Morgunblaðið - 14.08.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986 Grj ótkast úr glerhúsi eftir Guðmund Árna Stefánsson Úrslit bæjarstjómarkosninganna 31. maí sl. kölluðu eðlilega fram ólíkar tilfinningar í brjósti manna. Sumir glöddust, aðrir urðu fyrir vonbrigðum. Sumir unnu, aðrir töp- uðu. Það er gangur þessara mála. Hitt er svo annað mál, að sumir taka erfíðum úrslitum með karl- mennsku, en aðrir eiga erfiðar með að sætta sig við dóm kjósenda. Svo virðist sem einstaka sjálf- stæðismenn í Hafnarfirði teljist til síðasttalda hópsins. Að minnsta kosti verður ekki annað lesið úr grein Áma Grétars Finnssonar, bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, í Morg- unblaðinu þann 6. ágúst sl. Biturðin vegna kosningaúrslitanna í Hafnar- firði er mikil hjá þessum foringja Sjálfstæðisflokksins í Firðinum, enda fór flokkur hans halloka á sama tíma og aðalandstæðingurinn, Alþýðuflokkurinn, vann glæstan sigur og bætti við sig þremur bæjar- fulltrúum. Og þessi úrslit leiddu síðan til þess að Alþýðuflokkurinn myndaði nýjan bæjarstjómarmeiri- hluta ásamt Alþýðubandalaginu. Blekking í tilvitnaðri Morgunblaðsgrein Árna Grétars er fjárhagsstaða bæj- arsjóðs gerð að umtalsefni og á ósvífinn hátt reynt að koma því inn hjá lesendum, að fjárhagsstaða bæjarsjóðs hafi snarversnað fyrir tilverknað nýja meirihlutans á að- eins nokkmm vikum. Leiðarahöf- undur Morgunblaðsins endurtók síðan þennan þvætting, þessar blekkingar, í blaðinu þann 8. ágúst sl. Vegna þessarar umræðu um fjár- mál Hafnarfjarðarbæjar er rétt að hið sanna komi í ljós. Þegar núver- andi bæjarstjómarmeirihluti tók við búinu þann 15. júní sl. var auðvitað farið ofan í fjármál bæjarins. Þá strax kom í ljós að greiðsluflæðis- áætlanir fyrri meirihluta vom á þunnum ís. Hafði fyrri meirihluti vanáætlað fjárþörf bæjarsjóðs yfir sumarmánuðina, framkvæmda- mánuðina, um tvo tugi milljóna króna. Framtíðarsýnin í fjármálun- um var ekki meiri en svo hjá fyrrverandi meirihluta. „Tómi bæj- arkassinn", sem Ami Grétar Finnsson ræðir um í grein sinni er því arfur frá fyrri meirihluta. Nú- verandi bæjarstjórnarmeirihluti í Hafnarfirði hefur ekki á þessum vikum sem liðnar em frá því hann tók við taumunum sett í gang nýjar fjárfrekar framkvæmdir. Erfíð lausafjárstaða bæjarsjóðs er því al- farið á ábyrgð fyrri meirihluta og talar skýrt um fyrirhyggjuleysi Sjálfstæðisflokksins. Árni Grétar kastar því steinum úr glerhúsi. En unnið er að lausn vandans og það mun takast. Hitt er ástæða til að undirstrika að núverandi meirihluti A-flokk- anna mun standa við þau fyrirheit, að álögum á bæjarbúa verður stillt í hóf og þó ekki dregið úr fram- kvæmdum og þjónustu. Þvert á móti. Og bæjarsjóður verður rekinn hallalaus á ársgmndvelli. Að laga til Aftur á móti er ástæða til að vekja athygli á því, að það mun taka hina nýju stjórnendur í Hafn- arfírði einhvem tíma að hreinsa til og lagfæra ófremdarástand á fjöl- mörgum sviðum eftir fýrri meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins. Það gerist ekki á einni nóttu. Guðmundur Árni Stefánsson „Tómi bæjarkassinn“, sem Arni Grétar Finns- son ræðir um í grein sinni er því arfur frá fyrri meirihluta. Nú- verandi bæjarstjórnar- meirihluti í Hafnarfirði hefur ekki á þessum vikum sem liðnar eru frá því hann tók við taumnum sett í gang nýjar fjárfrekar fram- kvæmdir.“ Til marks um það, þá hefur nú- verandi bæjarstjórnarmeirihluti gengið fram fyrir skjöldu og lag- fært laun starfsfólks bæjarins í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar og er þessa dagana í viðræðum við fulltrúa verkalýðsfélaganna um kjarabætur til handa verkafólki sem hjá bænum starfar. Bæjaryfírvöld munu finna svigrúm til þess, þótt þröngt sé. Þær kjarabætur hafa ekki og munu ekki breyta grund- velli að fjárhagsstöðu Hafnarfjarð- arbæjar. Þær orsaka ekki hina erfíðu lausafjárstöðu. Það er ástæðulaust að elta ólar við ýmsar furðulegar staðhæfíngar aðrar í grein ÁGF, s.s. eins og varð- andi sölu Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar. Sú sala var gagnrýnd af A-flokkunum, sem þótti illa að því máli staðið. Þungi bæjarsjóðs af þeirri sölu er mikill og ekki öll kurl komin til grafar í þeim efnum. Sorg og leiði Úrslitum kosninganna getur eng- inn breytt og við þær niðurstöður verða menn að sætta sig hvort sem þeim er það ljúft eða leitt. Sá dag- ur rennur upp, að sjálfstæðismenn í Hafr.arfírði verða að viðurkenna orðinn hlut; þeir stjórna ekki í Hafn- arfírði næstu fjögur árin. Sem minnihlutaflokkur eiga þeir að veita núverandi meirihluta gagnrýnið aðhald. Það er þeirra lýðræðislega skylda. En er ekki rétt að þeir sinni því hlutverki sínu í stað þess að ausa úr skálum sorgar og leiða vegna úrslita kosninganna, eins og grein Árna Grétars ber með sér? Hafnarfjarðarbær mun vaxa og eflast á nýbyijuðu kjörtímabili, þótt einhvern tíma taki að lagfæra það sem miður fór hjá fyrri meirihluta; svo sem eins og að skilja lausafjár- stöðu eftir jafn erfiða og raun ber vitni. En úr þeim vandamálum og öðrum mun meirihluti A-flokkanna leysa fljótt og vel og koma skikk á fjármál bæjarins og önnur þau mál sem bíða lagfæringar. Höfundur er bæjarstjóri íHafnar- firði. Salix kojumar frá Viðju eru sterkar, stílhreinar og rúma jafnt unga sem aldna. Henta jafnt heima sem í sumarbústaðnum. Fáanlegar í hvítu og beyki. HUSGAGNAVERSLUNIN Þar sem góðu kaupin gerast Smiðjuvegi 2 Kópavogi sfmi 44444 Þau hlutu viðurkenningu fyrir skrúðgarða í Ámessýslu: f.v. Guð- mundur Eyjólfsson og Sólveig Jóna Magnúsdóttir, Húsatóftum, Elín Gunnlaugsdóttir, Brekkku, sem tók við viðurkenningu fyrir foreldra sína, Eyjólfur Guðnason og Helga Magnúsdóttir, Bryðjuholti, Þómnn Kristjánsdóttir og Ingimundur Bjarnason, Vatnsenda, og Magnea Sigurbergsdóttir, Selparti. Skrúðgarðar til sveita í Arnes- sýslu verðlaunaðir Selfossi. Undanfarin ár hefur Samband sunnlenskra kvenna veitt viður- kenningar fvrir garðrækt á sambandssvæði sínu. Nýlega vom afhentar viðurkenningar fyrir skrúðgarðaræktun í Árnes- sýslu og fyrir valinu varð garður Helgu Magnúsdóttur og Eyjólfs Guðnasonar að Bryðjuholti í Hrunamannahreppi. í ár voru garðar í Árnessýslu verðlaunaðir en f fyrra voi-u það garðar í Rangárvallasýslu. í dóm- nefndinni f ár voru konur úr Rangárvallasýslu en í fyrra var dómnefndin skipuð konum úr Ár- nessýslu þegar garðar í Rangár- vallasýslu voru skoðaðir. Auk aðalverðlaunanna fengu fjórir garðar viðurkenningu, garður Renötu Vilhjálmsdóttur og Gunn- laugs Skúlasonar að Brekkugerði, Biskupstungum, garðurinn að Sel- parti í Gaulveijabæjarhreppi í eigu Magneu Sigurbergsdóttur og As- geirs Sæmundssonar, garður Þórunnar Kristjánsdóttur og Ingi- mars Bergmann að Vatnsenda í Villingaholtshreppi og loks garður- inn að Húsatóftum á Skeiðum í eigu Sólveigar Magnúsdóttur og Guð- mundar Eyjólfssonar. Það er svonefndur Rögnusjóður sem stendur undir viðurkenningun- um en hann var stofnaður til minningar um Rögnu Sigurðardótt- ur frá Kjarri í Ölfusi sem var mikill brautryðjandi í garðrækt. Markmið- ið með viðurkenningunum er að vekja athygli á því sem vel er gert Helga Magnúsdóttir Bryðjuholti með aðalverðlaunin. í garðrækt og að benda á þá mögu- leika sem fyrir hendi eru í þessu efni á Suðurlandi. Sig. Jóns. T-Jöfðar til XX fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.