Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
AP/Símamynd
Rússneski skipstjórinn
fyrir sjórétti
Skipstjóri rússneska farþegaskipsins Mikhail Lermontov, sem
sökk við Nýja-Sjáland á sunnudag, kemur fyrir sjórétt í Welling-
ton á þriðjudag. Skipstjórinn, Valdislav Vorobyev, er fyrir miðju
á myndinni. Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa fyrirskipað rann-
sókn á björgunarútbúnaði skipsins og sagt að svo virðist sem
honum hafi verið stórlega ábótavant. Sérstök rannsóknarnefnd
hefur verið sett á laggirnar til að kanna þetta mál, en skýrslur
yfirmanna í sjóhernum herma að björgunarbátar skipsins hefðu
verið fúnir og annar björgunarbúnaður í mjög slæmu ástandi.
Óveðrið í vesturhluta Bandaríkjanna:
10 manns hafa látist
og fjögnrra er saknað
Yfir 10.000 heimilislausir
New York, 19. februar. AP.
FIMMTA stórviðrið í átta daga óveðurshrinu brast á í vesturhluta
Bandaríkjanna í dag. Að minnsta kosti 10 manns hafa látið lífið á
þessum tíma og fjögurra er saknað, auk þess sem yfir 10.000 manns
hafa misst heimili sín vegna flóða, skriðufalla og snjóflóða.
„Bærinn okkar er horfinn," sagði
Beatrice Wood, sem bjargað var upp
í þyrlu við bæjarkirkjuna í Guern-
ville í Kaliforníu. Þyrlur frá flotan-
um voru fengnar til að bjarga fólki,
sem var í nauðum statt í kirkjuhús-
inu.
Amar Truckee og Carson flutu
yfir bakka sína, og var fólki í
mestum hluta Norður- og Mið-
Kaliforníu ráðlagt að búa sig undir,
að flóðin gætu aukist skyndilega í
dag. Búist var við að yfir 30 sm
af snjó mundi kyngja niður í kvöld
á Sierra Nevada-svæðinu, svo og í
Idaho, Montana og Wyoming.
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfír í þremur sveitarfélögum í Kali-
fomíu, fjórum í Nevada og einu í
Utah. Þjóðvarðliðar hafa verið kall-
aðir út í Nevada og Kalifomíu og
hafa þeir aðstoðað við björgun
nauðstaddra og hleðslu flóðgarða.
Að minnsta kosti 10 manns hafa
látið lífíð og fjögurra er saknað frá
því að óveðurshrinan hófst á þessu
svæði 11. þ.m. Eftir stutt hlé gerði
nýtt áhlaup í gærkvöldi og varð
Kalifornía enn verst úti.
Á síðastliðnum fimm dögum
hefur úrkoma þar verið um helm-
ingfur af meðalársúrkomu, að sögn
veðurstofumanna í Redwood City.
I Massachusetts hafa þúsundir
manna verið án rafmagns lang-
tímum saman í dag, og unnu vinnu-
flokkar að viðgerðum á línum, sem
slitnað höfðu undan ísingu eða fall-
andi tijágreinum.
Bofors fær að selja vopn
ERLENT,
til Indónesíu og Pakistan
Stokkhólmi, 19. febrúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbladsins.
SÆNSKA STJÓRNIN, sem er andvíg vopnasölu í orði, hefur veitt
Bofors-fyrirtækinu, leyfi til að selja vopn til Indónesíu og Pakistan
og er verðmæti vopnasölunnar einn milljarður sænskra króna.
Stjómin veitti leyfí fyrir vopna- Hingað til hefur sænska stjómin
sölunni eftir að þingnefnd, sem synjað Bofors um leyfí til vopnasölu
flallar um hergagnasölu sænskra til Indónesíu og Pakistan, einkum
fyrirtækja, hafði veitt samþykki vegna meints vopnasmygls fyrir-
sitt. tækisins til Bahrain og Sameinuðu
Suður-Kórea:
Handtökur vegna baráttu
fyrir beinum kosningum
Seoul, Suður-Kóreu 19. febrúar. AP.
LEIÐTOGI stjórnarandstöð-
unar í Suður-Kóreu, Kim Young-
Sam, var settur í stofufangelsi á
ný á miðvikudag og er það liður
í aðgerðum stjórnvalda þar til
að koma í veg fyrir baráttu fyrir
beinum forsetakosningum. Er
þetta i þriðja skiptið á einni viku
sem hinn 58 ára gamli Kim er
settur í stofufangelsi en Kim
Dae-jung, sem er annar leiðandi
baráttumaður fyrir beinum kosn-
ingum, hefur verið í stofufang-
elsi alla síðustu viku.
Um 30 manns eru í gæsluvarð-
haldi vegna málsins og hafa þeir
verið yfirheyrðir vegna aðgerða
stjómarandstöðunnar sem reynt
hefur að safna 10 milljón undir-
skriftum til að knýja á um beinar
forsetakosningar. Stjómarandstað-
an heldur því fram að fyrirhugað
kosningafyrirkomulag, sem byggir
á kjöri kosningafulltrúa, sé hliðholt
þeim flokki sem fer með völd í
landinu.
furstadæmanna um Singapore, og
vegna vopnasölu þess til Irans.
Vopnin, sem seld verða til Indó-
nesíu og Pakistan, em ætluð til
loftvama. Pakistönum verða seldar
sjálfvirkar loftvarnarbyssur af
gerðinni RBS-70, sem skjóta eld-
flaugum. Hluti búnaðarins em rat-
sjár frá Ericsson-fyrirtækinu að
verðmæti 235 milljónir króna. Indó-
nesíumönnum verða seldar 40 og
57 millimetra hreyfanlegar loft-
vamarbyssur að verðmæti 250
milljóna sænskra króna.
Mats Hellström, utanríkisvið-
skiptaráðherra, var mjög andvígur
vopnasölu til Indónesíu og Pakistan,
og annarra ríkja þriðja heimsins,
meðan hann var í stjómarandstöðu,
en eftir að hann varð ráðherra hefur
hann skipt um skoðun og barizt
fyrir málstað Bofors-fyrirtækisins.
Hann hefír m.a. komið því til leiðar
að líklega gengur Bofors senn frá
viðamiklum samningi við Indveija
um sölu á hergögnum þangað, fyrir
um átta milljarða sænskra króna.
Þá keppir Bofors við svissneskt
fyrirtæki um sölu á loftvamar-
búnaði til Kanada fyrir fjóra millj-
arða.
Suður-Afríka:
Tutu skorar
á vestræna
banka að
semja ekki
Jóhannesarborg, 19. febrúar. AP.
ÍBÚAR i hverfi blakkra í Jóhann-
esarborg segja að þijár manneskj-
ur til viðbótar hafi fundist dánar
og hafa þá samtals 22 látist í óeirð-
um þar, sem hófust á laugardag.
Lögregla fór hús úr húsi i dag og
handtók hundruðir herskárra
blökkumanna, að sögn ibúanna,
en lögregla neitaði að staðfesta
að um handtökur hefði verið að
ræða.
Biskupinn Desmond Tutu skoraði
á vestræna banka að semja ekki um
nýja endurgreiðsluáætlun erlendra
skulda Suður-Afríku. í bréfí Tutu,
sem aðrir leiðtogar kirkjunnar í
Suður-Afriku undirrita einnig, er
farið fram á það við bankana að þau
beiti suður-afrísk fyrirtæki sömum
þvingunum og ríkisstjómina, þar til
ný ríkisstjórn hefur verið mynduð,
sem kjörin er af allri þjóðinni, en
ekki litlum minnihluta.
23
BARNAÖRYGGI
Börnunum er óhætt í baði
þarsem hitastillta Danfoss
baðblöndunartækið gætir
rétta hitastigsins. Á því er
öryggi gegn of heitu vatni.
Kannaðu aðra kosti Dan-
foss og verðið kemur þér á
óvart.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 24260
IZUMI
STÝRIROFAR
SNERLAR
LYKILROFAR
HNAPPAROFAR
GAUMUÓS
Hagstætt verð
vönduð vara
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
L/V3ER-SÉRRANTANIR- ÞUÓNUSTA
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
KENWOOD CR-100 Stereo útvarp/kassettutæki.
★ 4 bylgjur LW, MW, SW, FM-stereo ★ auto-stop ★ 2 stereo
hljóðnemar ★ 4 hátalarar (tryggja bestan hljómburð) ★ val
á mono/stereo/stereo wide ★ léttir snertirofar ★ stillan-
legt loftnet ★ 9 volt/220 volt ★ fyrirferðarlítið og létt (440 x
235x104 mm, 2,6 kg)
Árs ábyrgð.'
ÞEKKING- REYNSLA- ÞJÓNUSTA
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 105 REYKJAVÍK S. 84670
KENWOOD
Stereo feróatækí
útvarp kassetta
TOPPTÆKI