Morgunblaðið - 28.08.1986, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR 28. ÁUÚST 1986
53
• Sebastian Coe keppir f 800 m hlaupi f dag. Hann er Ifklegur til
afreka og segist vera f góðri æfingu.
„Yrði svekktur
ef ég færi heim
án verðlauna"
- segir Sebastian Coe sem keppir í800 m hlaupi ídag
Stuttgart, frá Ágústi Asgeirssyni, bladamanni Morgunbladsins:
„ÉG HEF allt að vinna og engu
að tapa og yrði svekktur ef ég
STUTTGART
1986
Tvöfaldur austur-þýskur
sigur f kúluvarpi kvenna
Stuttgart, frá Ágúmti Ásgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðmins.
HORÐ keppni var háð um verð-
laun í kúluvarpi kvenna, en í
næstsfðustu umferð tryggði Ines
Muller, Austur-Þýskalandi, sér
tvöfaldan sigur og hafði verð-
launasæti af vestur-þýzku stúlk-
unni Claudiu Losch, sem naut
góðs stuðnings heimamanna.
Gullverðlaunin fóru einnig til
Austur-Þýskalands f Aþenu 1982
er lliana Slupianek vann með
betri árangri en nú náðist.
Kúluvarpið var mjög spennandi
og sentimetrastríðið mikið. Breytt-
ist innbyrðis röð keppenda
margsinnis, en Heidi Krieger náði
þó sigurkastinu í fyrstu umferð.
Gamla kempan Helena Fibing-
erova, sem er 37 ára, má muna
sinn fífil fegri. Hún hefur margsinn-
is staðið á verðlaunapalli, en varð
nú 10. með 18,48 metra. Hún hafði
kastað 20,80 skömmu fyrir mótið.
Þá veldur frammistaöa Nataliu
Lissowskaja frá Sovétríkjunum
vonbrigöum. Hún var með beztan
árangur kependa, 21,70 metra, í
sumar, en varð 9. með 18,95
metra.
Úrslitin:
Heidi Krieger, A-Þýskal. 21,10
Ines Múller, A-Þýskal. 20,81
Natalia Achrimenko, Sovót. 20,68
Claudia Losch, V-Þýskal. 20,54
Heike Hartwig, A-Þýskal. 20,14
Nunu Abaschidse, Sovét. 19,99
Iris Plotzitzka, V-Þýskal. 19,26
Mihaela Loghin, Rúmeníu 19,15
Maraþon kvenna:
Rosa Mota með
mikla yfirburði
Stuttgart, frá Ágústi Ásgeirssyni, bladamanni Morgunblaðsins.
Golfmót
UM NÆSTU helgi verða
nokkur golfmót eins og
venjulega um helgar. Á Höfn
f Hornarfirði verður opið
haustmót þar sem leiknar
verða 36 holur með og án
forgjafar. Flugleiðir veita
25% afslátt af flugi á staðinn
og hægt verður að fá gistingu
í tveggja manna herbergi fyr-
ir 900 krónur á Hótel Höfn
og er morgunverður inni f þvf
verði. Góð aukaverðlaun
verða og má nefna kút fullan
af marineraðri síld og humar-
öskju auk frímiða ef menn ná
að fara holu í höggi.
Hjá Keili fer fram opið mót
sem þeir kalla „Old Charm"
og er þar keppt í karla- og
kvennaflokki. Leikfyrirkomulag
er 7/s Staþleford-punktar og
hægt er að skrá sig í síma
53360.
Á sama stað verður
drengjamót á laugardaginn og
er það fyrir 16 ára og yngri.
Ræst verður út frá klukkan 9
árdegis.
Nesklúbbur verður með
opið öldungamót á laugardag-
inn og verður ræst út frá
klukkan 9 árdegis og leiknar
verða 18 holur.
PORTUGALSKA stúlkan Rosa
Mota hafði mikla yfirburði í mara-
þonhlaupi kvenna. Hún tók
forystu strax við rásmarkið og
héit henni alia leið. Önnur varð
ítalska stúlkan Laura Fogli, en
þær Mota urðu einnig fyrstar í
mark fyrir fjórum árum.
Fyrstu 20 kílómetrana fékk
Mota keppni frá hollensku stúlk-
unni Carla Beurskens, en hún varð
að stoppa nokkrum sinnum eftir
það og skjótast inn á náðhús með-
fram hlaupaleiðinni og féll á
síðustu kílómetrunum niður í 7.
sæti.
Mota og Fogli hafa verið í
fremstu röð maraþonkvenna um
langt árabil og eiga þriöja besta
árangur frá upphafi í greininni.
Áhorfendur fögnuðu Mota vel
og innilega er hún hljóp inn á leik-
vanginn eftir rúmra 42 km hlaup,
en hún birtist nákvæmlega á því
augnabliki sem Einar Vilhjálmsson
tók síöasta kast sitt í forkeppni
spjótkastsins. Rosa Mota setti
nýtt meistaramótsmet, bætti ár-
angur sinn frá í Aþenu um tæpar
8 mínútur. Keppt var öðru sinni í
maraþonhlaupi á Evrópumeistara-
mótinu. Alls hóf 31 kona keppni
en 8 luku henni ekki, m.a. dönsk
stúlka sem lengi var framarlega.
Heimsmethafinn Ingrid Krist-
iansen Noregi var ekki meðal
keppenda þar sem hún einbeitir
sér að 10 km hlaupinu. Dregur það
óneitanlega úr sigri Mota.
Röð efstu keppenda varð:
Rosa Mota Portúgal 2.28:38
Laura Fogli ítaliu 2.32:52
J. Chramenkowa Sovétríkjunum 2.34:18
Sinikka Keskitalo Finnlandi 2.34:31
Jocelyne Villeton Frakklandi 2.35:17
Bente Moe Noregi 2.35:34
Carla Beruskens Hollandi 2.39:05
Paola Moro ítaliu 2.39:19
færi heim án verðlauna,11 sagði
Sebastian Coe á fundi með blaða-
mönnum en nú stefnir í mikið
einvígi þeirra Steve Cram í 800
metra hlaupinu á Evrópumeist-
aramótinu í dag.
Coe er heimsmethafi í 800 metr-
um en hefur aldrei sigrað í grein-
inni á stórmóti. Á Evrópumótinu í
Prag 1978 varð hann þriðji á eftir
Austur-Þjóðverjanum Olaf Beyer,
sem sigraði fremur óvænt, og
landa sínum Steve Ovett. Coe var
þá nýbúinn að setja heimsmet.
Fyrir fjórum árum í Aþenu hrjáði
lasleiki Coe og þótt hann hefði
margra metra forystu þegar 100
metrar voru í mark entust honum
ekki kraftar og öllum á óvart sigr-
aði algjörlega óþekktur Vestur-
Þjóðverji. Fór Coe heim með silfur
og var lagður inn á sjúkrahús.
Vegna heilsuleysis varð Coe að
hætta keppni á samveldisleikunum
fyrir mánuði. „Ég er hins vegar
stálhress núna og tilbúinn í slag-
inn,“ sagði hann og það var
greinilegt í undanrásum og milli-
riðlunum í gær og fyrradag að það
þarf afburðamann til að sigra Coe.
Sá hlaupari, sem verður Coe
erfiðastur, er landi hans Steve
Cram, sem er Evrópu- og heims-
meistari í 1500 metrum. Cram er
með bezta árangur keppenda í ár
og riðlakeppnin virtist honum afar
auðveld. Hann er mjög góður
endasprettsmaöur og þeir Coe eru
einu keppendurnir í úrslitunum,
sem talizt geta afburða hlauparar.
Oft hafa úrslit þó orðið óvænt í
800 metrunum og gera Vestur-
Þjóðverjar sér vonir um að Peter
Braun, Evrópumeistarinn innan-
húss, eða Matthias Assmann, sem'
er frá Stuttgart, veröi senuþjófar.
Morgunblaöiö/Einar Falur
• ión Grótar Hafsteinsson var sigursæll á mótinu. Hann sigraði í
60 m, 200 m og 400 m hlaupi og varð annar í langstökki.
Islandsmót fatlaðra
í frjálsum íþróttum
UM HELGINA fór fram á iþrótta-
vellinum í Kópavogi íslandsmót
fatlaðra í frjálsum íþróttum.
Keppendur á mótinu voru 80 tals-
ins frá 6 aðildarfélögum ÍF og
komu þeir úr röðum þroskaheftra
og hreyfihamlaðra. í flokki hreyfi-
hamiaðra var keppt f sitjandi og
standandi flokkum, en í flokki
þroskaheftra var keppendum
skipt i þrjá flokka eftir fyrri
árangri, þannig að í 1. flokki voru
þeir sem sýnt höfðu bestan
árangur en í 3. flokki voru þeir
sem lakast höfðu staðið sig.
Bestum árangri í einstökum
greinum náðu eftirtaldir:
Þroskaheftir:
Konur:
60 m hlaup:
Lilja Pétursdóttir Ösp, 10,08
200 m hlaup:
Lilja Pétursdóttir Ösp, 35,30
400 m hlaup:
Sigrún H. Hrafnsdóttir Ösp, 1.34,5
Langstökk:
Bára B. Erlingsdóttir Ösp, 3,54
Hástökk:
Sigrún H. Hrafnsdóttir Ösp, 1,30
Kúluvarp:
Rós M. Benediktsdóttir Björk, 6,47
Boltakast:
Bára B. Erlingsdóttir, Ösp, 30,14
Boðhlaup 6x60 m:
SveitAspar 1.11,23
Karlar:
60 m hlaup:
Jón G. Hafsteinsson Ösp 9,07
200 m hlaup:
Jón G. Hafsteinsson Ösp, 27,0
400 m hlaup:
Jón G. Hafsteinsson Ösp, 1.03,1
Langstökk:
Aöalsteinn Friðjónsson Eik, 4,37
Hástökk:
Aðalsteinn Friöjónsson Eik, 1,35
Kúluvarp:
Jósef ólafsson Ösp, 10,47
Boltakast:
Halldór Bj. Pálmason Gáska, 36,40
Boðhlaup 6x60 m:
Sveit Aspar 1.08,2
Hreyfihamlaðir
100 m hlaup karla:
Haukur Gunnarsson ÍFR, 13,1
200 m hlaup karla:
Haukur Gunnarsson ÍFR, 26,45
400 m hlaup karla:
Haukur Gunnarsson ÍFR, 1.03,6
Kúluvarp karla, sitjandi flokkur
Reynir Kristófersson ÍFR, 6,83
Kringlukast karla, sitjandi flokkur
Reynir Kristófersson IFR, 20,12
Spjótkast karla, sitjandi flokkur
ReynirKristóferssonÍFR, 15,14