Morgunblaðið - 26.06.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986
Gullasninn
jr
Eg hygg að Jón Ólafsson sé
einn af elstu starfsmönnum
rásar 2, gott ef ekki frumbýlingur
í hvíta kastalanum uppaf Fossvog-
inum. Jón hefir stýrt fjölmörgum
þáttum á vegum rásarinnar og
oftast verið léttur í tali og upprifinn.
Þá hefír Jón oft rætt við íþrótta-
menn í þáttum sínum og farist vel
ór hendi. Virðist mér Jón mikill
áhugamaður um íþróttir og stund-
um heyrist mér hann nýkominn úr
langhlaupi eða af sparkvellinum en
slíku má nú kippa í liðinn með því
að herða ögn þumalskrúfumar. En
hver eru svo laun heimsins? _
í fýrradag stýrði Jón Ólafsson
þætti um íslenska dægurtónlist er
nefnist: I gegnum tíðina. Er líða tók
á þáttinn gerðist Jón ögn dapur í
bragði og svo kom skýringin: Það
er bara ekki ein einasta auglýsing
hlustendur góðir ... það er greini-
legt að vinsældir þáttarins fara
minnkandi, ég er bara alveg niður-
brotinn maður.
Að hlaupa eftir...
Þessi sakleysislega athugasemd
hreyfði eins og sjá má við stflvopni
fjölmiðlaskríbentsins. Þannig varð
mér litið á dagskrána er yfirlýsing
Jóns hljómaði í viðtækinu. Klukkan
var tekin að nálgast sex og á þeirri
stundu voru eftirfarancfl þættir á
dagskrá ríkisútvarpsms: Á rás 1 var
nýhafínn þátturinn: í loftinu undir
stjóm Hallgríms Thorsteinssonar
og Guðlaugar Maríu Bjamadóttur.
Þá ómaði á tíðninni 90,1 á FM
bylgjunni: Svæðisútvarp Reykjavík-
ur og nágrennis og ekki má gleyma
Jóni Ólafssyni á rás 2. Hér bitust
sum sé þrír útvarpsþættir um hinn
íslenska auglýsingamarkað og einn
varð útundan enda nýjabrumið farið
af. Hér verður mér hugsað til bresks
vinar míns er skrapp eitt sinn með
mér inní Miklagarð: Svona stórar
verslanir reisum við ekki nema í
miklu stærri borgum ... varð vini
mínum að orði er hann leit dýrðina.
Svo vill til að þessi ágæti vinur
minn hefír starfað um árabil sem
deildarstjóri hjá breskri stórmark-
aðskeðju, enda lagði ég ekki í að
segja honum frá Hagkaupsrisanum
minnugur forföðurins Hálfdánar
svarta.
MilljónaþjóÖ?
En að öllu gamni slepptu. Hvert
leiðir höfðingslundin okkur íslend-
inga þessar tvöhundmðþúsund sálir
er horfa á granítklæddar peninga-
geymslur rísa með Ijóshraða og
verslunarsamsteypur slíkar er að-
eins fínnast í milljónaborgum meg-
inlandanna? Hvemig fer þegar út-
varpsstöðvamar spretta hér lflct og
gorkúlur í heiði? Lifa þá aðeins
þeir útvarpsþættir er laða að aug-
lýsingar? Og eftir hveiju fara þá
markaðsstjórar auglýsingastof-
anna? Beina þeir auglýsingum ein-
vörðungu þangað er vinsælustu
lögin hljóma hveiju sinni þannig
að á endanum verða dagskrár út-
varpsins nánast samhljóma? Við
vitum að í ftjálsu hagkerfí ráða
peningamir ferðinni. Fram hjá
þeirri staðreynd verður ekki horft
og því óttast ég að hinar fijálsu
útvarpsstöðvar neyðist til að elta
hver aðra í leit að vinsældum hvað
sem öllum ákvæðum um menning-
arsjóði líður. Hvað um það, hin
fijálsa ^ölmiðlun lyður sér til rúms
um heim allan í krafti fjölmiðlabylt-
ingarinnar og þá er bara að vona
að hún gangi ekki af menningimni
dauðri. En einu megum við ekki
gleyma að rýna hina fijálsu §öl-
miðla af sama heiðarleika og ríkis-
einokunarQölmiðlana;
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / SJÓNVARP
Helstu breytingar á dag
skrá rásar 2 í sumar
Morgunþættir á rás 2 byija
nú kl. 9 og umsjónarmenn
þeirra eru alls fímm: Ásgeir
Tómasson, Gunnlaugur
Helgason, Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Kristján Sigur-
jónsson og Páll Þorsteins-
son. Af föstum liðum má
nefna stjörnuspá, afmælis-
dagbók og almanak dags-
ins. Matarhornið er dag-
lega kl. 10.30 og svo end-
urtekið 11.30. Barnadag-
bókin er á dagskrá fjórum
sinnum í viku, mánudaga
til fimmtudaga kl. 10.05-
10.20 og er rétt að benda
á að á mánudögum eftir
að bamaefni lýkur er
umsjónarmaður Guðríður
Halldórsdóttir með síma-
tímatil kl. 10.50. Getraunir
morgunþáttar eru með
nýju sniði og mottó morg-
unþáttarmanna er Get-
raun á dag kemur skapinu
í lag.
Fimmtudagar. Annan
hvem fímmtudag verður á
dagskrá þáttur sem er
sendur út beint að norðan.
Nefnist hann Laust í rás-
inni og er umsjónarmaður
Tómas Gunnarsson. Vin-
sældalisti hlustenda verður
á sínum stað á fímmtu-
dagskvöldum kl. 20.00 en
nú hefur Páll Þorsteinsson
sagt skilið við listann og
Leopold Sveinsson tekið
við. Haldið verður áfram
að taka á móti gestum kl.
21.00 en nýir gestgjafar
hafa tekið við og er rétt
að benda á að annar hinna
nýju stjómenda, Gestur
Einar Jónasson, hefur að-
setur fyrir norðan.
Föstudagur. Valdís
Gunnarsdóttir hefur nú
fært sig yfír á föstudags-
kvöld og verður með þátt-
inn Kvöldsýn frá kl. 22.00
til 23.00, þar sem leikin
verður róleg tónlist. í stað
Pósthólfsins kemur þáttur
sem nefnist Bót í máli.
Haldið verður áfram að
iesa bréf frá hlustendum
og leika óskalög þeirra auk
Fjallað verður um fiskeldi i fimmtudagsumræðunni
sem er á dagskrá rásar eitt í kvöld.
þess sem fyrirhugað er að
hafa símatíma á þriðjudög-
um frá 12.00-13.00, þar
sem hlustendur geta hringt
inn fyrirspumir um hin
ýmsu mál sem síðan verður
reynt að svara í þættinum.
Stjómandi þessa þáttar er
Margrét Blöndal og er
símanúmerið í símatíma
687123.
Kl. 16.00 á föstudögum
er þátturinn Frítíminn, sem
er í umsjá Ásgerðar
Flosadóttur. Þar er §allað
um ferðamál innan lands
og utan, og ýmislegt sem
tengist ferðalögum. Þátt-
urinn Endasprettur hefst
kl. 17.00 og honum stjóm-
ar Þorsteinn G. Gunnars-
son. Auk þess sem leikið
verður létt tónlist mun
stjómandi kanna hvað
helst er á seyði um helgina.
Laugardagur. Einar
Gunnar Einarsson hefur nú
tekið við af Svavari Gests.
Þáttur hans nefnist Við
rásmarkið og er á dagskrá
frá kl. 14.00-16.00. Inn í
þáttinn fléttast íþrótta-
fréttir sem Ingólfur Hann-
esson og Samúel Öm Er-
lingsson munu sjá um. Á
. laugardagskvöld kl. 20.00
verða Bylgjur og Bárujám
á dagskrá til skiptis. Ami
Daníel Júlíusson og Ás-
mundur Jónsson munu sjá
um þann fyrmefnda en
Finnbogi Marinósson um
þann síðamefnda.
Fréttir eru á rás 2 alla
virka daga kl. 9.00, 10.00,
11.00, 15.00, 16.00 og
17.00 og á laugardögum
er 3ja-5 mínútna íþrótta-
fréttir kl. 17.00.
Fimmtudagsumræðan:
Fiskeldi
■I Fimmtudags-
20 umræðan, sem
““ er á dagskrá
rásar eitt í kvöld, fjallar
að þessu sinni um fískeldi
hér á landi, og fyrst og
fremst laxeldi. Það er Giss-
ur Sigurðsson sem umræð-
unni stýrir. Fiskeldi er
komið vel á veg hér á Iandi
því um 200 tonn af eldislaxi
verða flutt út í ár og senni-
lega um 600 tonn á næsta
ári. Um 60 fískeldisfyrir-
tæki em nú skráð í landinu
og u.þ.b. 30 stöðvar eru
teknar til starfa. Á þessum
tímamótum er ætlunin að
staldra aðeins við og skoða
stöðu þessa atvinnuvegs.
Eins og kunnugt er náðu
Norðmenn forskoti í laxeldi
og nú eru að koma í ljós
ýmis atriði, sem gleymdust
á meðan gróðavonin rák
menn áfram með ótrúleg-
um árangri á fyrstu árum
laxeldisins. Þar má til
dæmis nefna megnun af
laxeldi, smithættu, sem
leitt hefur til óeðlilegar
lyfjagjafar, að ógleymdum
umhverfísþættinum, en
laxeldismannvirki þykja
víða lýti á norskum fjörð-
um. Þá verður reynt að
gera sér grein fyrir þróun
markaða í framtíðinni, hver
orkuþörfin er og hversu
margt starfsfólk þarf til að
sinna störfum við laxeldi
hér, svo eitthvað sé nefnt.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
26. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréltir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og Vanda"
eftirJ.M. Barrie
Þýöandi: Sigriöur Thorlac-
ius. Lesari: Heiðdís Norö-
fjörö (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesiö úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 „Ég man þá tíö.“ Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur
Umsjón: Ánna Ingólfsdóttir
og Ýrr Bertelsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttlr
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Efri árin.
Umsjón: Ásdís Skúladóttir.
14.00 Miödegissagan: „Fölna
stjörnur" eftir Karl Bjarnhof.
Kristmann Guömundsson
þýddi. Arnhildur Jónsdóttir
Iesl9kalestur(23).
14.30 Ilagasmiöju
Stefán S. Stefánsson.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Suðurland
Umsjón: Einar Kristjánsson,
Þorlákur Helgason og Ásta
R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 VeAurfregnir.
16.20 Tónlist eftir Kabalevskí
og Ravel
a. „Trúöarnir", svíta op. 26
eftir Dmitri Kabalevski. Sin-
fóníuhljómsveitin I Gávle
leikur; Rainer Miedel stjórn-
ar.
b. Pianókonsert I G-dúr eftir
Maurice Ravel. Alicia de
Larrocha og Fílharmoniu-
hljómsveit Lundúna leika;
Lawrence Foster stjómar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir. Aöstoöarmaður: Sig-
urlaug M. Jónasdóttir.
17.45 íloftinu.
Hallgrímur Thorsteinsson
og Guölaug Maria Bjarna-
dóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegtmál
Guðmundur Sæmundsson
flytur þáttinn.
19.16 Á döfinni. Umsjónar-
maöur Maríanna Friöjóns-
dóttir.
19.26 Krakkarnir í hverfinu
(Kids of Degrassi Street)
4. Martinheyrirtónlist.
Kanadískur myndaflokkur (
fimm þáttum fyrir böm og
unglinga.
Þýöandi Ólöf Pétursdóttir.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Listapopp 16. júní
20.00 Stundarkorn meö B(L-
urum
Um starf Bandalags is-
lenskra leikfélaga (BÍL) og
leiklistarhátíö norræna
áhugaleikfélaga. (Áöur út-
varpaö 20.júni)
Umsjón: Finnur M. Gunn-
laugsson. (Frá Akureyri.)
20.45 Ljóöasöngur
Jessey Norman syngur lög
eftir Georg Friedrich Hándel
og Alban Berg. Geoffrey
Parsons leikur meö á píanó.
(Hljóðritað á tónlistarhátíö-
inni í Salzburg Sl. sumar.)
21.20 Reykjavík i augum
skálda. Umsjón: Símon Jón
Jóhannsson og Þórdís Mós-
esdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Fimmtudagsumræöan.
Fiskeldi
Stjórnandi: Gissur Sigurös-
son.
23.20 Frá tónlistarhátíöinni I
Salzburg sl. sumar
FÖSTUDAGUR
27. júní
1986.
Svipmyndir frá fyrri popp-
tónleikum Listahátiöar í
Laugardalshöll. Kynnir: Jón
Gústafsson.
21.16 Ságamli(DerAlte)
12. þáttur.
Þýskur sakamálamýnda-
flokkur i fimmtán þáttum.
Aöalhlutverk: Siegfried
Lowitz. Þýðandi Kristrún
Þóröardóttir.
22.10 Seinni fréttir.
22.16 Ósýnilega konan
(Phantom Lady) s/h
Shlomo Mintz leikur á fiölu
tónverk eftir Johann Sebast-
ian Bach.
a. Sónata í g-moll.
(BWV1001)
b. Partita í d-moll
(BWV 1004)4.og5.þáttur.
(Hljóðritun frá austurriska
útvarpinu)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
lÍíT
FIMMTUDAGUR
26.júní
9.00 Morgunþáttur
Stjórnendur:Ásgeir Tómas-
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1944.
Leikstjóri: Robert Siodmak.
Aöalhlutverk: Ella Raines og
Franchot Tones.
Ungur maöur á uppleiö er
sakaöur um moröiö á konu
sinni. Fjarvistarsönnun
hans veltur á vitnisburði
stúlku sem enginn veit deili
á. Hennar er ákaft leitaö,
en ýmis Ijón veröa á vegin-
um.
Þýöandi Kristmann Eiðsson.
23.40 Dagskrárlok.
son, Gunnlaugur Helgason
og Kolbrún Halldórsdóttir.
Inn í þáttinn fléttast u.þ.b.
fimmtán mínútna barnaefni
kl. 10.5 sem Guöríöur Har-
aldsdóttirannast.
12.00 Hlé
14.00 Andrá
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
15.00 Djassogblús
Vernharöur Linnet kynnir.
16.00 Nýræktin
Skúli Helgason og Snorri
Már Skúlason stjórna þætti
um nýja rokktónlist, inn-
lenda og erlenda.
17.00 Einusinniáöurvar
Bertram Möller kynnir vin-
sæl lög frá rokktímabilinu,
1955-1962.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir
tíu vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Umnáttmál
Gestur Einar Jónasson
stjómarþættinum.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Heitar krásir úr köldu
stríði
Reykvískur vinsældalisti frá
ágúst 1959, sfðari hluti.
Umsjón: Trausti Jónsson og
Magnús Þór Jónsson.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.16 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓWVABP