Morgunblaðið - 14.08.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.08.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986 17 áherslu á eina gerð leikritunar. Raunar er eina skilyrðið það, að handritið sé skrifað af einum höf- undi en ekki heilum hóp. Að öðru leyti getur höfundur fylgt expres- sjónisma, impressjónisma, natúral- isma, realisma . . .“ - Hvers vegna erlendir höfund- ar? „Tja, tilteknir erlendir höfundar vöktu athygli okkar og okkur fannst mikilvægt að áhrif frá öðrum lönd- um bærust inn á höfundaþingið. Að við gætum séð og skilið erlend verk sem eru sýnd hér. Erlend verk hafa orðið mikilvægur hluti af höf- undaþinginu. Hópurinn frá íslandi hafði ekki unnið á þennan hátt áður, svo þau sýndu ekki einungis leikverk hér, þau uppgötvuðu líka aðferð sem gæti skotið rótum á Isiandi. Við höfum átt þess kost að sjá verk Guðmundar Steinssonar og aðrir höfundar blandað geði við þennan kollega sinn. Það er aldrei að vita hvað þessi samskipti, formleg sem óformleg, eiga eftir að leiða af sér. Hingað kemur fólk úr öllum lands- homum og frá mörgum heimshlut- um. Þetta þing hefur mjög margháttuð áhrif og hér er ekki settur endapunkturinn við leikrita- texta - þetta er aðeins byrjunin!" - Hingað kemur leiklistarfólk frá ýmsum löndum? „Já, við viljum gjaman deila kunnáttu okkar með öllum þeim sem áhuga hafa. Hér eru núna gestir frá Kína og Rússlandi, frá Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Ítalíu og öðmm löndum. Við ein- beitum okkur að bandarískum leikritum en gefum einnig um- heiminum gaum. Það var mjög ánægjulegt að fá Guðmund Steinsson og hópinn frá íslandi í heimsókn. Okkur finnst það mikill fengur að geta séð leik- ara frá öðmm löndum og þeir hafa tekið fullan þátt í leikskáldaþinginu jafnframt því að vinna að sínu verki.“ - Er samband milli Yale og Waterford? „Nei, þetta em tveir aðskildir hlutir, þótt sumir haldi að svo sé ekki. í New Haven stjórna ég með- al annars leikhúsi og er þar á höttunum eftir leikurum og höfund- um, en í Waterford er verið að hjálpa til við þróun höfundarins. A höfundaþinginu er unnið fýrir allt leikhús í landinu, svo þar ræði ég ekki við höfund um það að taka leikrit eftir hann til sýninga við mitt leikhús. Raunar er það vinnu- regla að á meðan þingið stendur ræða menn ekki um kaup á sýning- arrétti. Öllum er velkomið að hitta höfundinn, sjá verkið flutt og lesa handritið. En það er ekkert meira niðurdrepandi en samkeppni milli höfundanna, að þeir séu að storka hver öðmm með því að segja frá tilboðum sem þeir hafi fengið. Verk sem hér em sýnd eiga að vera óseld, það má ekki vera búið að semja um sýningarréttinn. A hinn bóginn hafa flest verk sem hér em sýnd, síðan verið tekin til sýn- inga í leikhúsum víðsvegar um Bandaríkin. Uppboðið hefst þegar þinginu lýkur." - Þarftu að stjórna öllu með harðri hendi? „Já, svo sannarlega. Við sýnum núna 17 leikrit á 28 dögum, hér er unnið gífurlega mikið og ég stjóma með harðri hendi. Hér er reynt að betmmbæta leikritun al- mennt og það hefur tekist með því að fylgja þeim reglum sem hér gilda. Mér finnst það uppörvandi að höfundarnir sem hafa verið hér núna em ánægðir með þau áhrif sem þeir sjálfir og verk þeirra hafa orðið fyrir. Ég vona að það samband treyst- ist, sem þátttaka Guðmundar Steinssonar og íslenska leikhópsins hefur myndað, og að gagnkvæm samskipti þessara tveggja þjóða aukist á leiklistarsviðinu, sérstak- lega að því er varðar ný leikverk." TIL HAMINGJU REYKJAVIK í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur bjóðum við upp á 5 daga Reykjavík m\ r Reykjavík ^UUara 1786-1986 AFMÆLIS TILBOÐ Hamborgari, franskar og Coke Aðeins 169,00 kr. allan daginn. Fimmtudag, Föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag. NÝTT SIMANÚMER 69-11-00 Pétur Sigurðsson, stjórnarformaður bankans, afhendir verðlaunahafanum, Einar Ingvasyni, Kjörbók ásamt innistæðu. Á hægri hönd Péturs stendur Einar B. Ingvarsson, fyrir aftan verðlaunahafann er Jónas Haralz, bankastjóri. Getraun Landsbankans Upphæðin Á 100 ára afmælissýningu Landsbankans hafði verið komið fyrir plastsúlu fullri af smápen- ingum og var fólki gefinn kostur á að spreyta sig við að finna hver upphæðin i súlunni væri. var 22.509 Innlagðir getraunaseðlar reynd- ust vera 5.447 og næst réttri upphæð var Einar Magnússon, Ána landi 3, Reykjavík. Taldi hann upp- hæðina vera 22.510 kr. en í plasts- úlunni vom 22.509,70 kr. þannig 70 krónur að einungis munaði 30 aumm. Verðlaunin vom Kjörbók með 22.509,70 kr. innistæðu og var hún afhent viðkomandi af formanni bankaráðs, Pétri Sigurðssyni, hinn 6. þ.m. Stjórnunarfélag Islands — Tölvuskóli Stjórnunarfélags íslands tók til starfa haustiö 1985. í upphafi var Ijóst aö áhugi fyrir aukinni menntun er tengdist tölvum og tölvuvæöingu var mikill. Á haustmisseri 1986 tekur skólinn til starfa 1. sept. og verður kennt í 4 klst. á dag í 14 vikur (samt. 280 klst.). Námsefni: □ Kynning á tölvum_____________________________ □ Stýrikerfi og skráarkerfi____________________ □ Kerfisgreining_______________________________ □ Kerfishönnun_________________________________ □ Forritun_____________________________________ □ Gagnasafnsfræði______________________________ □ íslenski tölvumarkaðurinn____________________ I Til að uppjylla kröfur atvinnulífsins Miklar kröfur eru geröar til nemenda með prófum og heimaverkefnum. Einnig hefur reynst nauösynlegt aö gera kröfur um lágmarksmenntun nemenda, sem nú eru stú- dentspróf, sambærileg menntun eöa starfsreynsla. Auk þess þurfa nemendur aö taka inntökupróf í skólann. Nemendur sem útskrifast úr Tölvuskóla Stjórnunarfélagsins geta aö námi loknu unniö með tölvunar-, viðskipta- og kerfisfræðingum við hugbúnaðarframleiðslu og rekstur tölvukerfa. Með því að gera miklar kröfur til nemenda uppfyllir Tölvuskólinn kröfur atvinnulífsins. Tölvuskólinn hefst 1. septemberog stendur í 14 vikur. Allar nánari upplýsingar í síma 62 10 66 OCTAVO / SlA 28.20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.