Morgunblaðið - 26.06.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986
Jöfnunargjald á innfluttar kartöflur:
„Til að styrkja sam-
keppnisstöðu ís-
lensku kartaflanna“
— segir Sveinbjörn Eyjólfsson full-
trúi í landbúnaðarráðuneytinu
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA undirritaði í gær reglugerð um álagn-
ingu jöfnunargjalds á innfluttar kartöflur. 40% jöfnunargjald er
lagt á unnar kartöflur (franskar o.fl.) og 50% á óunnar kartöflur
(venjulegar neyslukartöflur). Reglugerðin verður væntanlega form-
lega gefin út í dag. Hún er sett samkvæmt lögum sem samþykkt
voru á Alþingi í vor um heimild til landbúnaðarráðherra til að leggja
allt að 200% jöfnunargjald á innfiuttar kartöflur.
Sveinbjöm Eyjólfsson fulltrúi í
landbúnaðarráðuneytinu sagði í
samtali við Morgunblaðið að á
mánudag hæfist sala á innfluttum
kartöflum en íslenskar kartöflur
væru ennþá á markaðnum. Sam-
kvæmt upplýsingum ráðuneytisins
væru innfluttu kartöflumartöluvert
ódýrari en þær íslensku og væri
gjaldið sett á til að jafna verðið og
styrkja þannig samkeppnisstöðu ís-
lensku kartaflnanna. Annars væri
hætta á að innflutningurinn ýtti
innlendu framleiðslunni alveg út af
markaðnum.
Sveinbjöm var spurður að því
hvort þetta ieiddi ekki einungis til
hækkaðs kartöfluverðs til neytenda.
Hann svaraði því til að það færi
eftir því hvað _ gjaldið yiði látið
standa lengi. Útlit væri fyrir að
innfluttar kartöflur yrðu á mark-
aðnum í hálfan annan mánuð. Ef
jöfnunargjaldið væri á fersku kart-
öflunum allan þann tíma mætti
vissulega líta á það sem auka toll
sem hækkaði verðið. Ef gjaldinu
yrði hins vegar aflétt strax og
innlenda framleiðslan væri uppseld,
sem væntanlega yrði eftir viku eða
hálfan mánuð, þá væri þetta raun-
vemlegt jöfnunargjald. Hann sagð-
ist ekki vita til þess að ákvarðanir
hefðu verið teknar um hvað gjald-
takan ætti að standa lengi. Reglu-
gerðin væri ótímabundin.
50% gjaldið er lagt á allar inn-
fluttar óunnar kartöflur, líka ,hrá-
efni kartöfluverksmiðjanna en 40%
gjald er á innfluttum frönskum
kartöflum. Sveinbjöm sagði að
þegar á allt væri litið væri gjald-
takan á hráefni verksmiðjanna mun
lægri en á innfluttu unnu kartöflun-
um. Síðan yrði gjaldið væntanlega
afnumið af hráefni verksmiðjanna
án þess að víst væri að það yrði
afnumið af frönsku kartöflunum og
myndi samkeppnisaðstaða verk-
smiðjanna þá verða betri.
Sveinbjöm sagði að álagning
jöfnunargjaldsins hefði verið ákveð-
in í samráði við Ijármálaráðuneytið
og rynni gjaldið í ríkissjóð.
„Algjörlega tilgangs-
laus skattheimta“
— segir Olafur Sveinsson
fjármálasljóri Ágætis
„ÞESSI skattheimta er að mínu
mati algerlega tilgangslaus.
Jöfnunargjaldið er eingöngii
skattheimta á neytendur án þess
að hún komi framleiðendum á
nokkurn hátt til góða,“ sagði
Ólafur Sveinsson fjármálastjóri
sölufyrirtækisins Ágætis í sam-
tali við Morgunblaðið þegar leit-
að var álits hans á álagningu
jöfnunargjalds á kartöflur.
Ólafur sagði að íslensku kartöfl-
umar væru að klárast og gæði
þeirra orðin lakari en áður. Innlenda
framleiðslan hefði notið vemdar
með innflutningsbanni þar til nú.
„Mér fínnst því alger óþarfí að stíga
þetta skref í skattheimtu á íslenska
neytendur sem hafa tekið vel á móti
íslensku kartöflunum allt fram til
þessa að salan hefur minnkað vegna
þess að gæði vörunnar hafa minnk-
að,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að jöfnunargjaldið
væri óþarft því verðið á innfluttu
framleiðslunni væri í flestum tilvik-
um sambærilegt við íslensku kart-
öflumar. Verðið á þeim innfluttu
væri þó mjög mismunandi. Gjaldið
gerði það að verkum að innfluttu
kartöflumar yrðu í sumum tilvikum
helmingi dýrari en þær íslensku.
Nefndi hann dæmi um eina tegund
innfluttra kartaflna sem mun kosta
nálægt 65 krónum kílóið út úr búð
með jöfnunargjaldinu. Án jöfnunar-
gjaldsins hefðu þessar kartöflur
kostað 46 krónur, en verð á íslensk-
um kartöflum væri nú um 48 krón-
ur.
Ólafur sagði einnig að álagning
jöfnunargjaldsins hefði komið fyrir-
varalaust og hefðu innflytjendur
ekki fengið að vita um það fyrr en
kartöflumar voru komnar til lands-
ins. Þeir þyrftu nú að leggja út
fyrir þessu gjaldi. Þá væri álagning
gjaldsins ákaflega óréttlát gagnvart
kartöfluverksmiðjunum sem ekki
fengju einu sinni að njóta þess að
flytja inn það góða hráeftii sem
þeim stæði til boða nú á hagstæðu
verði. Þeir ættu nú möguleika á að
vera samkeppnisfærir við innflutn-
inginn í gæðum með því að fá gott
hráefni en fengju ekki að njóta þess.
-
TF-GRÓ um borð í Ty
TF-GRÓ, minni þyrla Landhelgisgæslunnar, er
nú í fyrsta sinn í ferð með varðskipi.
Að sögn Þrastar Sigtryggsonar skipherra í
stjómstöð Landhelgisgæzlunnar, hefur þyrlan verið
um borð í varðskipinu Tý, þar sem skipherra er
Sigurður Ámason, og hefur hún verið notuð við
að flytja gashylki til og frá vitum sem ekki er
hægt að nálgast frá landi.
Þessi gashylki þarf að skipta um einu sinni á
ári og er það gert i júní og júlí nema leki verði
einhvers staðar, þá er skipt um jafnóðum.
Týr fer fyrst um syðri hluta strandlengjunnar
og hefur allt gengið að óskum hingað til og þyrlan
reynst ágætlega að sögn Þrastar.
Tæknimenn leita að villu í símahugbúnaði:
Móðurtölvan gerði
„sexnúmer“ óvirk
MÓÐURTÖLVA stafræna síma-
kerfisins tók upp á þvi um tvö
leytið á þriðjudag að hætta
vinnslu og hlaða inn stjórnkerfi
sitt á ný. Þetta hafði m.a. í för
með sér að simanúmer sem byrja
á 6 gátu ekki náð sambandi við
önnur „sexnúmer“ f tæpan
klukkutíma. Þessi bilun endurtók
sig aftur um fimm leytið. Að
sögn Baldurs Hermannssonar
deildarverkf ræðings Pósts og
síma vinna tæknimenn símans og
sérfræðingar frá Ericson í Svf-
þjóð nú að því að finna villu f
hugbúnaði stöðvarinnar.
Tölvan sem hér um ræðir er
staðsett í Múlastöðinni. Baldur
sagði að bilunar hefði fyrst orðið
ATVR:
Allt vínið seldist
upp á útsölunni
ALLT ÞAÐ vín sem sett var á útsölu í áfengisversluninni við
Lindargötu í Reykjavík f gær, seldist upp fyrir kl. 16.00 síð-
degis. Alls var um að ræða tæplega þrjú þúsund flöskur af víni.
Það voru aðallega grísk og
amerísk rauðvín, hvítvín, rósavín
og freyðivín sem voru á útsölunni.
Sem dæmi um verðlækkunina má
nefna að eins og hálfs lítra rauð-
vínsflaska sem kostaði áður 790
kr. var seld á 500 kr. á útsölunni
og hvítvínsflaska sem var á 530
kr. í verðskrá fór niður í 250 kr.
Annað vín lækkaði eitthvað
minna. Miðað var við að áfengis-
verslunin gæfí eftir sinn hluta
útsöluverðs, þ.e. erlenda inn-
kaupsverðið, flutningskostnað og
álagningu, en ríkið héldi sínum
tekjum að fullu.
Vínin sem sett voru á útsölu
voru flest ódýrari tegundir, bæði
vín sem ekki hafa selst, vín sem
ekki hafa verið á lista og gömul
vín, sem þó voru enn vel drykkjar-
hæf að sögn starfsmanns verslun-
arinnar.
Útsalan hófst strax og opnað
var í gærmorgun, og hafði þá
þegar myndast biðröð fyrir utan.
Mest var ösin í kringum hádegið
og kl. 15.30 mun allt hafa verið
uppselt. Fólk keypti mis mikið í
einu, allt í tíu kassa, að sögn
afgreiðslumanns.
Ekki lágu fyrir tölur um hagnað
ríkisins af þessari útsölu.
vart 14. júní sl., þegar tölvan stöðv-
aðist öllum að óvörum og hlóð inn
stýrikerfí sitt á ný. Vélin er forrituð
til að gera þetta ef svo alvarleg
villa kemur upp að sýnt er að hún
geti ekki haldið áfram vinnslu. Það
tekur um 30 mínútur að hlaða
hugbúnaðinn inn og á meðan eru
rúmlega 5000 notendur með staf-
ræna síma sambandslausir. Að auki
geta 6000—7000 númer aðeins náð
sambandi á afmörkuðu svæði innan
Reykjavíkur. Móðurtölvan stöðvað-
ist aftur mánudaginn 16. júní og
miðvikudaginn 18. júní. Síðan hélt
hún ró sinni fram á þriðjudag, þegar
bilun varð um kl. 14.00, síðan hálf-
tíma síðar, og loks um kl. 17.00.
Enn sem komið er er ekki vitað
af hveiju bilunin stafar. Baldur
sagði að hún fælist án efa í villu í
hugbúnaði móðurtölvunnar sem sér
um að stafræn símtöl rati rétta leið.
Sjálfur vélbúnaðurinn er í lagi, en
hann er margfaldur, þannig að
önnur vél tekur við vinnslu ef móð-
urtölvan bilar. Sérfræðingar í við-
haldsmiðstöð Ericson-verksmiðj-
unnar í Svíðþjóð, sem framleiddi
símstöðina, vinna nú að því að líkja
eftir biluninni í samskonar tölvu í
Stokkhólmi til þess að hægt sé að
lagfæra villuna í Múlastöðinni. Á
næstunni verður tækjabúnaður
stöðvarinnar endurbættur þannig
að ef tölvan stöðvast einhvemtíma
aftur mun það aðeins taka 5 mínút-
ur að hlaða hugbúnaðinn inn á ný.
Asvegur um Þykkvabæ:
Öll tilboð yfir
kostnaðaráætlun
VEGAGERÐ ríkisins fékk 6 til-
boð í lagningu Ásvegar um
Þykkvabæ og voru þau öll yfir
kostnaðaráætlun. Lægsta tilboð-
ið var frá Fossverki, 4.993 þús-
und krónur, sem er 2% yfir áætl-
un. Kostnaðaráætlun Vegagerð-
arinnar var 4.895 þúsund en
hæstu tilboðin voru tæpar 7
milljónir kr.
Verktakafyrirtækið Fjörður sf.
átti lægsta tilboð í lagningu Flóka-
dalsvegar (Sigluijarðarvegur —
Reykir). Tilboðið var 1.440 þúsund
krónur, sem er 92% af kostnaðar-
áætlun. Kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar fyrir verkið er 1.561
þúsund krónur og voru önnur tilboð
yfír áætluninni.
Vestmannaeyjar:
Skyndilokun
vegna smáfisks
ÁKVEÐIÐ hefur verið að grípa
til skyndilokunar fyrir togveiðar
á veiðisvæði við Vestmannaeyjar.
Svæðið afmarkast af Dalfjalli í
Vestmannaeyjum, Þrídröngum,
Álsey og Stórhöfða og stendur
lokunin í allt að viku.
Að sögn talsmanna Landhelgis-
gæslunnar hafði frést af óvenju
miklum smáfíski í afla Vestmanna-
eyjabáta að undanfömu. Landhelg-
isgæslan mældi lengd fisksins úr
tveimur togum eins bátsins fyrir
skömmu og reyndist sá fískur vera
innan leyfílegra marka. Þvl var
gripið til skyndilokunar frá og með
aðfaranótt sl. miðvikudags í allt að
sjö daga.