Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.06.1986, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986 Pavarotti syngur sig inn í hjörtu Kínverja Peking, AP. ITALSKI tenórsöngvarinn Luciano Pavarotti söng sig inn í hjörtu Kínveija i fyrrakvöld og hafði hann vart lokið söng sínum er áheyrendur risu dans- andi úr sætum með fagnað- arópum og báðu um meira. Pavarotti kom til Kína á sunnu- dag til tónleikahalds með Genúa- óperunni, sem flytur óperu Pucc- ini, La Boheme, í Peking næstu daga. Hann syngur þar hlutverk Rudolfo. Þetta er fyrsta heimsókn Pa- varottis til Kína. Á tónleikunum, sem nær 3.000 manns voru við- staddir, en miklu færri komust að en vildu, söng hann verk eftir Verdi, Puccini, Donizetti og fleiri tónskáld. Tónleikunum var útvarpað um allt land og var það í fyrsta sinn, sem kínverska útvarpið sendir út dagskrá í stereó. Hermt er að áhorfendur hafí annað hvort verið starfsmenn menningarmálaráðu- neytisins eða tónlistarstofnana sem heyra undir það. Starfsmenn erlendra sendiráða, þ. á m. þess ítalska, reyndu árangurslaust að fá miða á tónleikana. Starfsmenn Gamlar konur myrtar í París í hrjósti Bertils Olausson slá tvö hjörtu, hvort með sinu lagi. Hann er fyrsti Svíinn, sem aukahjarta er grætt í. Stálsleginn með tvö hjörtu sem slá ekki í takt BERTIL Olausson, fimmtugur Svíi, er nú fijáls eins og fuglinn fljúgandi, laus við hjólastól og þjáningar. Hann hlær með öllu andlitinu og er til í hvað sem er — engu síður en hressir jafn- aldrar hans, að bví er fram kom nýlega i Svenska Dagbladet. En Bertil Olausson er ekki eins og fólk er flest. I brjósti hans slá tvö hjörtu, hvort sínum megin. I febrúarmánuði sl. var aukahjarta grætt í hann á Harefíeld-sjúkra- húsinu í London. Það var sfðasta lífsvon Bertils Olausson. Kransæðamar voru iila stíflaðar og hjartað of veikt til að þola eina aðgerðina enn. Hann hafði sjö sinnum fengið krans- æðastíflukast og fímm sinnum hjartaáfall — og raunar með ólík- indum að hann skyldi enn vera á dögum. Hjartaígræðslan tókst giftu- samíega og nú gétur Bertil Olaus- son horft fram á veginn á ný. Hið eina, sem vitnar um, að hjörtun séu tvö, er hjartslátturinn. Hjörtun slá ekki ( takt. Annað slær 73 slög á mínútu, hitt 103 slög. En samvinna þeirra er með ágætum. Aukahjarta var grætt í annan Svía á Harefíeld-sjúkrahúsinu í maímánuði sl. Horfur hans eru enn tvfsýnar. Maður, sem auka- hjarta var grætt í á Sahlgrenska- sjúkrahúsinu í Gautaborg í apríl- mánuði, lést 24 dögum eftir að- gerðina. París, AP. LOGREGLA hefur handtekið 25 ára gamlan mann, sem játað hefur að vera valdur að dauða aldraðrar konu í íbúð hennar í París. 28 gamlar konur hafa verið myrtar í París síðastliðinn 21 mánuð og telur lögreglan að sami maðurinn eða mennirnir hafi verið þar að verki í mörgum þessara tilvika. Hinn handtekni, Serge Caillard, sem vinnur sem sendill, er þó ein- ungis talinn sekur um þetta eina morð. Hann myrti hina 87 ára gömlu Germaine Charbonnier á heimili hennar og hafði á brott með sér skartgripi og 40 þúsund krónur í peningum. Lík konunnar fannst 16. júní síðastliðinn og segir lög- reglan að þá hafí hún verið látin í um það bil tvær vikur. Lögregla telur að sum, en ekki öll morðin á konunum séu tengd, þar sem þau voru framin á svipaðan hátt. Tvær bylgjur þessara morða hafa komið á undanfömum 21 mánuði. Fyrri bylgjan var í október og nóvember 1984 og hin síðari hófst seint á síðasta ári. Á þessu ári hafa 11 gamlar konur verið myrtar, þar af fjórar tvær síðustu vikumar. bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC hugðust taka mynd á tón- leikunum og búa til þriggja mín- útna mynd um þá en hurfu frá þeirri áætlan er menningarmála- ráðuneytið krafðist 1.000 dollara þóknunar. Pavarotti var ánægður með móttökumar en sagði kæti Kín- veija hafa komið sér á óvart því honum hafði verið talin trú um að þeir væru mjög þögulir og settlegir. Kosningaúrslit - á Sikiley: Craxi styrk- ist í sessi Palermo, AP. SÓSÍALISTAR unnu lítillega á í kosningum til héraðsþings á Sikiley sl. sunnudag og er ekki talið að úrslitin muni hafa nein áhrif á stjóm landsmála. Kosninganna hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, þar sem þær þóttu geta gefíð vísbend- ingu um vilja kjósenda hvað varðaði forystu fyrir ríkisstjóm Ítalíu. Bett- ino Craxi, núverandi forsætisráð- herra, er sósialisti, en stærsti sam- starfsflokkurinn í hinni 5 flokka ríkisstjóm, Kristilegir demókratar, hefur undanfarið gert kröfu til þess, að skipt verði um forsætisráðherra og kristilegur demókrati hljóti embættið. Spadolini, vamarmála- ráðherra Ítalíu, sagði að kosning- amar á Sikiley bæri ekki að skoða sem atkvæðagreiðslu um stjómar- mynstur. Kristilegir demókratar, sem löngum hafa átt miklu fylgi að fagna á eyjunni töpuðu nokkru fyigi og kommúnistar einnig. Hægri sinnaður öfgaflokkur vann tvö þing- sæti. Á eyjunni Lampedusa, sem Líbýumenn gerðu árás á nokkrum klukkustundum eftir árás Banda- ríkjamanna á Líbýu í apríl sl., tvö- földuðu kommúnistar fylgi sitt, en kristilegir demókratar stórtöpuðu. Kjósendur á Sikiley eru um 4 millj- ónir og greiddu tæplega 78% þeirra atkvæði. ERLENT ..v ■ . Hlaupastirni eignast dóttur Bandarska hlaupastjarnan Mary Decker-Slaney hugar hér að mánaöar gamalli dóttur sinni, Ashley. Mary hefur Itinn tína haft til hlaupaæfínga, en hún hefur verið ein skærasta og sigur- sælasta hlaupakona heimsins undanfarin ár. Hún segist þó aðeins hafa tekið sér stutta hvld frá hlaupabrautinni og hyggst hefja keppni á ný með haustinu. Nixon vildi Eisenhower sem forseta Kólumbiu, Suður—KarólínuAP, FYRRUM aðstoðarmaður Richards Nixon, fv. forseta Bandaríkjanna, segir að Watergate-málið hafi komið í veg fyrir að sú langtímaáætl- un Nixons að gera tengdason sinn, David Eisenhower, að forseta, yrði að veruleika. Harry Dent, sem var sérlegur ráðgjafí Nixons á fyrra kjörtímabili hans á forsetastóli, 1968—72, segir í bók, sem koma á út 1. ágúst næstkomandi, að hann hafí unnið með forsetanum að gerð áætlunar, sem miðaði að því að gera Eisen- hower að forseta. „Ég vann með forsetanum að gerð áætlunar til þess að koma David á þing; síðan í ríkisstjóraembætti eða í öldunga- deildina; og að lokum í Hvíta húsið,“ segir Dent í bókinni. „En Water- gate-málið kom hins vegar í veg fyrir þetta," bætir hann við. Hann segir að fyrsta skrefíð í þessari áætlun hafí verið að fá hinn aldraða Goodling til að hætta þing- mennsku í fulltrúadeildinni, en sonur Goodlings, William, sem nú er þingmaður fyrir kjördæmi föður síns, neitar því að faðir hans hafí hætt þingmennsku 1974 vegna þrýstings frá Hvíta húsinu. Hann sagði hins vegar að hann hafí heyrt það á árinu 1973, að Eisenhower hefði áhuga á kjördæminu. Það kom aldrei til þess að Eisen- hower byði sig fram árið 1974 og ekki tókst að ná í hann til þess að bera undir hann þessar fullyrðingar. Aðstoðarmaður Nixons, John Tayl- or, sagði fréttamönnum að forset- inn hefði ekkert um þessar stað- hæfingar að segja. David Eisenhower er bamabarn Dwights D. Eisenhower, sem var forseti Bandaríkjanna á árunum 1952-1960. Bandaríkin og Ítalía: Samningnr gegn hryðjuverkastarfsemi — munu skiptast á upplýsingum far hryðjuverkaöldu þeirrar sem bæði rflcin hafa orðið fyrir barðinu á. Frá árinu 1984 hefur verið samskonar samvinna milli ríkjanna, á sviði skipulagðrar glæpastarfsemi og eiturlyQadreifingar. Sú sam- vinna hefur gefíð mjög góða raun. Samskipti bandarískra og ítalskra stjómvalda stirðnuðu mjög eftir sjóránið á Achillo Lauro, en þá slepptu ítölsk yfírvöld Mo- hammed Abbas, sem sagður er hafa skipulagt sjóránið. Vonast er til að samkomulag þetta geti komið í veg fyrir að slík misklíð komi upp milli landanna á ný. ítalir hafa þegar gert samning sem þennan við ríkisstjómir Bret- lands, Spánar og Egyptalands, og sagðist Scalfaro vonast til þess að gera einnig samning við stjómir Frakklands og Grikklands. og serfræðiaðstoð Rómaborg, AP. ED MEESE, yfirsaksóknari Bandaríkjanna, og Oscar Luigi Scalfaro, dómsmálaráðherra ítal- íu, undirrituðu á þriðjudag sam- komulag, þess efnis að ríkin tvö skyldu auka samvinnu sína gegn hryðjuverkastarfsemi. Þetta samkomulag kemur í kjöl- Leiðrétting: Grásleppuhrogn — en ekki steinbíts í frétt hér á opnunni í gær var sagt frá eindæma dræmri stein- bítsveiði við Grænland og lélegum heimtum vinnslustöðva á hrognum úr þeim físki. Þar var að sjálfsögðu átt við grásleppu og grásleppu- hrogn (dönsku stenbid).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.