Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ1986 Séttur thgsins Margrét Þorvaldsdóttir — Jæja, frú Sign'ður, hvemig líð- ur í dag, spurði megrunarlæknirinn? — Herfílega, læknir, ég hef ekki einu sinni lyst á því sem þér bönnuð- uð mér að borða. (Á bannlista læknisins gæti hafa verið feitt kjöt!) Nú þegar lambakjöt verður fituminna og aðgengilegra til neyslu, má huga að meiri fjöl- breytni i skurði á kjötinu. Gæti það aukið að mun fjölbreytni f matreiðslu lambakjötsins. Gott dæmi um það hve hagsmunir neytenda og bænda geta farið vel saman eru þessar islensku Landbúnaðar- steikur (fyrir 5 manns) 5 leggir af framparti (l’/ikg) 1 matsk. smjörlíki 1 matsk. matarolía l*/4 bolli vatn 1 stór laukur 2 hvftlauksrif '/«tsk. timian 2 ten. kjúklingakraftur 1 dós tómatkraftur (150 gr) 2 greinar steinselja, söxuð (2 matsk. Madeira eða Sherry) 1. Leggimir em skomir af framparti við liðamót. 2. Smjörlíki og matarolía em hituð á pönnu og em leggimir brúnaðir vel í feitinni. Snúið kjötinu oft — ekki með gaffli, þá missir það safa. 3. Laukur er skorinn í bita og hvít- laukar í tvennt, þeir em steiktir með kjötinu á síðustu mínútum steiking- ar. Síðan er vatni ásamt salti bætt út í, lok sett yfír pönnuna og kjötið Iátið krauma í 1 klukkustund. 4. Tómatkraftur, steinselja, timían, kjúklingakraftur (og vín) er sett með kjötinu, og soðið í 30 mín. til við- bótar. Snúið því af og til á suðutíma og bætið við salti ef þurfa þykir. Sósan á þá að vera hæfilega þykk, en þeir sem vilja hana þykkari jafna hana með hveiti. Berið fram með soðnum núðlum. Setjið núðlumar á fat, raðið leggjun- um á núðlumar, setjið lítið af sósunni yfír kjötið og berið sósuna fram með kjötinu. Eða kjötið borið fram í sós- unni ásamt stöppuðum kartöflum. Réttur þessi sem fella má undir máttarstoðir landbúnaðarins, þykir afbragðs helgarmatur. Hann bragð- ast eins og grillaður, þó hvorki hafí hann í ofn komið né á heita glóð. Þetta em meðmæli. Verð á hráefni: l'Akgsúpukjöt .. kr. 369.00 1 laukur ............ 4.00 1 dós tómatkraftur .. 27.50 Kr. 400.50 Niðursoðnar matvörur ætti allt- af að velja af nákvæmni. Neytendum er alvarlega bent á að borða ekki fæðu úr dósum sem em gallaðar, lekar, bólgnar eða beyglaðar. Er það vegna hættu á botulismus-matar- eitmn. Það em þessar beygluðu niðursuðudósir í verslunum hér sem sérstaklega þarf að vekja athygli á — og ekki síður fyrir það að íslenska framleiðslan virðist talsvert dældaðri en sú erlenda. Stundum er það vegna slæmrar meðhöndlunar í verslunum, en oft kemur niðursuðuvaran þannig útleikin frá framleiðendum. Það má sjá á sléttum miðum límdum yfír oft illa dældaðar dósir. Varúð er nauðsynleg: Verði saumar, er festa lok dósarinnar, fyrir snöggu höggi, jafnvel smá höggi, geta þeir opnast sem snöggvast og oft sogast inn í dósimar áður en þær lokast aftur. Ef til staðar er mengað loft geta gró úr umhverfínu komist í innihald dósarinnar og valdið skemmdum. Neytið því aldrei niður3oðinnar fæðu sem ekki lyktar vel eðá úr dósum sem spýta vökva þegar þær eru opnaðar. Þar gæti botulin eitrið verið til staðar. Einnig er víða varað við að borða niðursoðin matvæli sem froða myndast á þegar þau eru hituð fyrir neyslu. Þvo skal lok á niðursuðudós- um áður en þær eru opnaðar. Rot- vamarefnum er víða erlendis úðað á dósimar svo matarleifar sem kunna að hafa fallið á þær í vinnslu, mygli ekki og skemmi útlit þeirra. Aldrei má geyma mat í opinni niðursuðudós. Blý, tin og kopar gætu losnað úr málmi dósarinnar og farið í matinn. Fryst grænmeti: Bent skal á nauðsyn þess að fylgja alltaf leið- beiningum framleiðenda um suðu- tíma þess fyrir neyslu. Því er brýnt að pökkum þessum fylgi glöggar leiðbeiningar á íslensku. Sauðárkróks- bakarí opnar eftir breytingar Sauðárkróki. Sauðárkróksbakarí hefur opn- að á ný eftir nokkurra daga lokun en meðan á henni stóð voru gerðar gagngerar breyting- ar á sölubúð og sett upp lítil kaf fistofa í tengslum við hana. Geta menn nú fengið sér kaffí- sopa með tertusneið eða glóðvolgu brauði beint úr ofninum. Þá hefur vinnuaðstaða við brauðgerðina ver- ið aukin og bætt. í Sauðárkróks- bakaríi starfa tíu manns. Eigendur þess eru hjónin Óttar Bjamason bakarameistari og Guðrún Sölva- dóttir. - Kári Herbz ...býður betur! Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727 Hertz Ókeypis hjó í Danmörku • Ókeypis vegakort/bók • Tölvuútskrift með leiðbeiningum um stystu leiðir til þeirra áfangastaða sem þú hefur valið þér. • Afsláttarbók sem veitir margs konar afslátt á veitingastöðum, gististöðum, skemmtistöð- um, leikhúsum, skemmtigörðum og víðar. Afsláttarbókin getur hæglega sparað þér margar þúsundir króna. • Handhæg taska fyrir léttan farangur - fram- tíðareign sem alltaf kallar á góðar ferða- minningar. Prófoðu flug og He'bz bíl íDanmöHoi ÞAÐER ••• að vera á nýjum eða nýlegum bíl, traustum og skemmtilegum og líða eftir hinum full- komnu akvegum Evrópu. • •• að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af kílómetragjaldi, lélegum merkingum eða bilunum. ••• að skipta um veður, menningu, þjóðtungur, . eftir því sem hentar hverju sinni. ••• að vera í Kaupmannahöfn í dag og Rínar- dalnum á morgun. • •• að njóta aðstoðar SL-veganestisins, (Euro- guide bókarinnar) þar sem þú hefur ógrynni upplýsinga um fallegar ökuleiðir og athygl- isverða staði, borgakort, gististaðaskrár og fleira og fleira. ••• að borga aðeins krónur 15.900,- fyrir flug og Ford Escort í 2 vikur, svo dæmi sé tekið. ••• að borga ekkert fyrir þriðju vikuna þegar fjórir eðafimm eru í bílnum. ••• að geta skotist á stuttum tíma til spennandi áfangastaða um alla álfuna; borga, bæja, skemmtigarða, veitingastaða, baðstranda - hvert sem er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.