Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR15. MAÍ1986 Norska stjórnin andvíg endur- nýjun efnavopna Osló. AP. KNUT FRYDENLUND, utanríkisráðherra Noregs, sagði í gær að Norðmenn gætu ekki stutt tillögu Bandaríkjamanna um framleiðslu nýrrar kynslóðar efnavopna fyrir NATO. Frydenlund sagði að þessi af- staða norsku stjómarinnar yrði kynnt á fundi sendiherra hjá NATO í Brussel í dag. Talið er að a.m.k. hluti stjómarandstöðunnar sé fylgj- andi þessari stefnu stjómar Gro Harlem Brundtland og hélt Fryden- lund því fram í gær að stefna stjóm- arinnar ætti „breiðu fylgi" að fagna í þinginu. Leiðtogar Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins lýstu báðir stuðningi við stjómina í þessu máli í blaðaviðtali í gær og kváðust andvígir endumýjun efnavopnanna. Afstaða Hægri flokksins í málinu kom ekki fram í fréttaskeyti AP. Danir em sama sinnis og Norð- menn og hafa komið skoðun sinni á framfæri við Bandaríkjamenn. Bandaríkjamenn hafa boðist til að fjármagna og smíða nýju efnavopn- in, svo og geyma þau á bandarískri grundu ef önnur NATO-ríki fallast á að taka við þeim, dragi til styijald- ar. Fyrirhugaður er fundur vamar- málaráðherra NATO í Bmssel í næstu viku þar sem fjallað verður um efnavopnatillögur Bandaríkja- manna. Belgísku stjórnarflokkamir em klofnir í afstöðunni til efnavopn- anna. Leiðtogar hollenskumælandi kristilegra demókrata og íhalds- manna sögðust í gær myndu leggja fram tillögu í þingi um skilyrðis- laust bann við geymslu bandarískra efnavopna í Belgíu. Frönskumæl- andi deildir sömu flokka styðja hins vegar tillögu Bandaríkjamanna og mun Francois-Xavier de Donnea, vamarmálaráðherra, kynna afstöðu belgísku stjómarinnar á fundi vam- armálaráðherra NATO í næstu viku. Belgíustjóm samþykkir tillögu Bandaríkjamanna en fellst á að taka aðeins við efnavopnunum á óróatíma og að undangengnu sam- ráði við Bandaríkjamenn. Svíar gera úttekt á kjamorkuverum Kaupmannahöfn. AP. INGVAR Carlsson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, sagði að sænska stjórnin hefði falið orkuráði landsins að gera úttekt á kjarn- orkuáætlun Svía vegna slyssins í sovéska kjarnorkuverinu í Chernobyl. Carlsson sagði að m.a. yrði kann- að hverjar efnahagslegar- og um- GENGI GJALDMIÐLA London. AP. BANDARÍKJADALUR hækkaði gagnvart öllum helztu gjald- miðlum nema brezka pundinu I gær. Brezka pundið hækkaði úr 1,5342 dölum í 1,5360 en gagnvart öðmm gjaldmiðlum var gengi dals- ins á þá leið að fyrir hann fengust: 2,1920 vestur-þýzk mörk (2,1750), 1,8235 svissneskir frankar (1,8012), 6,9900 franskir frankar (6,9250), 2,4715 hollenzk gyllini (2,4477), 1.503,50 ítalskar lírur (1.492,25), og 1,3772 kanadískir dalir (1,3782). Únsa gulls kostaði í London 342,30 dollara (342,00) og 343,00 dollara í Zurich (344,00). hverfíslegar afleiðingar lokun Barsebæk kjamorkuversins hefði. Barsebæk-verið er í aðeins um 40 km fjarlægð frá Kaupmannahöfn. AP/Símamynd Hlaðmenn afferma mjólkurduft úr bandarískri flutningavél á Okecie-flugvelli í Varsjá. Pólverjar senda húsnæðislausum í New York teppi Varsjá. AP. STJÓRN Póllands kvaðst á þriðjudag ætla að gefa heimilis- lausum ibúum New York borgar fimm þúsund teppi og svefnpoka. Þetta var tilkynnt eftir að stjóm- in sakaði Bandaríkjaþing um óvild í sinn garð. Robert Dole, þingmaður, krafðist þess að mjólkurdufti, sem Bandaríkja- menn gáfu Pólveijum, yrði ekki dreift til fólksins af yfirvöldum heldur einkaaðiljum til að tryggja að duftið kæmist á áfangastað. „Það hefði verið vináttuvottur að senda mjólk til Póllands. En því miður var hún mengaðri en mjólk úr pólskum kúm af geisla- virku joði. Hún var menguð óvild,“ sagði Jerzy Urban, talsmaður pólsku stjómarinnar. Hann sagði að Pólveijar myndu þiggja duftið, sem er af umfram- birgðum Bandaríkjamanna, en fyrst yrði kannað hvort mjólkurduftið væri hæft til neyslu. Hann bætti því við að Pólveijar væru þrumu lostnir yfír fregnum af mörgþúsund manns, sem þyrftu að sofa á götum New York og því hefði verið ákveðið að koma til aðstoðar við hina fátæku í Banda- ríkjunum. Farið yrði fram á það að óháð stofnun tæki að sér að úthluta teppunum og svefnpokunum. Stjóm Ronalds Reagans væri illa við fá- tæklinga og því ekki treystandi til að sjá um að koma þeim til skila. Evrópubandalagið gaf í gær um hálfa milljón dollara til kaupa á mjólkurdufti til handa pólskum bömum. Sagði í yfírlýsingu að ákveðið hefði verið að koma til aðstoðar eftir að rómversk- kaþólska kirkjan fór fram á hjálp. Sprengingin á diskótekinu í Berlín: Aðstoðarmaður Khadafys skipulagði aðgerðirnar Hamborg. AP. VESTUR-ÞÝZKA blaðið Bild sagði í gær að aðstoðarmaður Moammar Khadafy Líbýuleiðtoga hefði lagt á ráðin og skipulagt sprengjutil- ræðið á La Belle diskótekinu í Berlin fyrir röskum mánuði. afleiðingum að tveir menn biðu bana, annar þeirra bandarískur hermaður, og 230 manns slösuðust. Þeir hafí hins vegar verið í nær stöðugu fjarskiptasambandi rétt fyrir sprenginguna. Að sögn Bild hefur bandarískum og vestur-þýzkum leyniþjónustu- mönnum tekizt að leiða í ljós að tveir Líbýumenn voru höfuðpaur- amir í tilræðinu. Annar þeirra er Rashid, sem er yfírmaður stofnunar í Trípólí sem skipuleggur hryðju- verk utan Líbýu, og er hann náinn aðstoðarmaður Khadafys og fær skipanir sínar beint frá leiðtogan- um. Hinn Líbýumaöurinn er Abdullah E1 Amin, sem er starfsmaður líb- ýska sendiráðsins í Austur-Berlín. Hann var áður við sendiráð Líbýu í Bonn. Að sögn Bild voru Rashid í Trípólí og Amin í Austur-Berlín þegar sprengjan sprakk, með þeim Ronald Reagan: Kenningin um gagnkvæma gereyðingu er heimskuleg Wanhington. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagði á umræðufundi með menntaskólanemum á þriðjudag að Bandaríkjamenn myndu aldrei verða til þess að skjóta fyrsta skotinu í kjamorkustríði og lýsti einnig yfir þvi að sér fyndist sú áragamla kenning um ógnaijafn- vægi milli Bandaríkjamanna og Sovétmanna með kjamorkuvopn- um vera „heimskuleg stefna'*. í svari við spumingu eins menntaskólanemans sagði Reag- an að besta leiðin til að koma í veg fyrir kjamorkustríð væri að vinna að útrýmingu kjamorku- vopna. „Við skulum vinna bug á tortryggninni milli austur- og vesturblokkarinnar þannig að engin þörf verði á stríði," bætti forsetinn við. Forsetinn kom víða við í um- ræðunum, sem sjónvarpað var í menntaskóla um öll Bandaríkin og til herstöðva Bandaríkjamanna erlendis. „A heildina litið er útlitið bjart í Bandaríkjunum. Eins bjart og þetta síðdegi," sagði Reagan á fundinum, sem haldinn var innan um bý og blóm á garðbletti. Um kjamorkustyijöld sagði Reagan að nú væri við lýði hin heimskulegasta stefna til að koma í veg fyrir átök. Átti hann þar við kenninguna um gagnkvæma ger- eyðingu. Samkvæmt henni eru kjamorkuvopnabúr Bandaríkja- manna og Sovétmanna svo stór að gereyðilegging er óhjákvæmi- leg komi til styijaldar og kemur það í veg fyrir að vopnin verði notuð. „Við vitum að við verðum ekki til þess að skjóta fyrsta skeytinu. En geri þeir árás verð- um við að hafa næg vopn til þess að gagnárás okkar valdi óbætan- legu tjóni. Og þetta á að koma í veg fyrir að þeir hefji árás á okkur. Er ekki sýnu skynsamlegra að losa okkur við þessi vopn en að lifa við þá ógnun að einhver bijálæðingur ýti á hnappinn," sagði forsetinn. Shcharansky í Bandaríkjunum: Tilslakanir Sovétmanna fást aðeins meðþrýst- ingi frá almenningi Washington. AP. VIÐRÆÐUR diplómata á bak við tjöldin munu ekki duga gyðing- um, sem óska þess að fá að flyfjast frá Sovétríkjunum, sagði sovéski andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky, sem er í heimsókn í Bandaríkjunum, í sjónvarpsviðtali í gær. Hann sagði, að þrýstingur frá um þessa fólks, sem verður að heyja almenningi á sovésk stjómvöld þyrfti einnig að koma til, svo að tilslakanir fengjust. Að því er brottfararleyfí hans sjálfs varðaði sagði Shcharansky: „Eg er þess fullviss, að framlag diplómata hafði nokkur áhrif á ákvörðun Sovétmanna undir lokin, en aðeins vegna mikils þrýstings frá almenningi, þar á meðal Ronald Reagan Bandaríkjaforseta." Hann sagði í viðtalsþætti í ABC-sjónvarpinu, að almennur stuðningur gæti haft úrslitaáhrif fyrir þá 400.000 gyðinga, sem ósk- uðu að flytjast frá Sovétríkjunum. Sl. þriðjudag átti Shcharansky fund með Reagan forseta, sem mælt hefur með, að diplómataleiðin verði valin til að leysa vandamál sovéskra gyðinga. „Mér duldist ekki, að forsetinn hefíir djúpan skilning á vandamál- harða baráttu fyrir mannréttindum sínum," sagði Shcharansky. „Auð- vitað lítum við á þetta mál hvor frá sínum sjónarhóli, en ég fann, að skilninginn vantaði ekki.“ Shcharansky var spurður, að hve miklu leyti væri rétt að tengja mannréttindamál öðrum málaflokk- um eins og t.d. afvopnunarmálum. „Ef ná á alvörusamkomulagi við Sovétríkin um afvopnunarmál eða önnur mál, verður það að gerast í andrúmslofti, þar sem gagnkvæmt traust ríkir," sagði hann. „Slíkt andrúmsloft er erfítt að hugsa sér, þegar annar samningsaðilanna skrifar undir án þess að sýna minnstu tilburði til að virða viðkom- andi samkomulag, eins og átt hefur sér stað með Helsinki-sáttmálann. Mannleg verðmæti, sem sameigin- leg eru öllu siðmenntuðu fólki, hljóta að vera grundvöllurinn, sem traustið byggist á.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.