Morgunblaðið - 22.12.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. DESEMBER1985__________________________________________________
----- ■ ..... f
Alþingi fjallar um fíkniefni:
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
„Hverjir fjármagna
eyðileggingu ungmenna“?
„Við þurfum ekki frekar vitnanna við,“ sagði Kristín S. Kvaran (Bj-Rvk)
í umræðu um vímuefni á Alþingi í nóvembermánuði síðastliðnum, „þegar
það magn sem fundizt hefur fram að 1. nóvember sl. er 8000 grömm af
hassi, 660 grömm af amfetamíni, 27 grömm af kókaíni og 2216 stykki af
LSD. Ef staðreyndin er hinsvegar sú að þetta magn er aðeins 5% af því sem
er í umferð getum við rétt ímyndað okkur, hvernig ástandið er í raun og
veru.“ Hér vitnar þingmaðurinn til þess að yfirvöld í Noregi telja að þar í
landi sé lagt hald á 5%af vímuefnum í umferð.
Samstarf lögreglu
og tollgæzlu
Kristín S. Kvaran (Bj-Rvk)
beindi nýlega tveimur spurningum
um rannsókn vímuefnamála til
Jóns Helgasonar, dómsmálaráð-
herra. Hin fyrri var, hvort ríkis-
stjórnin hafi í hyggju að rýmka
heimildir til rannsóknar vímu-
efnamála. Sú síðari, hvort svoköll-
uðum sáttamálum (það er málum
af þessu tagi sem lýkur með sekt-
um) hafi fækkað.
Jón Helgason dómsmálaráðherra
sagði ekki fyrirhugað að „breyta
ákvæðum laga um meðferð opin-
berra mála í þá veru að setja sér-
stakar og víðtækari heimildir í
réttarfarslög til rannsókna fíkni-
efnamála en annarra sakamála“.
Ráðherra kvað þetta sérstaka
íhugunarefni hafa verið til at-
hugunar í ráðuneytinu. Það hafi
og verið rætt við réttarfarsnefnd.
Niðurstaðan hafi verið sú að það
væri „almennt óheppilegt að setja
sérstakar heimildir í lög til að
rannsaka einstaka brotaflokka.
Því má síðan bæta við,“ sagði ráð-
herra, „að það hefur ekki komið
fram að lagaheimildir hafi skort
til þess að hægt væri að sinna
rannsóknum á þessu sviði eins og
æskilegt væri“.
Þá kom það fram í máli ráðherra
að skipulegra samstarf milli lög-
gæzluumdæma og löggæzlu og
tollgæzlu hafi leitt til mun meiri
árangurs í starfi þessara aðila við
að upplýsa fíkniefnamisferli.
Fyrirspurn þingmannsins um
sáttamál svaraði ráðherra svo:
“Undanfarin fimm eða sex ár
hefur fjöldi mála hjá sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum, sem
lokið hefur með dómsátt verið
svipaður; það er frá 220—260 mál-
um hefur lokið með dómsátt á ári.
Raunar má segja að fjöldi dóms-
mála hafi verið svipaður frá 1977
að árinu 1979 undanskyldu þegar
dómsáttir vóru aðeins 185. I dag
(síðla nóvember) hafa á þessu ári
verið gerðar 250 dómsáttir vegna
fíkniefnamála þannig að reikna
má með að fjöldi þeirra á þessu
ári verði svipaður og hann var árið
1977.“
Rýr svör
Tveir þingmenn, Guðrún Helga-
dóttir (Abl-Rvk) og fyrirspyrjandi,
Kristín S. Kvaran (Bj-Rvk), létu
sér svör ráðherra ekki nægja.
Guðrún Helgadóttir vék að frétt-
um þess efnis að okurlán, sem þá
vóru í umræðu, tengdust að hluta
til fíkniefnakaupum til landsins.
Hún spurði ráðherra, hvort hann
stefndi ekki að því, m.a. í ljósi
þessara meintu tengsla, að upplýsa
okurmálin sem allra fyrst, „svo
það liggi ljóst fyrir, hverjir það
eru sem fjármagna eyðileggingu á
íslenzkum ungmennum"?
Kristín S. Kvaran sagði m.a.:
„Mér finnst svör ráðherra rýr.“
Hún minnti á að árið 1983 hafi
verið „tekin í vörzlu yfirvalda hér-
lendis 0,3 grömm af heróíni. Eitt
gramm af slíku eitri kosti 40 þús-
und krónur.
Tilkoma heróíns á íslenzkum
eiturlyfjamarkaði, hugsanlega
tengt fjármögnun okurlána, sem
þingmennirnir létu að liggja, er
mjög al varlegt mál.
Skipulagsbreyting
rannsóknarlögreglu
Jón Helgason dómsmálaráðherra
sagði m.a. í síðari ræðu sinni um
þessi mál:
„Á síðastliðnum vetri var gerð
nokkur skipulagsbreyting á rann-
sóknarlögreglu rfkisins. Það var
skipulögð sérstök deild til þess að
fjalla um efnahagsbrot og bætt við
starfsmönnum í hana. Hún tók
þegar til starfa og hefur unnið
ötullega að slíkum málum síðan
og kann orðið vel til verka að því
er mérertjáð...
„Ég óskaði eftir að fá rannsókn-
arlögreglustjóra á minn fund fljót-
lega eftir að starfið byrjaði til
þess að fá upplýsingar um, hvernig
horfur væru á að þetta mál ynnist
(okurlánamálið). Hann hafði góðar
vonir um að því yrði lokið fyrir
áramót...“
Fræðslu gegn
vímuefnum
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra gat þess i svari til
Kristínar S. Kvaran vegna fyrir-
spurnar hennar um fræðslu til
varnar gegn vímuefnum, að þar
væri einkum um tvennt að ræða.
í fyrsta lagi kennsluleiðbeiningar
fyrir grunnskóla, sem ráðuneytið
hefur gefið út, um bindindis-
fræðslu. Námsgagnastofnun hafi
og gefið út fræðslurit, Fíkniefni,
eftir Helen Nowils, sem einkum
er ætlað kennurum, foreldrum og
raunar öðrum, sem taka þurfi
afstöðu til þessara mála. Þar er
m.a. lögð áherzla á að sem flestir
aðilar vinni saman að fræðslu og
fyrirbyggjandi starfi til að sporna
gegn fíkniefnaneyzlu. Nú er unnið
að stefnuþróun í þessu máli hjá
skólaþróunardeild ráðuneytisins.
Heilbrigðisþjónusta við
vímuefnasjúklinga
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði m.a. í svari við
fyrirspurn um meðferð vímuefna-
sjúklinga:
„Þeir sem leita aðstoðar vegna
vímuefnanotkunar, hvort sem um
er að ræða áfengi eða önnur vímu-
efni, fá læknismeðferð og aðra
þjónustu annars vegar á geðdeild-
um ríkisspítala og hinsvegar á
Vogi, áfengismeðferðardeild
SÁÁ...
Á siðustu 4—5 árum hefur
sjúkrarými fyrir þessa tegund
sjúklinga aukizt mjög verulega og
hefur bæði komið til hin nýja
geðdeild Landspítala með göngu-
deild og legudeild og hið nýja hús-
rými í sjúkrastöðinni í Vogi þar
sem nú er legurými fyrir 60 sjúkl-
inga...
Enginn einstakur þáttur innan
heilbrigðisþjónustunnar hefur
vaxið jafnört hið síðustu 5—6 ár
og meðferðarmöguleikar vímu-
efnaneytenda og segja má að það
sé ekki lengur forgangsverkefni
að auka rými fyrir áfengissjúkl-
inga, svo að dæmi sé nefnt um
• þá ...
Hinsvegar hefur það verið for-
gangsverkefni nú um nokkur ár
að fá sérstaka unglingageödeild. Á
fjárlögum ársins er einmitt heim-
ild til makaskipta á jörðinni Úlf-
arsá í Mosfellssveit og húsnæði
barnageðdeildar við Dalbraut...
Takist þessi kaup er það hug-
mynd ráðuneytisins að setja í
lÁTUM FRIÐARIJÖSíf)
ríSA UPP JOLAHATÍÐIíVa
MEÐ WI HMLrnRSTARF KIRKjV$
Á aðfangadag kl. 12.30—17.30 verða friðarljósin seld við eftirfarandi staði:
Fossvogskirkjugarð (3 hlið), Kirkjugarðinn við Suðurgötu,
Kirkjugarðinn í Hafnarfirði, Gufuneskirkjugarð.
Kirkjuhúsið Klapparstíg 27 sími 21090
KeJ
Hjálparstofnun kirkjunnar