Morgunblaðið - 02.09.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
3
Morgunblaðið/Jósef Ólafsson
Grétar Ólafsson með hænginn stóra. Fiskurinn vó 14,5 kg eða
29 pund. Svo sem sjá má er hann mjög leginn og efalaust vel
yfir 30 pundum þegar hann gekk í ána. Sérfræðingar Veiðimála-
stofnunar lásu í gær úr hreisturssýni sem tekið var af laxinum
og kom þá í ljós að fiskurinn hafði klakist út í ánni 1980 og
lifað þar síðan í 3 ár, þar til hann gekk til sjávar. í sjó var fisk-
urinn síðan í þijú ár uns hann gekk í ána í vor. Svo sem gefur
að skilja hafði hann ekki hrygnt áður.
Næst stærsti lax sumarsins veiddist
í Hvítá á sunnudag:
29 punda legnum
hæng landað á Iðu eft-
ir snarpa viðureign
NÆST STÆRSTI lax sem veiðst hefur í sumar náðist í Hvítá
í Árnessýslu við Iðu á sunnudaginn. Var þá landað grútlegnum
29 punda hæng sem var farinn að þynnast töluvert og má því
ætla að hann hafi verið langt yfir 30 pund nýgenginn. Fiskur-
inn var 106 sm að lengd og ummál um bakugga var tæpir 65
sm. Laxinn veiddi Grétar Ólafsson yfirlæknir á Landspítalanum
og er þetta hans stærsti lax, en Grétar hefur áður veitt stór-
laxa og fyrir nokkrum árum náði hann 26 punda laxi í Soginu.
Hvítárlaxinn tók flugu, Rækju
nr. 4, og var viðureignin bæði
snörp og söguleg enda þótt bar-
daginn hafi ekki staðið nema þijá
stundarfjórðunga. Þess ber þó að
geta að fiskurinn var sporðtekinn
úti í miðri á á „Tailer" á nær
mittisdýpi og var það mat manna
að hann hefði verið fjærri því full-
þreyttur, enda brást risinn hinn
versti við þessari „handtöku".
„Ég er ekki farinn að trúa þvf
ennþá að þetta hafi gerst," sagði
Grétar í spjalli við Morgunblaðið
{ gær. „Það má segja að ég sé
enn uppi í skýjunum." Að sögn
Grétars tók laxinn uppi við land-
steinana, en þá var fluglínan öll
í hönk við fætur veiðimannsins.
Svo illa vildi þá til að tvær slauf-
ur voru á línunni og stóð sú fyrri
föst í næst neðstu stangarlykkj-
unni þegar laxinn strikaði út í
ána. Reyndu menn að leysa hnút-
inn og vildi þá svo vel til að
fiskurinn lagðist hinn rólegasti á
meðan og hrærðist hvergi. En
þegar þessu var lokið rásaði hann
enn út og dró hina slaufuna í
gegnum lykkjurnar! Óvíst er
hvemig slagurinn hefði endað,
hefði lykkjan staðið föst og laxinn
strikað út, en líkur benda til að
hann hefði hreinsað lykkjumar
af stönginni!
Leikurinn barst síðan niður ána
og var fiskinum landað hálfþreytt
um úti í miðri á svo sem fyrr
segir. Flugan sat þrælföst í neðri
kjálka fisksins og hefði þess vegna
staðist átökin lengur. Sagði Grét
ar að sem betur fer hefði hann
haft sannkölluð „stórlaxatæki"
tólf og hálfs fets langa grafítstöng
frá Hardy og hjól af Hardy-gerð
og 200 metra undirlínu. Kom það
sér vel því í einni rokunni fór fisk-
urinn með nær alla línuna út af
hjólinu, svo að glytti í spóluna
undir, viðstöddum til hrellingar!
Svartur
stór
og sterkur
ÞJÓÐÞRIFARÁÐ FRÁ PLASTPRENT
SVÖRTU - STÓRU sorpsekkirnir frá Plastprent nýtast þér á marga vegu,
á heimilinu, í garðinum, sumarbústaðnum, ferðalaginu.
Svörtu plastpokarnir frá Plastprent eru sannkallað þjóðþrifaráð þegar taka
þarf til hendinni og sópa út úr hornunum.
Fást í öllum matvöruverslunum, byggingavöru-
verslunum og á bensínstöðvum um allt land.
Einfalt og þægilegt statíf fyrir þá
sem nota mikið af þeim STÓRA frá
Plastprent.
Brautryöjandi á sviöi pökkunar
Plastprent hff.
Höföabakka 9,sími685600