Morgunblaðið - 15.05.1986, Síða 51
f
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986
51
okkar — andlegu sjálfstæði okkar
sem byggir á sérstöðu okkar sem
manneskja — því að vera konur.
Mannréttindabar-
átta blökkumanna
Barátta blökkumanna fyrir sjálf-
stæði á sér langa sögu sem er um
margt hliðstæð frelsisbaráttu fs-
lendinga og kvenna. Um langt skeið
var því haldið að svertingjum að
ef þeir yrðu sem líkastir hvíta
manninum næðu þeir viðurkenn-
ingu hans og yrðu jafnréttháir
honum að lokum. í dag hafa þeir
hafnað þessari leið, hafnað því að
vera annars flokks. í stað þess að
slétta á sér hárið og lýsa á sér
skinnið til að geta horfíð í hóp hinna
hvítu er slagorð þeirra nú: Black
is beautiful. Þeir keppast við að
leita heimilda um sögu og menningu
svarta kynstofnsins til að öðlast þær
rætur sem okkur öllum eru nauð-
synlegar til að vera sjálfstæðar
manneskjur.
Huldukonan
stígurfram
Rætur íslenskrar menningar
liggja djúpt, rætur blökkumanna
enn dýpra, en rætur kvennamenn-
ingar eru jafngamlar mannkyninu.
Við kvennalistakonur höfum ekki
búið þær til í þeim tilgangi að ergja
stressaða þingmenn og rugla kerfíð
þeirra — né heldur fundu Fjölnis-
menn og Jón Sigurðsson upp ís-
lenska menningu. Þeir fóstruðu
hana hins vegar og hlúðu að henni,
fetuðu í fótspor manna eins og Áma
Magnússonar og drógu hana fram
í dagsljósið út úr dimmum skúma-
skotum íslenskrar niðurlægingar
svo að hún fengi að vaxa og
blómstra og umfram allt þróast
áfram.
Út um allan heim eru konur nú
að leita uppi hina týndu sögu
kvenna. Gömlum sannindum er velt
við og nýju ljósi beint að því sem
hingað til hefur legið óhreyft á
kistubotnum öldum saman. Við
þekkjum allar þá sögu er gömul
slitur úr skinnbók fundust á rúm-
botni fátækrar konu sem hafði
reynt að nýta þau án árangurs sem
fæðu fyrir bömin sín eða sem leppa
í skósóla þeirra. Þegar betur var
að gáð reyndust þessar fánýtu
skinnpjötlur dýrmætt innlegg í
menningarsögu okkar og um leið
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Slit-
ur hingað og þangað, sem fram til
þessa hafa þótt einskis nýtar kerl-
ingabækur, eru konum mikilvæg
líkt og handritin eru íslendingum
og leiða fram á sjónarsviðið þá
huldukonu sem saga mannsandans
gleymdi að segja frá.
Vitundin um að lykillinn að frelsi
okkar er fólginn í okkur sjálfum,
lífssýn okkar og menningu, hefur
hleypt nýju lífí í sköpunarmátt
okkar, líkt og sjálfstæðisbaráttan
varð uppspretta margvíslegrar
sköpunar á 19. öldinni. Gleðin yfír
því að við eigum sameiginlegan arf
sem okkur ber að varðveita og þróa,
gerir okkur kleift að ryðja úr vegi
úteltum fordómum sem hafa gert
okkur undirokaðar og háðar þeirri
menningu sem hingað til hefur verið
einráð.
Kvennalisti er nýtt
stjórnmálaafl
Kvennaframboð er einn angi
þessarar sköpunar. Síðustu fjögur
árin hefur eitt helgasta vé karl-
mannsins, stjómmálin, verið vett-
vangur okkar. í stað þess að ganga
til liðs við karlana á þeirra forsend-
um, höfum við fetað í fótspor for-
mæðra okkar fyrr á öldinni og
skapað okkar eigið pólitíska kerfí.
Hreyfíng okkar er byggð þannig
upp að frumkvæði hverrar konu
nýtist sem best, þess „vegna er
stefna kvennalistans ekki einokuð
né mótuð af fáeinum konum. Við
þurfum engan formann þar sem við
höfum hafnað því pýramídakerfí
sem stjómmálamenn telja bráð-
nauðsynlegt og gerir þorra fólks í
þessu landi óvirkt í ákvarðanatök-
un. Við höfum breytt leikreglunum,
veitt nýjum starfsaðferðum og sjón-
armiðum inn í staðnaðan heim
stjómmálanna.
Konur vilja ekki
vera hjáróma raddir
í karlakórnum
Sérhver aðferð kvenna til að ná
fram rétti sínum hefur verið um-
deild, ekki síst meðal kvenna
sjálfra. Við skulum ekki gleyma
því að íslendingar voru heldur ekki
á eitt sáttir um aðferðir í sjálfstæð-
isbaráttu sinni fremur en konur eru
í dag. Ýmsir frammámenn töldu að
það væri miklu heppilegra fyrir ís-
lendinga að semja sig að siðum
Dana og vildu að við tækjum upp
danska þjóðtungu. En aðrir álitu
að þetta hokur á þessu guðsvolaða
landi væri tilgangslaust og það
væri íslendingum best að flytjast
til Jótlands. Þeir íslendingar voru
einnig til sem settu hagsmuni sína
ofar hagsmunum þjóðarinnar og
unnu gegn mönnum eins og Jónasi
og skoðanabræðrum hans.
Við teljum ekki að Kvennalistinn
sé eina leið kvenna til að hafa áhrif
á samfélag sitt en við teljum þá
leið nauðsynlega til að gera sér-
stöðu okkar sýnilegri í stjómmálum.
Við vitum það fullt eins vel og Jónas
og félagar hans forðum að án þess
að við séum meðvitaðar um þessa
sérstöðu verða raddir kvenna aldrei
annað en hjáróma í karlakómum.
Við getum sungið með en raddir
okkar munu ekki verða til að auka
á hljómstyrk kórsins né auka radd-
svið hans. Til að svo megi verða
verður rödd okkar að fá að hljóma
sem kvenrödd í hljómkviðunni án
þess að hún reyni að lílq'a eftir
karlröddunum.
Höfundur er kennari við Verzlun-
arskóla fslands.
Gabrie HÖGGDEYFAR 1
í MIKLU jÆ ÚRVALI ÆÆ
ABER G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 - 8 47 88
*
mlnni flarvistlr...
bakverkurinn horfinn..
öllunn líöur vel...
ekki kvartaö síöan ...
VMhjnoimamaMioo R^ktavlkuí
vmM
0*»$n
Atvr
frfáéH Iramíak
Hnai GoðOnnuon
BM VaHO
HOUðii bkand*
BHrviðar oo tandbúnoðarvBlar
STUÐNINGUR I STARFI
.Minni flanristir.... bakverkurinn horfinn..., ölium
Ifður vel..., ekkl kvartað sfðan..
Þannig eru ummœli ánœgðra viðskiptavina
okkar. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera f
hópi þeirra sjö púsund sem keypt hafa DRABERT
stóla á undanfömum árum.
Það er llðin sú tfð, þegar œtlast var til að
skrlfstofustólamlr vœru notaðir þangað til menn
sœtu heilsulausir á gólfinu. Stjórnendur fyrirtœkja
gera sér nú grein fyrir mikilvœgi þess að sltja f
góðum stól. Þeir bera nú meiri umhyggju fyrir
starfsfóikinu og velja þvf DRABERT, sem er
vandaðasti skrifstofustóll sem völ er á.
í húsgagnadeild okkar f Hallarmúla 2 er ávallt
mlkið úrval DRABERT stóla. Utið við og setjist f
DRABERT eða fáið hann lánaðan til reynslu. Vlð
sendum einnig myndallsta og verðlista sé þess
óskað.
Sérfrœðingur Pennans kemur og stillir DRABERT
stóla hjá öllum sem þess óska, f samrœml vlð þarfir
hvers og elns. Vlð viljum standa við kjörorðin:
BETRI HEILSA, AUKIN VELLÍÐAN, MEIRI AFKÖST
ALLT í EINNI FERÐ
Hallarmúla 2 Sími 83211