Morgunblaðið - 14.08.1986, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
Tröllaplast
er langþolið
og sérstaklega
hannað
sem rakavörn í
nýbyggingum.
Tröllaplastið
er blátt,
til aðgreiningar
frá öðru
plasti.
Það kunna
úttektarmenn
að meta!
Heildsölubirgðir:
KRÓKHÁLSI 6 • SÍMI 671900
Gestur Einarsson forstjóri Ágætis:
„Byggjum upp nýtt fyrir-
tæki við breyttar aðstæður“
„Nú vill enginn fá gamla kerfið til baka
MIKLAR breytingar hafa orðið í sölumálum kartaflna og grænmetis
á undanförnum mánuðum og árum. Mesta breytingin varð í kjölfar
búvörulaganna sem samþykkt voru á Alþingi vorið 1985, en ákvæði
laganna um verslun með grænmeti áttu sér auðvitað töluverðan
aðdraganda sem ekki verður rakinn hér. I búvörulögunum var versl-
un með grænmeti gefin frjáls og ákveðið að leggja Grænmetisverslun
landbúnaðarins niður. Kartöflu- og garðyrkjubændur stofnuðu Sam-
tök íslenskra matjurtaframleiðenda (SÍM) og sölufyrirtækið Agæti
til að taka við rekstri Grænmetisins. Nokkur reynsla er nú komin
á rekstur þessa nýja fyrirtækis og þar er nú ýmislegt að gerast.
Gestur Einarsson vai1 ráðinn for-
stjóri Grænmetisversiunar land-
búnaðarins í október síðastliðnum.
Þegar hann kom að fyrirtækinu lá
fyrir að það yrði lagt niður ekki
síðar en í júní í ár en samtökum
framleiðenda stóð til boða að taka
reksturinn yfir með því að kaupa
lausafjármuni og leigja fasteignir
stofnunarinnar. Rekstur Grænmet-
isins var búinn að vera á hraðri
niðurleið um tíma og hafði það
misst stóran hluta viðskiptanna til
annarra dreifingaraðila. Var þá
ákveðið að láta breytinguna verða
strax en bíða ekki fram í júni. SIM
var stofnað í nóvember og þann 1.
desember sl. tók Agæti við rekstrin-
um og var Gestur ráðinn forstjóri.
Ágæti kaupir
„Guilaugað“
Deilur voi-u um eignarhald á fast-
eignum Grænmetisverslunarinnar
að Síðumúla 34. í búvörulögunum
var því slegið föstu að ríkið ætti
eignirnar en forystumenn bænda
töldu að bændui- ættu eignirnar
eftir að Grænmetið yrði lagt niður.
Við stofnun Ágætis varð að sam-
komulagi á milli aðila að setja þetta
deiluefni í gerðardóm til endanlegs
úrskurðar. Gestur sagði í samtali
við Morgunblaðið að eftir að for-
ráðamenn Ágætis hefðu athugað
málið vendilega þá hefðu þeir lagt
til að málið yrði einfaldað og Ágæti
keypti eignirnar áður en gerðar-
dómur hæfi störf fyrir alvöru. Hann
sagði að með þessu væri í raun við-
urkenndur eignarréttur ríkisins en
um leið bundinn endir á áratuga
óvissu um hver ætti þessar eignir.
Gestur sagði að nú væri búið að
ganga frá kaupsamningi við fjár-
mála- og landbúnaðarráðheira með
fyrirvara um samþykki Alþingis og
stjórnar SÍM. Kaupverðið er 62,5
milljónir kr. Hluti kaupverðsins hef-
ur þegar verið greiddur með
peningum en eftirstöðvamar verða
greiddar með verðtryggðu skulda-
bréfi til 25 ára. Gestur sagði að
fasteignirnar hefðu verið illa famar
og kaupverðið væri fullt markaðs-
verð á þeim. Hins vegar hefði ríkið
gengist inn á að lána hluta kaup-
verðsins til allmargra ára til að
gera Ágæti kleift að kaupa eignirn-
ar og binda þannig endi á deilurnar
um eignarréttinn.
„Enginn vill fá gamia
kerf ið til baka“
Um þróunina þann tíma sem lið-
inn er frá stofnun Ágætis sagði
Gestur: „Við höfum verið að byggja
upp nýtt og breytt fyrirtæki sem
gæti staðið sig í samkeppninni við
breyttar aðstæður. Þetta nýja fyrir-
tæki starfar við allt aðrar aðstæður
en Grænmetisverslunin, því nú er
verslun með grænmeti eins frjáls
og hægt er að hafa hana. Framleið-
endur ráða því sjálfir við hvaða
dreifingaraðila eða smásala þeir
versla og leita því hagkvæmustu
leiða. Einokunin er ekki lengur fyr-
ir hendi, þijú önnur tiltölulega stór
fyriitæki dreifa kartöflunum og
önnur þijú stór fyriitæki dreifa
grænmetinu.
Eg held líka að núna óski þess
enginn að fá gamla kerfið til baka.
Þetta veitir mikið aðhald. Við hjá
Ágæti höfum ekki efni á öðru en
að leita hagkvæmustu leiða í öllu
sem við gerum. Þessar breytingar
hafa orðið til þess að færa framleið-
endur nær markaðnum og kennt
þeim að skilja betur lögmál og þarf-
ir markaðarins. Við leggjum
ofurkapp á að koma sem best til
móts við þarfir neytenda og veita
sem besta þjónustu. Meðal annars
höfum við unnið mikið starf í gæða-
málum og vöruþróun,“ sagði
Gestur.
Farið inn á
nýjar brautir
Á þeim níu mánuðum sem liðnir
eru frá því Ágæti tók til starfa
hefur fyrirtækið aftur unnið sér
sess sem leiðandi fyrirtæki í heild-
söluverslun með kartöflur. Þar fara
nú í gegn 50-60% af allri íslensku
kartöfluframleiðslunni, að sögn
Gests, og verulegur hluti innfluttra
kartaflna. Fyrirtækið hefur haldið
áfram og aukið verslun með úti-
ræktað giænmeti og hefur hafið
dreifingu á öllu (iðru giænmeti sem
ræktað er hér á landi, svo sem tóm-
ötum, gúrkum og papriku, í
samkeppni við önnur heildsölufyrir-
tæki á þessu sviði. Fyrirtækið hefur
nokkra garðyrkjubændur í viðskipt-
um og hefur náð til sín töluverðum
markaði fyrir þessar vörur. Þá má
geta þess að Ágæti er leiðandi dreif-
ingaraðili á sveppum hér á landi
og sér um sölu á framleiðsluvörum
kartöfluverksmiðjunnar á Sval-
barðseyri á Reykjavíkursvæðinu.
Ágæti verður aðili að nýju fyrirtæki
um rekstur kartöfluverksmiðjunnar
sem fyrirhugað er að stofna.
Grænmetisvinnsla og
ný geymsluaðferð
Gestur sagði að nú væri Ágæti
að undirbúa frekari meðhöndlun og
vinnslu framleiðslunnar með upp-
setningu giænmetisvinnslu í
húsakynnum fyrirtækisins að
Síðumúla 34. Þetta sagði hann að
væri árangur vinnu fyrirtækisins í
vöi-uþróun og markaðsmálum. Nán-
ar aðspurður um þetta sagði Gestur
að boðið yrði upp á niðurskorið og
niðurrifið grænmeti eftir óskum
neytenda. Þá ætti fólk kost á að
kaupa tilbúið hiáefni í hrásalat, þar
sem saman væri blandað hinum
ýmsu giænmetistegundum, eða
jafnvel tilbúið hrásalat. Gestur
sagði að einnig væri verið að leita
leiða til að vinna úr útlitsgölluðum
kartöflum svo og giænmeti eins og
til dæmis tómötum. Byijað verður
á framleiðslu á kartöflusnakki og
kemur það fljótlega á markaðinn í
tilraunaskyni. Nú er hafin pökkun
á kartöflumús, reyndar úr innfluttu
hráefni í fyrstu, en síðar verður
athugað með framleiðslu á kartöflu-
mús úr íslenskum kaitöflum.
Ágæti mun taka í notkun
geymsluaðferð sem ekki hefur áður
verið notuð hér, en er þekkt í ná-
grannalöndunum. Pokarnir með
niðurrifna giænmetinu verða fylltir
upp með koltvísýringi og geymist
grænmetið þannig ferskt í viku-
tíma.
Gestur sagði að þeir hjá Ágæti
væri með strangt gæðaeftirlit og
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verðl' SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
Pið fáið að sníða niður allt plötuefni
hjá okkur í stórri sög
■ ykkur að kostnaðarlausu.
621566
BJÖRNINN
Við erum í Borgartúni 28
Vitnisburður þver-
móðsku og kaldlyndis
— segir í póstkorti
Heimdallar
um Berlínarmúrinn
13. ágúst voru nákvæmlega
25 ár liðin síðan byrjað var að
reisa Berlínarmúrinn. í tilefni
þess hefur Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, látið útbúa póstkort
til Erics Honneckers, leiðtoga
austur-þýska kommúnista-
flokksins. Kortið er gefið út í
5.000 eintökum og verður því
dreift í verslanir og víðar næstu
daga. Einstaklingum gefst síðan
kostur á að setja nafn sitt undir
texta póstkortsins, frímerkja
það og senda á heimilisfang
sendiráðsins.
Texti póstkortsins hljóðar svo:
„Herra Honnecker, ég vil leyfa
mér að mótmæla því að Berlínar-
múrinn skuli enn látinn standa. í
tuttugu og fimm ár hefur múrinn
verið tákn ófrelsis og ómannúðar,
þar sem hann hefur leitt til sundr-
ungar og aðskilnaðar vina og
fjölskyldna í þýsku ríkjunum. Múr-
inn er einnig vitnisburður um
kaldlyndi og þvermóðsku, sem hef-
ur komið í veg fyrir eðlileg
samskipti austurs og vesturs.
Ég hvet þig til þess að beita
áhrifum þínum til þess að múrinn
verði fjarlægður. Með því móti
yrði stigið stórt skref í átt til frið-
ar og frelsis."
Berlínarmúrinn. „í tuttugu og
fimm ár hefur múrinn verið tákn
ófrelsis og ómannúðar", segir
ni.a. í póstkortinu, sem senda á
Eric Honnecker leiðtóga austur-
þýska kommúnistaflokksins.