Morgunblaðið - 20.02.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
39
Minning:
Jóhannes Hannes-
son, vörubílstjóri
í dag fer fram útför móðurbróður
míns, Jóhannesar Hannessonar,
sem lést þann 4. febrúar sl.
Jóhannes Hannesson fæddist að
Áshól í Holtum 18. september 1910.
Barn að aldri missti Jói, eins og
hann var kallaður, foður sinn. Móðir
hans, Sigríður, stóð þá uppi með
fjögur böm, drengina Jóhannes og
Guðmann og dætumar Sigríði
Guðmundu og Viktoríu. Völin var
ekki önnur en að bregða búi og
leysa upp heimilið. Þetta var þungur
afarkostur en ekki óalgengur á
þeim tíma þegar fyrirvinnan féll
frá. Guðmann er sá eini sem eftir
lifir og fylgir bróður sínum til grafar
í dag.
Jói dvaldist lengst af á Skarði í
Landsveit og leit jafnan á þann stað
sem æskustöðvar sínar. Leið Jóa lá
síðan til Reykjavíkur þar sem lífs-
starf hans átti eftir að verða. Ungur
maður með tvær hendur tómar sótti
á brattann. Með ótrúlegum dugnaði
og elju tókst Jóa að koma sér vel
áfram í lífinu. Hann var einn af
stofnendum fyrirtækisins Sandur
og möl. Síðar stofnaði hann og rak
sitt eigið fyrirtækið, Sandsölu Jó-
hannesar Hannessonar. í upphafi
voru þetta erfíð ár hjá frænda.
Unnið var nótt sem dag. Við stjóm-
völ fyrirtækisins starfaði Jói til
hinstu stundar.
í Reykjavík var Jói svo lánsamur
að hitta fyrir traustan lífsfömnaut,
Elínu Kristjánsdóttur. Þau hjónin
eignuðust þrjú böm, Guðlaugu,
Hannes og Svavar.
Heimili þeirra hjóna í Blönduhlíð
22 var orðlagt fyrir rausnarskap
og hfyjan hug. Jói var ekki marg-
máll, lét frekar verkin tala. Mann-
greinarálit var óþekkt á heimili
þeirra hjóna og margan manninn
studdu þau á rausnarstundum. Báð-
ar tengdamæðumar, þreyttar og
saddar lífdaga, nutu elsku og
umönnunar þeirra hjóna seinustu
æviárin. ,
Þegar litið er til baka er margs
að minnast. Ég hef verið svo lán-
samur að vera samferða Jóa alla
mína tíð. Pyrir lítinn dreng var
frændi minn sá stóri og sterki sem
litlir drengir þráðu að lfkjast. Full-
vissa drengsins um styrk frænda
míns jókst með árunum. Þöguil
styrkur, traust og vinátta átti eftir
að fylgja mér gegnum árin.
Bflar voru ekki algengir í Reykja-
vík fyrir flömtíu ámm. Að fara
með Jóa í vömbflnum að sækja
sand austur í Selvog eða með flutn-
inga suður í Keflavík vom ævin-
týraferðir fyrir ungan dreng. Jói
kunni góð skil á ömefnum og fólki
tengt þessum slóðum. Ferðalögin
urðu þvf auk þess að vera skemmti-
leg mjög fræðandi. Ég leit alltaf á
Blönduhlíðina sem mitt annað heim-
ili, þar var gott að koma og vera.
Ella var traust og sterk húsmóðir
af gamla skólanum sem kunni þvf
betur að gestir fengju góðan viður-
gjöming.
Á erfíðum stundum f lífí mínu
reis heimili þeirra hjóna hvað hæst.
Þar var skjólið sem leitað var í.
Konu minni og bömum tóku
Blönduhlfðarhjónin af sömu velvild
og hlýhug sem mér fyrrum. Bömin
mín syrgja afa og ömmu í dag.
Síðastliðin ár hafa hafa verið Jóa
og fjölskyldu hans erfíð. Þau hjónin
urðu fyrir því áfalli að missa einka-
dóttur sína, Guðlaugu, í blóma lífs-
ins frá eiginmanni og þremur böm-
um. Heilsu Jóa hrakaði mjög á
þessum ámm en þeir sem best
þekktu til vissu að heilsa húsbónd-
ans var ekki alltaf upp á það besta.
Fyrir tæpum tveimur árum gekkst
Jói undir stóran uppskurð, sem
hann fékk aldrei tækifæri til að ná
sér eftir. Skömmu eftir heimkom-
una af sjúkrahúsinu veiktist eigin-
konan Ella mjög skyndilega og lést
skömmu síðar. Eftir lát Ellu var sem
styrkur Jóa risi ekki framar.
Öllum aðstandendum, bömum,
tengdabömum, bamabömum og
bróður færum við fjölskyldan inni-
legustu samúðarkveðjur með ósk
um að minningin um sterkan mann
styrki þau á sorgarstundu.
Ólafur Sigurðsson
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
GÚSTAF LÍNBERG KRISTJÁNSSON
múrarameistari,
Kópavogsbraut 73,
verður jarösunginn fró Kópavogskirkju föstudaginn 21. febrúar
kl. 15.00.
Ófaffa Jensdóttir,
Ólöf Gústafsdóttir, Kristján Ellert Benedlktsson,
Jens Gústafsson, Ásta Magnúsdóttir,
Ingvaldur Gústafsson, Arna Kristmannsdóttir,
Guöbjörg Gústafsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför,
ÖNNU EGGERTSDÓTTUR.
Aöstandendur.
Lokað
verður í dag frá kl. 12.00 vegna útfarar
JÓHANNESAR HANNESSONAR.
Sandsala Jóhannesar
Hannessonar,
Smiðshöfða 19.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGAÁL
(ALMgSi 0,5) Seltuþolið.
Fjölbreyttar stærðir og þykktir.
ÁLPRÓFÍLAR FLATÁL
□ □[ZZO
VINKILÁL SÍVALT ÁL
LlLLL A
SINDRAy^ |j\STÁLHF
Ðorgartúni 31 sími 27222
SKODA 150RAP1D
.Vð eigum afmæu
\J FÆRD GIÖFINA!
Árið 1986 markar tímamót í sögu SKODA á íslandi, því nú eru liðín 00
ár f rá því fyrsti SKODA bíliinn kom til landsins. Af því ánægjulega tilefni
færa SKODA verksmiðjurnar okkur islendingum vegiega afmælisgjöf:
2 ÁRA ÁBYRGÐ á öllum SKODA bílum af 1986 afmælisárgerðinni.
Þaö var ariö 1946 sem fyrstu SKODA
bilarnir komu til landsins. Síðan hafa
þeir n'otið sívaxandi vinsælda, sem sést
best á því aö i fjölda ára hef ur markaös-
hlutfall SkODA hvergi veriö hærra i
V-Evropu en einmitt a Islandl.
Þetta atriöi, ásamt þvi aö Jöfur hf.
er elsti umhoðsaöili SkODA á Vestur-
löndum, hefur leitt til þess aö viö
höfum getað boðiö SkODA bilana á
besta veröinu sem þekkist i V-Evropu.
Þaö er því ekki alveg að ástæðu-
lausu aö okkur íslendingum er færö
þessi veglega afmælisgjöf.
En það er margt fleira en gott verö
og 2 ÁRA ábyrgð sem gera SKODA aö
bestu bilakaupunum. Líttu aðeins á
kostina:
SKODA er sterkur
Hann er vel smíöaöur, úr þykku stáli
og meö firnasterku lakki. Aliir SkODA
bilar eru' seldir meö 6 ára rvövarnar-
ábvrgö.
SKODA er spameytinn
Aö jafnaði er evöslan aðeins rúm-
lega 7 litrarnoo km og alveg niöur í
4,88 litra/100 km í sparakstri.
skoda er rúmgoöur
sætin eru vönduö og svo er billinn
hár til lofts. Þaö fer þvi vel um þig i
SKODA.
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
SÍUNGT FYRIRTÆKI Á
STÖÐUGRI UPPLEIÐ!
SKODA er þægiiegur i akstri
Hann er meö sjálfstæöa fjöörun á
öllum hjólum, aflhemla og tannstang-
arstýri — svolítiö sem þú færö venju-
lega bara i mun dýrari bilum.
Aldreí betri bill — aldrei betra
verð og nú 2 ARA Abyrgð i kaup-
bætil
JÖFUR