Morgunblaðið - 14.08.1986, Qupperneq 5
________________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
Tannlæknadeilan:
5
í greinargerð með tillögunni
kemur m.a. fram að nýbyggingin
taki mið af skipulagstillögunni
„Kvosin 85“ og sé hönnuð með það
fyrir augum að styrkja göturýmið
en samtímis að virða Alþingishúsið.
Þinghúsið sjálft verði áfram mið-
punkturinn gagnvart Austurvelli og
nýbyggingunni.
I tillögu Sigurðar er gert ráð
fyrir að aðalinngangur nýbygging-
arinnar snúi að Austurvelli við
Kirkjustræti. Nýbyggingin, sam-
kvæmt tillögunni, er sett saman úr
„götuhúsi“ og „garðhúsi“ sem um-
lykja yfírbyggt miðrými. Þaðan er
bein aðkoma að allri starfsemi Al-
þingis. Þá er gert ráð fyrir að
nýbyggingin taki mið af þakkanti
og öðrum línum á úthliðum Al-
þingishússins. Byggingin hafi
berandi veggi og plötur úr járn-
bentri steinsteypu. Úthliðar, mið-
rými og og göngugatan verði
klæddar með flísum. Flísarnar verði
annaðhvort steinsteyptar með til-
settum. steinum, eða mögulega
framleiddar úr íslenskum steini, t.d.
blágrýti. Þök verði klædd fölsuðum
álplötum og allir gluggar einnig úr
áli.
I samræmi við
markmið höfundar
í umsögn dómnefndar um tillögu
Sigurðar segir m.a.: „Byggingin
fellur vel að Alþingishúsinu og
húsalínu Kirkjustrætis. Glerturn-
inn, sem varðar innganginn, styður
virðuleika Alþingishússins á áþekk-
an hátt og turn dómkirkjunnar.
Aðkoma að húsinu er í samræmi
við þau markmið sem höfundur set-
ur sér og inngangur er einkar vel
gerður. Yfirsýn innanhúss er mjög
góð svo og staðsetning hinna ýmsu
deilda.
Tengingin við Alþingishúsið er
varla nógu aðlaðandi en vegna ein-
faldleika hennar verða áhrif inn-
rýmis, sem er í senn innigarður og
torg, enn meiri. Tengslin frá inn-
lými um gang til annars áfanga
eru ágæt. Uppbygging og efnisva!
er gott og í samræmi við markmið
höfundar. Bifreiðastæði eru í tvö-
földum kjallara. Byggingin er í
stærra lagi.“
Látlaus virðuleiki
Þoi-valdur Garðar Kristjánson,
formaður dómnefndar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að unnið hefði
verið að undirbúningi og gerð
keppnislýsingar í samráði við þing-
flokkana. Gert hefði verið ráð fyrir
nýbyggingu í tveimur áföngum.
„Fyrri áfangi var ætlaður fyrir þá
stai-fsemi sem segja má að ætti að
vera í sama húsi og þingsalir en
rúmast þar ekki nú,“ sagði Þorvald-
ur Gaiðar. „í þessum áfanga er
gert ráð fyrir aðstöðu fýrir þing-
nefndir, þingflokka, skrifstofu
Alþingis, bókasafn, skjalasafn og
mötuneyti. Einnig var gert ráð fyr-
ir sérhönnuðu húsiými fyrir
ræðuritun, tölvuvinnslu og sjón-
varpsupptöku. Enn fremur var
ætluð aðstaða fyrir útgáfu alþing-
istíðinda og dreifingu þeirra og
afgreiðslu til almennings. Síðari
áfangi var ætlaður fyrir skrifstofur
þingmanna ásamt tilheyrandi for-
rýmum og fundarherbergjum."
Þorvaldur Garðar sagði að með
tilliti til þess að um er að ræða
byggingu í kjama miðborgarinnar
hefði dómnefnd lagt áherslu á að-
lögun að umhverfinu og tengsl við
Alþingishúsið, auk tillits til sveigj-
anleika og hagkvæmnissjónarmiða.
Þá hafi dómnefndin haft í huga,
að fyrri áfanga hæfði látlaus virðu-
leiki ytra og innra, þar sem þar
færi fram starfsemi sem ætti heima
í þinghúsinu sjálfu ef rými hefði
leyft, en síðari áfangi svaraði frek-
ar til venjulegs skrifstofuhúsnæðis.
Dómnefnd skipuðu auk Þorvalds
Garðars Salome Þorkelsdóttir,
Helgi Hjálmarsson, Ingvar Gísla-
son, Hilmar Þór Björnsson, Þor-
valdur S. Þorvaldsson og Stefán
Benediktsson. Alls bárust 25 tillög-
ur og mun sýning á þeim standa
yfir í Listasafni Háskóla íslands í
Odda Lil 20. ágúst nk. daglega frá
klukkan 14.00 til 22.00.
Við teljum okkur ekki
skylt að fylgja gjald-
skrá lieilbrig’ðisráðherra
- segir Birgir Jóhannsson formaður TFÍ
TANNLÆKNAR telja sig á engan hátt bundna af gjaldskrá þeirri sem
heilbrigðismálaráðherra hefur sett, en telja slíka einhliða gjaldskrá
vera brot á lögum nr. 56 frá 1978 um verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti, enda séu tannlæknar fijálsir að því að verð-
leggja þjónustu sína eins og ýmsar aðrar stéttir. Þetta kom m.a. fram
á blaðamannafundi sem Tannlæknafélag íslands hélt í gær.
Frá 1974 hafa verið í gildi lög um
endurgreiðslur á tannlæknakostnaði
barna, unglinga og lífeyrisþega. Þeg-
ar lögin voru sett var gert ráð fyrir
að samið yrði við tannlækna um þjón-
ustu við þessa þjóðfélagshópa og var
slíkur samningur gerður í apríl 1975.
Tryggingastofnun ríkisins sagði þess-
um samningi upp frá 1. jánúar 1981
og síðan þá hefur verið unnið eftir
gamla samningnum samkvæmt
bráðabirgðasamkomulagi.
í lagabreytingu frá 1984 var tekið
fram að sjúkrasamlögin skyldu end-
urgreiða tannlæknakostnað sam-
kvæmt samningi sem Trygginga-
stofnun gerði fyrir þeirra hönd eða
samkvæmt gjaldskrá sem heilbrigðis-
ráðherra setur ef engir samningar
eru fyrir hendi. Tannlæknar benda
hins vegar á að þess sé hvergi getið
að þeim beri að taka gjald samkvæmt
fyrrnefndri gjaldskrá, enda væri slíkt
brot á lögum um verðlag og sam-
keppnishömlur. Telja tannlæknar að
samkvæmt þeim lögum sé þeim
beinlínis óheimilt að hafa samráð um
verð fyrir þjónustu sína, enda leggja
þeir áherslu á að sú gjaldskrá sem
þeir hafa gefíð út sé aðeins til leið-
beiningar.
Í tilkynningu sem Tannlæknafélag
íslands sendir frá sér segir orðrétt:
„Ef hins vegar ríkisvaldið heldur fast
við sinn skilning, að allir tannlæknar
eigi að leggja gjaldskrá ráðuneytisins
til grundvallar við alla tannlækna-
þjónustu sem þeir inna af hendi, hvort
sem viðkomandi sjúklingur á rétt á
endurgreiðslu hjá sjúkrasamlagi eða
ekki, er þar með brotið gegn fyrr-
nefndum samkeppnislögum, og vilja
Morgunblaðið/Bjan
Tannlæknar skýrðu afstöðu sína í deilunni við Tryggingastofnun ríkis-
ins á blaðamannafundi í gær. Talið frá vinstri: Sigurgeir Steingrímsson,
gjaldkeri Tannlæknafélags Islands, Svend Richter, varaformaður, Birg-
ir J. Jóhannsson, formaður, Ólafur G. Karlsson, formaður gjaldskrár-
nefndar og Sverrir Einarsson, meðstjórnandi.
tannlæknar ekki vera þátttakendur í
slíku athæfi."
Samningaviðræður Tannlæknafé-
lagsins og Tryggingastofnunar ríkis-
ins sigldu sem kunnugt er í strand í
kjölfar þess að Tryggingastofnunin
dró til baka tilboð um 23,49% hækk-
un á gjaldskrá og gáfu þá skýringu
að kanna þyrfti betur og bera saman
gjaldskrá tannlækna hérlendis ann-
arsvegar og starfsbræðra þeirra á
hinum Norðurlöndunum hinsvegar.
í viðmiðunargjaldskrá Tannlækna-
félagsins var gert ráð fyrir 13%
hækkun og sagðist Birgir Jóhanns-
son, formaður félagsins efast um að
ráðherra hafi verið kunnugt um tilboð
tannlækna að dreifa hækkuninni
fram til 1. janúar nk.
Birgir sagði ennfremur að tann-
læknar myndu að svo stöddu áfram
styðjast við sína viðmiðunargjaldskrá
og nota eigin reikningseyðublöð, en
heilbrigðismálaráðherra lét útbúa ný
eyðublöð til notkunar við sundurliðun
aðgerðarliða, að sögn þeirra, til að
auðvelda endurgreiðslur. „Tannlækn-
ar eru allir af vilja gerðir til að leysa
þennan hnút sem skapast hefur í
samningviðræðunum,“ sagði Birgir.
í,RlSTOTfe
ITALIA
í sumarsól
Erum að selja síðustu ágúst-sætin
til Lignano 28. ágúst, 2 vikur.
Höfum fengið nokkrar viðbótaríbúðir á Olimpo og
Sabbiadoro.
Viðbótarvika í fjallafegurð Austurríkis eykur fjölbreytni
ferðarinnar, gisting í Zell am See og flogið heim frá
Salzburg.
Aðeins örfáum sætum
enn óráðstafað.
EVROPUKEPPNI
MEISTARALIÐA
Juventus — Valur í Torino 17. september
Sjáið bestu miðjumenn Evrópu
— Platini og Laudrup — á heimavelli.
Austurstræti 17, sími 26611.
Vikuferð
11. september
5 daga dvöl í Lignano
2 dagar í Torino
fyriraðeins
24.000 krónur.
Innifalið flug, gisting og að-
göngumiði á leik Juventus og
Vals.
Flogið heim um London og
val um framlengingu til að sjá
leik þar 20. sept. t.d. Arsenal
og Oxford.