Morgunblaðið - 20.02.1986, Blaðsíða 14
ÓSA/SIA
14
MORGUNBLADIÐ, PIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Pú getur uimlð
125.000 tatar
i verdlaun fyiir gott
nafh á stóra
verslanahúsíð í
nýja miðbænum.
í nýja miðbænum í ReyKjavík
er veiið að reisa mikla byggingu, sem
hýsa á Qölmargar verslanir, veitinga- og
þjónustufyrirtæki.
í raun og veru er húsið samfellt
verslanaþorp með yfirbyggðum göngu-
götum á tveim hæðum.
Við þessar götur verða allt að
90 fyrirtæki, allt frá fatahreinsun til
stórmarkaða.
Góð verðlaun
Hagkaup hf. efnir til verðlaunasamkeppni um nafn á nýja stórhýsið.
Um samkeppnina gilda eftirfarandi reglur:
1. Tillaga að nafni póstleggist í lokuðu umslagi með eftirfarandi utanáskrift:
Mafnakallar
Pósthólf 1444
1^.1 Reykjavík
2. Vinsamlega látið aðeins eina tillögu í hvert umslag, og gleymið ekki að merkja
tillöguna greinilega með nafni og heimilisfangi höfundar.
3. Umslagið verðurað vera póststimplað í síðasta lagi þann 14. mars 1986.
4. fyrstu verðlaun eru 125.000 krónur, en dómnefnd getur veitt fleiri verðlaun,
ef hún telur þess þörf.
5. Þátttaka í samkeppninni er öllum heimil.
6. Ef fleiri en einn leggja til það nafn, sem dómnefnd telur best,
verður dregið um hver þeirra hljóti peningaverðlaunin.
Dómnefnd
Sérstök dómnefnd mun velja bestu nöfnin, en áskilur sér rétt til að hafna
þeim öllum, ef hún telur engin þeirra nægilega góð.
Skáldsaga
og smásögur
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Clive Barker: Damnation Game.
Weidenfeld and Nicolson 1985.
George Steiner: Anno Domini.
Faber and Faber 1985.
Clive Barker er þekktur leikrita-
höfundur og dráttlistarmaður, hann
hefur samið sex bindi smásagna,
meðal þeirra eru „Books of Blood"
I-III. Þessar smásögur Barker eru
taldar með best gerðu hryllingssög-
um sem settar hafa verið saman á
síðustu árum og vöktu mikla at-
hygli.
„The Damnation Game“ er fyrsta
skáldsaga höfundar. Marty Strauss
bíður þess í fangelsinu að hann
geti farið og þvegið sér og rakað
sig, hann bíður eftir að komast í
mat, hann bíður og bíður eftir að
komast út, verða frjáls maður og
svo er hann kallaður á skrifstofuna
til nokkurs konar skoðunar. Og eftir
nokkum tíma berast honum skila-
boð um, hvort hann vilji gerast
aðstoðarmaður, þjónn og lífvörður
auðugasta manns í Evrópu, þar sem
hann býr á herragarði út í sveit.
Joseph Whitehead heitir hann, einn
af þessum sjálfgerðu uppgangs-
mönnum, sem hafði auðgast á efna-
iðnaði og átti eitt mesta fyrirtæki
í þeirri grein í heiminum. Andrúms-
loftið á landsetrinu líkist því að von
væri á árás á hverri stundu, raf-
magnaðar girðingar umhverfis,
flóðlýsing um nætur og varðhundar.
Whitehead virtist lifa í stöðugri
skelfingu við dulin öfl. Hryllingsat-
burðir taka að gerast, hlutabréfin
í fyrirtækjum Whiteheads hrapa í
kauphöllunum og óttinn eykst.
Vofur fortíðarinnar taka að
ganga aftur, glæpaverk White-
heads eitra umhverfið og limlestar
afturgöngur eru á gangi umhverfis
hann, þrátt fyrir allar varúðarráð-
stafanir. Hann segir Marty sögu
sína og heimar hryllings, varúlfa
og morða opnast. Hryllingurinn
verður yfirþyrmandi, full yfirþyrm-
andi.
Endalokin verða þau, að White-
head finnst dauður, afturgöngumar
fara sömu leið, gufa upp og mar-
tröðinni virðist linna.
Anno Domino eru þijár smásög-
ur, sögusviðið síðari heimsstyijöld
og eftirhreytur hennar. Minningin
um ofbeldisverk, morð og pyntingar
lifír í hugum allra aðalpersóna
þessara sagna, þær eru allar and-
lega dauðar, hafa aldrei náð því að
komast yfir hrylling minninganna,
hatrið blómstrar og fortíðin verður
nútíðinni magnaðri.
Þessar sögur eru hver annarri
áhrifameiri. Sögurnar komu fyrst út
1964 og eru nú endurprentaðar.
Höfundurinn George Steiner er
kunnur fyrir rit sín: Language and
Silence, Death of Tragedy, Blue-
beards Castle ofl. Sýnishom úr rit-
um hans hefur birst í George Stein-
er: A Readeer, Penguin Books
1984.
Skefjalaust ofbeldi
lega hjartalaus morðingi sem
engu eirir og síst konum, bömum
og gamalmennum. Hann vinnur
fyrir glæpaforingja sem lifir á
því að koma stolnum skartgripum
í verð en fyrst verður að fela þá
um tíma og felustaðurinn er húsið,
sem ungu hjónin frá Japan flytja
inní ásamt sonum sínum tveimur,
þegar þau koma til New York.
Svo vill til að dýrmæt hálsfesti
hverfur úr felustaðnum og bófam-
ir grimmu gruna Japanana um
að hafa tekið hana. Þar með
upphefst blóðbað sem engan enda
ætlar að taka.
Biddu þér dauða er annars eins
og flestar aðrar karatemyndir. í
henni er allt þetta venjulega:
skáldaðar stunur og yfirdrifin
leikhljóð, heljarstökk og sverða-
glamur og tómatsósa er hvergi til
spöruð. Það, sem er svolítið öðm-
vísi við þessa mynd, er að mest-
allt ofbeldið í henni beinist gegn
konum og bömum: bófamir kýla
tíii ára gamlan strák í götuna,
þeir keyra sjö ára gamlan strák
niður ásamt mömmu sinni og
seinna er mamman rist á kviðinn
af Limehouse glottandi.
Ef einhvem boðskap er að finna
í þessari mjmd er hann helst sá
að fólk ætti ekki að flytja til
Ameríku ótilneytt.
Æsir á litmynd
GOÐAÚTGÁFAN hefur gefið út
litprentaðar myndir af goðum
og gyðjum í ásatrú ásamt skýr-
ingum á myndunum og stuttri
frásögn af hveiju goði.
Út em komnar myndir af Óðni,
Þór, Freyju, Iðunni og Loka.
Myndimar eru eftir Hauk Hall-
dórsson listmálara og eru 40—50
sm á stærð. Frásagnimar eru eftir
Sveinbjöm Beinteinsson allsheijar-
goða.
Fyrirhugað er að gefa út fleiri
myndir.
Þór þrumuguð í ham.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
I upphafi karatemyndarinn-
ar Biddu þér dauða, sem sýnd
er í A-sal Laugarásbíós, eru ungu
japönsku hjónin, er myndin segir
frá, að ræða um að flytja til
Ameríku og hefja þar nýtt líf.
Hún vill óð og uppvæg fara til
draumalandsins en hann er hik-
andi og óttast um framtíðina í
hinni ofbeldisfullu Ameríku. Og
ótti hans reynist á rökum reistur
því það eina sem Japaninn ungi
og fjölskylda hans kynnast þegar
þau koma til fyrirheitna landsins,
er ofbeldi og meira ofbeldi. Slæm
landkynning það.
Næstum eini Ameríkaninn í
allri myndinni, sem ekki er níðing-
ur, er drepinn mjög fljótlega. Það
sem bjargar japananum unga
(Sho Kosúgi) hins vegar frá því
að týna lífi í baráttunni við vondu
kallana er kunnátta hans í jap-
anskrí sjálfsvamaríþrótt: hann er
„hinja". Og ekki veitir af því
vondu kallamir í þessari mynd eru
virkilega vondir.
Sá alversti af þeim heitir Lime-
house Willy (meistaralega leikinn
af James Booth, sem einnig skrif-
aði handritið). Hann er gersam-