólk sé ekki til, enda veit enginn neitt um það. f kringum okkur eru ýmsir ó- eða illútskýranlegir kraftar og straumar og e.t.v. hafa einhverjir slíkir verið á ferð hjá þeim skyggna sem sagði að á kyrrum vetrarkvöldum á Þing- völlum mætti sjá „Ijós í hverjum hól“ allt í kring um vatnið, ekki síst á jólunum, því álfar halda jól eins og allir sannkristnir menn. í þjóðsögum eru vissulega til frásagnir um heiðna álfa og illa viðureignar, nægir að nefna sög- una um Tungustapa og voru þó álfar þeir eigi heiðnir. Hefndar- þorstinn þar var ekki samboðinn kristindómnum, en sögur á borð við Tungustapa eru frekar und- antekningar heldur en reglan, því oft má af álfasögum ráða að þar fari fólk sem er á margan hátt mennskum mönnum fremra og verða menn að geta í sjálfir hvort það sé kjarni málsins, eða hvort skrásetjarar sagnanna hafi haft tiihneigingu til að lýsa álfunum eins og þeir hefðu sjálfir kosið að mannfólkið væri. Nokkrar frásagnir eru til af jólahaldi huldufólks og eru það hinar fegurstu lýsingar og í alla staði til mikillar fyrirmyndar, enda spilar hinn íslenski gjald- miðill enga rullu í hátíð ljóssins hjá huldufólkinu. Þar eru haldin jól með hinu upprunalega hugar- fari, fæðing frelsarans er lofuð og eru messurnar hinar lit- skrúðugustu og glæsilegustu. 1 því liggur íburður huldufólksins, en ekki í sem dýrustum gjöfum. t þjóðsögunum er huldufólkið nær undantekningarlaust fallegt fólk, Ijóst yfirlitum og vel búið og rýrir það ekki nema síður sé fegurð athafnarinnar. Þjóðsög- urnar hafa lítt hirt um að greina frá heimilislífi huldufólks á jóla- nóttina, en reifað þess í stað þeim mun betur guðsþjónusturnar. Hér verður endursagður hluti sögu sem á uppruna norður í landi á bæ sem „Bakki" hét (heit- ir). Sagan fjallar um ungan mennskan dreng sem kynnist huldufólki sem býr í árgili skammt frá Bakka. Sérstaklega kynnist drengurinn presti huldu- fólksins og syni hans, enda segir huldupresturinn honum að stjörnurnar hafi tjáð sér að hann ætti að verða eftirmaður sinn. Drengurinn er kallaður Finnur, en huldufeðgarnir báðir Hallur. Á jólanóttina áður en Finnur snéri baki við mannheimum og hvarf til álfheima var hann við guðsþjónustu í dómkirkju huldu- fólksins þar sem biskupinn sjálf- ur messaði. Huldupresturinn hafði boðað Finn litla til sín ásamt Önnu fósturmóðir hans og á aðfanga- dag komu þau í árgilið þar sem stórt og fallegt reynitré hélt vörð um álfheima. Þegar þau komu að trénu, sáu þau að skínandi birta stafaði af þvi en bak við greinarnar sást að dyrnar á klettinum stóðu opnar. Þau Finn- ur og Anna gengu í klettinn og var vel fagnað af huldufeðgunum og fólki þeirra. Þau stigu upp á stóra sleða prestsins sem var dreginn af tveimur stórum og stæðilegum fannhvítum hestum. Þetta voru engir venjulegir hest- ar, því þeir flugu í loftinu yfir fjöll og hálsa og sveitir og ár og vötn uns þau voru komin til dóm- kirkjunnar og höfðu þau Finnur og Anna aldrei séð aðra eins kirkju, raunar hafði það aldrei komið þeim til hugar að svo glæsilega byggingu væri nokkurs staðar að finna. En þau höfðu ekki séð allt, því hálfu meiri varð undrun þeirra og hrifning er nær dró og þau sáu að byggingin var alsett glitr- andi skrautsteinum og logandi lömpum. Inni var sama dýrðin, yfir háaltarinu mynduðu ljósa- raðir tvöfaldan regnboga. Hin mikla kirkja var þéttsetin fólki og höfðu þau Finnur og Anna aldrei séð fleira fólk saman komið á einum stað. Messan hófst með söng, undurfögrum söng, tólf prestar þjónuðu fyrir altari og biskupinn sjálfur pred- ikaði. Voru þrettánmenningarnir samhentir sem einn maður. Djúp þögn var yfir söfnuðinum, eins og öræfaþögn, og helgi jólanna var ekki rofin. Að messu lokinni hittist fólkið fyrir utan kirkjuna, rabbaði saman og bauð hvert öðru gleðileg jól. Síðan hélt hver til síns heima og beið allra glæsi- legt veisluborð. Önnur saga er ættuð úr Norð- urárdal í Borgarfirði og segir frá bónda einum sem var að leita kinda sinna á aðfangadagskvöldi þar eð hann treysti því ekki að stilluveðrið sem úti var myndi haldast. Er hann var staddur við klettastapa einn stóð skyndilega við hlið hans maður nokkur sem hann þekkti ekki og vissi hann þó ekki betur en að hann þekkti alla í sveitinni. Það var eitthvað sérstætt við manninn, hann var prúðbúinn mjög, svo mjög, að bóndi hafði aldrei áður séð önnur eins föt. Hinn ókunni maöur sagðist vera búinn að finna kind- ur bónda og setja þær í hús, nú vildi hann bjóða bónda að vera við aftansöng hjá fólki sínu. Bóndi taldi það af og frá, hann væri í fjósagallanum og í slíkum klæðnaði stigi hann ekki fæti inn fyrir kirkjudyr. Maðurinn brá þá hendi yfir höfuð bónda og var hann samstundis kominn í hvít- an kyrtil alsettum hvítum lýs- andi perlum. Taldi hinn ókunni maður að bóndi myndi nú sóma sér vel í hvaða höll sem væri og lét bóndi til leiðast. Gekk hann inn í hamarinn með förunaut sínum og var raunar ekki um hamar að ræða lengur, heldur reisulega og fallega kirkju. Bóndi gekk inn í fylgd ókunna manns- ins og sá hann að kirkjan var full af fólki. Allt var þarna ljós- um skrýtt, svo mjög að bóndi horfði í forundran á allt saman og reykelsisilm lagði að vitum hans. Sá sem steig í stólinn til að predika var með mítur á höfði alsett giltrandi gimsteinum. Þóttist bóndi þá vita að þetta væri sjálfur biskupinn yfir Álf- heimum. Bóndi sat nú messuna og fór hún fram með prýði og eftir hefðbundnum reglum. Að henni lokinni ræddu þeir saman, bóndi og förunautar hans og sagði sá síðarnefndi að skilnaði að bóndi mætti engum segja frá því sem fyrir hann hefði borið og ef hann efndi það myndi hann sækja bónda á næsta aðfanga- dagskvöldi og leyfa honum að sitja aðra álfamessu. Bóndi hét þessu, en efndi ekki og er hann mætti að stapanum að ári var þar ekkert að sjá annað en kald- an klettinn. Iðraðist bóndi og þótti honum hart að vita af því sem fram fór inni í klettinum og geta ekki tekið þátt í en við því var ekkert að gera og hann gat sjálfum sér um kennt. Þjóðsögurnar greina frá ein- staka manni sem hlotnast hefur sú gæfa að sjá inn í álfheima og sumir þeirra hafa orðið vitni að jólahaldi huldufólksins. Sögurn- ar greina þá frá þeim sem ekki efndu það að segja ekki frá því sem fýrir þá hafði borið. Ef til vill eru þeir margir sem efna heit sín og vita af fallegu mann- lífi og jólahaldi í hömrum og klettumoghólum. -gg- Sextán ára íri vill skrifast á við pilta og stúlkur á aldrinum 14-19 ára. Áhugamálin margvísleg: John Murphy, 84 Wellmount Road, Finglas West, Dublin 11, Ireland. Frá Brazilíu skrifar 24 ára karl- maður, sem safnar póstkortum: Norberto Schaefer, 16-Grupo Articharia Campanha, 93000 Sao Leopoldo-RS, Brazil. Fjórtán ára japönsk skólastúlka með áhuga á íþróttum, tónlist, bókalestri o.fl.: Nao Miyachi, 48-6 Makidani, Nanjyo-cho, þnanjyo-gun, Fukui-ken, 919-02 Japan. Sautján ára japönsk stúlka með áhuga á ljósmyndun og bókalestri: Miki Nakao, 177-27 Tomachi 2-chome, Nagasaki-City, 850 Japan. ftalskur frímerkjasafnari, sem getur ekki um aldur, vill gjarnan skrifast á við íslendinga: Gianni Camplone, Via dei Peligni 74, 65100 Pescara, Italy. Frönsk hjón, sem geta ekki aldurs, vilja skrifast á við íslenzk hjón: Patrick Morat, 5, Sq. Les Floralies, 73000 Bassens, France. Fjórtán ára japönsk stúlka með tónlistaráhuga: Miki Takahashi, 2185-6 Izumi, Nagai City, Yamagata, 999-05 Japan. Sextán ára hollenzk stúlka með áhuga á hlaupum, tónlist og úti- vist: Jolanda Koning, Zoutkaag 12, 1732 LW Lutjewinkel, (N-H) Holland.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.