Morgunblaðið - 14.08.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
15
Béttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Sagt er;
Vinnan forðar okkur frá þivnnur;
leiðindum, löstum og fátækt.
— gullkom —
Ef fylgt verður rétti dagsins
í dag — þá bætið hungri við list-
ann.
Það getur verið ágætt að hvíla
liðið á hvalkjötinu með málsverði
úr hökkuðu kálfakjöti. Einhver
verður að styðja við bakið á
bændum á þessu „hvalaári"!
Kjötið er fitulaust, létt i maga,
ódýrt og ágætt örlítið bragð-
bætt. Hér er uppskrift:
Kálfakótilettur
með rjómasósu
og kartöflu gratín fyrir 4—6
.600 gr hakkað kálfakjöt,
V2 bolli brauðmylsna,
Vs tsk. mulið rósmarín,
V6 tsk. tarragon,
1 tsk. salt,
malaður pipar og brauðmylsna,
2 msk. smjörlíki,
V2 bolli kaffitjómi,
V4 bolli mjólk,
2 ten. kjúklingakraftur.
Það má fá gott kálfakjöt í versl-
unum (Vogar). Gætið þess að kjötið
sé vel hakkað og ekki mikið af
tægjum í því.
2. Blandið vel saman kálfakjöti,
brauðmylsnu, rósmarín, tarragon,
salti og pipar. Hnoðið úr kjötdeiginu
6—7 sívalninga og fletjið úr og
mótið í góðar kótilettur 2 sm þykk-
ar.
2. Hitið helminginn af feitinni á
pönnu, veltið kótilettunum upp úr
brauðmylsnu og steikið í feitinni 5
mín. á hvorri hlið. Kótilettumar eru
teknar af pönnunni, og þeim haldið
heitum.
3. Það sem eftir er af feitinni er
sett á pönnuna og feitin hituð þar
til hún hefur fengið brúnan lit. Þvf
næst er ijóma, mjólk og kjúklinga-
krafti bætt úr í, nota má mjólk
eingöngu. Suðan er látin koma upp
og pannan hrist á meðan sósan er
að jafnast.
4. Sósan er sett yfir kótilettumar,
í gegnum sigti ef þarf og þær síðan
bomar fram með
Kartöflu-gratín
Útbúið það fyrst og bakið á með-
an kótiletturnar eru matreiddar.
500 gr þéttar kartöflur,
V2 bolli kaffujómi eða ijómi,
V2 bolli mjólk,
100 gr smjör eða smjörlíki,
salt og múskat.
1. Kartöflurnar eru afhýddar og
sneiddar niður örþunnt.
2. Notið grunnt fremur breitt eld-
fast mót. Bræðið Va af smjörinu í
mótinu, raðið síðan kartöflusneið-
unum í mótið, í 2—3 lög. Salti og
múskati er stráð yfir hvert lag svo
og flísar af smjöri.
3. Að síðustu er vökvanum hellt
yfir kartöflumar og því sem eftir
er af smjörinu og kartöflu-gratínið
bakað við 180—200oC í 30—45 mín.
Bökunartími fer eftir gerð kart-
aflanna. Þær nýju þurfa skemmri
bökunartíma. Þessi kartöfluréttur
er mjög góður með bæði kjötréttum
og fiskréttum.
Verð á hráefni:
600 gr hakkað kálfahakk kr. 114,00
kaffiijómi kr. 37,80
500 gr kartöflur kr. 37,00
kr. 188,80
bílasýningu Glóbus að Lágmúla 5, sem hefst í dag og stendur til sunnudags, verða sýndir glæsilegir fulltrúar Citroén,
i árgerð 1987, sem hver um sig sameinar franskt hugvit, tæknifullkomnun, formfegurð og kraft.
BÍLASÝNING
Citroén AXEL
frá kr. 236.000.-
Stóri rúmgóði smábíllinn sem ís-
lenskir ökumenn hafa tekið opnum
örmum. Axel hefur góða aksturseig-
inleika og er sterkbyggðari en stærð-
in gefur til kynna. Fínn fyrir þá sem
kunna gott að meta.
Sýningin stendur frá kl. 9 til kl. 22 í dag og á morgun og á milli 13 og 18 laugardag og sunnudag. Það er tilvalið að
koma við í Lágmúlanum því harmonikkuleikari verður á staðnum og spilar franska tónlist og við bjóðum öllum upp á
kaffi og meðlæti. - Verið velkomin.
Verð miðast við gengi 01.08. 1986.
Globuse
LÁGMÚLA 5
SÍMI 681555
GOTT FÓLK / SiA
Citroén BX
frá kr. 478.000.-
Meðalstóri glæsivagninn - afburða-
vel hannaður, aflmikill, sparneytinn,
framhjóladrifinn, mjúkur og þægi-
legur. Við verðum með 5 BX-a í
sýningarsalnum.
Citroén CX
frá kr. 850.000.-
Flaggskip Citroén flotans og glæsi-
legur eftir því. Dúnmjúkur eins og
bræður hans, öruggur, fallegur og
húsbóndahollur.
Innifalið í verði er ryðvörn, skráning,
skattur, stútfullur bensíntankur og
hlífðarpanna undir vél.
m
CITROÉN ER ALLTAF Á UNDAN SINNI SAMTÍÐ
ARGERÐ
ER KOMINN TIL LANDSINS