Morgunblaðið - 26.06.1986, Page 43

Morgunblaðið - 26.06.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1986 fram til þess að hann hætti bakstri. Guðjón starfaði mikið að bæjar- og félagsmálum á Sauðárkróki, var lengi bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og lék með leikfélaginu í íjölda ára. Þótt hann gegndi ekki trúnaðarstöðum fyrir Landssam- band bakarameistara af þessum sökum, var Guðjón virtur og vel metinn félagi þar, sem og annars staðar þar sem hann starfaði. Minnumst við hans sem félagslynds og glaðværs félaga, sem ávallt var hrókur alls fagnaðar á fundum og skemmtunum. Um leið og við kveðjum félaga okkar að loknum farsælum starfs- degi, vottum við aðstandendum hans samúð okkar. Haraldur Friðriksson, bakarameistari Það er ætíð erfitt að sjá á eftir góðum vini. Okkur setur hljóð og sár og djúpur söknuður fyllir hug- ann. Guíjón Sigurðsson fæddist á Mannskaðahóli á Höfðaströnd. Hann var sonur sæmdarhjónanna Guð- bjargar Sigmundsdóttur og Sigurðar Sveinssonar sem þar bjuggu þá. Mér standa gömlu hjónin lifandi fyrir hugskotssjónum. Guðbjörg var óvenju mikil eljumanneskja, féll aldrei verk úr hendi og kappsemi hennar og ákafa við brugðið. Skap- ferli hennar var slíkt að þeir sem minna máttu sín, böm og málleys- ingjar, hændust að henni. Sigurður var afar geðprúður maður. Hann sagði hnyttilega frá, var langminn- ugur og gæddur óbrigðulu skop- skyni. Sem bam og unglingur kom ég oft í litla húsið þeirra undir Nöfunum. Ég man vel kandísmolana sem Guðbjörg stakk upp í mig þó að ég muni enn betur hlýjuna og notalegheitin sem þau sýndu mér og öðrum sem þar komu. Guðjón Sigurðsson erfði bestu eiginleika foreldra sinna. Fram undir tvítugt stundaði hann ýmis störf til sjávar og sveita. Hann fluttist til Sauðárkróks og hóf nám í bakaraiðn 1927 og átti þar heima til dauða- dags. Til Kaupmannahafnar hélt hann 1930 til að fullnuma sig í iðninni og tók sveinspróf þar 1931. Þegar þar var komið sögu fékk hann bréf að heiman þar sem honum var tjáð að Snæbjöm Sigurgeirsson meistari hans væri fársjúkur og hann beðinn að hraða ferð sinni heim til starfa í bakaríinu. Snæbjöm lést 1932. Þá tók Guðjón við rekstri Sauðárkróksbakarís í samvinnu við ekkjuna, Ólínu Bjömsdóttur. Þegar frá leið felldu þau hugi saman og gengu í hjónaband nokkrum árum síðar. Þeim varð þriggja-bama auðið og ólu upp fimm böm úr fyrra hjóna- bandi Ólínu. Þegar Guðjón Sigurðsson kom heim frá Kaupmannahöfn vom erfíð skilyrði fyrir rekstur fyrirtækja á íslandi, heimskreppan í algleymingi, atvinnuleysi við sjávarsíðuna og margir bændur skuldum vafðir. Þó að Sauðárkróksbakarí stæði á göml- um merg og væri gróið fyrirtæki þurfti samt að bíta á jaxlinn og herða róðurinn. Þau Ólína og Guðjón sneru bökum saman um reksturinn — og sigur vannst. Bakaríið ráku þau síð- an saman, og Guðjón einn eftir lát Ólínu, í rúma hálfa öld. Þegar ég hugleiði það sem þama gerðist finnst mér að það hafi veirð mikil gæfa fyrir þau hjón basði, fjölskyldu þeirra og heimili og raunar Sauðárkróks- búa alla, að svo vel tókst til. Öll bemskuár mín átti ég heima í næsta nágrenni við gamla bakaríið. Ósjaldan var brauðbita vikið að okkur krökkunum þegar við vomm að leik þar við húsið. Árið 1947, þegar ég var 14 ára, hóf ég að vinna í bakaríinu hjá Guðjóni en það hafði þá verið flutt suður í Krók. lfyrsti dagurinn þar er mér minnisstæður. Guðjón var að skera tvíbökur og ég var látinn raða þeim á plötur. Ég gerði þetta með annarri hendinni. Þegar Guðjón veitti því athygli brást hann snöggt við og sagði: „Hér notum við báðar hendurnar í vinnunni!" og sýndi mér réttu handtökin. Þessi áminning Guðjóns hefur orðið mér gott vega- nesti. í bakaríinu komst enginn upp með að slóra. Þar lærðu menn að vinna. Guðjón var sjálfur afburða duglegur, nánast hamhleypa til verka. Árið 1949 hóf ég nám hjá honum og lauk því 1953. Meistari minn var ákaflega fær í sinni grein, fylgdist vel með öllum nýjungum og var gott að leita ráða hjá honum alveg fram á síðustu ár. Allan náms- tímann var ég í fæði hjá þeim hjón- um og kynntist því vel heimilishátt- um og heimilisbrag. Þar var mikill rausnargarður. Kynni mín af fjöl- skyldunni og heimilinu höfðu djúp áhrif á mig og hafa trúlega mótað lífsviðhorf mín og lífsstefnu mörgum öðru fremur. Af mörgu er að taka ef minnast skal einhverra þeirra starfa sem Guðjón vann fyrir samborgara sína utan daglegs vinnutíma í bakaríinu. Hann var mikill félagsmálamaður. Guðjón Sigurðsson sat í hrepps- nefnd 1946—1947 og síðan í bæjar- stjóm samfleytt til 1974 og var forseti bæjarstjómar um árabil. Hann var einn af aðalhvatamönnum að stofnun Hitaveitu Sauðárkróks en hún hefur öðmm fyrirtækjum fremur stuðlað að vexti og viðgangi bæjarins. Guðjón var mjög einlægur sjálf- stæðismaður. Þegar ég lít til baka finnst mér að Sjálfstæðisflokkurinn í bakariinu á Króknum hafi verið með nokkuð öðmm brag en annars staðar þar sem ég þekki til. Þar var engin hálfvelgja og hlutimir sagðir umbúðalaust. Guðjón var einn af stofnendum Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks og fyrsti formaður þess. Hann bar hag þess félags mjög fyrir bijósti. Guðjón var einnig stofnandi Rót- arýklúbbs Sauðárkróks og vann klúbbnum allt til dauðadags. Fréttaritari Morgunblaðsins var Guðjón Sigurðsson í áratugi. Guðjón hafði yndi af laxveiðum. Paradís hans í þeim efnum var Laxá í Laxárdal á Skaga. Þar naut hann margra daga á sumri hveiju og á ég ljúfar minningar um margar stundir við ána með honum. En sjálfsagt muna flestir Skag- firðingar Guðjón best á sviði Bif- rastar. Hann var leikari af Guðs náð og mjög virkur í Leikfélagi Sauðár- króks og formaður þess um árabil. Hann var vel ritfær og hagmæltur og samdi löngum revíur og gaman- vísur sem hann flutti gjaman ásamt öðrum á Sæluviku, en það nafn gaf hann sýslufundarvikunni sem svo var kölluð áður. Mörg mjög eftir- minnileg hlutverk lék hann en vænst, sagði hann mér, að sér þætti um Jón bónda í Gullna hliðinu. Og nú þegar hann knýr í eigin persónu á hið gullna hlið er margs að minnast. Við urðum í áranna rás miklir og einlægir vinir. Tæpir þír áratugir em síðan ég flutti frá Króknum til Akraness. Allan þann tíma höfum við talast við í síma að minnsta kosti hálfsmánaðarlega þótt ekkert sérstakt tilefni væri annað en að fregna um líðan hvor annars og að segja og fá fréttir af heima- slóðum. Nú verða þau samtöl ekki fleiri. En þeirra mun ég ætíð sakna. Og margir munu nú sakna vinar í stað. Ég þekki engan sem þótti jafn- vænt um Sauðárkrók og Guðjón, engan sem var sannari Króksari og engan sem var tryggari félagi. Við hjónin og böm okkar sendum ástvinum Guðjóns Sigurðssonar hugheilar samúðarkveðjur og biðjum Guð að geyma góðan dreng. Hörður Pálsson í dag verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju Guðjón Sigurðs- son bakarameistari, sem andaðist í sjúkrahúsi Skagfirðinga hér á Sauð- árkróki aðfaranótt hins 16. júní sl. á 78. aldursári. Að Guðjóni Sigurðssyni gengnum er kvaddur sá maður sem lengst hefur verið bæjarfulltrúi á Sauðár- króki. Hann var fyrst kosinn í hreppsnefnd Sauðárkrókshrepps vorið 1946 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Árið 1947 fékk Sauðárkrókur kaup- staðarréttindi og það ár var fyrsta bæjarstjómin kosin og Guðjón Sig- urðsson varð þá í hópi fyrstu bæjar- fulltrúa. Hann sat síðan óslitið í bæjarstjórn til ársins 1974, að hann gaf ekki lengur kost á sér til endur- lqors. Sem fyrr segir hefur enginn verið lengur bæjarfulltrúi hér en Guðjón eða í 7 kjörtímabil. Hann var forseti bæjarstjómar tvö kjörtímabil, frá hausti 1958 til vors 1966, en þann tíma hafði Sjálfstæðisflokkur- inn, undir forystu Guðjóns, hreinan meirihluta í bæjarstjóm. Það má því segja að saga Guðjóns Sigurðs- sonar og saga Sauðárkróks séu samtvinnaðar á 28 ára tímabili. Á þessum ámm urðu miklar sviptingar í bæjarlífinu hér á staðnum, þegar sveitarfélagið var að rífa sig úr deyfð millistríðsáranna og verða eitt af líf- vænlegustu bæjarfélögum lands- byggðarinnar. Þar lagði Guðjón sig allan fram og átti sinn stóra þátt í þeirri ánægjulegu uppbyggingu sem hér varð á þessurn ámm. Eg sé ekki ástæðu til að tíunda hér einstök mál sem ég veit að vom honum sérstak- lega hugleikin, utan eitt, sem ég veit að hann taldi mesta heillaspor bæjarstjómar, en það var stofnun og rekstur Hitaveitu Sauðárkróks á ámnum í kringum 1950. Í heita vatninu sá Guðjón ömgga framtíð þessa staðar. Hann átti sæti í hita- veitunefnd um árabil og um störf sín í hennar þágu á vegum bæjarins hygg ég að honum hafi þótt einna vænst um. Kona Guðjóns var Ólína Bjöms- dóttir, en hún lést haustið 1980 og varð Guðjóni mikill harmdauði enda vom þau hjón mjög samrýnd. Guðjón gegndi ótal trúnaðarstörf- um fyrir flest áhugafélög í bænum áratugum saman. Hann var og heið- ursfélagi þeirra margra. Þá gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér á Sauðár- króki. Nú að leiðarlokum leyfi ég mér fyrir hönd bæjarstjómar Sauðár- króks að þakka Guðjóni Sigurðssyni langa og dygga þjónustu í þágu Sauðárkróksbæjar. Slík störf verða aldrei fullþökkuð og aldrei metin sem skyldi, en sagan mun halda þeim á lofti. Sjálfur þakka ég þeim hjónum, Guðjóni og Ólínu, ótal ánægjustundir í gegnum árin. Bömum þeirra hjóna, bamaböm- um og öllum aðstandendum em sendar hlýjar samúðarkveðjur. Þorbjörn Árnason forseti bæjarstjórnar Sauðárkróks. í dag, fimmtudaginn 26. júní, verður jarðsettur frá Sauðárkróks- kirkju Guðjón Sigurðsson bakara- meistari, en hann lést á 78. aldursári í sjúkrahúsinu aðfaranótt þess 16. júní sl. eftir erfiða sjúkralegu. Með Guðjóni Sigurðssyni er geng- inn einn af eldhugum Sjálfstæðis- flokksins af gamla skólanum. Einn þeirra fjöldamörgu manna og kvenna sem settu sjálfstæðisstefn- una í öndvegi og trúðu á einstakling- inn og allt gott sem í honum býr. Einn þeirra sem vissu að framtíð okkar byggist á því að framtak einstaklingsins fái að njóta sín, þar sem því verður við komið og um leið, að þeir sem aflögufærir em hjálpi þeim sem hallloka fara í lífs- baráttunni af einhverjum ástæðum. Guðjón Sigurðsson var óvenju- lega mikill félagsmálamaður og óhætt að segja að hann hafi verið þátttakandi í allri félagslegri upp- byggingu á Sauðárkróki allt frá því hann settist hér að um 1930. Hann átti sæti í síðustu hreppsnefnd Sauðárkrókshrepps fyrir Sjálfstæð- isflokkinn, sem kosin var 1946, og síðan í fyrstu bæjarstjóm Sauðár- króks 1947 og síðan samfleytt bæjarfulltrúi flokksins til 1974, að hann gaf ekki lengur kost á sér. Hann var forseti bæjarstjómar frá 1958 til 1966, en þann tíma hafði Sjálfstæðisflokkurinn undir hans forystu hreinan meirihluta í bæjar- stjóm Sauðárkróks. Guðjón var, sem að líkum lætur, 43 aðaldriffjöðurin í öllu starfi Sjálf- stæðisflokksins hér á staðnum ára- tugum saman. Naut hann í því starfi sínu, eins og í flestu er hann tók sér fyrir hendur, frábærs stuðn- ings og trausts ágætrar eiginkonu sinnar, Ólínu heitinnar Bjömsdótt- ur, sem stóð við bakið á manni sín- um alla tíð af elju og dugnaði og . var enda um langt skeið formaður sjálfstæðiskvennafélagsins. Ólínu missti Guðjón haustið 1980, en þá var hún á sama aldri og hann var nú. Lát hennar varð Guðjóni mikill harmur. Sjálfstæðisfélögin hér á Sauðár- króki eiga þeim hjónum mikið að þakka fyrir allt það óeigingjama starf, sem þau bæði unnu flokknum í heilan mannsaldur, og hann sem bæjarfulltrúi fiokksins í 28 ár. T.d. má nefna, að áratugum saman var kosningaskrifstofa flokksins bæði fyrir sveitarstjórnarkosningar og Álþingiskosningar í bakaríinu og Guðjón í raun kosningastjóri. Þá sátu þau bæði marga landsfundi Sjálfstæðisflokksins og Guðjón gegndi auk þessa flestum trúnaðar- störfum fyrir flokkinn hér í kjör- dæminu sem um er að ræða. Það er því mikið skarð höggvið í raðir okkar sjálfstæðismanna hér á Sauð- árkróki að _þeim hjónum báðum, Guðjóni og Olínu, gengnum. Þeirra mun lengi verða minnst í okkar hópi. Saga Sauðárkróks mun halda nöfnum þeirra á lofti löngu eftir að félagamir em gengnir. Óllum aðstandendum em sendar innilegar samúðarkveðljur. Sjálfstæðisfélag Sauðárkróks Sjálfstæðiskvennafélag Sauðárkróks FUS Vikingur nett kona og var alla tíð vel klædd, svo eftir var tekið. Um skemmri eða lengri tíma dvöldu oft ferðamenn að austan hjá þeim hjónum, eða Qöldskyldur í húsnæðishraki um tíma. Þau nutu þess bæði að geta rétt einhveijum <• hjálparhönd og ef á var minnst kom: Blessuð góða, ekki minnast á þetta. Garðurinn kringum húsið er eins og annað, unnið í honum af natni og hugað að velferð blóm- anna, enda einu sinni verðlaunaður. Margir em þeir sem hjá þeim hjón- um hafa dvalið, sem nú við leiðarlok renna þakklátum huga til þeirra fyrir gamalt og gott. Högni veiktist snögglega í desember 1979 og andaðist 22. þess mánaðar. Eftir það bjó Sigríður ein áfram í Barma- hlíðinni, en eitthvað vantaði, senni- lega enginn til að hugsa um. Ætli henni hafi fundist eins og sagt er „Hana vantaði nöldrið sitt“. Hröm- unarsjúkdómur fór að htjá hana, < sem ágerðist og kom svo að ein gat hún ekki verið og fyrir tveim ámm óskaði hún eftir því sjálf að fá inni í Elli- og hjúkmnarheimilinu Gmnd og fékk það. Dvaldi hún þar við sérstaklega alúðlega umönnun starfsfólks og aðstandenda Gmnd- ar, sem þeim em færðar þakkir fyrir. Högni og Sigríður eignuðust tvö böm. Guðrún Helga Högnadóttir er gift undirrituðum og eigum við þijá syni, Högna, kvæntan Lilju Ástvaldsdóttur, fjögur böm, þijú á lífi. Magnús, kvæntan Ingileif A. Gunnarsdóttur, eitt bam. Einar, kvæntan Björgu Bragadóttur, tvö böm. Eyjólfur Högnason er kvænt- - ur Kristjönu Heiðdal, eiga þau þijú böm. Jóhanna Sjgríður, var gift, skilin, eitt bam. Ásta, gift Þorgeir, Ástvaldssyni, þijú böm. Högni, ógiftur, bamlaus. Ég hef verið margorður í þessari grein, ég hef þá afsökun að eftir 36 ár sem tengdasonur þeirra hjóna hef ég fyrir mikið að þakka og ekki síður fýrir bömin mín, tengdaböm og bamabörn, fyrir alla þá hjálp, góð- vild og gleði, sem þau hafa veitt mér og mínum. Það var mikil inn- eign og þó ég hafi reynt á meðan færi var, þá er halli frá minni hlið við það uppgjör. Dánardagur Sig- ríðar var einnig afmælisdagur Högna. Það má jafnvel halda það, að hann hafi sótt hana. Nú væri nóg komið. Drottinn gefðu dánum ró, hinum líkn sem lifa. Valur Magnússon Sigríður Einars- dóttir - Minning Fædd 28. september 1907 Dáin 19.júní 1986 Sigríður Einarsdóttir fæddist á Holtahólum á Mýmm, A-Skafta- fellssýslu og var því á 79. aldursári erhún lést 19. júní sl. Á Holtahólum er víðáttufagurt mjög eins og reyndar víðar í Skafta- fellssýslum. Þar em sandar, fyöll, fljót og jöklar, tignarleg fegurð. Ekki er langt síðan bæir þar í sýslu vom taldir einangraðir og afskekkt- ir. Gerði það óbrúaðar ár, erfið vatnasvæði, engin höfn, svo til algert sambandsleysi, óalgengt að utanaðkomandi fólk væri á ferð án þess að erindi væri brýnt. Frá Holtahólum þurfti að sækja alla leið í Papós, en þar var höfn og verslunaraðstaða, yfir allskonar ófæmr, sanda og heiðar til aðdrátt- ar fyrir heimilið og tóku slíkar ferðir daga með vosbúð og erfiði sem lestarferðum fylgdi á þeim slóðum. Heimilið á Holtahólum þurfti mikils við. Einar Sigurðsson bóndi, fæddur 7. júní 1857, dáinn 7. nóvember 1945, og kona hans, Guðrún Eiríksdóttir fædd 8. ágúst 1864, dáin 31. maí 1927, eignuðust fimmtán börn, þijú dóu strax, tólf komust upp, mikið myndarfólk, dreifðust um landið, urðu flest langlíf, giftust öll og em afkomend- ur þeirra orðnir nokkur hundmð. Af þessum stóra og myndarlega systkinahóp, er nú í dag einn bróð- ir, Ásgeir Éinarsson, fyrmrn starfs- maður Reykjavíkurborgar, á lífi 80 ára gamall. Allt þetta fólk hafði alveg sérstaklega fágaða framkomu og við fyrstu kynni afar sérstakar áherslur á íslenskt mál, sem má heyra víða í Skaftafellssýslsum. Ef þau hittust nokkur saman, þá var oft unun á að hlýða orðaskipti þeirra, þá blandaðist saman einlæg kæti, sem þau áttu flest sameigin- lega, jafnvel galsi, ásamt áherslum í orðum og setningum og þó um- fram allt hin ljúfmannlega og góða framkoma við alla. Hvort heldur var, að lítil jörð gat ekki framfleytt jafn stórri fjölskyldu, eða löngun til meiri fjölbreytni í sambandi við menntun, vinnu eða tækifæri, brugðu hjónin í Holtahólum búi 1911, létu jörð í hendur syni sínum, Ólafi, og fluttust vestur til Reykja- víkur, ásamt sex bama sinna. Fjög- ur voru eftir fyrir austan, ýmist gift eða ráðin í aðra vinnu. Á meðan húsnæðis var leitað og svipast um eftir vinnu bjó fólk það allt hjá Sigríði og Guðjóni Helgasyni, bónda í Laxnesi á meðan, en hann var vel kunnur vegavinnuverkstjóri austur þar, og hafði hann nokkru áður tekið tvo syni þeirra Holtahólahjóna með sér og voru þeir í Laxnesi þegar hópurinn kom. Mikil vinátta hefur ávallt verið síðan milli Holtahóla- fólks og Laxnesfólks, tvö börn voru skírð Sigríður og Guðjón í höfuðið á þeim hjónum. Systkinin sem hing- að fluttust ílentust hér í Reykjavík, stofnuðu heimili og komu sér alls- staðar vel. Sigríður, yngst þeirra systkina, giftist Högna Eyjólfssyni, rafvirkja og síðar símaverkstjóra 6. júní 1930. Bjuggu ungu hjónin fyrst á ýmsum stöðum, en komu sér upp eigin íbúð í Barmahlíð 25. Áður höfðu þau fengið erfðafestu- land í Fossvogi og byggðu þar góð- an sumarbústað, sem dvalið var í frá því snemma vors og fram á haust. í Barmahlíðinni bjuggu þau frá 1946 við myndarskap. Sigríður var alla tíð húsmóðir, mikil húsmóð- ir. Ef eitthvað bjátaði á gátu börnin gengið að því vísu, að mamma var á sínum stað, ef gesti bar að garði, gat hún úr litlu hráefni gert veislu- kost á stuttum tíma og hún naut þess að fá gesti. Sigríður var lagleg kona með vel lagaða andlitsdrætti,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.