Morgunblaðið - 26.06.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986
19
MED MAGNINNKAUPUM FENGUM VID
NÆR 40% AFSLÁTT AF ELECTROLUX BW
200 KING UPPÞVOTTAVÉIUM.
Kr. 30.820
Fullkomin uppþvottavél á alsláttarverði, hljóölát — full-
komin þvottakaili — öflugar valnsdaalur sem þvo úr 100
llirum á minútu — þrefalt ylirlallsórvngi — ryölfitl 18/8 slál
I þvottahólli — barnalæsmg — rúmar botóbttnaó fyrir
12—14 manns.
ELECTROLUX BW 200 KINQ uppþvoltavál á veról
•am þú trúir varla — og akkart vlt ar i að sleppa.
Yörumarkaðurinnhf.
ARMÚLA 1A . SÍMI 91-686 117
Tvö góð
til málunar á stein...
Hér eru tvö góö efni frá Hörpu til
málunar á stein.
HÖRPU VATNSFÆLA
Vatnsfælu skal bera á allan stein og
múraöa fleti utanhúss. Vatnsfæla
heftir alkalívirkni og hrindir frá sér
vatni.
HÖRPUSILKI
Hörpusilki er akrýlbundin plast-
málning sem andar. Hörpusilki er gerö
til notkunar jafnt innan- sem utan-
húss. Málningin þekur mjög vel og er
því ótrúlega drjúg. Áratuga reynsla
sannar gæöin og sífellt fjölbreyttara
litaúrval lífgar upp á tilveruna.
SAMSPIL SEM SKILAR ÁRANGRI
Skúlagötu 42, 125 Reykjavík
Pósthólf 5056, ® (91) 1 15 47.
HARPA gefur lífinu lit!
íslenskar konur
í fararbroddi
íslenskar konur eru í fararbroddi
félagsins, efna til og standa fyrir
flestum samkomum félagsins. For-
stöðukona dagskrámefndarinnar er
Edda Magnússon, sem hvergi lætur
sig vanta þar sem íslensk málefni
eru á döfinni. Henni til aðstoðar í
nefndinni er: Edith Wamer, Anna
Guðmundsdóttir og Barbara Guð-
mundsson, auk annarra norrænna
kvenna. Á aðalfundinum gerði Edda
grein fyrir starfsemi dagskrár-
nefndarinnar og var gerður góður
ómur að máli hennar. Frú Elfi von
Kantzow Alvin, sem stendur fyrir
listamálanefndinni, er ötull að-
dáandi íslenskrar listar með áherslu
á málaralist og hefir á pijónunum
fyrirætlanir um íslenskar listsýn-
ingar í New York á þessu ári.
Stjórn félagsins
Ný stjóm var kjörin á aðalfundin-
um og hana skipa:
Michael S. Halpem, forseti.
Varaforsetar: Edward H. Micha-
elsen, framkvæmdastjóri. Tage
Benjaminsen (Danmörk). Dorothy
Viklund (Finland). ívar Guðmunds-
son (ísland). Erik Friis (Noregur).
Ed Conradsen (Svíþjóð). Robert
Wamer (Bandaríkin).
Féhirðir er Dennis Mangan, ritari
Úlfur Sigmundsson og bréfaritari
Svanild Vage. í stjóminni em einnig
Michael Carey, Marie Larsen, Nils
Flo og Tom Södeman.
Félagið hyggst auka starfsemi
sína á komandi ári. Aðalsamkoma
ársins er jóladansleikur og kvöld-
veisla, sem verður haldin 12. des-
ember eins og venjulega á Hotel
Pierre.
Vaxandi starf norræns félags í New York
Vegleg gjöf til norrænu-
deildar Manitoba-háskóla
Vegleg- gjöf til
norrænudeildar
Manitoba-háskóla
New York: — Samtök Norður-
landafólks í New York og nágrenni,
American Scandinavian Society of
New York — hefír vaxið ört á
undanfömum árum, bæði að félaga-
tölu sem og verkefnum. Félags-
menn nálgast nú eitt þúsund og em
fleiri en í nokkmm öðmm norræn-
um félagsskap hér um slóðir. Fjár-
hagur félagsins stendur með blóma.
Hefur það gert félaginu fært að
veita álitlega styrki til samtals 24
menningar- og mannúðarstofnana
af norrænu bergi. Þá hefír félagið
fundið sér fastan samastað fyrir
skrifstofur sínar og fundi, hjá
Norsku kirkjunni í 49. stræti í New
York-borg. Á liðnu starfsári, sem
lauk 1. júní, gekkst félagið fyrir
fjölda listsýninga, menningar- og
skemmtisamkomum með norræn-
um blæ.
Kjami þessa félags starfaði áður
sem sjálfboðaliðssveit á vegum
American Scandinavian Foundation
þangað til árið 1982, að ASF ákvað
að afnema slíkar sjálfboðaliðssveit-
ir, er nefndust „Chapter", á vegum
sjóðsins. Það varð til þess, að sjálf-
boðaliðssveitin í New York endur-
vakti elsta félagsskap norrænna
manna í New York, „The American
Scandinavian Society of New York“
— ASS, sem stofnað var 1908 og
raunar er foreldri American Scand-
inavian Foundation. Við stofnun
ASF, 1910, sofnaði ASS þymirósar-
svefni þar til sjálfboðaliðssveitin var
gerð nafn- og heimilislaus og tók
sig til og vakti hið gamla félag af
dvalanum.
Vegleg gjöf til
Norrænustólsins við
Manitoba-háskóla
Á aðalfundi ASS, sem nýlega var
haldinn, skýrði forseti félagsins,
Michael Halpem, frá því, að stjóm
félagsins hefði ákveðið að veita
nokkmm menningar- og mannúðar-
stofnunum í Bandaríkjunum og
Kanada, sem em í tengslum við
norræna hagsmuni, fjárstyrki.
Meðal þeirra era kirkjufélög, heim-
ilis- og sjúkrastofnanir aldraðra,
bókasöfn, norræn blöð og tímarit,
þar á meðal Lögberg-Heimskringla
í Winnipeg. Alls nemur styrkjaupp-
hæðin 10.800,00 dolluram (rúm-
lega 440 þúsund ísl. kr.) Tveir
hæstu styrkimir era 1000.00 doll-
arar hvor. Annar þeirra er veittur
íslenska kennarastólnum í norrænu
við Manitoba-háskóla, sem einsog
kunnugt er er óskabam Vestur-
íslendinga. Margir þeirra lögðu
hart að sér til að koma honum á
fót. Þessi styrkur ber nafn ívars
Guðmundssonar, fyrrverandi aðal-
ræðismanns Islands í New York.
Forseti ASS skýrði svo frá á aðal-
fundinum að stjómin hefði einróma
samþykkt þessa nafnbót gjafarinn-
ar í virðingar- og þakkarskyni við
ræðismanninn, sem í rúman áratug
hefði jafnan verið reiðubúinn til að
rétta félaginu og sjálfboðaliðssveit-
inni hjálparhönd „og sífellt unnið
mikið og þarft verk til eflingar
norrænni samvinnu í New York“.
Electrolux
eðlilega