Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985 Skoðanakönnun Hagvangs: Verðbólga helsti vandi íslendinga SAMKVÆMT könnun Ilagvangs telja flestir að verðbólga sé helsta vanda- mál sem fslendingar glíma við og fáir álíta að unnt verði að ná henni niður á sama stig og í nágrannalöndunum á þessu ári. Spurt var: „Hvert telur þú vera helsta vandamál íslendinga í dag?“ 17,2% nefndu verðbólgu, 13,2% efnahagsástandið, 12,6% eyðslu um efni fram, 9,5% lág laun, 7,1 %skuldasöfnun erlendis og 6,0 %áfengis- og fíkniefnaneyslu. í framhaldi af þessu var spurt: neitandi, 21,5% játandi og 6,6% „Telur þú að unnt verði að leysa þetta vandamál á næstu árum?“ Að verulegu leyti sögðu 30,0%, að einhverju leyti sögðu 38,2%, að litlu leyti sögðu 18,5% og að engu leyti sögðu 13,2%. Þá var spurt: „Trúir þú því að hægt verði að ná verðbólgunni niður á sama stig og í nágranna- löndunum í ár?“ 71,8% svöruðu sögðust ekki vita það. Hagvangur spurði sömu spurningar í apríl 1984 og var þá meiri bjartsýni ríkjandi. 53,8% töldu að unnt yrði að ná verðbólgunni niður á sama stig og í nágrannalöndunum á því ári, en 42,8 töldu það ekki unnt. Úrtakið í könnun Hagvangs var 1.000 manns 18 ára og eldri um land allt. Spurningunum svöruðu 787. Kvennaskólastúdentar Morgunblaðid/Margrét Lind Kvennaskólinn í Reykjavík brautskráði 21 stúdent á föstudaginn. Arna Vala Róbertsdóttir náði bestum heildar- árangri og hlaut hún margs konar verðlaun, m.a. úr Móðurmálssjóði og minningarsjóði fröken Ragnheiðar Jónsdóttur. Flest tilboðin í Kol- beinsey 176 milljónir FISKVEIÐASJÓÐI bárust 6 tilboð f togarann Kolbeinsey, sem sjóðurinn keypti á uppboði á Húsavík fyrir nokkru. Skipið var slegið sjóðnum á 176 milljónir króna og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hljóðuðu flest tilboðin, sem í skipið bárust, upp á svipaða upphæð og í sumum tilfellum var boðin mjög há upphæð í fyrstu greiðslu. Stjórnendur Fiskveiðasjóðs hafa Morgunblaðinu er kunnugt ákveðið að gefa ekkert upp um tilboðin, en þau voru lögð fyrir fund stjórnar sjóðsins á fimmtu- dag. Eins og áður sagði keypti sjóð- urinn skipið á 176 milljónir króna, en 261 milljón króna frá sjóðnum hvíldi á skipinu auk 14 milljóna frá Byggðasjóði. Tilboðin í Kol- beinsey og Helga S verða ekki skoðuð nánar fyrr en eftir áramót. tilboð í skipið frá nýju hlutafélagi á Húsavík, en á lánsfjárlögum er gert ráð fyrir 100 milljónum króna til endurlána viðkomandi byggðar- lögum til endurheimtu á skipum, sem þau missa á uppboðum. Upp- hæðinni verður samkvæmt því skipt niður á byggðarlögin en ekki mun verða lánað meira en sem nemur 15% af kaupverði hvers u „Vandasamt mál og viðkvæmt1 segir Þorsteinn Pálsson, fjármálaráöherra skips. Ekki hefur fengizt gefið upp úr hvaða landshlutum tilboðin í Kolbeinsey eru, en Morgunblaðinu eru kunnugt um að ekkert tilboð er frá Vestfjörðum og ekki heldur frá Skagaströnd eins og um tíma var talið að yrði. „ÞETTA er vandasamt mál og við- kvæmt gagnvart stéttarsamtökun- um,“ sagði Þorstcinn Pálsson, fjár- málaráðherra, er hann var spurður hver yrðu viðbrögð ríkisstjórnarinnar við beiðni kennarafélaganna um samningsrétt, nú er þau hafa sagt sig úr Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Þorsteinn kvaðst enn ekki hafa átt viðræður við forystumenn kenn- ara, en þeir hefðu átt fund með embættismönnum í launadeild fjár- málaráðuneytisins á miðvikudag. Hann sagði, að viðræður væru fyrir- hugaðar, en mál þetta var nýlega komið upp og hann kvaðst því þurfa að fá ráðrúm til að athuga allar hliðar þessa nánar, áður en svar yrði gefið. Alþingi: Orustan um Hastingstitilinn: Tveir íslenskir skák- menn meðal þátttakenda Samningsréttur kennara: Bankaráð svo til óbreytt LÍnLSHÁTTAR breytingar urðu á skipan bankaráða ríkisbankanna er kosið var á Alþingi í gær í nefndir og ráð á vegum ríkisins. Að vísu höfðu fulltrúar Alþýðubandalagsins í bank- aráði Búnaðarbankans sætaskipti, þannig að Þórunn Eiríksdóttir frá Kaðalstöðum sem verið hefur vara- maður varð aðalmaður, en Helgi Selj- an sem verið hefur aðalmaður varð varamaður. Þau Þórunn og Helgi skiptu um sæti vegna ákveðinnar endurnýjun- arreglu hjá Alþýðubandalaginu sem gerir það að verkum að Helgi er kominn á tíma. Garðar Sigurðsson alþingismaður, fulltrúi Alþýðu- bandalagsins i bankaráði Útvegs- bankans var endurkjörinn í ráðið. Fulltrúar annarra flokka voru einn- ig allir endurkjörnir. SKÁKMENNIRNIR Margeir Pétursson og Jóhann Hjartar- son munu taka þátt í hinu ár- lega boðsmóti í Hastings í Eng- landi, sem hefst þann 28. des- ember. Mótið í Hastings er elsta skákmót sem enn er haldið og hafa aðeins þrír íslendingar áður tekið þátt í því. Guðmund- ur S. Guðmundsson náði þar góðum árangri skömmu eftir stríð og var það í fyrsta skipti sem íslenskur skámaður vakti verulega athygli erlendis. Frið- rik Ólafsson gerði síðan garðinn frægan þar fyrir 30 árum, þegar hann varð í efsta sæti ásamt Kortsnoj. Sigurinn í Hastings markaði upphafið að frægðar- ferli Friðriks í skáklistinni. Hastingsmótið markaði einnig tímamót hjá Guðmundi Sigur- jónssyni, því fyrir 11 árum vann hann þar til stórmeistartitils. Borgin við Ermasundið er því sögufræg á íslandi fyrir fleira en níu alda gamla stórorustu. Hastingsmótið er sterkt á alþjóðamælikvarða. Meðal þátttakenda nú eru fimm bresk- ir stórmeistarar, Short, Speel- man, Chandler, Mestel og Plas- kett, tékkneski stórmeistarinn Hort, heimsmeistari kvenna og tveir rússneskir stórmeistarar. Þátttakendur eru alls 14. Mótið stendur frá 28. desember til 12. janúar. Málsskjöl í kössum SVO sem skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær, var forstjóri Nesco dæmdur til greiðslu sektar fyrir söluskattssvik á árunum 1975— 1976 og 1977. Málið hefur lengi verið að velkjast í kerfinu og var tæp fimm ár fyrir dómi. í dómi Sakadóms Reykjavíkur var sér- staklega getið um, að málið hefði tafist vegna umfangs þess. í kjölfar dómsins bárust embætti ríkissaksóknara málsskjöl og bókhald fyrir- tækisins og svo sem sjá má var þetta „margra kassa mál“. Bergljót Eiríksdóttir, skrif- stofustjóri embættis ríkissak- sóknara virðir myndina fyrir sér. Morirunblaðift/Emilla Flýgur með jólarjóm- ann til Grænlands ÞAÐ voru verulegar annir nú í vikunni sem var að líða hjá fiug- þjónustu Helga Jónssonar, sem hefur sérleyfið á fiugleiðinni Reykjavík — Kulusuk við Ang- magssalik. Þar er auk verslunar Konung- leg Grænlandsverslunarinnar kaupmaður einn sem Henrik INNLEN'T Nilsen heitir. Hann hefur oft notað sér ferðirnar frá Reykja- vík. Hann hefur þá beðið Helga um að kaupa fyrir sig ýmsan varning í verslun sína. Fyrir nokkrum dögum voru jólainn- kaupin það umsvifamikil að varningurinn skipti hundruðum kílóa. Það voru einkum ferskir jólaávextir sem Helgi keypti fyrir hann, auk þess jólarjómi fyrir húsmæðurnar í Ang- magssalik. Þessum kærkomna jólavarningi flaug Helgi á fimmtudag. Þá flaug Helgi heim til Grænlands 12—14 græn- lenskum sjómönnum. Þeir voru eftir hér á landi af grænlenskum rækjutogara sem hélt í söluferð til Danmerkur. Á meðan halda sjómennirnir jól heima, en út- hald togarans var orðið mjög langt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.