Morgunblaðið - 09.04.1986, Page 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
77. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/RAX
Pálmar Gunnarsson sem komst lífs af úr flugslysinu í Ljósufjollum
Þrýsti barninu að
mér og reyndi að
verja konuna mína
„ÞETTA ER svo hryllilegt allt saman að því verður vart lýst með
orðum. Ég hélt ekki að nokkur maður gæti lent í svona löguðu.
Að horfa upp á fólkið dáið eða að deyja allt i kringum sig og ég
sitjandi með 11 mánaða gamla dóttur mína dána í fanginu. Þetta
var svo hrylhlegt.“
Þannig fórust Pálmari Gunn-
arssyni orð í gærkvöldi er blaða-
maður Morgunblaðsins heimsótti
hann á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans. Pálmar er á batavegi
eftir flugslysið í Ljósufjöllum á
Snæfellsnesi á laugardag. í slys-
inu biðu kona hans og dóttir og
þrír aðrir bana. Kristján Guð-
mundsson komst einnig lífs af úr
slysinu og er líðan hans eftir
atvikum.
Pálmar lýsir í samtali við
Morgunblaðið aðdraganda slyss-
ins á þann hátt að sér hafí virzt
flugið með eðlilegum hætti frá
ísafirði og er flugmaðurinn hafi
lækkað flugið segist Pálmar hafa
sagt við Auði konu sína: „Nú er
stutteftir."
„Þá allt í einu var eins og
tröllshrammur rifí i flugvélina.
Hún þrýstist niður og við köstuð-
uðumst til eins og öryggisbeltin
leyfðu. Mikil skelfíng greip um
sig og fólkið hrópaði í angist.
Flugmaðurinn reyndi að rífa vél-
ina upp og beygja. Ég kastað-
ist út í_ hlið vélarinnar vinstra
megin. Út um glugga sá ég fjalls-
hlíðina nálgast á ógnarhraða og
sagði: „Guð minn góður, við
fljúgum utan í fjallshlíðina." Ég
þrýsti litla baminu mínu að mér
og reyndi að ýta konu minni niður
til að verja hana eins og ég gat.
Því miður tókst það ekki.
Um það bil sem vélin skall í
hlíðinni hrópaði ég: „Guð minn
almáttugur, Guð blessi okkur öll
sem erum um borð í þessari vél.“
Ég hélt fast utan um konu mína
og dóttur og hrópaði: „Ég elska
ykkur, Guð blessi ykkur."
Pálmar missti meðvitund er
flugvélin skall í hlíðina. Er hann
rankaði við sér hálftíma síðar var
dóttir hans dáin. Hann hagrasddi
konu sinni eins og hann bezt gat
og síðan hófst löng bið eftir
björgunarmönnum. Hann segist
hafa verið bjartsýnn framan af á
að björgunarmenn yrðu fljótir á
vettvang, en eftir að tók að
dimma hafí hann smátt og smátt
misst vonina um björgun. Er
hann hafí endanlega verið búin
að gefa björgun upp á bátinn
hafi hjálpin borist:
„Þá rétt á eftir sá ég blikkandi
ljós og hrópaði til björgunar-
mannana af öllum Hfs- og sál-
arkröftum. Er þeir skömmu síðar
komu gangandi upp hlíðina veif-
aði ég eins og ég gat. Ég heyrði
þá síðan tilkynna að flakið væri
fundið og að einhverjir væru með
lífsmarki um borð.
Sjá nánar viðtal við Pálmar
Gunnarsson á blaðsíðu 2,
fréttir af slysinu á blaðsiðu
4 og baksíðu og forystu-
grein á miðopnu.
Noregur:
Mestu
vinnu-
deilur í
hálfa öld
Osló, frá fréttaritara Morgunblaðsins, J.
E. Laure og AP.
YFIR 100.000 manns í Noregi eru
nú í verkfalli eða verkbanni, eftir
að það slitnaði upp úr samninga-
umleitunum miili norska vinnu-
veitendasambandsins og fimm
aðildarfélaga norska alþýðusam-
bandsins i fyrrinótt. Eru þetta
víðtækustu vinnudeilur, sem
orðið hafa i landinu allt frá árinu
1931.
Ame Retterdal, atvinnumálaráð-
herra Noregs, reyndi að miðla mál-
um á síðustu stundu eftir að tilraun-
ir sáttasemjara ríkisins til að koma
í veg fyrir vinnudeilumar höfðu
farið út um þúfur. Aðal deiluatriðið
var styttri vinnutími án þess að það
kæmi niður á launum. Er ljóst var,
að samkomulag næðist ekki, lýsti
norska vinnuveitendasambandið
yfir verkbanni á félög framreiðslu-
og veitingamanna, starfsmanna í
efnaiðnaði, fataiðnaði og félög mál-
miðnaðarmanna og byggingaverka-
manna.
ítalir stöðva
vínútflutning
Brussel. AP.
ÍTALIR hafa ákveðið að
hætta öllum útflutningi á vin-
um, unz unnt verður að sanna,
að ítölsk vín innihaldi ekki
tréspíritus. Skýrði talsmaður
Evrópubandalagsins í Brussel
frá þessu í gær. Sagði hann
ennfremur, að margir dagar
kynnu að líða, þar til hægt
yrði að koma fullnægjandi
eftirlitskerfi á.
ítalska lögreglan skýrði frá
því í gærmorgun, að 76 ára
gamall maður hefði dáið í borg-
inni Brescia af því að drekka
vín, sem innihélt tréspíritus.
Hafa 20 manns á Ítalíu nú dáið
af því að drekka eitrað vín.
Bandaríkin:
Grænfriðung-
ar trufla kjarn-
orkutilraun
Las Vegas, Ncvada. AP.
FLOKKUR grænfriðunga hélt
inn á tilraunasvæði í Nevada á
fimmtudaginn til þess að reyna
að trufla og koma í veg fyrir
næstu kjarnorkutilraun Banda-
rikjamanna, sem fyrirhuguð var
ígær.
Um níu manns var að ræða og
handtók lögregla fólkið í fyrradag.
Að sögn talsmanna tilraunarinnar,
höfðu grænfriðungamir hverfandi
möguleika til þess að trufla fram-
gang tilraunarinnar, en ákveðið var
í gær að fresta henni.