Morgunblaðið - 22.12.1985, Qupperneq 52
HUEKKURIHHMSKHMU
muni() trulofunarhrinya
litmvndalistann fTD)
#ull $c é>tlfur
Laugavegi 35
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Mikið verslað
fyrir jólin
— Islenskar bækur og hljómplötur seljast mjög vel
Ljósaperur í skammdeginu
MorKunblaðið/Ol.K.Mag.
HINIR þekktu söngvarar Kristinn Hallsson og (.uðmundur Jónsson, voru í gærmorgun að selja Ijósaperur
fyrír Lions-hreyfinguna í Austurstræti. Viðskiptin gen>fu vel og hér má sjá Gísla Ástþórsson, blaðmann, og
Sigurð Gíslason, hótelstjóra, kaupa af þeim perur.
SVO virðist sem fólk versli meira
fyrir þessi jól en undanfarin ár.
Morgunblaðið hafði samband við
eina hljómplötuverslun, bókaversl-
un og leikfangaverslun og leitaði
álits verslunarstjóra á þessu.
„Það er greinilegt að bóksala er
mjög góð fyrir þessi jól“ sagði
Einar Oskarsson verslunarstjóri í
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar. „Að okkar áliti er hún tölu-
vert meiri en undanfarin ár. Ein
skýringin gæti verið sú að
greiðslukort eru mikið notuð og
salan tók verulegan kipp eftir 18.
desember, þegar nýtt greiðslu-
kortatímabil hófst. En salan hefur
annars verið mjög jöfn í desember-
mánuði. Sérstaklega er góð sala í
íslenskum bókum" sagði Einar.
„Ég held að hljómplötusala hafi
aukist um a.m.k. 70% frá því í
fyrra" sagði Sigurgeir Sigurðsson
verslunarstjóri í Hljómplötuversl-
un Karnabæjar í Glæsibæ. „Það
er erfitt að segja hvað veldur
þessu, en salan á plötunni Hjálpum
þeim hefur sitt að segja. Eg held
að hún hafi almennt aukið áhuga
manna á plötum. Mest hefur selst
af íslenskum plötum. Á lista yfir
10 söluhæstu plöturnar eru t.d. 9
íslenskar. Salan jókst einnig mjög
mikið eftir 18. desember og eftir
það greiðir um helmingur við-
skiptavina með greiðslukorti"
sagði Sigurgeir.
Jón Pétursson verslunarstjóri í
Tómstundahúsinu sagði að framan
Kfeilmálmverksmiðja á Reyðarfírði:
Rio Tinto Zink vill
eiga 60 % hlutafjár
af desembermánuði hafi hann
orðið var við aukna sölu. Eftir það
hafi salan verið jafnari. „Líklega
er salan fyrr á ferðinni en undan-
farin ár. Þó er erfitt að segja til
um hver ástæðan er. Undanfarin
tvö ár hefur mikið verið greitt með
greiðslukortum og nú er greinileg
aukning í notkun þeirra. Ein skýr-
ingin á aukinni sölu hjá okkur er
eflaust sú að í fyrra vantaði okkur
vörur vegna verkfallanna í fyrra-
haust, en nú höfum við mun meira
framboð af vörum".
Verðbréfaþing íslands;
Tilrauna-
starfsemi
er hafín
Tilraunastarfsemi er hafin hjá
Verðbréfaþingi íslands en engin við-
skipti með verðbréf hafa þó enn farið
fram fyrir milligöngu þess.
Sigurgeir Jónsson, formaður
stjórnar Verðbréfaþings Islands,
sagði að tölvukerfið væri tilbúið
og búið að skrá töluvert af sölutil-
boðum, einkum á spariskírteinum
ríkissjóðs, en enn vantaði meira
af kauptilboðum. Sagði hann að
fyrstu viðskiptin fyrir milligöngu
Verðbréfaþingsins gætu tekist
hvenær sem er úr þessu.
Kaupendur eða seljendur verð-
bréfa eiga að snúa sér til aðila
Verðbréfaþingsins óski þeir að
skrá kaup- eða sölutilboð hjá því.
Landsbankinn, Iðnaðarbankinn,
Kaupþing og Fjárfestingarfélag
íslands eru aðilar að þinginu.
FULLVfST má telja að Rio Tinto Zink Metals gerist meirihlutaeigandi að
Kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, samkvæmt öruggum heimildum Morg-
unblaðsins. Er væntanleg sameiginleg yfirlýsing frá Rio Tinto Zink og
samninganefnd um stóriðju á morgun, þar sem greint verður frá fvrir-
huguðu samstarfi.
Haarde aðstoðarmaður fjármála-
ráðherra og Axel Gíslason aðstoð-
arforstjóri Sambands íslenskra
samvinnufélaga.
Það sem einkum er búist við að
tekist verði á um í samningavið-
ræðunum, a.m.k. til að byrja með
er raforkuverð.
DAGAR
TILJÓLA
Ken Sangster tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Rio Tinto var hér á
fundi með samninganefnd um
-stóriðju og ráðgjöfum þeirra í
fyrradag þar sem kom fram að
Rio Tinto Zink er reiðubúiö að
ganga til samningaviðræðna á
þeim grundvelli að Rio Tinto eigi
60% eignarhlut f verksmiðjunni,
en íslenska ríkið 40%. Er búist við
því að samningaviðræður hefjist
fljótlega upp úr áramótum.
Er talið að samningaviðræður
taki nokkurn tfma, eða 6 til 12
mánuði. Það er því ekki hægt á
þessu stigi að segja til um hvenær
verksmiðjan rís, eða hver bygging-
artími hennar verður.
Ollum hugleiðingum um bygg-
ingu kísilmálmverksmiðju að
Grundartanga f samvinnu við
Elkem er því lokið, a.m.k. um sinn.
f samningaviðræðunum við Rio
Tinto sem hefjast eins og áður
greinir eftir áramót verður samn-
inganefnd um stóriðju samnings-
aðili rfkisins. Birgir lsleifur Gunn-
arsson alþingsmaður er formaður
þeirrar nefndar en aðrir nefndar-
menn eru Guðmundur G. Þórar-
insson verkfræðingur, Geir H.
'Annir hjá lög-
reglu í fyrrinótt
LÖGREGLAN í Reykjavík átti
óvenju annasamt kvöld og nótt á
'v^ístudagskvöld og aðfaranótt laug-
ardags.
Að sftgn Guðmundar Hermanns-
sonar lögregluvarðstjóra var mikið
um ölvun og var lögreglan kvödd
oft út vegna slagsmála og ölvunar.
Þurfti að flytja allmarga á slysa-
deild eftir slagsmál.
Hrottaleg árás
á lögreglumann
Árásin gerð vegna starfa hans að fíkniefnamálum
RÁÐIST var á lögregluþjón fyrir utan veitingahúsið Broadway í fyrrinótt
og honum misþyrmt. Lögregluþjónninn starfar í ffkniefnadeild lögregl-
unnar og var gestur á veitingahúsinu og óeinkennisklæddur. Hann var
fyrir utan Broadway þegar fyrirvaralaust var sparkað í hann, svo hann
féll í götuna og um leið sagði árásarmaðurinn „fíkniefnahundur“ og
réðst á lögregluþjóninn áður en hann náði að jafna sig eftir sparkið.
Þykir Ijóst að árásin sé vegna starfa lögreglumannsins við fikniefna-
deild lögreglunnar i Reykjavík.
Lögregluþjónar, sem kallaðir
voru að Broadway vegna ölvunar
og slagsmála í húsinu, komu að
þegar árásarmaðurinn sat klof-
vega á lögreglumanninum, sem
gat enga björg sér veitt, og barði
ítrekað i andlitið. Lögreglumenn
fóru þegar á staðinn og stóð árás-
armaðurinn þá upp og sparkaði
i andlit lögreglumannsins og
skrokk áður en tókst að stöðva
hann.
Lögregluþjónninn var fluttur
í slysadeild Borgarspitalans og
fékk að fara þaðan í gærmorgun.
Hann er ekki alvarlega slasaður,
óbrotinn en óttast að liðbönd f
öxl hafi slitnað. Þá er maðurinn
mikið marinn. Árásarmaðurinn
var handtekinn. Hann hefur
ítrekað komið við sögu afbrota-
mála.