Morgunblaðið - 28.08.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1986
31 “
Fjölbrautaskóli Suðurlands, Selfossi:
Setmng'arathöfn fer
fram í iiýbyggingunni
Selfossi.
FYRIRHUGAÐ er að skólasetn-
iiig Fjölbrautaskóla Suðurlands
fari fram í nýbyggingu skólans
við Tryggvagötu þann 2. sept-
ember næstkomandi, þó svo
húsnæðið sé ekki kennsluhæft.
Áætlað var að hefja kennslu í
nýju húsnæði 1. sept. á þessu ári
en verkið hefur tafist svo ekki
getur orðið af því.
Gert er ráð fyrir að nemendur í
dagskóla í vetur verði 480 og 90-
100 í öldungadeild. Erfiðlega geng-
ur að fá kennara í raungi-einum og
kennara vantar í verklega og bók-
lega kennslu í rafiðngreinum.
Ráðinn hefur verið nýstúdent til
kennslu í raungreinum, eðlisfræði.
Kennarar við Qölbrautaskólann
eru 35 í fullu starfi og um 10
stundakennarar. Breytingar á
fastráðnu kennaraliði skólans hafa
ekki orðið miklar, en það er líkt og
að tala um gull að fá kennara í
raungreinar, eins og Þór Vigfússon
skólameistari orðaði það.
Sig. Jóns.
Þór Vigfússon skólameistari framan
ans á Selfossi.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
ið nýbyggingu Fjölbrautaskól-
Jassgaukar
á Hrafninum
Jassgaukar, frá vinstri: Jóhannes, Helgi, Ari og Einar. Á myndina
vantar Gunnar Jónsson.
HLJÓMSVEITIN Jassgaukar
flytur jasstónlist á neðri hæð
veitingahússins Hrafnsins í
kvöld, fimmtudagskvöld. Á efnis-
skránni verða „sígildir jassstand-
ardar, léttsveiflað rokk og
seiðandi sömbur að ógleymdum
gamla góða blúsnum“ eins og það
er orðað í fréttatilkynningu.
Þrír Jassgauka, þeir Ari Haralds-
son saxafónleikari, Einar Sigurðs-
son kontrabassaleikari og Helgi Þór
Ingason píanóleikari leika nú saman
aftur eftir nokkurt hlé og hafa feng-
ið til liðs við sig þá Jóhannes
Snorrason gítarleikara og Gunnar
Jónsson trommara. (Fréttatilkynning.)
1937 þá kom hann til garðyrkju-
starfa hjá Boeskov í Blómvangi í
Mosfellssveit. Þá fulllærður á sínu
sviði.
Eftir rúmlega ársdvöl hér í Mos-
fellssveitinni hvarf hann aftur til
Danmerkur, en fljótlega eftir heim-
komuna fékk Jes bréf frá Stefáni
Þorlákssyni í Reykjahlíð, einum
helsta garðyrkjubónda sveitarinnar.
Þar bauð Stefán honum að stjóma
stöð sinni og varð það úr að Jes
kom á ný til garðyrkjustarfa á ís-
landi. Hjá Stefáni vann Jes þar til
Danmörk dróst inn í heimsstyijöld-
ina síðari. Þá gekk hann í danska
herinn í Englandi. í átökum í Narvík
særðist hann og lá mánuðum saman
á sjúkrahúsi í Englandi. í stríðslok
aðstoðaði Pétur Benediktsson,
sendiherra í London, Jes við að
komast til íslands og í þetta sinn
réðst hann til Ólafs Gunnlaugssonar
á Laugabóli í Mosfellsdal og vann
hjá honum í allmörg ár.
Hinn 29. desember 1946 kvænt-
ist Jes eftirlifandi konu sinni,
Kristjönu Bertelsen frá Trangisvag
í Færeyjum. Þau hjón hófu búskap
á Laugabóli, þar sem þau bjuggu
til 1950, en þá fluttu þau að Blóm-
vangi hér í sveit, þar sem þau unnu
við garðyrkju hjá Arnaldi Þór til
ársins 1956.
Það ár urðu tímamót í lífi Jes,
hann hvarf þá frá garðyrkjunni sem
aðalstarfi, en réðst að Reykjalundi
til vinnu í plastiðjunni, hann er því
einn þeirra sem unnið hafa við
plastiðju frá upphafi þeirrar at-
vinnugreinar á Islandi.
Þótt Jes legði garðyrkjuna á hill-
una sem aðalstarf, þá voru þær þó
ófáar vinnustundirnar sem hann
vann við blómaskreytingar innan
húss og utan á Reykjalundi og sjálf-
sagt þótti að til hans væri leitað á
hátíðum og tyllidögum, þegar fegra
þurfti sali eða senda smekklegar
blómaskreytingar.
Um þær mundir sem Jes hóf störf
á Reykjalundi keypti hann lóð og
hús er hann nefndi Borg. Meðan á
endurbótum eignarinnar stóð þá
bjuggu þau Kristjana og Jes ásamt
sonum sínum, Flemming og Örlygi,
á heimili okkar.
Á þeim tíma spunnust náin tengsl
milli fjölskyldnanna, tengsl sem
hafa haldist æ síðan. Á Borg breytti
Jes mel í vin. Reyndar má sjá fegr-
andi handarverk hans víða um
sveitina, enda sendi hreppsnefnd
Mosfellshrepps þeim hjónum viður-
kenningarskjal árið 1975 fyrir
fegrun og snyrtilega umgengni við
erfíðar aðstæður.
Jes ræktaði þó ekki einungis hið
sýnilega, hann var mannvinur oQ
hændust böm mjög að honum.
Óþreytandi var hann við að leið-
beina ungviðinu í knattspyrnu og
frjálsum íþróttum og taldi sannar-
lega ekki eftir sér erfiði og tíma
þegar um samvistir með ungviðinu
var að ræða.
Jes vann mikið að félagsmálum.
Hann var í stjórn dansk-íslenska
félagsins í fjölda ára og formaður
þess í sjö ár.
Vegna frammistöðu sinnar í
heimsstyijöldinni síðari sæmdi
Margrét Danadrottning hann heið-
ursmerki og á sjötugsafmæli sínu
hlaut hann riddarakross
Dannebrogs.
Er Jens var um það bil að kveðja
þetta líf á Landakotsspítala bað
hann lækna og hjúkrunarlið að tefja
sig ekki á því að sinna sér, sem
ekkert amaði að.
Þetta lýsir vel þessum hógværa
og tillitssama manni, sem var starfi
sínu og fjölskyldu trúr til hinsta
dags og mat annarra þarfir fram
yfir eigin.
Við vottum Kristjönu innilega
samúð okkar, sömuleiðis Flemming,
Örlygi og fjölskyldum þeirra.
Ragnheiður, Oddur og börn.
Jes Frederik Jessen garðyrkju-
fræðingur lést í Landakotsspítala
22. ágúst, 75 ára að aldri.
Hann var formaður í Det Danske
Selskab í Reykjavík og fyrrv. for-
maður í Foreningen Dannebrog.
Og í þakklætisskyni fyrir hin fjöl-
mörga störf var hann gerður að
heiðursfélaga í báðum þessum fé-
lögum.
Jes Jessen var hér á landi 1939
þegar heimsstyrjöldin síðari skall
á, og þegar Danmörk var hemumin
gekk hann í breska herinn.
Um herþjónustu sína var hann
fámáll og hæverskur, en hann hlaut
tvær viðurkenningar fyrir, frelsis-
orðuna og riddarakross
Dannebrogs.
Að stríðslokum kom hann aftur
til Islands og dvaldi hér til dauða-
dags.
Félagar og vinir færa honum
þakkir að leiðarlokum.
Sveinn Kaaber
ePúJQJUúj
Laugavegi 49, sími 12024
dúndur góðu verði
Efni: Sterk nylonefni með glansáferð.
Fylling: 100%dúnn.
Hetta: Dúnfyllt hetta sem hægt er að
felainni íkraga.
Litir: Dökkblátt — rautt — grátt.
Stærðir: 128-140-152-164 (5-12 ára).
S-M-L-XL-XXL.
Verð: 4900.- stærðir 128 og 140.
5300.- stærðir 152—164.
5780.- stærðir S—XXL.