Morgunblaðið - 28.08.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚSTi 1986
Þessir hringdu .
Ég kem
til ykkar
vinir...
Pálína Gísladóttir hringdi
og vildi vita hvort einhver kann-
aðist við afganginn af kvæði þar
sem eftirfarandi kemur fyrir og
Gert við brúður
Maður hafði samband við
Velvakanda vegna fyrirspurnar
um hvar væri hægt að fá gert
við brúður. Hann sagðist taka
þetta að sér og bað þá sem á
þyrftu á að halda að hringja í
síma 25312.
Vel farið með
vistmenn
Sólheima
Ásta Bjarnadóttir hringdi:
„Það kom mér mjög á óvart
að lesa í Velvakanda á surinu-
daginn að illa væri farið með
vistmenn á Sólheimum í
Grímsnesi. Ég þekki dálítið til
þama og get vitnað um það að
mikið er gert fyrir vistmenn
Sólheima og þeir eru flestir mjög
ánægðir með dvölina þama.
Forystufólkið leggur sig allt
fram og hefur unnið vel. Ég
þekki að vísu ekkert til fjármál-
anna þarna en ég hef aldrei orðið
vör við neina óánægju með þau
og efa stórlega að gengið hafi
verið á vasapeninga vistmanna."
vissi hver hefði ort:
Ég kem til ykkar vinir
Því klökkur er í kvöld
Og annars staðar
Að lokum þegar stjömumar
lýsa bláan heim.
Myndavél
týnd
Jóhanna María hringdi.
Bandarískur skiptinemi hafði
týnt Olympus XA-myndavél á
einhveijum eftiitalinna þriggja
staða: Biðstöð SVR við Raufar-
sel, biðstöð SVR við Borgarleik-
húsið eða þar í nágrenninu eða
við skemmtistaðinn Sigtún.
Myndavélin er merkt föður
skiptinemans. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja í síma
73232.
Gleraugu
fundust
Maður hringdi og hafði fundið
gleraugu í garði Alþingishúss-
ins. Sá sem sáknar gleraugn-
anna getur vitjað þeirra á
óskilamunadeild lögreglunnar.
Hver skilaði
peningaveski?
Anny Helgason hringdi og
vildi gjaman hafa samband við
manninn sem fann peningaveski
sonar hennar og skilaði því að
Hjarðarhaga 19. Hana. langar
til að senda honum blóm fyrir
heiðarleikann og að láta sér
ekki nægja að hringja heldur
koma sjálfur með veskið. Síminn
hjá henni er 16114.
Ó, þú nýja fjallalamb
Ein sauðþrá skrifar:
„Að undanfömu hefur birst gull-
falleg myndasyrpa í auglýsingatím-
um sjónvarpsins af íslensku
landslagi og fólki með meiru. Manni
verður ósjálfrátt hugsað rétt si
svona: „Hvað er nú verið að aug-
lýsa?“ Svarið lætur ekki á sér
standa. Allra snyrtilegasti böggull
fellur eins og af himnum ofan hvar
á stendur Fjallalamb.
Sala fjallalambsins, sem hingað
til hefur heitið íslenskt dilkakjöt,
hefur víst ekki gengið vel. Þjóð-
hollir sæmdarmenn sáu að við svo
búið mátti ekki standa og bundust
samtökum um að gera hag þessarar
elstu atvinnugreinar þjóðarinnar
allt frá landnámstíð meiri.
Árangurinn kom strax í ljós.
Fjallalamb skyldi dilkurinn heita,
pakkaður inn í fallegar pappaum-
búðir. Þar með var málið leyst.
Neytendur hlutu að taka slíku
kostaboði vel.
Eitthvað vom menn þó seinir að
átta sig eins og fyrri daginn enda
margir landsmanna orðnir sauð-
þráir eftir sambúð þjóðarinnar við
sauðkindina í rúmar ellefu aldir.
Einnig vildi svo til að enn vom
menn á lífi sem höfðu eignast flalla-
lamb og verið ánægðir með þótt
það væri ekki pakkað inn í skraut-
legar umbúðir. Það vom hálfvaxin
og homð lömb sem gengið höfðu
móðurlaus á fjalli sumarlangt og
þóttu því ekki hæf til slátmnar að
hausti.
Var því stundum bmgðið á það
ráð að gefa bami fjallamb til þess
að það gæti annast það og fóðrað
svo vel að það næði eðlilegum
þroska. Eigandanum til mikillar
gleði, því að þetta var kannski hans
fyrsta og eina veraldlega eign.
Á þessa röngu notkun orðsins
fjallalamb hefur mætur maður rétti:
lega bent áður á hér í blaðinu. í
íslenskri orðabók sem Mál og menn-
ing gaf út 1983 segir að fjallalamb
sé „graslamb, lamb sem gengur
móðurlaust á fjalli, fráfæmalamb“.
Einhver kann að ætla að ég hafi
eitthvað á móti dilkakjöti, en það
er fjarri lagi. Ég tek það fram yfír
flest annað kjöt og mér er líka annt
um hag og velferði bændastéttar-
innar, ekki síst sauð^árbænda.
Það er einkum tvennt sem vakir
fyrir mér með þessari grein og ég
vona að það komi nægilega skýrt
fram. í fyrsta lagi finnst mér það
illþolandi móðgun við neytendur
þegar auglýsendur ætla að höfða
til heimsku þeirra og fávisku með
skmmi, glansmyndum og halda
jafnvel að nóg sé að skíra vömna
nýjum nöfnum (jafnvel brengla
merkingu þeirra), þá hljóti neytend-
ur að trúa því að hér sé eitthvað
alveg nýtt og ómissandi á boðstól-
um.
Mér finnast auglýsingamar á
fjallalambinu vera skólabókardæmi
um þetta og trúi ekki að neytendur
láti glepjast af henni né öðmm sem
eru af sama toga spunnar.
í öðm lagi er ég sem neytandi
ósátt við verðlag á dilkakjöti, hveiju
nafni sem það kann að nefnast.
Þegar ég hef verið stödd við kjöt-
borð matvömverslana síðustu árin
hefur það alltaf vakið með mér
undmn og gremju að sjá að verð á
dilkakjöti er oft svipað og verð á
öðmm tegundum kjöts sem er ónið-
urgreitt og ég hélt í einfeldni minni
að væri dýrara í framleiðslu. Hvað
þessu veldur veit ég ekki og vildi
gjaman fá svör við.
Getur verið að hér ráði ferðinni
miðstýring og milliliðagróði í stað
lögmálsins um framboð og eftir-
spum ásamt vilja til að gera vel,
öllum til hagsbóta?"
051
ELDAVEL EK 1734 MEÐ
GLERHITAPLÖTU
Tvöfaldur ofn. Yfir- og undirhiti,
blástur, grill. Sjálfhreinsandi. 4
hitaplötur. Glerhurð með barna-
öryggi, loftræst. Geymsluskúffa,
stillanlegir fætur. Færanleg topp-
plata.
Litir: hvítur og brúnn.
2 ÁRA ÁBYRGÐ
Blomberg
EF
Agústkjör:
Verð 39.890 stgr.
útborgun 5.000,- I
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
ih:i=4tj=i-i
MONZAN er væntanleg fljótlega.
Tökum viö pöntunum.
BíLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
Verðl’ SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
Pið fáið að sníða niður allt plötuefni
hjá okkur í stórri sög
- ykkur að kostnaðarlausu.
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28