Morgunblaðið - 22.12.1985, Síða 17

Morgunblaðið - 22.12.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985 17 Jónas Þórisson trúboói í Konso og kona hans Ingibjörg Ingvarsdóttir með börn Jónas Þórisson hefur verió sín fimm. lengst trúboóanna í starfí í Afríku, kom þangaó 1972. Ragnar Gunnarason og Hrönn Siguróardóttir meó syni sfna tvo Hermann Inga og Sigurð. Fimm íslenskar systur í trúboósstöóinni í Konsó, í þjóóbúningum þarlendra: Hulda Björg 14 ára, Hanna Rut 12 ára, Hrönn 10 ára Halla 9 ára og Þóra Björk 6 ára. Þær eru dætur Jónasar Þórisson- ar og Ingibjargar Ingvaradóttur. Trúboóarnir Guólaugur Gunnarsson og Valgeróur Gfsladóttir meó dætur sínar Katrínu og Vilborgu. þau eru í Eþíópíu. Steinþór Þóróarson og Lilja Guósteinsdóttir, er þau útskrifuðust frá Andrews University í Michigan sl. sumar. Meó þeim er Hrönn dóttir þeirra, sem er með þeim í Afríku. Tvær fjölskyldur í Kenýa Kristniboðsstarf íslendinga í Kenýu hófst 1978. Þá var byrjað að reisa kristniboðsstöð í Chapar- ere í Pokotfylki. Á stöðinni er stór barnaskóli, sem var svo sem fyrr er sagt reistur fyrir fé frá Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Einnig er þar biblíuskóli. Þarna eru nú hjónin Ragnar Gunnarsson kristniboði og Hrönn Sigurðardóttir með tvo unga syni sína. Þess má geta að Ragnar er bróðir Guðlaugs, sem starfar í Eþiopíu. Söfnuðurinn í Chaparere er orðinn allstór, en trúboð gengur þar eins og víðar í múhameðstrúarlöndum hægar en annars staðar. í Kenýu er kirkjan þó ánægð með eðlilegan framgang starfsins. í Kenýu er líka önnur trúboðs- fjölskylda, hjónin Kjartan Jónsson trúboði og Valdís Magnúsdóttir með börn sín tvö. Þau eru á stað sem Diano heitir og er skammt frá Mombasa. En langt er á milli þessara tveggja íslensku fjöl- skyldna í Kenýu. Þarna starfa þau Kjartan og Valdís nú um eins árs skeið, en munu að árinu liðnu flytja aftur til Chaparere, þar sem þau hafa áður verið um þriggja og hálfs árs skeið. Aöventistasöfnuðu r í Zimbabve í Zimbabve eru svo íslensku hjónin Steinþór Þórðarson og Lilja Guðsteinsdóttir með dóttur sína Hörpu. Þau starfa við söfnuð að- vendista í Harare. Þetta er stór borg og þar eru 20 aðventistakirkj- ur. Steinþór er prestur í þeirri kirkjunni sem hvítir sækja, en Lilja er skólastjóri barnaskólans, sem allir sækja, hvít og svört börn. í Harare er aðalskrifstofa aðvent- istasafnaða í Austur-Afríku og söfnuðir eru stórir á þeim slóðum. Steinþór og Lilja komu ekki til Harare fyrr en í júní í sumar, en áður voru þau 4 ár í Nígeríu. í Nígeríu var Steinþór að byggja upp nýjan söfnuð í borginni Port Harcourt, sem er í votlendinu niðri við sjóinn og aðstæður og loftslag mjög erfitt. Var allt á frumstigi og söfnuðurinn lítill. En Harare er hátt uppi í fjöllum og ioftslag gott, rakalaust og hiti 20-35 stig. Sonur þeirra hjónanna, Haukur Smári, sem er við læknanám í Steinþór Þórdarson og Lilja Guð- steinsdóttir, sem þjóna aðventista- söfnuði í Harare í Zimbabve. Bandaríkjunum, er kominn til þeirra í jólafrí og höfðu þau af því tilefni skroppið í ferðalag til Vict- oríufossanna, en verða komin heim til Harare 21. og halda þar jólin með söfnuði sínum. Tveir aðrir uppkomnir synir eru farnir að heiman, Þröstur búsettur í Kefla- vík og Guðsteinn í hjúkrunarfræði í Michigan í Bandaríkjunum. Tuttugu og þrír íslendingar munu þvi halda jól á trúboðsstöðv- um í Afríku að þessu sinni. Og óskum við þeim gleðilegra jóla. Texti: E.Pá. SKYRTUR BINDI SOKKAR HANZKAR PEYSUR NÁTTFÖT SLOPPAR SKÓR SNYRTIVÖRUR INNISKÓR FÖT FRAKKAR HATTAR HÚFUR TREFLAR £ VANDAÐAR GOÐAR JÓLAGJAFIR FRÁ: HERRADEILD KÁPUSALAN BORGARTÚNI 22 sími 23509 Næg bílastæði KÁPUSALAN AKUREYRI HAFNARSTRÆTI 88 SlMl 96-25250 I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.