Morgunblaðið - 14.08.1986, Síða 27

Morgunblaðið - 14.08.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAtíUR 14. ÁGÚST 1986 27 sama og framleiðendum líka, því þeir eru vanir því að ekkert sé hægt að gera í málinu. Fáir þeir að vera í friði með framleiðslu sína er sama varan, í sömu umbúðunum, framleidd þangað til hún er úr sér gengin og markaðurinn er mettað- ur. Það er ekkert sem hvetur þá til vöruþróunarstarfs og þar með tæknilegra framfara. Það sem við ekki framleiðum sjálf, flytja heild- salarnir hvort eð er inn. Umbjóð- endur þeirra, framleiðendurnir í viðskiptalöndum okkar, taka ómak- ið af íslenskum iðnaði og stunda vöruþróunarstarfið við allt önnur skilyrði, þar sem virkt einkaréttar- kerfi er til staðar. Þeim finnst á hinn bóginn sjálfsagt að afla sér þeirrar verndar sem mögulegt er hér á landi, enda er hún auðfengin, með því að sækja hér um einka- leyfi 'og afla sér einkaréttar til notkunar á auðkennum sínum. Einskisnýt einka- leyfislöggjöf Á árinu 1923 voru sett lög hér á landi um einkaleyfi. Þau hafa í aðalatriðum staðið óbreytt síðan. Það eru líklega ekki margir iðn- rekendur sem telja að þessi lög komi sér við á nokkurn skapaðan hátt. Síðan þau voru sett hafa ver- ið veitt um 1.200 einkaleyfi hér á landi. Þar af hafa íslendingar feng- ið innan við 60 slík leyfi, afgangur- inn hefur verið veittur útlendingum. Mér er ekki kunnugt um nema eitt dómsmál sem borið hefur verið undir Hæstarétt íslands, þar sem reynt hefur á lög þessi. Það mál er frá árinu 1945. Af því má draga þá ályktun að lög þessi séu ekki virk í sama skilningi og höfundalög- in. Islensk framleiðslufyrirtæki sækja ekki um einkaleyfi og nýta sér ekki þá möguleika sem þau veita. Þeirra sjónarmið er væntan- lega það að það þjéni cngum tilgangi. Það er ekki stunduð mark- viss vöruþróun innan fyrirtækjanna og því er ekkert að vernda. Þeir sem reynt hafa segja þá sögu að út úr því sé ekkert að hafa nema kostnað- inn Þeir útlendingar sem hér sækja um einkaleyfi gera það þó ekki að tilefnislausu eða án tilgangs. Þeir eiga í flestum tilvikum viðskipta- tengsl við landið, flytja inn vörur eða hafa veitt innlendum aðilum heimild til framleiðslu á vörunni. Af þessu má draga þá ályktun að núgildandi lög um einkaleyfi þjóni ekki tilgangi fyrir íslenskan fram- leiðsluiðnað. Á hinn bóginn eru vörumerkjalögin, sem eru frá árinu 1968, virk í þeim skilningi að þeim er beitt fyrir íslenskum dómstólum og íslenskir atvinnurekendur afla sér réttinda samkvæmt þeim í þó nokkrum mæli. Þó er yfirgnæfandi meirihluti hinna 12—14.000 merkja sem hér eru skráð í oigu útlendinga. Uppfinningahugs- unarháttur Störf uppfinningamanna og hönnuða, hvort heldur þeir starfa sjálfstætt eða í þjónustu annara, eru forsenda tæknilegra framfara. Tæknilegar framfarir eru grund- völlur iðnaðarsamfélagsins. Leiðin til þess að kalla fram uppfinninga- hugsunarhátt og frumleika hjá þeim sem starfa að lausn tæknilegra vandamála, vöruþróun og hönnun framleiðsluvara, er að endurgjalda þeim bæði fyrir hinn skapandi þátt starfsins og hinn fjárhagslega. Það er gert með veitingu einkaréttarins. íslenskir uppfinningamenn sem starfa sjálfstætt hafa mætt skiln- ingsleysi af hálfu iðnaðarins og af hálfu hins opinbera. Þeir fá ekki fjárhagslegan stuðning eða aðstöðu til þess að þróa hugmyndir sínar, auk þess sem íslensk einkaleyfislög- gjöf og framkvæmd hennar er ekki sniðin að þörfum þeirra. Að þessu leyti er þessum einstaklingum ekki sköpuð þau skilyrði sem til þarf til þess að hvetja þá til dáða. Framleið- endur hafa að sama skapi ekki tileinkað sér að laða fram uppfínn- ingahugsunarhátt innan fyrirtækj- anna með því að afla þeim hugmyndum sem fram koma fyllstu verndar, enda þótt öll löggjöf á þessu sviði sé fyrst og fremst sett í þágu þeirra sjálfra og uppfinn- ingamannana. Þeir hafa ekki tekið þátt í eða óskað eftir breytingum eða viðbótum við núgildandi lög. Útflutningsiðnaður Að hefðbundnum iðnaði frátöld- um er íslenskt atvinnulíf mjög sérhæft. Við búum yfir mikilli þekk- ingu í fiskiðnaði og eigum mögu- leika á að gera þessa þekkingu og aðra séríslenska þekkingu að út- flutningsiðngrein. Margar uppfinn- ingar hafa verið gerðar hér á landi á síðustu áratugum án þess að tek- ist hafi að markaðsfæra þær erlendis. Ef íslenskur iðnaður á að eiga möguleika á erlendum mörkuð- um er nauðsynlegt að framleiðend- ur tileinki sér að afla framleiðslu- vörum sínum fyllstu verndar á heimavelli. Þannig verða þeir sam- keppnisfærari við innflytjendur iðnaðarvara, sem í mörgum tilvik- um em sömu aðilar og keppa þarf við á erlendum mörkuðum. Þeir þurfa að gefa löggjöfinni gaum og velta því fyrir sér hvort hún er snið- in með þeirra þarfir í huga og hvort ekki sé hægt að gera framkvæmd hennar virkari og víðtækari en nú er. Koma þarf upp vettvangi þar sem framleiðendur og hugvitsmenn geta notið hags hvorir af öðrum. Hugmyndastefnan 1986, sem iðn- aðarráðherra hefur beitt sér fyrir að haldin verði og hefst í lok ágúst- mánaðar, er þýðingamikið skref í þessa átt. Höfundur er héraðsdómslög- maður íReykjavík og formaður samtaka um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar. Eureka fer vel af stað ísland varð 19. þátttökuríkið í lok júní í APRÍL í fyrra var stofnað til samvinnu nokkurra Evrópuríkja á sviði tækni og vísinda, og var þessari samvinnu gefið nafnið Eureka. Nafnið er dregið af gríska orðinu heuréka, sem þýðir „ég hef fundið“, en sagt er að Arkímedes hafi hrópað þetta orð er hann fann leið til að ákvarða hreinleika gulls. Nú eiga 19 Evrópuríki aðild að þessum samtökum, og varð ísland 19. aðild- arríki á fundi Eureka í London um mánaðamótin júní-júlí. Tilgangur Eureka er að styrkja samvinnu Evrópu- ríkja, tveggja eða fleiri, við verk- efni er varða hátækniþróun o.fl. og auðvelda þannig evrópsk- um fyrirtækjum samkeppnina við fjársterka aðila í Bandaríkjunum og Japan. Eftir fundinn í London í júnílok höfðu ráðherrar frá aðild- arríkjunum 19 samþykkt framlög upp á rúmlega tvo milijarða doll- ara til styrktar 72 sameiginlegum verkefnum í Evrópu. Þykir það vel af stað farið á ekki lengri tíma en þeim 15 mánuðum scm liðnir voru frá því hugmyndinni um Eureka var hrint í framkvæmd. Það þykir einnig góðs viti að yfirvöld og stjórnmálamenn í að- ildarríkjunum hafa lítil áhrif reynt að hafa á ákvarðanir um hvaða vcrkefni skuli styrkt. Það em fyr- irtæki víða um Evrópu sem leggja fram tillögur um sameiginleg verkefni sem óskað er eftir að njóti aðstoðar Eureka. Þessar til- lögur eru svo teknar til afgi'eiðslu hjá Eureka og lagðar fyrir ráð- herranefnd samtakanna til endanlegrar ákvörðunar. Með stofnun Eureka er ekki verið að koma á fót enn einu skrif- stofubákninu, því þar starfa aðeins 13 manns, þar af sjö sér- fræðingar á ýmsum sviðum. Og þótt skrifstofur samtakanna séu í Brússel eru engin skipulags- tengsl milli Eureka og Evrópu- bandalagsins. Það var Franeois Mitterrand, forseti Frakklands, sem átti frum- kvæðið að stofnun Eurcka til að efla hátækniiðnað í Evrópu og gera hann samkeppnishæfari við samskonar iðnað í Bandaríkjun- um, sem nýtur milljarða dollara stuðnings hins opinbera vegna rannsókna í sambandi við geim- varnaáætlunina svonefndu og annarra opinberra verkefna. Þegar fyrirtæki í að minnsta kosti tveimur Evrópulöndum hafa komið sér saman um samvinnu um ákveðin verkefni, lagt áætlan- ir sínar fyrir Eureka og fengið þær samþykktar fer það nokkuð eftir viðkomandi ríkisstjórnum hverja fyrirgreiðslu fyriitækin hljóta. Brezk yfirvöld hafa til dæmis ákveðið hámai'ksframlag til rannsókna 50% af heildarkostn- aði og til þróunar 25% af heildar- kostnaði. Ymsai' gagnrýnisraddir hafa heyrzt fi'á keppinautum utan Evr- ópu um að verið sé að nota fjármuni skattgreiðenda til að kosta rannsóknir hjá fyrirtækjum, sem ættu að standa á eigin fótum í samkeppninni. En því er til að svara að í Japan og Bandaríkjun- um, þar sem geimvarna-milljarð- arnir streyma sem óbeinn stuðningur til fyrirtækjanna, fer opinber fjárstuðningur við rann- sóknar- og þróunarverkefni vaxandi. Einnig hefur samvinna fyrirtækja þar á þessum sviðum aukizt verulega. En þessi opinberi stuðningur og samvinna koma ekki í veg fyrir að fyrirtækin stundi eðlilega samkeppni í fram- leiðslu og markaðsmálum. Eðlilegi'i gagnrýni á Eureka væri að stuðningurinn væri of h'till. Þau 72 verkefni, sem hlotið hafa samþykki ráðherranefndar- innar, eiga tvennt sameiginlegt. Þau eiga að stuðla að skjótri þró- un hátæknibúnaðar fyrir markað- inn í Evrópu, og að hveiju verkefni standa í það minnsta fyrirtæki í tveimur Evrópulöndum. En ef evrópsk fyrirtæki eiga að vera samkeppnishæf á alþjóðamarkaði þarf að veija meira en tveimur milljörðum dollara í samstarf þeirra á sviði rannsókna og þróun- ar. Meðal stærri vcrkefna sem Eureka hefur þegar lýst stuðningi við má nefna eftirfarandi: • Þijú evrópsk fjarskiptafyrir- tæki - Alcatel í Frakklandi, Italtel á Italiu og Plessey í Bretlandi - hafa tekið upp samvinnu á vegum Eureka um þróun tölvukubba og leysigeislatækni sem á að gera upplýsingamiðlun um núverandi símakerfi 2.000 sinnum hraðvirk- ari en hún er í dag. Með Ijós- þráðatækni á einnig að vera unnt að senda myndir um símakerfin jafnhliða tali, en þá er stutt í það að talsímar verði búnir sjónvarps- skermum þannig að viðmælendur sjái hvor annan. Áætlað er að þetta sameiginlega verkefni kosti sem svarar 160 milljónum dollara og að fyrsta símkerfið verði kom- ið upp í bytjun næsta áratugar, • 13 biíasmiðjur í Evrópu hafa tekið upp samvinnu um verkefni ! er hlotið hefur nafnið Prome- theus. Þar er verið að þróa tölvubúnað sem á að vera bílstjór- um til aðstoðar. Ætlunin er að búa bifreiðar skynjurum og ört- ölvum sem skynja aðsteðjandi hættu í tæka tíð og geta komið í veg fyrir árekstra, til dæmis í þoku, með því að gefa bílstjóran- um viðvörunarmerki eða taka við stjórn bifreiðarinnar. Áætlað er að þetta verkefni kosti um 15 milljónir dollara fyrsta árið og síðan um 55 milljónir dollara á ári næstu sjö árin. • Á vegum Eureka hafa sjö frönsk, dönsk, svissnesk og ítölsk fyrirtæki tekið upp sameiginlegar rannsóknir á úrbótum á tölvu- hugbúnaði. Áætlað er að rann- sóknirnar standi yfir í 6 ár og kosti rúmlega 140 milljónir doll- ara. Annað skylt verkefni á vegum FJureka er samvinna fyrir- tækja í Frakklandi, Noregi, Spáni, Svíþjóð og Vestur-Þýzkalandi sem á að leiða til þess að komið verði upp nýrri evrópskri verksmiðju til framleiðslu á hugbúnaði. Áætlað er að undirbúningur taki átta ár og að kostnaður verði um 327 milljónir dollara. Auk þessara stærri verkefna er fjöldinn allur af smærri eða umfangsminni verkefnum á veg- um Eureka, og má þar til dæmis nefna samvinnu Frakka og Spán- veija um ræktun nýrra afbrigða sólfífla, en úr þeim er m.a. unnin matarolía auk þess sem jurtin er notuð til gripafóðurs. Þetta verk- efni á að taka tíu ár og kostnaður er áætlaður 4 milljónir dollara. Þessi stuðningur Eureka við samvinnu evrópskra framleiðenda á sviði hátæknibúnaðar lofar góðu, en þetta er aðeins upphafið. Verulegur árangur næst ekki fyrr en Evrópuríkin bijóta niður við- skiptamúra sína sem nú koma í veg fyrir streymi tæknibúnaðar milli landanna. (Heimild: The Economist.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.