Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
195. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéskt farþegaskip sekkur á Svartahafi:
Okunnugt um
afdrif farþeffa
Moskvu, AP.
SOVÉSKT farþegaskip sökk á Svartahafi í fyrrinótt eftir árekstur
við flutningaskip, að því er fréttastofan Tass hermdi í gær. Ekki
var frá því skýrt í fréttinni hve margir farþegar voru með skipinu
né hve margir fórust. Umfangsmiklar björgunaraðgerðir stóðu enn-
þá yfir í gærkveldi, að minnsta kosti 20 klukkustundum eftir að
skipið sökk, að þvi er embættismenn i höfnunum í Odessa og Novo-
rossiysk sögðu.
Áreksturinn varð skammt frá
höfninni í Novorossiysk, sem er 100
kílómetra suðaustan við Krímskag-
ann. Ekki er ljóst á hvaða leið skipin
voru. Farþegaskipið, Nakhimov
flotaforingi, var rúmlega 17 þúsund
lestir að stærð og gat flutt 870
farþega samkvæmt skipaskrá
Lloyds-tryggingafélagsins. Auk
þess flutti það oft farþega til við-
bótar á fjórða farrými og sváfu
þeir á efsta þilfari.
Loftskeytaáhugamenn í Tyrk-
landi heyrðu ekki neyðarkall frá
skipinu og virðist það benda til
þess að það hafi sokkið mjög hratt.
Embættismenn skipafélagsins og
hafnarinnar í Novorossiysk vörðust
allra fregna er haft var samband
við þá og vildu ekki segja hve marg-
ir hefðu verið með skipinu eða hve
margir hefðu farist.
Sovésk yfirvöld hafa skipað
nefnd tii þess að rannsaka orsakir
slyssins og er formaður hennar
Geidar A. Aliev, fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðherra, en hann á sæti í
stjómamefndinni (Politburo).
Farþegaskipið Nakhimov flota-
foringi var byggt árið 1925 í
Þýskalandi. Það hét upphaflega
Berlín og þjónaði sem herspítali í
seinni heimsstyijöldinni. Sovét-
menn slógu eign sinni á skipið í lok
styijaldarinnar og notuðu það til
farþegaflutninga á Svartahafi. Að
sögn hefur það undanfarið verið í
áætlunarferðum á milli hafnanna í
Odessa og Batumi.
AP/Símamynd
Slökkviliðsmenn að störfum við íbúðarhús í Cerritos í Kalifomíu. Fremst á myndinni getur að lita
brak úr mexíkönsku farþegaþotunni.
67 manns farast í flugslysi í Kaliforníu:
Ollu mistök flugfumferð-
arstj óra harmleiknum?
Persaflóastríðið:
Iranir ná
mikilvægu
landsvæði
Nicosia, AP.
HERSVEITIR írana hafa náð sjö
hernaðarlega mikilvægum hæð-
um á sitt vald á vígstöðvunum
fyrir botni Persaflóa, að sögn
hinnar opinberu fréttastofu Ir-
ana. Sagði fréttastofan að mörg
hundruð hermanna frá írak
hefðu ýmist verið felldir eða
teknir höndum og að íranskar
hersveitir væru komnar langt inn
í Irak. Útvarpið í Bagdad, höfuð-
borg íraks, sagði hins vegar að
árás írana hefði verið brotin á
bak aftur og að flugher íraka
hefði grandað fjórum írönskum
þyrlum.
I tilkynningu írönsku fréttastof-
unnar sagði að sveitir írana hefðu
náð markmiði sínu og að sókninni
yrði nú haldið áfram. Hins vegar
var þess ekki getið hvort með árás
írana væri hafin „lokasóknin", sem
Iranir hafa lengi hótað.
Útvarpið í Bagdad sagði að þijár
hersveitir írana hefðu verið „þurrk-
aðar út“ og að afgangur árásarliðs-
ins væri nú á hröðum flótta.
Ali Rafsanjani, ein helsta hjálpar-
hella Khomeinis erkiklerks, sagði
um helgina að 1.000 hersveitir bylt-
ingarvarða myndu senn verða
sendar út á vígvöllinn til að taka
þátt í „lokasókninni“ gegn írökum.
Cerritos, Kaliforníu, AP.
VITAÐ er að 67 manns fórust
þegar þota í farþegaflugi frá
mexíkanska flugfélaginu Aero-
mexico og lítil einkaflugvél
rákust saman tæpa 50 kílómetra
frá Los Angeles. Allir þeir sem
um borð voru létu lífið. Logandi
brak úr flugvélunum dreifðist
yfir Cerritos, sem er úthverfi
Los Angeles-borgar og gjöreyði-
lagði níu íbúðarhús auk þess sem
mörg önnur skemmdust,
Að sögn lögreglumanna er mjög
erfitt að áætla hvort og þá hvað
margir fórust á jörðu niðri þar sem
slysið gerðist um helgi og því ekki
vitað hvort íbúar húsanna sem eyði-
lögðust voru heima eða ekki. Að
minnsta kosti tíu manna er saknað
og björgunarmenn leita enn í
rústum húsanna.
Að sögn Roberts Buckhom, tals-
manns bandarísku flugmálastjóm-
arinnar, gerðist slysið í þann mund
sem einn flugumferðarstjóri tók við
af öðmm við að beina þotunni inn
til lendingar í Los Angeles. Hann
vildi þó ekkert láta uppi um hugsan-
legar orsakir slyssins.
Sjónarvottar sögðu að einkaflug-
vélin, sem var af Piper-gerð, hefði
rekist á stél þotunnar. Þotan, sem
var af gerðinni Douglas DC-9, var
að koma inn til lendingar frá Mexí-
kó og vom 58 farþegar um borð
auk sex manna áhafnar. Að sögn
talsmanna mexíkanska ríkisflug-
félagsins vom farþegamir aðallega
Mexíkanar og Bandaríkjamenn.
Piper-vélin hafnaði á mannlausum
bamaleikvelli og fundust lík þriggja
manna í flakinu.
Sjá frásagnir sjónarvotta á
bls. 22.
Kekkonen jarð-
settur á sunnudag
Helsinki, AP.
ÚTFÖR Urhos
Kekkonen,
fyrrum Finn-
landsforseta,
fer fram frá
dómkirkjunni í
Helsinki næst-
komandi
sunnudag.
Kekkonen lést aðfaranótt sunnu-
dags eftir langvamadi veikindi.
Hann var 85 ára að aldri.
Sérstök nefnd hefur verið skipuð
til að annast útför hans og er Pa-
avo Varynen, utanríkisráðherra
Finnlands, formaður hennar.
Finnsk dagblöð minnast hins
látna forseta með hlýju. „Skíða-
kappinn er horfinn, en slóð hans
bendir hvert skal halda,“ sagði í
leiðara dagblaðsins Helsingin Sano-
mat í gær.
Sjá leiðara og grein um Urho
Kekkonen á miðopnu blaðsins.
Bandarískur fréttamaður handtekinn í Moskvu:
Bandaríkjasljórn mun
grípa til ref siaðgerða
Moskvu, AP.
EIGINKONA bandaríska fréttamannsins Nicholas Daniloff, segir
að stjómvöld í Sovétríkjunum hyggist halda honum í tiu daga.
Að loknum yfirheyrslum verður tekin afstaða til þess hvort Dani-
loff verður ákærður fyrir njósnir. Eiginkona hans og sonur fengu
að heimsækja hann í gær. Bandaríkjastjórn hyggst grípa til
refsiaðgerða gegn Sovétríkjunum ef Daniloff verður ekki sleppt
hið fyrsta.
Nicholas Daniloff, sem er frétta-
maður bandaríska tímaritsins U.S
News And WoridReport, var hand-
tekinn fyrir njósnir í Moskvu á
laugardag eftir að sovéskur kunn-
ingi hans hafði afhent honum
pakka, sem reyndist innihalda
trúnaðarskjöl.
Talsmenn bandaríska tímarits-
ins og eiginkona Daniloffs segja
að sakargiftimar séu tilbúningur.
The New York Times hafði í gær
eftir háttsettum embættismönnum
í Washington að Bandaríkjastjóm
íhugaði nú refsiaðgerðir á sviði
efnahags- og menningarmála gegn
Sovétríkjunum vegna handtöku
Daniloffs. Einnig var þess getið
að aðgerðir þessar myndu ná til
samskipta stórveldanna á stjóm-
málasviðinu. Ennfremur hafði
blaðið eftir heimildarmönnum
sínum að Bandaríkjastjóm myndi
ekki semja um frelsi til handa Nic-
holas Daniloff þar sem hann væri
ekki njósnari.
„Við munum grípa til viðeigandi
aðgerða ef Sovétmennimir sleppa
Daniloff ekki mjög fljótlega," hafði
The New York Times eftir einum
heimildarmanna sinna.
AP/Símamynd
Ruth Daniloff, eiginkona
bandaríska fréttamannsins sem
Sovétmenn hafa sakað um
njósnir, ræðir við blaðamenn
fyrir utan Lefortovo-fangelsið
í Moskvu í gærdag.