Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
33
Menningarkiminn í Tékkóslóvakíu:
Þegar málfrelsið er heft
öðlast orðið sérstakt vald
„ÖLL ÞAU blöð, sem áður voru bönnuð, eru það enn. Allir þeir
rithöfundar, sem búið var að þagga niður í, þegja enn. Ströngum
hugmyndafræðilegum hömlum er enn þá alls staðar beitt.“ Þannig
komst tékkneski rithöfundurinn Vaclav Havel að orði nýlega í
blaðaviðtali, þar sem bandaríski blaðamaðurinn Andrew Nagorski
spurði hpnn m.a.: „Eftir innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakiu 1968
hafa vestrænir rithöfundar oft kallað landið „menningarlegan
kirkjugarð“.“ Er þetta rétt eða rangt?“
„Þetta er rétt enn í dag, að
því er snertir stefnu ríkisins í
menningarmálum," svaraði Hav-
el. „En þetta er samt ekki sönnun
um hið raunverulega ástand tékk-
neskrar menningar. Á þeim tíma,
sem liðinn er, þá hefur þróazt það
sem við gætum kallað menning-
arkimi eða annars konar menn-
ingarheimur í landinu."
Vaclav Havel er einn kunnasti
rithöfundur og andófsmaður
Tékkóslóvakíu. Vegna þátttöku
sinnar í mannréttindahreyfing-
unni Charter 77 hefur hann verið
fangelsaður þrisvar. Þar af sat
hann einu sinni flögur ár sam-
fleytt í fangelsi (1979—1983).
Leikrit Havels hafa verið bönnuð
í Tékkóslóvakíu frá árinu 1969,
en þau hafa verið sett á svið í
Vestur-Evrópu og Bandaríkjun-
um. Fyrr á þessu ári veitti Eras-
mus-stofnunin í Amsterdam hon-
um verðlaun fyrir framlag hans
til evrópskrar menningar.
Andrew Nagorski lagði nokkr-
ar spumingar fyrir Havel og fara
þær ásamt svömm rithöfundarins
hér á eftir.
„Þegar tekið er tillit til þeirr-
ar kúgunar, sem verið hefur
við lýði í Tékkóslóvakíu, hvern-
ig hefur það þá verið unnt fyrir
annars konar menningarheim
að þróast þar, enda þótt hann
hafi ekki látið mikið yf ir sér?“
„Mikið hungur eftir menningu
er fyrir hendi í þjóðfélaginu og
þannig hefur það aíltaf verið. Það
ræður yfir miklum möguleikum á
andlega sviðinu. Það er þetta
hungur og þessi óþijótandi and-
lega geta, sem smám saman hefur
náð að kalla það fram, sem við
höfum nú. Til viðbótar kemur, að
skriffinnar flokksvélarinnar em
teknir að þreytast. Ef þeir vilja
eyðileggja eitt blað sérstaklega,
þá eiga þeir mjög auðvelt með
það. Þegar þau em orðin of mörg,
þá kæfa þeir nokkur þeirra en
önnur koma upp í staðinn.
„Þú átt áheyrendur erlendis,
en áttu einnig áheyrendur
heima fyrir?.“
„Áheyrendur heima fyrir skipta
miklu meira máli fyrir mig en
þeir erlendu, vegna þess að leik-
húsið er í miklu ríkara mæli en
önnur listform sérstök list, sem á
sér uppmna við sérstakar aðstæð-
ur og er ætluð fyrir þessar að-
stæður. Af þeim sökum hefur það
reynzt mér afar erfítt að glata
áheyrendum mínum hér í svo
Vaclav Havel
„Skriffinnamir em famir að
þreytast"
langan tíma. En verkum mínum
hefur verið dreift í neðanjarðar-
blöðum (samizdat) og á hljóð-
böndum og fólk hlustar á þau í
erlendum útvarpssendingum.
„Hvaða fómir aðrar en fang-
elsisvist verður rithöfundur í
þinni aðstöðu að færa?“
„Ég kysi heldur að tala um
annað fólk, sem hefur mátt borga
fyrir tiltölulega smávægilega
sjálfstæða starfsemi sína með
því að glata vinnu sinni, sæta
óendanlegum hömlum af hálfu
skriffínnanna, orðið að búa við
stöðugan ótta við húsleit og lög-
regluyfirheyrslur, hleranir og
njósnir og mátt bera stöðugan
kvíðboga út af því, hvemig það
ætti að fara að því að sjá sér
farborða."
„Það er oft sagt, að Charter
77 sem stjómmálahreyfing
virðist takmörkuð við tiltölu-
lega litinn hóp. Á hreyfing
andófsmanna í Tékkóslóvakíu
framtíð fyrir sér?“
„Eitt hið undarlegasta við þetta
kerfi er það, að þjóðfélagsleg þýð-
ing sumrar starfsemi er í mikiu
minna mæli en í lýðræðisþjóð-
félagi háð fjölda þeirra, sem virkir
eru. Þegar málfrelsi er heft, þá
öðlast orðið sérstakt vald og þýð-
ingu, hversu mótsagnakennt sem
það kann að vera.
Rétt orð á réttum tíma geta
haft meiri áhrif á ástandið en 5
milljónir kjósenda stjómmála-
flokks einhvers staðar á Vesturl-
öndum. Raunveruleg virk stjóm-
málastarfsemi á sér stað undir
hinu synilega yfirborði. Charter
77 nýtur víðtækrar samúðar, en
þessi samúð er falin. Og enginn
veit, er óvæntir atburðir gerast,
hvenær þessi samúð kann að
breytast í sýnilegar aðgerðir."
„Heldur þú, að sá dagur
muni renna upp þegar leikrit
þín verða sýnd aftur í Prag?“
„Ég er viss um, að sá dagur
muni koma er leikrit mín verða
sýnd þar, en ég er ekki viss um,
hvort ég verð þá enn á lífi.“
Mikhail Baryshnikov dansaði
með Kirov-ballettinum áður en
hann flúði vestur yfir.
Kirov-ballettin
til Bandaríkjanna
Leningrad. AP.
KIROV-ballettinn í Leningrad
heldur senn sýningar í Banda-
ríkjunum, en áður verður haldin
ein sýning í Vancouver í Kanada
á miðvikudag. Hafa flokkar frá
Kirov ekki haldið í sýningarferð
til Bandaríkjanna í 22 ár.
För Kirov-ballettsins var ákveðin
í framhaldi af leiðtogafundi Reag-
ans Bandaríkjaforseta og Gorba-
chevs leiðtoga Sovétríkjanna í
fyrrahaust. Mun flokkurinn, sem
telur 130 dansara og aðstoðarmenn,
sýna í Los Angeles, Philadelphia
og Washington D.C. Verður Svana-
vatnið, sem hefur verið aðalverk
ballettsins, flutt á þessum stöðum.
Allar helztu stjömur Kirovs verða
með í förinni, Galina Mezentseva,
Olga Chemolukova, Konstantin
Zalinsky, Yevgeny Neff og Sergei
Berezhnoi. Þá er jafnvel búist við
því að kona Sergei, Tatyana Terek-
hova Berezhnaya, geti dansað, en
hún gekkst undir uppskurð á hásin
í fyrrasumar.
m
CSES3
2 VIKUR Á STRÖND
BENIDORM Á SPÁNI
Skelltu þér til BENIDORM 17. júní. Þetta er
tveggja vikna ferð og býðst þér á afar snjöllu
og góðu verði.
Fjögurra manna fjölskylda í íbúð: |
verð per mann: 18.675 kr.
Tveir í stúdíói, 1
verð per mann: 23.700 kr.
Örfá sæti enn til sölu.
r- ■ Ath. Notfærið ykkur greiðslukortin I
FERÐA.. Ce+Uccd
MIÐSTOÐIN Tcauee
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3