Morgunblaðið - 15.05.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ 1986
3
Gengisfellingin í Noregi:
Lækkar verð Sjóla
um 25 milljónir króna
GENGISLÆKKUN norsku krón-
nnnar ltpkkar smíðakostnað,
breytingar og viðhald skipa þar i
landi svo fremi, sem ekki komi til
einhverjar kostnaðarhækkanir á
móti. Þetta kemur nokkrum ís-
lenzkum útgerðum til góða og má
meðal annars nefna i þvi sam-
bandi, að verð á togaranum Sjóla,
sem byggður er i Noregi, lækkar
um nálægt 25 mil\jónum króna.
Auk Sjóla má nefna að togararnir
Merkúr og Margrét EA eru i viða-
miklnm breytingum og viðgerðum
i Noregi.
Jón Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
í upphafi hefði verið reiknað með
því, að gott væri að semja um skips-
verðið í norskum krónum, þar sem
þarlend króna hefði ekki verið n\jðg
sterk, er samið hefði verið um smíð-
ina. Hins vegar hefði hann ekki búizt
við jafnmikilli lækkun hennar og
raun hefði orðið á. Hann sagði áætlað
verð á skipinu hafa verið um 260
milljónir króna, en það myndi lækka
í um 235 milljónir við þetta. Að vísu
væri hluti tækjabúnaðar í skipið
keyptur í öðrum gjaldmiðli en norsk-
um krónum, en það væri lítill hluti
af heildinni.
Þá munu ýmsar vörur, innfluttar
frá Noregi, lækka í kjölfar gengis-
lækkunarinnar og má þar nefna
siglingatæki, pappírogfleira.
Forsætisráðherra um athugasemd Iðnaðarráðuneytis:
„Iðnaðarráðherra
fylgdist ekki með“
Forsætisráðherra telur að Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
hafi ekki fylgst með sem skyldi, þegar hann ritaði athugasemd í
Morgunblaðið á þriðjudag um ákvarðanatöku varðandi fjárveitingu
tíl þess að gera tilraunaborholu við Skíðaskólann i KerlingafjöUum.
I samtali við Morgunblaðið sagði
forsætisráðherra: „A fundi ríkis-
stjómarinnar 22. apríl sl., það er
að segja tveimur dögum áður en
bréf iðnaðarráðuneytisins var skrif-
að, þá er bókað eftirfarandi: „For-
sætisráðherra lagði til að á 25 ára
afmæli Skíðaskólans í Kerlingafjöll-
um verði því heitið að bora tilrauna-
borholu eftir heitu vatni í þágu
skólans, sem talið er að muni kosta
2,5 til 3 milljónir króna Sam-
þykkt.““
Forsætisráðherra sagði jafn-
framt: „Það er kannski ekki von
að iðnaðarráðherra hafi fylgst með
þessu, þar sem hann var jú úti í
Frakklandi, þegar þetta var sam-
þykkt í ríkisstjóminni. Ég vil ekki
vera að karpa frekar um þetta, og
það er mér vissulega ánægjuefni
að iðnaðarráðuneytið fylgdi þessari
ríkisstjómarsamþykkt eftir með
bréfí tveimur dögum eftir ríkis-
stjómarfundinn."
Býst við stóru hlaupi
úr Grímsvötnum í sumar
— segir Signrjón Rist, vatnamælingamaður
„MIÐAÐ við fym hegðan Grúnsvatna og hve hlaupin 1982 og 1983
voru lítil, tel ég að nú fari að koma að hlaupi og því stóru. Enn er
ekkert, sem bendir til þess, að hlaup sé hafið, en mér þykir lfklegt
að Vötnin hlaupi i sumar og í síðasta lagi í aprU á næsta ári,“ sagði
Siguijón Rist, vatnamælingamaður, í samtali við Morgunblaðið.
Siguijón sagði, að á árunum frá
1954 til 1980 hefðu Vötnin hagað
sér eins og eftir ákveðnu mynstri
og hefðu hlaupið nokkuð reglulega.
Þó hefði frá 54 orðið styttra á milli
hlaupanna og þau minnkað þar til
litlu hlaupin hefðu komið 1982 og
1983. Við þau hlaup hefði vatnið
farið út um 50 metmm ofar en
venjulega og skálin því ekki tæmzt.
Nú væri vatnshæð komin það hátt,
að tími væri kominn á að vatnið
færi að þrýsta sér undir jökulinn,
þar sem talsvert hefði bætzt við í
Vötnin á þessum tíma.
Sigutjón sagði ennfremur, að
þegar vatnið færi undir jökulinn
færi hlaupið hægt af stað og tæki
um hálfan mánuð að ná hámarki.
Sýni væru tekin reglulega úr Skeið-
ará til að kanna hvort hlaupvatn
væri komið í hana og svo væri ekki
enn. Lyktin við upphaf hlaups
leyndi sér heldur ekki og því væri
nægur tíma til að vara fólk við.
Sjálfvirkt farsímakerfi
tekið í notkun í júní
„ÞETTA er fullkomið sjálfvirkt kerfi. Hægt verður að velja hvaða
númer sem er hérlendis eða erlendis úr bílnum og ná sambandi úr
hvaða númeri sem er hér heima eða erlendis við bilinn. Þetta er
eins og siminn á borðinu hjá okkur, af fullkomnustu gerð,“ sagði
Haraldur Sigurðsson yfirverkfræðingur hjá Pósti og sima er hann
var spurður um nýtt sjálfvirkt
notkun í júnimánuði.
Haraldur sagði að í upphafi yrði
kerfið bundið við ákveðin svæði, en
stefnt væri að því að kerfið næði
til alls landsins í lok árs 1987. Þó
verða eftir nokkrir blettir sem ekki
næst til, til dæmis á miðhálendinu.
Á þessu ári verður komið fyrir
31 móðurstöð víðs vegar á landinu.
Fyrst í stað verða þær aðallega
settar upp á Suður- og Vesturlandi,
en á næsta ári verður netið þétt
farsímakerfi sem tekið verður í
og þá verður annar eins fjöldi af
móðurstöðvum tekinn í notkun.
Notendur bílasíma hér á landi
eru nú um 400 talsins og fara öll
sfmtöl þeirra í gegnum handvirkar
stöðvar. Aðspurður sagði Haraldur
að þessar stöðvar stöðvar yrðu ekki
úreltar með tilkomu sjálfvirka kerf-
isins. Þær verða reknar áfram um
óákveðinn tíma.
Nú er sumar
m
KARNABÆR
Barna- og unglingadeild
Austurstræti 22.
. gaman er
*g llÍ5) KARNABÆR Austurstræti 22 — Laugavegi 66 — .* Laugavegi 3Q- Glæslbæ.
Sími frá skiptiborði 45800
> á k w .ya ■*» tsi. m~, ■ ' . t ’ \ ^ V rr’i
• 1' 1
gledjist gumar...