Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
Eftirlit er nauðsynlegt með
innflutningi náttúrumeðala
eftir Guðjón
Magnússon
Om Svavarsson verzlunarmaður
sendir mér opið bréf í Morgun-
blaðinu 11. febrúar 1986 undir
fyrirsögninni „Brot á mannréttind-
um“.
Tilefni bréfs Amar er að frétta-
maður sjónvarps leitaði til mín um
upplýsingar um náttúrumeðul. Öm
Svavarsson hafði þann sama dag
boðað fjölmiðla í húsakynni heil-
brigðis- og tryggingamálaráðunejrt-
isins til að verða vitni að því að
hann afhenti Lyfjaeftirliti ríkisins
vörur sem hann hafði haft til sölu
án heimildar. Öll er þessi uppá-
koma furðuleg og enn eitt dæmi
þess að þeir sem gerast brotlegir
við lög skammast sín ekki þegar
þeim er sýnd tillitssemi og vinsam-
legast beðnir að láta af ólögmætri
iðju heldur hreykja sér af því!
Samkvæmt lögum hefur verið
eftirlit með því af hálfu heilbrigðis-
yfirvalda allar götur síðan árið 1969
hvaða náttúrumeðulum er heimiluð
sala á.
Frá því á árinu 1978 hefur fram-
kvæmd verið með þeim hætti að
innflytjandi vömnnar leggur inn
hjá Lyfjaeftirliti ríkisins umsókn um
að fá að flytja inn og selja náttúm-
meðal. Með umsókn fylgir sýnis-
hom af vöranni. Fulltrúar lyfja-
nefndar og landlæknisembættisins
meta síðan ásamt lytjaeftirlitinu
umsóknimar. Byggist það mat
einkum á upplýsingum á umbúðum
um innihaldsefni, magn þeirra,
eiginleika, áletranir og notkunar-
fyrirsögn.
Umfjöllun um vörategundimar
hefur reynst vera vandasamt og
tímafrekt starf enda umsóknir verið
að meðaltali nálægt 200 á ári.
Við mat á vörategundunum hefur
verið fylgt eftirfarandi vinnuregl-
um:
1. Heimila ekkert sem talið er að
valdið geti heilsutjóni.
2. Fylgja ákvæðum lyfjalaga
þ.e.a.s. leyfa ekki sölu á vörateg-
undum sem innihalda lyf eða
virk efni sem seld era sem lyf.
3. Leyfa sölu á vörategundum sem
innihalda vítamín og steinefni í
hæfilegu magni en þó aldrei
meira en svo að tryggt sé að
eigi hljótist af heilsutjón sé
þeirra neytt eins og ráðlagt er
á umbúðum.
4. Banna skilyrðislaust innflutning
ef á umbúðum er lofað lækn-
ingamætti við tilteknum sjúk-
dómum eða sjúkdómseinkenn-
um.
Þetta er sjötta árið sem það hefur
fallið í minn hluta að meta umsóknir
um innflutning á náttúrameðulum
af hálfu landlæknisembættisins.
Mér er minnisstætt atvik fyrsta árið
sem ef til vill lýsir betur en mörg
orð að ekki er vanþörf á eftirliti og
að saklausum neytendum hefur
verið beitt á heilbrigðisyfírvöld af
óprúttnum aðilum til að kvarta yfír
sölubanni á „náttúravöra".
Til mín komu þrír aldnir heiðurs-
menn, uppalendur æskulýðs og
bindindisfrömuðir. Var erindi þeirra
að kvarta yfír að elexír sem til sölu
hafði verið í verslun einni í Reylq'a-
vík og þeir þrír kváðust hafa haft
góð not af, sérstaklega fyrir svefn,
væri nú bannvara. Þótti þeim þetta
ólög hin mestu sem bönnuðu fólki
að nota „seyði af jurtum" eins og
þeir kölluðu það. Ég tók fram
umsóknina og sá að ástæðan fyrir
því að sala þessarar vörategundar
hafði verið stöðvuð var að „seyðið"
var með miklu magni af vínanda!
Brá þeim mjög við þetta og varð
einum að orði: Hver skollinn, ekki
sagði NN okkur þetta! Það var þá
innflytjandinn sem stóð á bak við
komu þessara heiðursmanna á minn
fund.
Reynt hefur verið að fá fluttar
inn vörategundir sem heilsubótar-
efni er hafa reynst innihalda skað-
leg efni og sýkla. Má þar nefna
Dr. med. Guðjón Magnússon
„Frá 1978 hefur fram-
kvæmd verið með þeim
hætti að innflytjandi
vörunnar leg-gur inn
hjá Lyfjaeftirliti ríkis-
ins umsókn um að fá
að flylja inn og selja
náttúrumeðal. Með
umsókn fylgir sýnis-
horn af vörunni. Full-
trúar lyfjanefndar og
landlæknisembættisins
meta síðan ásamt lyfja-
eftirlitinu umsóknirn-
ar.“
blásýrasambönd, arsenik og opíum
en alls era það rúmlega 70 efni sem
fundist hafa í vörutegundum sem
reynt hefur verið að flytja inn en
verið stöðvað. Mörg era þessi efni
lyfseðilsskyld, önnur öragglega
hættuleg heilsu manna og enn
önnur varhugaverð. Með góðri
samvinnu við tollgæsluna hefur
verið unnt að fylgjast með innflutn-
ingi en þó eru brögð að því að
einstaka innflytjandi reynir að
komast hjá eðlilegri umfjöllun vöru-
tegundar t.d. með því að flytja inn
ópakkaða vöru undir heitinu „te“.
Öm Svavarsson spyr mig hvað ég
mundi gera ef til mín kæmi móðir
astmasjúks bams og bæði um
náttúrameðal. Ég er læknir, og hef
því leyfí til að liðsinna þessari konu
(bami), en þú hefur hins vegar
ekkert leyfi til þess. Verzlunarleyfíð
veitir þér ekki lækningaleyfi. Ef þú
gerir svo lítið sem að gefa í skyn
að tiltekið efni sem þú selur sé
gott við astma eða öðram sjúkdómi,
era það skottulækningar.
Þú spyrð einnig: „Hví era þessi
efni hættuleg íslendingum á sama
tíma og fólk annarra landa notar
þau sér til heilsubótar?“
Hér era nú skráð 650 náttúra-
meðul. Til samanburðar era hér
skráð um 950 sérlyf. Ég fullyrði
að eftirlitið með innflutningi á
náttúrameðulum hafí hjálpað al-
menningi meira en skaðað og sé
því heilsuvemd og um leið neyt-
endavemd.
Höfundur er aðstoðarlandlæknir.
3
3
F
í TOYOTA CAMRY sameinast mikil þœgindi og góðir aksturseiginleikar.
® Með þverstœðri vél og framhjóladrifi
myndast geysimikið innanrými og sœtin eru fyrsta flokks.
Vélin hefur mikinn kraft og góða snerpu, en er auk þess
hljóðlót og eyðslugrönn.
Ýmis annar tœknilegur búnaður hefur llka sitt að
segja um þœgindi og góða aksturs-
eiginleika.
TOYOTA CAMRY GL SPECIAL
SERIES er sérbúinn bíll, þar sem
saman fara aukin þœgindi
og útlit sem vekur
athygli.
Renndu við í reynsluakstur
og þú sannfœrist um að CAMRY GL SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
TOYOTA,„