Morgunblaðið - 20.02.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
37
Ólöf Oddný Ólafs-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 29. september 1914
Dáin 16. janúar 1986
Föstudaginn 24. janúar sl. var kær
vinur og einstök kona, Ólöf Oddný
Ólafsdóttir, kvödd og jarðsungin
frá Fossvogskirkju, en hún lézt 16.
janúar sl. eftir erfíða sjúkdómslegu.
Eg fínn mig knúinn til að minnast
Oddu vinkonu minnar þó svo að
mín fátæklegu orð megni ekki að
lýsa hve mikil ágætis kona hún var.
Ólöf Oddný, eða Odda eins og
hún var jafnan kölluð af nánum
vinum, fæddist á Drangastekk í
Vopnafirði 29. september 1914,
dóttir hjónanna Olafs Oddssonar
og Oddnýjar Runólfsdóttur. Þar ólst
hún upp í stórum systkinahópi en
árið 1925 flyzt hún með foreldrum
sínum og systkinum, sem þá voru
enn í foreldrahúsum, til Vest-
mannaeyja. Höfðu foreldrar Oddu
búið um tíma á Norðfírði og fluttu
þaðan til Eyja.
Árið 1935 giftist Odda eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Sveinbimi
Guðlaugssyni fv. fiskimatsmanni
frá Vestmannaeyjum, og stofnuðu
þau heimili í Ásnesi við Skólaveg í
Eyjum. Þau eignuðust 5 böm:
Höllu, er dó á bamsaldri, Ólaf,
múrarameistara, kvæntan Kristínu
Georgsdóttur umdæmisstjóra
Brunabótafélags íslands í Eyjum,
Yalgeir málarameistara, kvæntan
Ásdísi Sigurðardóttur, em þau bú-
sett í Danmörku, Huginn, málara-
meistara, tvíburabróðir Valgeirs,
kvæntan Albínu Óskarsdóttur, þau
em búsett í Eyjum og Höllu (yngri)
húsmóður, gifta Kristni Kristins-
syni, en þau em búsett í Reykjavík.
Auk þess ólu þau upp Sveinbjöm
dótturson sinn.
Fyrstu kynni mín og þeirra hjóna
hófst þegar þau bjuggu á Fífílgötu
5 í Vestmannaeyjum, ég þá sem
smápeyi. Var ég upp frá því svo til
daglegur gestur á heimili þeirra á
meðan ég bjó í Eyjum, en sonur
þeirra Ólafur er æskuvinur minn.
Allt frá fyrstu kynnum var mér
ávallt tekið með hlýju, gamanyrðum
og brosi á vör, nánast sem ég væri
einn úr fjölskyldunni og sama gilti
síðar um konu mína og böm. Það
var einmitt á „peyaárunum" sem ég
kynntist því fyrst hvað böm hænd-
ust að Oddu, ég fór ekki varhluta
af því, heldur naut þess í ríkum
mæli. Ég var ekki sá eini er sótti
þangað heim. Við vomm nokkrir
ærslabeigir, sem urðum fastagestir
í kaffí og tertur hjá Oddu. Oft síðan
hef ég hugleitt og furðað mig á
þeirri þolinmæði og því umburðar-
lyndi sem hún sýndi okkur æringj-
unum. Hún skildi böm og unglinga
og má segja að hún hafí talað þeirra
mál. Snemma fann ég inná að hún
hafði viðkvæma lund og fann sárt
til með þeim er minna máttu sín.
Árið 1960 fluttist ég til Reykja-
víkur og rofnuðu tengsl mín við
Oddu og Sveinbjöm um sinn en
tveimur árum síðar eða árið 1962
fluttust þau til Reykjavíkur og
treystust þá vinarböndin enn. Um
tíma urðum við grannar og nú
upplifðu böm mín sömu hjartahlýj-
una og ég hafði gert, sem bam og
æ síðan, hjá þeim Oddu og Svein-
bimi.
Sökum starfa síns þurfti Svein-
bjöm að ferðast mikið milli út-
gerðastaða um allt land. Yfir sum-
artímann var Odda oft með í þessum
ferðum og gistu þau þá yfirleitt í
tjaldi. Síðar eignuðust þau húsvagn
og fannst Oddu sem þau hefðu flutt
úr koti í höll, þegar þau ferðuðust
um með húsvagninn. Odda elskaði
landið og naut þess að ferðast um-
það með bónda sínum. _
Odda varð fyrir stómm áföllum
í lífínu en ekki minnist ég þess að
hafa heyrt hana kvarta eða kveinka
sér, hún bugaðist ekki. Ástríki
eiginmannsins og eðlislægt glað-
lyndi hennar hefur vafalaust fleytt
henni yfír eriðustu hjalla lífsins.
Síðustu árin, eftir að Odda veiktist
alvarlega og lamaðist, naut hún
dyggrar hjálpar og umönnunar
dóttur sinnar Höllu.
Við hjónin sendum Sveinbimi,
bömum, tengdabömum, og bama-
bömum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur um leið og við kveðjum
Oddu með þakklæti fyrir órofa
vináttu og tryggð. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Sævar Þ. Jóhannesson
SKIPULEGT NÁM (MARKAÐS'
0G ÚTFLUTNINGSFRÆÐUM
MARKAÐSSÖKN
10 mánaða nám í útflutningsverslun og markaðssókn hefst 11. mars nk. Er það einkum ætlað þeim er starfa
við markaðs- og útflutningsmál eða hyggjast hefja slík störf.
Námið skiptist þannig, að nemendur sækja þrjú 3ja daga námskeið, en á milli námskeiðanna eiga nemendur
að tileinka sér námsefni sem lagt er fram hverju sinni. Einnig eru gerðar miklar kröfur til þess að nemendur
leysi heimaverkefni er tengja saman námsefni og dagleg störf þeirra.
Námslýsing:
NÁMSKEIÐ 1 11.-13. mars kl.9-17 Hvað er útflutningur • Hvað er markaðssókn • Tilefni útflutnings • Munurinn á sölustarfi og markaðsstarfi • Stefnumótun fyrirtækja • Mótun fyrirtækja • Alþjóðlegar reglur um útflutning • Stofnanir í þágu útflutningsaðila ■ Söfnun markaðsupplýsinga • Hagnýt verk- efni Heimaverkefni ■
NÁMSKEIÐ 2 25.-27. ágúst kl. 9-17 Söluráðar • Val á mörkuðum • Val á vöru • Vöruaðlögun • Vöruþróun • Dreifileiðir • Verðstefna • Stjómun útflutnings • Hagnýt verkefni Heimaverkefni ■
NÁMSKEIÐ 3 17.-19. nóv. kl.9-17 Helstu greiðsluskilmálar ■ Greiðslufyrirkomulag • Starf á vörusýningum • Vöruflutningur • Útflutningsreglur • Útflutningslán • Sölu- og samningagerð ■ Hagnýt stýring á útflutn- ingi • Skriflegt próf
Aðalleiðbeinendur: Lasse Tveit framkvæmdastjóri NorSk Kjedeforum Arvid Sten Kása framkvæmdastjóri Úttlutningsskóla Noregs
Námskeiðið fer fram á ensku. Að námi loknu fá nemendur sérstaka viðurkenningu.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í símum 621063/621066
UTFLUTNINGSOG MARKADSSKÓU ÍSLANDS
Stjómunarf&ag islands Ánanaustum 15 • 101 Reykjavík ■ æ91 -621063 ■ TU2085