Morgunblaðið - 09.04.1986, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1986
EM íbadminton:
Frost vann
einliðaleikinn
Morgunblaöið/Skapti Hallgrímsson.
• Aftari röð frá vinstri: Jón Kristjánsson, AuAjón GuAmundsson og
Siguróli Kristjánsson. Sitjandi eru, frá vinstri, Rúnar Kristjánsson sem
tók viA viAurkenningu systur sinnar GuArúnar — sem kjörin var
íþróttamaður ársins — og Halldór Áskelsson sem varð annar í kjörinu.
og Gillian Gilks vann sinn sjöunda titil
MORTEN Frost frá Danmörku
vann landa sinn Ib Fredriksen í
úrslitaleik einliðakeppninnar í
badminton á Evrópumeistara-
mótinu um helgina og tókst þar
með að verja titilinn frá því í fyrra.
Frost vann 15-8 og 15-2. í
kvennaflokki vann Helen Troke
frá Englandi Kirsten Larsen frá
Danmörku í úrslítaleik 9-12, 11-3
og 11-2.
í tvenndarleik unnu þau Martin
Dew og Gillian Gilks sinn fjórða
Evrópumeistaratitil er þau unnu
þau Nigei Tier og Gillian Gowers,
sem eru einnig frá Englandi, í úr-
slitaleik 16-6 og 15-8.
Þetta var í sjöunda sinn sem
Gilks verður Evrópumeistari í
badminton og Englendingar hafa
unnið alla 12 meistaratitlana í
tvenndarleik frá því árið 1968.
( tvíliðaleik kvenna unnu þær
Gillian Gowers og Gillian Clark frá
Englandi þær Dorte Kjaer og
Nettie Nielsen frá Danmörku í jöfn-
um leik 15-11 og 15-12.
Það voru Danir sem unnu tvíliða-
leik karla að þessu sinni. Steen
Fladberg og Jesper Helledie unnu
Svíana Stefan Karisson og Thomas
Kihlstrom í úrslitaleik 15-12 og
18-17. í liðakeppninni unnu Danir
Englendinga í úrslitum með þrem-
ur vinningum gegn engum.
Þingvallagangan:
Tjörnina. Til keppninnar mættu
margir af bestu hlaupurum lands-
ins af yngri kynslóðinni. Úrslit
hlaupsins urðu þau að Mennta-
skólinn í Reykjavík sigraði bæði í
karla og kvennaflokki. Besta ein-
staklingstímanum náöi Steinn Jó-
hannsson, nemandi við, Fjölbrauta-
skólann í Ármúla. Steinn, sem
hljóp með blandaðri sveit, fékk tím-
ann 4:07 mín. í kvennaflokki náði
bestum tíma Steinunn Jónsdóttir,
5:10,8mín.
NIKE-umboðið, Austurbakki gaf
Guðrún kjörin
Iþróttamaður
Akurevrar 1985
Akurayri.
GUÐRUN H. Kristjánsdóttir,
skíAakona úr KA, var á laugardag
útnefnd fþróttamaður ársins á
Akureyri fyrir árið 1985. Úrslit í
Þyskaland:
Alfreð
gerði
fimm
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttarhara
Morgunblaðsins í Vestur-Þýskalandi.
ALFREÐ Gíslason skoraði fimm
mörk fyrir Essen er lið hans sigr-
aði Bad Schwarztau, sem er í 3.
deild, 25:22, f þýsku bikarkeppn-
inni f handknattleik á laugardag-
inn. Sigurður Sveinsson skoraði
fjögur mörk fyrir Lemgo f tapi
liðsins gegn 2. deildarliðinu Berg-
hamen, 19:24.
Kiel sigraði Dankersen, 28:21, á
heimavelli. Staðan í leikhléi var
13:10 fyrir Kiel. Páll Ólafsson náði
sér ekki á strik hjá Dankersen,
skoraði 3 mörk. Talið er líklegt að
Páll endurnýji samning sinn hjá
Dankersen eftir þetta keppnis-
•tfmbil.
Fimleikar:
Fræðslu-
fundur
t
Fræðslufundur á vegum Fim-
leikasambands íslands verður
aldlnn f dag í Kennslumiðstöð
SÍ f Laugardal og hefst klukkan
20.30. Birgitta Baldursdóttir Iff-
eðlisfræðingur mun ftytja erindi
um öndunar- og þolþjálfun og
Jónas Tryggvason ræðir um
tækniatriði á bogahesti. Öllum
er heimill aðgangur.
kjörinu voru tilkynnt f hlái á árs-
þingi ÍBA.
Guðrún varð fjórfaldur íslands-
meistari á Landsmótinu á skíöum
um páskana fyrir réttu ári síöan
og náði mjög góðum árangri í heild
á síðasta keppnistímabili. Var m.a.
valin Skíðamaður íslands 1985.
Guðrún dvelur nú við æfingar og
keppni erlendis og tók bróðir
hennar, Rúnar, við verðlaunum
systur sinnar.
íþróttamaður ársins frá því í
fyrra, Halldór Áskelsson knatt-
spyrnumaður úr Þór, varð annar í
kjörinu nú.
Þriðji varð Auðjón Guðmund-
son, júdómaður úr KA, en hann
er einn fjölmargra bráðefnilegra
júdómanna sem fram hafa komið
á Akureyri undanfarin ár. Jón Krist-
jánsson handknattleiksmaður úr
KA varð fjórði í kjörinu. Jón er mikið
efni og má geta þess að hann var
fyrirliöi unglingalandsliösins á síð-
asta keppnistímabili. Fimmti varð
Siguróli Kristjánsson knattspyrnu-
maður úr Þór. Siguróli lék í meist-
araflokki i fyrsta skipti síðastliðið
sumar og stóð sig mjög vel.
Alls fengu 12 íþróttamenn stig
í kjörinu nú en stig fimm efstu
voru þannig: Guðrún hlaut 90 stig,
Halldór 82, Auðjón 42, Jón 40 og
Siguróli 35. Á þessu sést að
Guðrún og Halldór skáru sig nokk-
uðúr.
Fimleikar:
Stúlkurnar
sigruðu
en piltarnir urðu í neðsta sæti
ÍSLENSKAR fimleikastúlkur urðu
sigursælar I móti sem fram fór í
Belgíu um síðustu helgi. Þar átt-
ust við sveitir frá Belgfu og Hol-
landi auk íslands. Stúlkurnar
komu mikið á óvart og unnu
keppnina, hlutu 93,50 stig en
Belgar hlutu 92,05 stig f öðru
sæti.
Dóra Sif Óskarsdóttir varð
stigahæst stúlknanna 24 sem á
þessu móti kepptu, Dóra hlaut
samanlagt 33,90 stig en þær Lára
Hrafnkelsdóttir og Ingibjörg Sig-
fúsdóttir urðu í fjórða sæti með
29,20 stig. Góður árangur hjá
stúlkunum.
Piltarnir sem kepptu á þessu
móti náöu ekki eins góðum árangri
og stúlkurnar. Þeir urðu í neðsta
sæti hlutu 125,20 stig en Hollend-
ingar unnu með 144,70 stig og
Belgar hlutu 143,60 stig.
Davið Ingason varð stigahæstur
íslendinganna, hlaut 42,85 stig,
og hafnaði í tíunda sæti.
Baldvin vann
ÞINGVALLARGANGAN var hald-
in um sfðustu helgi. Fyrirhugað
var að ganga mun lengra en
raunin varð á. Það voru gengnir
21 kflómetri, en vegna snjóleysis
var ekki hægt að ganga lengra.
í keppnisflokki sigraði Baldvin
Hermannsson frá Siglufirði, gekk
á 1 klukkustund 09:42,80 mínút-
um. Halldór Matthíasson varð
annar og Kristján Halldórsson
þriðji en þeir eru báðir úr Skíðafé-
lagi Reykjavíkur.
í almennum flokki sigraði Hall-
dór Halldórsson, gekk á 1:39,22
klukkustundum. Magnús I.
Óskarsson varð annar og Hilmar
Björnsson varð þriðji.
• Kvennasveit MR skipuðu þær Anna Gunnarsdóttir, Steinunn Jóns-
dóttir, Sigrfður Eggertsdóttir og Helga Þórhallsdóttir.
9 Karlasveit MR skipuðu Garðar Sigurðsson, Knútur Hreinsson,
Sigurður A. Jónsson og Frfmann Hreinsson.
Framhaldsskólahlaup:
MR vann báða flokkana
Sunnudaginn 6. apríl var keppt
f boðhlaupi milli framhaidsskól-
anna. Keppnin, sem var öll hin
skemmtilegasta, fór fram í blfö-
skapar veðri við Tjörnina f Reykja-
vík. Ekki hefur veriö keppt f þesari
fþróttagrein sfðan 1973. En þá
var keppnin f umsjón hins kunna
þjálfara Ólafs Unnsteinssonar.
Ætlunin er að hlaupið verði nú
áriegur viðburður.
Keppt var bæði í karla og
kvennaflokki og keppnisvegalengd
var 4x1500 metrar umhverfis
vegleg verðlaun. íþróttaráð
Menntaskólans í Reykjavík sá um
framkvæmd hlaupsins, sem var
öll með ágætum.
MR vann báða flokkana eins og
áöur segir en í öðru sæti í karla-
flokki varð sveit Menntaskólans á
Laugarvatni, MS varð í þriðja sæti,
Fjölbraut í Breiðholti í því fjórða
og Menntaskólinn í Kópavogi í
fimmta.
Hjá stúlkunum varð MK í öðru
sæti, MS í þvi þriðja og sveit Fjöl-
brautarskólans í Breiðholti í fjórða.