Morgunblaðið - 14.08.1986, Page 52
SEGÐU
RNARHÓLL
ÞEGAR
ÞÚ EERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833------
H.'Sfc
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Lögreglu-
menn í Eyj-
um draga
uppsagn-
ir til baka
LÖGREGLUMENN í Vestmanna-
eyjum hafa allir dregið uppsagn-
ir sínar til baka.
Allir lögreglumenn í Vestmanna-
eyjum fyrir utan yfirlögregluþjón-
inn höfðu sagt störfum sínum
lausum. Eru þeir tólf talsins og
sagði bæjarfógetinn í Vestmanna-
eyjum, Jón R. Þorsteinsson, að þeir
hefðu allir dregið uppsagnir sínar
samtímis til baka með bréfum dag-
settum 10. ágúst sl.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um samþykktu lögreglumenn
J0t nýgerðan kjarasamning sinn og lá
niðurstaða atkvæðagreiðslu fyrir
föstudaginn 8. ágúst. Vegna þess
hve atkvæðagreiðslan dróst á lang-
inn hefur dómsmálaráðuneytið
lengt frest þann er lögreglumenn
hafa til að draga uppsagnir sínar
til baka til 10. september. Ekki er
enn Ijóst hve margir munu gera það
og sagði Einar Bjamason, formaður
Landssambands lögreglumanna, að
hann reiknaði ekki með að skriður
kæmist á þau mál fyrr en í lok
mánaðarins.
Ágæti kaupir
eignir Græn-
metisverzlunar
SAMTÖK íslenzkra matjurta-
framleiðenda, sem reka dreifing-
arfyrirtækið Agæti, hafa keypt
fasteignir Grænmetisverzlunar
landbúnaðarins i Síðumúla 34 af
ríkinu. Kaupverðið er 62,5 miHj-
ónir kr. Deilur hafa verið um
*M*húseignina en með kaupunum er
þeim lokið.
Ágæti er nú að setja upp græn-
metisvinnslu í húsnæðinu. Meðal
annars verður boðið upp á niður-
skorið og niðurrifið grænmeti og
tilbúið hrásalat. Niðurrifna græn-
metið verður selt í pokum sem fylltir
verða upp með koltvísýringi, en það
er ný geymsluaðferð hér á landi.
Hjá fyrirtækinu er hafín pökkun á
kartöflumús og á næstunni hefst
framleiðsla á kartöflusnakki úr út-
litsgölluðum kartöflum.
Sjá einnig: „Byggjum upp
nýtt fyrirtæki við breyttar
aðstæður" á blaðsíðu 20.
Morpunblaðid/Árni Sæberg
Viðgerð utanhúss lokið
Verkpallar við Iðnaðarmannafélagshúsið í Lækj- hluta hússins sem varð eldinum að bráð en stefnt
argötu voru fjarlægðir í gær. Á þeim sjö vikum var að því að verkinu yrði lokið fyrir 200 ára
sem liðnar eru frá bruna hússins hefur verið afmælishátíð Reykjavíkur.
unnið nær sleitulaust að endurbyggingu þess
Enskur banki vill meiri-
hluta í íslenzkum banka
CITIBANK í London hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
-lýst yfir áhuga á þvi að taka þátt í endurskipulagningu íslenzka
bankakerfisins. Citibank, sem er einn þekktasti banki heims, setur
það skilyrði að hann eigi meirihluta hlutafjár í islenzkum banka.
Og ef ekki meirihluta í upphafi þá síðar meir, en þó því aðeins að
hann fái að ráða skipulagi og stefnu bankans frá upphafi.
Heimildarmaður Morgunblaðsins
komst svo að orði: „Þeir vita sem
er að líklega muni Islendingar aldr-
ei leyfa erlendum aðilum að eiga
meirihluta í íslenzkum bönkum.
Citibank lætur því þennan mögu-
leika stranda á okkur sjálfum."
Matthías Bjamason, viðskipta-
ráðherra, sagði að hann hefði hreyft
hugmyndum um að erlendir aðilar
ættu allt að 25% hlutafjár í íslenzk-
um bönkum. Hann er ekki tilbúinn
að ganga lengra að svo stöddu. í
umræðum um skipulagsbreytingar
bankakerfisins heftir verið rætt um
erlent áhættufé sem eina af leiðum
til lausnar vandamálum Útvegs-
bankans. Bankinn afskrifaði á
síðasta ári 422 milljónir króna
vegna viðskipta við Hafskip, auk
annarra viðskipta. Samkvæmt milli-
uppgjöri 30. apríl síðastliðinn var
vaxta- og gengistap bankans er-
lendis og í Seðlabanka vegna
Hafskipsmálsins 52 milljónir króna.
Á móti þessu kom nokkur hagnaður
af reglulegri starfsemi.
Sjá nánar viðskiptablað, B-6-7.
Ungnr arkitekt hlaut
1. verölaun í sam-
keppni um nýbygg-
ingu Alþingis:
„Varla hægt
að hugsa sér
betri byrjun“
„EG ER auðvitað himinlifandi
yfir þessari viðurkenningu. Það
er varla hægt að hugsa sér betri
byrjun fyrir mann, sem er ný-
skriðinn úr skóla,“ sagði Sigurð-
ur Einarsson arkitekt, sem í gær
hlaut fyrstu verðlaun í sam-
keppni um nýbyggingu Alþingis.
Verðlaunaféð nemur rúmum 1,3
milljónum króna.
Sigurður lauk námi í arkitektúr
frá Listaakademíunni í Kaup-
mannahöfn á síðasta ári. Hann
kvaðst hafa unnið talsvert með
náminu á umliðnum árum og nú
starfar hann í Kaupmannahöfn með
arkitektunum Claus Bjarrum, Jörg-
en Hauxner, Michael Krarup og
Jesper Kruckow, en þeir voru sam-
starfsmenn Sigurðar við gerð tillög-
unnar um nýbyggingu Alþingis.
Sigurður kvaðst ekki hafa átt von
á að hljóta fyrstu verðlaun þótt
hann hefði sjálfur verið mjög
ánægður með tillögu sína þegar upp
var staðið. „Ég byijaði að vinna í
þessu fyrir alvöru í apríl og allt frá
því að hugmyndin kom upp og til
loka verkefnisins gekk allt eins og
í sögu. Þetta small allt saman og
ég hafði mikla ánægju af að vinna
við þetta verkefni," sagði Sigurður.
Sjá nánar bls. 4.
Þurrt og hlýtt
á 200 ára
afmælinu
ALLT bendir til að lægðir verði
langt undan þá daga sem
Reykjavík minnist 200 ára af-
mælis sins, samkvæmt upplýsing-
um frá veðurstofunni.
Búist má við hægum vindi, hlý-
indum og mestar líkur eru á þurru
veðri.
Miðfjarðará:
317 laxar
á þremur
dögum
Staðarbakka í Miðfirdi.'
317 LAXAR veiddust i Miðfjarð-
ará 10. til 12. ágúst sl. á 10
stangir. 1.173 laxar hafa veiðst
í sumar i ánni, og vó sá stærsti
24 pund.
Utlendingar voru með ána frá
13. júlí fram að 10. ágúst. Þá kom-
ust íslendingar að og veiddu 317
laxa þrjá fyrstu dagana. Þó var
hámarksafli á stöng 15 laxar á
dag, og urðu sumir að hætta
snemma þar sem kvótanum var
náð. Telja menn útlit gott þessa
dagana. Smálaxaganga hefur verið
í ánni síðustu dagana. Veitt verður
í ánni fram í september-byijun og
eru öll leyfi löngu seld.
— Benedikt