Morgunblaðið - 14.08.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
21
Gestur Einarsson forstjóri Ágætis með „Ágætiskartöflur1
Morgunblaðid/Ámi Sæberg
reyndu að bjóða aðeins það besta.
Unnið hefði verið markvisst að því
að gera framleiðendur meðvitaðri
um gæði vönmnar sem þeir fram-
leiða og sagði að þeir hefðu tekið
því vel. Nú væri til dæmis farið að
svæðamerkja grænmetið ti! að veita
framleiðendum aðhald. „Neytendur
mættu hins vegar vera kröfuharð-
ari,“ bætti Gestur við.
Ekki varð af samein-
ingn við Sölufélagið
Skipulag heildsöludreifingar á
grænmeti komst í fréttirnar í vor
þegar skýrt var frá því að Ágæti
UTANHÚS
MÁLNING
SEM
DUGAR
VEL
KÓPAL-DÝRÓTEX
hleyptir raka auðveldlega i
gegnum sig.
Mjög gott verörunar- og lútarþol
og rakagegnstreymi.
KÓPAL-DÝRÓTEX dugar vel.
HViTT>*e«
ÖSAftlA
og Sölufélag garðyrkjumanna
hefðu samþykkt að taka upp við-
ræður um nána samvinnu eða
samruna þessara tveggja helstu
dreifingarfyrirtækja á kartöflum og
gi-ænmeti, en fyrirtækin eru bæði
í eigu framleiðenda, eins og kunn-
ugt er. Gestur sagði: „í því frjáls-
ræði sem nú ríkir á þessu sviði er
ekki undan því vikist að leita allra
hagkvæmustu leiða. Það kom í ljós
að þessi tvö fyrirtæki geta samnýtt
marga hluti, svo sem aðstöðu,
starfsfólk og útkeyrslu, og gert
dreifinguna ódýrari. Þrátt fyrir að
stjómendur beggja fyrirtækjanna
væru þessu sammála náðist ekki
samkomulag og var málið látið nið-
ur falla í bili, hvað sem síðar verður.
Það er mín skoðun að framleið-
endur þurfi eigi að síður að koma
betra skipulagi á sín mál, þannig
að þeir komi betur til móts við
markaðinn í ræktun og framboði
gi-ænmetis og skapi atvinnugrein-
inni þar með meiri verðmæti því
framleiðslugetan eykst með aukinni
tækni sem aftur eykur hættuna á
offramleiðslu í einstökum vörum.
Aðalatriðið í þessu er betra upplýs-
ingastreymi á milli framleiðenda og
neytenda og það gerist ekki af
sjálfu sér,“ sagði Gestur.
- H.Bj.
Nýja Kökuhúsid itið Austurvöll
er nú einnig opid á fimmtudags-
kvöldum tilkl. 23.00.
Kökugerdarmeistarinn (Konditorinn)
bakar sjálfur á staðnum hið
Ijúffengasta góðmeti
Utflutningrir sjávarafurða:
Heildarverðmæti um
5 milljörðum
meira en í fyrra
Tæpum 33 þúsund tonnum meiri
útflutningur það sem af er árinu
FYRSTU sex mánuði þessa árs voru fluttar út sjávarafurðir fyrir
tæplega 16,8 miiljarða króna, alls 394.620 tonn. Á sama tíma í fyrra
voru flutt út tæplega 33 tonnum minna fyrir tæpa 12 milljarða
króna. Hlutfall sjávarafurða, miðað við heildarverðmæti vöruút-
flutnings landsmanna, er 79,2% fyrri hluta þessa árs en var 77,4%
á sama tímabili í fyrra.
Mest verðmæti voru í frystum
afurðum, en af þeim voru flutt út
81.656 tonn fyrir rúma 8 milljarða
króna. Samsvarandi tölur fyrir
1985 voru rúm 75 þúsund tonn
fyrir tæpa 6,2 milljarða. Rúm 52
þúsund tonn af söltuðum afurðum
hafa verið flutt út það sem af er
þessu ári fyrir rúma 4,2 milljarða
en á sama tíma í fyrra höfðu verið
flutt út rúm 47 þúsund tonn fyrir
tæpa 2,9 milljarða. Það sem af er
þessu ári hafa verið flutt út rúm
150 þúsund tonn af mjöli og lýsi
fýrir rúma 2 milljarða en í fyrra
voru það rúm 143 tonn fyrir rúman
1,7 milljarð króna.
Helstu viðskiptalönd eru Banda-
ríkin með 32.610 tonn fyrir rúma
4.1 milljarð, Bretland með 89.646
tonn fyrir rúmlega 3,1 milljarð,
Portúgal með 14.513 tonn fyrir
rúman 1,5 milljarða, Vestur-Þýska-
land með 26.989 tonn fýrir rúman
1.2 milljarða og Sovétríkin með
25.627 tonn fyrir rúman 1,1 millj-
arð.
ARNARHOLL
A horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Borðapantanir í síma 18833.
ÞAKMÁLNING SEM ENDIST
málninghlf