Morgunblaðið - 14.08.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
29
orðið stórt ef Guð er í því.
Ástjörn á greinilega marga vel-
unnara. Það kom best í Ijós þegar
við urðum fyrir verulegu vatnstjóni
hér í fyrra uppá um 750 þúsund
krónur. Þá voru allar hendur á lofti
og buðu vinnu og fé til aðstoðar
og við vonumst því til að jafna okk-
ur á þessu í ár. Sjónarhæðarsöfnuð-
urinn á Akureyri rekur heimilið, en
hér vinnur fólk úr ýmsum söfnuð-
um, og að mestum hluta utan
Sjónarhæðarsafnaðarins. Ástjörn
og starfið hér eru kannski besta
dæmið um það að kristnir menn
geta unnið saman að slíkum verk-
efnum þó þeir séu úr mismunandi
söfnuðum.
Þegar ég lít yfir farinn veg er
mér efst í huga þakklæti til allra
sem hafa stutt okkur með höndum
sínum og fé,“ sagði Bogi Pétursson.
Yndisleg sumur og
dagar liðu hratt
í TILEFNI 40 ára afmælis
Ástjarnar var gefið út veglegt
afmælisblað. I því er saga
drengjaheimilisins rakin og rætt
við ýmsa starfsmenn heimilisins
og drengi, sem þar hafa dvalið.
Einn þeirra er Akureyringurinn
Þorsteinn Vilhelmsson, sem nú
er kunnur skipstjóri.
Þorsteinn segir svo frá: „Eg var
í tvö sumur á Ástjörn. Það voru
yndisleg sumur og dagamir liðu
hratt við leik, fótbolta og að sjálf-
sögðu róður á vatninu. Sá róður
gekk stundum brösulega fyrir sig
og eiginlega má segja að þar hafi
ég fallið á skipstjómarprófínu.
Mér er minnistæðust fatan, sem
stóð á miðju gólfinu, í hana var
pissað á næturnar og það kom fyr-
ir að örtröð var við fötuna. Þá
vöknuðu stundum tær nágrannans.
En seinna sendi ég svo strákinn
minn á Ástjöm, því allir strákar
hafa gott af því að vera þar.“
Haldið upp á af-
Reykjavík 200 ára:
Fjölbreytt hátíðardagskrá
HÁTÍÐARDAGSKRÁ vegna 200
ára afmælis Reykjavíkurborgar
hefst að kvöldi laugardagsins 16.
ágúst og lýkur með kvöldverðar-
boði fyrir erlenda og innlenda
gesti á veitingahúsinu Broadway
þriðjudag 19. ágúst.
Hátíðin hefst með opnun sýning-
arinnar „Reykjavík í 200 ár“ -
svipmyndir mannlífs og byggðar, á
Kjarvalsstöðum kl. 19:00 á laugar-
dag. Á sýningunni, sem stendur til
28. september og er opin kl. 14:00
til 22:00 alla daga, gefst tækifæri
til að bera saman Reykjavík í fortíð
og nútíð. Aðgangseyrir er kr. 100
fyrir fullorðna. Böm yngri en 12
ára og ellilífeyrisþegar fá frítt inn.
Sýningarskrá kostar kr. 100.
Menntamálaráðherra afhendir
afmælisgjöf ríkisins til Reykvík-
inga, mannvirki ríkisins í Viðey
ásamt landi, sunnudaginn 17. ágúst
kl. 09:00 í Viðey. Hátíðarguðþjón-
ustur verða í öllum kirkjum og
messustöðum borgarinnar kl.
11:00. Borgarfulltrúar og vara-
borgarfulltrúar taka þátt í messu-
gjörð. Hátíðarguðþjónusta verður í
Dómkirkjunni kl. 14:00.
Tæknisýning opnar í nýja Borg-
arleikhúsinu kl. 17:00. Þetta er
yfirlitssýning yfir þá íjölbreyttu
starfsemi sem fram fer á vegum
borgarinnar og fyrirtækja hennar.
Aðgangseyrir er kr. 200 fyrir fu!l-_
orðna og kr. 100 fyrir böm yngri'
en 12 ára. Sýningin stendur til 31.
ágúst.
Vígdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands kemur í opinbera heimsókn
til Reykjavíkur kl. 10:00 afmælis-
daginn 18. ágúst og mun borgar-
stjórinn taka á móti forsetanum á
borgarmörkunum. Eftir hádegi kl.
13:30 leggja skrúðgöngur af stað
frá Hagaskóla og Hallgrímskirkju.
Skátar, lúðrasveitir og leikhópurinn
„Veit mamma hvað ég vil“ leiða
göngurnar. Fjölskylduskemmtun
hefst í Lækjargötu, Hljómskála-
garði og Kvosinni kl. 14:00 og
stendur til kl. 18:00. Meðal annars
verður taflmót á Hallærisplaninu,
25 metra langt útigrill í Hljómskála-
garðinum og í Lækjargötu verður
boðið upp á afmælistertu.
Hátíðardagskrá hefst við Amar-
hól kl. 20:15 þegar „Gleðigöngur",
leggja upp frá þremur stöðum í
borgjnni, Landakotstúni, Skóla-
vörðustíg og Háskólatröppum niður
að Arnarhóli. Þar mun Magnús L.
Sveinsson forseti borgarstjórnar
setja hátíðina. Flutt verður hátíð-
arverk eftir Jón Þórarinsson af
Sinfóníuhljómsveit íslands, ásamt
blönduðum kór, Páll P. Pálsson
stjómar.
Þá býður Davíð Oddsson borgar-
stjóri Vígdísi Finnbogadóttur
forseta íslands velkomna og forset-
inn ávarpar hátíðargesti. Flutt
verður leikverkið „Skúli fógeti og
upphaf Reykjavíkur“, eftir Kjartan
Ragnarsson og hljómsveit Gunnars
Þórðarsson flytur gömul og ný lög,
tengd höfuðstaðnum, kl. 22:05.
Leikið verður fyrir dansi fram und-
ir miðnætti þegar Davíð Oddsson
borgarstjóri ávarpar hátíðargesti.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
stjórnai- flugeldasýningu kl. 24:00
en tónlist verður leikin fram undir
kl. 01:30.
Leiðangursmenn eru nemendur og kennarar við Ardingly-heimavist-
arskólann í Bretlandi.
Breskur leiðangur
gerir bækling um
íslenska náttúru
- hafa rannsakað eins ferkílómetra
svæði í nágrenni Húsafells
UNDANFARNAR brjár vikur
hefur 25 manna hópur frá Ard-
ingly-skólanum íi Bretlandi verið
á ferðalagi hér á landi. Hópurinn
hefur haft bækistöðvar i grennd
við Húsafell og kannað og kort-
lagt eins ferkílómetra svæði á
mótum Lambár og Geitár. í vetur
munu þau síðan gefa út bækling
með náttúrulýsingu og leiðsögn
um svæðið á ensku og tslensku.
Undirbúningur Ardingly-leiðang-
ursins hefur staðið í tvö ár og í
fyrra komu foringjar hans hingað
og ferðuðust um landið til að velja
svæði það sem kannað skyldi. Fyrir
valinu varð svæðið á mótum Lamb-
ár og Geitár, í nágrenni Húsafells.
Leiðangurinn samanstendur af
25 nemendum og kennurum frá
Ardingly-skólanum í Bretlandi og
var tilgangur hans að gera vísinda-
lega úttekt á einhveiju ákveðnu
svæði á Islandi. Svæðið var kannað
nákvæmlega með tilliti til flestra
greina náttúruvísinda. Fuglalíf,
gróðurfar og jarðfræði svæðisins
var sömuleiðis skrásett og kortlagt.
I haust og vetur mun hópurinn
síðan vinna úr rannsóknum sínum
og meðal verkefna verður gerð
bæklings fyrir ferðamenn sem vilja
ganga um svæðið, þar sem ákveð-
inni merktri gönguleið verður lýst
með tilliti til gróðurfars, dýralífs
og jarðfræði. Bæklingurinn verður
gefinn út bæði á ensku og íslensku
og mun Sveinn Gústafsson á Húsa-
felli annast þýðinguna.
Mark Rothera, forystumaður
leiðangursins, vildi koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til allra
þeirra sem aðstoðað hafa leiðang-
ursmenn á ferðalagi þeirra.
INNLENT
Norwell Robinson balletdansari
mæli Ingu Sól-
nes á Astjörn
EINS_ OG Bogi Pétursson, forstöðumaður, getur um á drengjaheimil-
ið á Ástjörn hérna marga velunnara. Einn þeirra sem tóku ástfóstri
við staðinn og starfið þar var Jón heitinn Sólnes, bankastjóri á
Akureyn.
í þakklætisskyni fyrir framlag
og aðstoð Jóns og fjölskyldu hans
hefur einn af seglbátunum á
Ástjöm fengið nafnið Sólnes.
Góðvild Jóns Sólness og fjöl-
skyldu hans í garð Ástjamar kom
meðal annars fram í því að Ingu
konu hans var illa við allt stúss á
afmælisdag sinn. Þess í stað sendu
þau hjónin drengjunum á Ástjörn
veglegar veitingar og var þar hald-
in veisla á afmælisdag Ingu Sólness.
Þess má svo geta að tveir synir
Jóns og Ingu hafa dvalið á Ástjörn
og einn sonarsonur.
Goldbox leik-
ur í Roxzý
í kvöld
GOLDBOX nefnist hljómsveit
þeirra Paul Lydon og Lauru
Valentino frá San Fransisco og
kemur hún fram á skemmtistaðn-
um Roxzý í kvöld.
í fréttatilkynningu frá skemmti-
staðnum segir, að Goldbox hafi
getið sér góðan orðstír í undir-
heimatónlistarlífi San Fransisco.
Ásamt Goldbox koma fram í kvöld
hljómsveitimar SH draumur og
Prófessor X. Tónleikamir í Roxzý
hefjast klukkan 22 í kvöld.
Eróbikk stúdíó Jónínu og Ágústu:
Kennarar og nemendur
sýna nýjar æfingar
KENNARAR og nemendur „Eró-
bikk stúdíós“ Jónínu og Ágústu
sýna nýjar æfingar í Hollywood
n.k. fimmtudag, föstudag og
sunnudag.
Líkamsræktaretöð Jónínu Bene-
diktsdóttur og Ágústu Johnson að
Borgartúni 31 hefur starfað í hálft
ár og höfðar starfsemin til fólks á
öllum aldri og af báðum kynjum.
Til að tryggja öryggi nemendanna
hafa kennarar nú réttindi í hjálp í
viðlögum auk þess sem fimm þeirra
hafa sótt námskeið í leikfimi erlend-
is í sumar. Norwell Robinson
balletdansarí hjá Richmond Ballet-
inum starfar nú í „Eróbikk stúdíó-
inu“. Hann hefur m.a. tekið þátt í
sýningum balletsins á Svanavatninu
og Hnetubijótnum auk þess sem
hann kennir eróbikk hjá líkams-
ræktarstöð nálægt New York.
(Úr fréttatilkynningu)