Morgunblaðið - 14.08.1986, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
Dagskráin
Eg vona að lesendur fyrirgefi
mér gáleysislegt tal um land-
vættina í gærdagsgreininni en
hvalveiðideilan hefur sínar skoplegu
hliðar og sú þjóðemisvakning er
hefir sprottið af afskiptum Sáms
frænda á vafalaust efir að brýna
nýjar ungmennafélagshetjur víðar
en undir AkraQalli. Nóg um það,
víkjum að alvarlegri málefnum;
sjónvarpsdagskrá blessaðra bam-
anna. Eg er víst búinn að rita hér
í blaðið einhver reiðinnar býsn um
ríkissjónvarp bamanna og þykir
víst sumum nóg um en aðrir vilja
ólmir fá meira að heyra. Ástæðan
fyrir því að ég hegg hér áfram í
sama knémnninn er sú ánægjulega
þróun er hefur undanfarið átt sér
stað í herbúðum bamasjónvarpsins
á sviði textagerðar. Á ég þá fyrst
og fremst við að nú ber meira á
því en fyrr að þekktir leikarar séu
fengnir til að lesa texta bamaefnis-
ins.
Undirritaður hefur lengi barist
fyrir því að þjálfaðir leikarar séu
fengnir til að lesa texta með barna-
myndum. Er ég persónulega þeirrar
skoðunar að hér sé um stórmál að
ræða því að mínu mati skiptir mjög
miklu máli að hinir fæmstu menn
séu ætíð fengnir til að lesa texta
bamaefnisins og þannig læri bömin
að meta gott málfar en gefist ekki
upp fyrir enskunni í fyllingu tímans.
Vil ég ekki láta hjá líða að þakka
leikurunum Eddu Þórarinsdóttur,
er segir okkur ævintýri frá ýmsum
löndum á laugardögum, og Amari
Jónssyni, er lýsir hinum dansandi
böngsum á þriðjudögum.
Mjór er mikils vísir og ég sé fyr-
ir mér hóp af leikurum fyrir framan
hljóðnemann þegar bamamyndim-
ar birtast á skjánum og vel mætti
hugsa sér að útvarpsleikhúsið við
Skúlagötuna legði hér sjónvarpinu
lið. Þá má ekki gleyma honum
Kuggi, myndskreyttu sögunni
hennar Sigrúnar Eldjám, er Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona lýsti til
skamms tíma í myndabók miðviku-
daganna. Ég veit ekki hvort sjón-
varpsáhorfendur hafa tekið eftir því
að texti Sigrúnar var jafhframt
fluttur á táknmáli uppi í hægra
homi sjónvarpsskermsins, í það
minnsta virtist táknmálið ekki
trufla smáfólkið hið minnsta. Minn-
umst þess að sjónvarpið er eign
allra landsmanna, líka þeirra er af
einhverjum ástæðum heyra ekki hið
talaða orð.
CastróvinafélagiÖ
í einu af þriggja mínútna frétta-
skotum gærdagsins var þess sér-
staklega getið að nýlega hafi dr.
Fidel Ruz Castró hinn kúbanski
alvaldur, átt sextugsafmæli. Mátti
fréttamaðurinn vart vatni halda af
hrifningu er hann lýsti líkams-
ástandi Castró .. .klýfur fjöll sem
ungur maður . .. og ekki var lýsing-
in á andlega ástandinu síðri
.. .Castró fer enn um landið þvert
og endilangt og flytur jafn langar
ræður og þá hann hóf valdaferilinn.
Klykkti fréttamaðurinn út með því
að enginn vafi léki á að Castró
væri ástsæll með afbrigðum. Mikið
hlýtur Fidel Castró að hugsa hlý-
lega til fréttastofu útvarps.
Hringiðan
Hugljúf snót, Ingibjörg Ingadótt-
ir, stýrir þætti á rás tvö er hún
nefnir Hringiðuna. Ingibjörg hefur
venjulega þann háttinn á að leiða
fram leynigest er hlustendur af-
hjúpa síðan og fá plötu í fundarlaun.
Venjulega kumrar eitthvað í leyni-
gestinum en síðastliðinn þriðjudag
brá svo við að hann steinþagði.
Klár stúlka hringdi loks og spurði:
„Ert þú leynigesturinn?" „Já, hvem-
ig datt þér það í hug...“ hló
stjómandinn. Ég hef gaman af
svona tiltektum hjá Qölmiðlamönn-
um, þær bera vott um frumleika
og þor.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Þóra Friðriksdóttir, Valur Gíslason og Amar Jónsson leika öll í leikriti útvarpsins
í kvöld.
Reykjavík í augnm skálda:
Fjallað um árin
frá 1965 til 1975
■H í kvöld er á dag-
20 skrá rásar eitt
11. þátturinn
um Reykjavík í augum
skálda í umsjá Símonar
Jóns Jóhannessonar og
Þórdísar Mósesdóttur.
Fjallað verður um tíma-
bilið frá árinu 1965 til
ársins 1975.
Lesnar verða frásagnir,
sögur og Ijóð, meðal annars
úr Dægurvísu eftir Jakob-
ínu Sigurðardóttur, Gunn-
ari og Kjartani eftir
Véstein Lúðvíksson, Að-
eins einu blómi eftir Þuríði
Guðmundsdóttur og Ný-
græðingum í ljóðagerð sem
Éysteinn Þorvaldsson tók
saman.
I forsæludal
■H Leikrit útvaips-
30 ins í kvöld er
eftir John M.
Synge og nefnist í for-
sæludal. Einar Olafur
Sveinsson þýddi. Leikstóri
er Guðmundur Ólafsson og
tæknimaður Hreinn Valdi-
Um náttmál
■I í þættinum Um
00 náttmál á rás
■” tvö ætlar Ámi
Þórarinsson að taka tali
þau Ernu Indriðadóttur,
Ingu Rósu Þórðardóttur og
Finnboga Hermannsson.
Þau má nefna útverði
Ríkisútvarpsins. Ema er
nýtekin við starfi forstöðu-
manns Ríkisútvarpsins á
Akureyri, Inga Rósa er
starfsmaður þess á Aust-
urlandi og starfar þar að
fréttaöflun og dagskrár-
gerð og Finnbogi gegnir
sama starfi á Vestfjörðum.
marsson.
Leikritið gerist á af-
skekktum bæ í litlum dal
á írlandi þar sem þjóðtrúin
lifir enn góðu lífí. Nótt eina
beiðist fömmaður gistingar
á bænum og fagnar hús-
freyjan komu hans enda
bóndi hennar nýlátinn.
Fljótlega kemur þó í ljós
að ekki er allt sem sýnist
þama á bænum og ein-
kennilegir atburðir taka að
gerast.
Með hlutverk hjónanna
í dalnum fara þau Þóra
Friðriksdóttir og Valur
Gíslason en förumanninn
leikur Arnar Jónsson. Þá
kemur og við sögu gæf-
lyndur smali sem Jóhann
Sigurðarson leikur.
Leikritið verður endur-
flutt þriðjudaginn 19.
ágúst kl. 22.20.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
14. ágúst
7.00 Veðurfregmr, Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Olla og Pési" eftir
Iðunni Steinsdóttur. Höf-
undur les (6).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíð
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liönum
árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Söngleikir á Broadway.
Annar þáttur: Yfirlit, siðari
hluti. Umsjón: Árni Blandon.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Efri ár-
in. Umsjón: Finnbogi
Hermannsson.
14.00 Miðdegissagan:
„Katrín", saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Siguröardóttir lýkur
lestrinum (33).
14.30 í lagasmiöju Magnúsar
Eiríkssonar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Norðurland. Orn Ingi, Anna
Ringsted og Stefán Jökuls-
son.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Rapsódiur Franz Liszts.
Sjötti þáttur. Umsjón: Guð-
mundur Jónsson.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
Aðstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 i loftinu. — Hallgrimur
Thorsteinsson og Guðlaug
Maria Bjarnadóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
20.00 Leikrit: „í forsæludal"
eftir John M. Synge. Þýð-
andi: Einar Ólafur Sveins-
son. Leikstjóri: Guðmundur
Ólafsson. Leikendur: Valur
Gíslason, Þóra Friðriksdótt-
ir, Jóhann Sigurðarson og
Arnar Jónsson. (Endurtekið
nk. þriðjudagskvöld kl.
22.20.)
20.30 Frá tónlistarhátíöinni í
Björgvin í vor. Radio-Vokal
kvartettinn frá Hamborg
syngur lög eftir Hans Leo
19.15 Á döfinni
Umsjónarmaöur Maríanna
Friðjónsdóttir
19.25 Litlu Prúöuleikararnir
(Muppet Babies) Fjórði þátt-
ur. Teiknimyndaflokkur eftir
Jim Henson. Þýöandi: Guðni
Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Unglingarnir i frumskóg-
inum. Umsjónarmaður Jón
Gústafsson. Stjórn upp-
Hassler, Valentin Haus-
mann, Orlando di Lasso og
Franz Schubert. Peter
Stamm leikur með á píanó.
(Hljóðritun frá norska út-
varpinu.)
21.00 Einleikur í útvarpssal.
Kolbeinn Bjarnason leikur
Fantasíu í D-dúr eftir Georg
Philip Telemann og „Qu-
odlibet" eftir Donald Mart-
ino.
21.20 Reykjavik i augum
skálda'
Umsjón: Simon Jón Jó-
hannsson og Þórdis
Mósesdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Islensk tónlist
a. Áttskeytla fyrir átta hljóð-
færaleikara eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. íslenska
hljómsveitin leikur; höfund-
urinn stjórnar.
b. Þrenning, verk fyrir klarin-
ettu, selló og píanó eftir
Mist Þorkelsdóttur. Jón Að-
alsteinsson Þorgeirsson,
Arnþór Jónsson og Þóra
Fríða Sæmundsdóttir leika.
15. ágúst
töku: Gunnlaugur Jónasson.
21.10 Bergerac
— Fjórði þáttur. Breskur
sakamálamyndaflokkur i tíu
þáttum. Aðalhlutverk: John
Nettles. Þýöandi: Kristmann
Eiðsson.
22.25 Seinni fréttir
22.30 Eigur Richards
(Richard's Things)
Bresk biómynd frá árinu
1980. Leikstjóri: Anthony
Harvey. Aðalhlutverk: Liv
Ullman og Amanda Red-
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
Tónlistarkrossgátan
22.40 „Opus Magnum eða
sagan um Vigni erkiengil"
eftir Einar Kárason. Höfund-
ur les.
23.00 Á slóðum Jóhanns Seb-
astians Bach
Þáttaröð eftir Hermann
Börner frá austur-þýska út-
varpinu. Fjórði þáttur.
FIMMTUDAGUR
14. ágúst
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Ásgeirs Tómassonar,
Gunnlaugs Helgasonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Guðriður Haraldsdóttir sér um
barnaefni í 15 mínútur kl.
10.05.
12.00 Hlé.
man. Myndin er byggð á
skáldsögu eftir Frederic
Raphael. Kona nokkur fréttir
að bóndi hennar liggur slas-
aður á sjúkrahúsi. Þegar
þangað kemur eru menn
tregir til að greina henni frá
tildrögum slyssins. Það
kemur lika á daginn að eig-
inmaöurinn hefur leynt hana
ýmsu um sjálfan sig. Þýð-
andi: Reynir Harðarson.
00.15 Dagskrárlok
mmm
Jórunn Viðar þýðir og flytur.
23.40 Zappa getur ekki verið
alvara
Þáttur um söngtexta banda-
ríska tónlistarmannsins
Franks Zappa í umsjá Önnu
Ólafsdóttur Björnsson. (Áð-
ur útvarpaö í april 1981.)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
14.00 Andrá
Stjórnandi: Ragnheiður Daví-
ðsdóttir.
15.00 Sólarmegin
Þáttur um soul- og fönktónlist
í umsjá Tómasar Gunnars-
sonar. (Frá Akureyri.)
16.00 Hitt og þetta
Stjórnandi: Andrea Guð-
mundsdóttir.
17.00 Gullöldin
Jónatan Garðarsson kynir lög
frá sjöunda áratugnum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir tiu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Um náttmál
Árni Þórarinsson sér um þátt-
inn.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Heitar krásir úr köldu stríði
„Napur gjóstur næddi um
menn og dýr. — Ár almyrkv-
ans." Umsjónarmenn:
Magnús Þór Jónsson og
Trausti Jónsson.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr-
ir Reykjavik og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.