Morgunblaðið - 12.01.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1986
47
„Drengskapurinn
í fyrsta sæti“
— segir Halldór Sighvatsson hjá
Umboðsþjónustunni sem nú hefur
starfað ítæpa 2 mánuði
Hljómsveitin Voice er meðal þeirra sem kemur fram á rokkhljóm-
leikunum íTónabæ.
„Sjátfur er óg þrjóskur að eðl-
isfari og hef afar gaman af því
að reyna að koma óþekktum
listamönnum á framfæri. Það er
jú öllu erfiðara," sagði Halldór
Sighvatsson, annar framkvæmda-
stjóri Umboðsþjónustunnar sem
hefur nú starfað í rétta tvo mánuði.
Umboðsþjónustan býður alhliöa
miðlunarþjónustu fyrir hljómsveitir
RokkíTónabæ:
Sue Ellen og
Sviðakjammar
í tengslum við Listahátíð unga
fólksins verða haldnir tvennir
rokktónleikar í Tónabæ næst-
komandi mánudags- og þriðju-
dagskvöld. Þar verða nokkrar
af yngstu og efnilegustu hljóm-
sveitum landsins sem flytja
frumsamin verk að mestu leyti.
Mikill áhugi er nú á lifandi
tónlist meðal ungs fólks og
verða rokktónlist því gerð ræki-
leg skil á Listahátíð unga fólks-
insað þessu sinni.
Á mánudagskvöldið koma
fram eftirtaldar hljómsveitir:
Sue Ellen frá Neskaupstað,
Ofris frá Keflavík, Antarah úr
Kópavogi, Fyrirbæri frá Reykja-
vík.
Á þriðjudagskvöldið koma
svo fram hljómsveitirnar:
Voice frá Reykjavík, Black
widow frá Reykjavík, Klo time
frá Reykjavík, Rock head frá Vík
í Mýrdal og Sviðakjammar frá
Reykjavík.
Báðir hljómleikarnir hefjast
klukkan 20.00 og er aðgangur
ókeypis eins og á aðra þætti
Listahátíðar unga fólksins.
Hljóðstjóri verður Bjarni Frið-
riksson og kynnir Hermann
Erlingsson.
"
og skemmtikrafta á höfuðborgar-
svæðinu og um land allt.
Gerið þið ykkur vonir um að
verða ríkir á þessu?
„Ekki strax allavega, en þetta
er ekki gert í hugsjónaskyni. Auð-
vitað gerum við okkur vonir um
tekjur," svarar Halldór.
Hefur verið nóg að gera?
„Það er óhætt að segja það.
Nú þegar höfum við fullt af nöfnum
á okkar snærum og síminn hefur
vart stoppað hérna hjá okkur."
Hvaða nöfn?
„Til dæmis Magnús Þór Sig-
mundsson, Rikshaw, Stuðmenn,
Drýsil, Herbert Guðmundsson og
Rokkbræður."
Hvað er mest beðið um?
„Það er kannski frekar beðið um
sólóista en hljómsveitir en það er
skiljanlegt frá hagsýnissjónar-
miði."
Menn taia oft um poppara sem
„vonda menn“. Hjá þeim sóu svik
og prettir. Hverer þín reynsla?
„Mín reynsla er bara góð. Það
hefur allt gengið mjög vel yfir heild-
ina. Að vísu hefur það einu sinni
komið fyrir að við höfum verið
sviknir en vonandi endurtekur það
sig ekki. Drengskapurinn verður
alltaf að vera í fyrsta sæti," svarar
Halldór.
Þeir hjá Umboðsþjónustunni
hafa á sinni könnu trúbadúra sem
þungarokkshljomsveitir, gömlu-
dansatríó sem gamanvísnasöngv-
ara og allt þar á milli. Einnig sér
Umboðsþjónustan um dansleikja-
og skemmtanahald fyrir félög og
fyrirtæki, útvegar húsnæði og sér
um auglýsingar.
Skrifstofa fyrirtækisins er á
Laugavegi 34b og er hún opin
mánudaga til föstudaga frá
18-22.
ORLITIÐ ERLENT
Duran Duran er nú skrásett vörumerki. Piltarnir í þessum vel snyrta
flokki eru þúnir að fá sig fullsadda af ribþöldum sem nota nafn
þeirra í tíma og ótíma . . .
I þessari viku kom út í Bretlandi kassi með 5 plötum sem innihalda
lög með Bob Dylan og spannar 24 ára feril einmana kassagítarleikar-
ans fyrrverandi. Þarna er að finna 53 lög auk 18 laga sem ekki
hafa komið út áður...
lan Stewart, sá sem stofnaði Rolling Stones ásamt Brian Jones, lést
12. desember síðastliðinn. Lést hann af völdum hjartaáfalls. Stewart
varð47 ára gamall.
Andrew Loog Oldham, framkvæmdastjóri Rolling Stones framan af,
vildi ekki láta Stewart koma fram með Stones á
hljómleikum í upphafi ferils þeirra vegna táninga-
ímyndar sveitarinnar. Þessi skemmtilegi píanóleik-
ari varð því að láta sér nægja að leika á hljómplöt-
um hljómsveitarinnar. í byrjun áttunda áratugarins
fékk Stewart svo loksins að koma fram með
Stones á hljómleikum og var þá opinberlega stað-
fest sú staðhæfing að hann væri sjötti maðurinn
í Rolling Stones. Síðustu árin lék hann með jass-
hljómsveit Charlie Watts. Bill Wyman sagði þegar
Stewart lést: „Án hans hefðu Rolling Stones aldrei
orðið til," og það er mikið til í því...
Þá er Duran Duran
orðið skrásett
vörumerki. Félag-
arnir i flokknum
sjást hór fyrir
framan Akureyrar-
kirkju. Nei, nei.
Fyrir framan Eiffel-
turninn í París.
Auðvitað.
íslenskt popp 1985:
Lesendur
velja það besta
Það var mikil gróska í íslenskri dægurtónlist á
árinu 1985. Á milli 60 og 70 hljómplötur litu dagsins
Ijós og sala á hljómplötum fyrir jólin var meiri en
síðustu ár. Nokkrir nýliðar komu fram á sjónarsviðið
og menn eru á því aö fjölbreytnin í heimi dægurlaga-
tónlistar og rokktónlistar hafi aukist. íslensk tónlist-
armyndbönd skipuðu mun meiri sess en áður í
auglýsingum og kynningum á hljómplötum og voru
mörg þeirra hreint ágæt og gott betur.
Lesendum Morgunblaðsins gefst nú tækifæri til
að segja skoðun sína á íslensku poppi og rokki árs-
ins 1985 með því að fylla út seðiiinn hér á síðunni
en kosiö er um bestu hljómsveit eða listamann,
besta söngvarann, bestu söngkonuna, bestu hljóm-
plötuna (breiðskífuna), besta lagið, bestu laga- og/
eða textasmiði, besta hijóðfæraleikarann, besta
plötuumslagið, besta tónlistarmyndbandið og björt-
ustu vonina. Þessi seðill mun birtat aftur í Popparan-
umaðviku liðinni.
Mörgum kann aö þykja erfitt að gera upp á milli
allra þeirra ágætu listamanna sem létu til sín taka
á árinu 1985 en þó hlýtur eitthvað að vera lesendum
ofar í huga en annað. Leggið nú höfuðið vandlega
í bleyti og takið endilega þátt í þessu vali eða þess-
ari kosningu öllu heldur. Látið nafn ykkar, heimilis-
fang og síma fylgja og munið aö hver maöur má
aðeins senda einn seðil. Skilafrestur er tll 21. jan-
úar. Merkið umslagið:
Morgunblaðið, c/o Popparinn,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavlk.
Gangi ykkur vel og megi þeir bestu bera sigur úr
býtum.
■>s