Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
49
Hvítasunnukappreiðar
Fáks hefjast í dag
HINAR árlegu Hvítasunnukappreiðar Fáks fara fram dagana 15.
til 19. maí á skeiðveili félagsins á Víðivöllum í Reykjavík. Alls hafa
256 hestar verið skráðir til keppni á mótinu. Á Hvitasunnumótinu
keppa Fáksfélagar um þátttökurétt á landsmóti hestamanna sem
haldið verður á Gaddastaðaflötum við Hellu í fyrstu viku júlímánaðar
i sumar.
Skólakór Kársnesskóla:
Söngför til ísafjarð-
ar og Bolungarvíkur
Keppendur í flokki alhliða gæð-
inga, A-flokki, verða 43 talsins. En
í B-flokki, flokki klárhesta með
tölti, keppa 54 hestar. Sjö efstu
hestar úr hvorum flokki vinna sér
þátttökurétt á landsmóti, en auk
þeirra fara varahestar. Gæðinga-
keppnin verður aðeins fyrir Fáks-
félaga.
í unglingakeppni er keppt í
tveimur flokkum, 12 ára og yngri
og 13—15 ára. Þátttakendur í yngri
flokki eru 27 talsins, en 18 í eldri
flokki. í unglingaflokki verður einn-
Hofsós:
Ohlutbundin
listakosning
ÓHLUTBUNDIN listakosning
verður á Hofsósi til hreppsnefndar
og er ekki vitað annað en svo verði
einnig í hreppum austan Skaga-
fjarðar. Syeitarstjóri á Hofsósi hef-
ur verið Ófeigur Gestsson og þykir
hann hafa staðið sig afar vel í
þeirri stöðu. Sýslunefndarmaður á
Hofsósi hefur verið Gunnlaugur
Steingrímsson en gefur nú ekki
kost á sér til þess starfa áfram.
— BjörníBæ
ig keppt um þátttökurétt á lands-
móti og einnig í sérstakri töltkeppni
sem nú er tekin upp í fyrsta sinn.
í þessa keppni eru skráðir 26 hest-
ar.
Keppt verður í sex hlaupagrein-
um og er þátttaka öllum opin, jafnt
Fáksfélögum sem öðrum Mest er
þátttakan í skeiði. 16 hross, 7 vetra
og yngri, keppa í 150 metra skeiði
í §órum riðlum Meðal keppnis-
hrossa í þessari grein eru Hrönn,
Vigri, Hvinur, Heljar og Donna, svo
einhver séu nefnd. Þá keppa 28
vekringar í 7 riðlum í 250 m skeiði.
Þar á meðal er Villingur, 16 vetra,
sem setti íslandsmetið 21,5 sek. í
fyrra. Af öðrum hestum í þessari
grein má nefna Börk, Leista, Vana,
Jón Hauk og fleiri.
Tíu hross keppa í 300 m brokki
í 2 riðlum. Af keppendum er Trítill
þekktastur, en einnig má nefna
gæðingana Þrym og Kóral. Aðeins
eru fimm skráðir í 800 metra stökk.
Þekktastir þeirra eru Kristur í
Skarði, Öm og Tígull. íslandsmetið
í 350 metra stökki er frá árinu
1979. Meðal keppenda í þessari
grein á Hvítasunnukappreiðunum
eru Undri, Sindri, Spóla, Úi, Loftur,
Tvistur og Lótus sem á metið í 250
m stökki. í unghrossahlaupi, 250 m
stökki, keppa 11 hross 6 vetra og
yngri í tveimur riðlum Þar keppa
meðal annarra hryssumar Gasella,
Elja, Ása og Þota.
Hvítasunnumótið hefst í dag kl.
17.30 með keppni í B-flokki gæð-
inga. Á morgun, föstudaginn 16.
maí, hefst keppni í A-flokki gæð-
inga kl. 17.30. Unglingakeppnin
hefst á Hvammsvelli á laugardags-
morguninn, 17. maí. Keppni í yngri
flokki hefst kl. 9 og í eldri flokki
kl. 11. Töltkeppni fullorðinna hefst
á Asavelli kl. 10 og kl. 13.30 hefjast
úrslit (röðun) í unglingaflokkum og
í töltkeppni, einnig á Asavelli.
Kappreiðar hefjast kl. 15.00 og
verður keppt í báðum riðlum í 150
m skeiði, báðum riðlum í 300. m
brokki og fyrri sprettir í 800, 350
og 250 m stökki.
Ekkert verður keppt á hvíta-
sunnudag.
Á annan hvítasunnudag hefst
keppni kl. 13.30. Þá verður keppt
til úrslita, þ.e. röðun 7 efstu hesta
í B-flokki gæðinga, sem þá hafa
jafnframt unnið sér rétt til þátttöku
á landsmóti. Að loknum úrslitum í
B-flokki verður á sama hátt keppt
til úrslita í A-flokki. Kappreiðar
halda áfram kl. 15.00 og verður
þá keppt f báðum riðlum í 250 m
skeiði og til úrslita í 800, 350 og
250 m stökki.
Rásbásar verða notaðir í öllum
riðlum kappreiðanna. Úrslit gæð-
ingadóma verða birtir jafnóðum á
skjám inni í veitingasal félags-
heimlisins og einnig úti á meðal
áhorfenda. Veitingasalan í félags-
heimilinu verður opin mótsdagana.
(Fréttatilkynninp)
Föstudagskvöld 16. maí heldur
Skólakór Kársness tónleika í ísa-
fjarðarkirkju kl. 20.30. Á efnisskrá
er „Rejoice in the lamb“, hátíðar-
kantata fyrir einsöngvara, kór og
orgel eftir Benjamin Britten og
kórlög eftir innlend og erlend tón-
skáld. Á orgelið leikur Marteinn
H. Friðriksson. Kórinn mun einnig
halda tónleika í kirkjunni á Bolung-
arvík laugardaginn 17. maf kl. 2.
LÁTLAUS ".ustan og norðaustanátt
hefur verið hér á Hofsósi og í ná-
grenni að undanfömu og eins til
þriggja gráðu hiti um hádaginn.
Engin snjókoma hefur þó verið.
Sauðburður gengur vel og er sums
í skólakór Kársness eru um 30
söngvarar á aldrinum 10—17 ára.
Kórinn hefur haldið tónleika víða
um land, sungið fyrir útvarp og
sjónvarp, gefið út hljómplötu, farið
í tónleikaferðir til Norðurlanda og
síðastliðið sumar tók kórinn þátt í
kóramótinu „Europa Cantat" í
Frakklandi. Stjómandi kórsins er
Þómnn Björnsdóttir.
staðar langt kominn. Fiskafli er
sæmilegur en þó minni en áður
var. Flestir vorfuglar em komnir
þetta vorið.
— BjömíBæ
Frettatilkynning
Skagafjörður:
Sauðburður gengnr vel
URIANDEFNUM
^WtMEÐSTEVPUSÖtU
Keykjavft
Nolkunareta^'
Steiuustígur 124
,-.'r < 54
STEVPUVERKSMIÐJAN ÓS hefur frá upphafi einungis notað landefni
í alla steypu, Þannig er steypan frá ÓS laus við alkalívirkni, sem verið
hefur helsti vágestur í íslenskum húsbyggingum síöustu áratugi.
BYCCÐU SAMA HUSIÐ
AÐEINS EINU SINNI. NOTAÐU
STEYPU ÚR LANDEFNUM.
NOTAÐU STEYPU_________
SEM STENST - FRÁ ÓS.
STEYPUVERKSMIÐJAN ÓSHVETUR HUSBYCCJENDUR TIL AÐ
KYNNA SÉR NÝJUSTU RANNSÓKNIR Á STEYPUGÆÐUM,
NOTKUN LANDEFNA OGSJÁVAREFNA OG GERA SAMANBURÐ Á
PJÖNUSTU OG VERÐI ALLRA STEYPUSTÖÐVANNA.
<
I
STEYPA
SEM STENST
STEYPUSTÖÐ, AFGREIÐSLA
SUÐURHRAUNI2. 210 GARÐABÆ.
SÍMAR 6 51445 OG 6 51444