Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Erlendur Einarsson (t.h.) tekur í hönd arftaka síns, Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambands Islenskra
samvinnufélaga. Erlendur mun starfa við hlið Guðjóns fram að næstu áramótum og verður skrifstofa
hans í húsi Samvinnubankans í Bankastræti 7.
Sambandið:
Guðjón B. Ólafsson
tekur við sem forsljóri
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins:
„Ekki ástæða til að
endurtaka skraf-
skjóðusamkomu“
Um ráðstefnu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Á stjórnarfundi í Sambandinu
í gærmorgun tók Guðjón B. ÓI-
afsson formlega við starfi for-
stjóra Sambandsins af Erlendi
Einarssyni. Um sama leyti tók
Eysteinn Helgason við fyrra
starfi Guðjóns sem fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Corporation, fisksölufyrirtækis
Sambandsins og Sambandsfrysti-
húsanna í Harrisburg í Pennsyl-
vaniu.
„Ég geng til þessa starfs með opinn
huga og án þess að vera búin að
gera mér alltof miklar hugmyndir
um það fyrirfram hvað hér eigi að
gera og hvað sé hér hægt að gera.
Eg tel affarasælast að vera ekki
að gefa nein loforð eða yfirlýsingar
á þessari stundu heldur mun ég
ráðast á verkefnin eitt af öðru með
fólkinu sem við þau fæst á degi
hverjum," sagði Guðjón B. Ólafsson
m.a. í samtali við Morgunblaðið.
Guðjón sagði einnig að hann
gerði sér grein fyrir því að þegar
hann kæmi að Sambandinu nú
væri þar við að glíma mörg óleyst
vandamál. Þetta væri afleiðing þess
upplausnarástands sem hér hefði
Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra:
„Að sjálfsögðu
ætla ég
í prófkjör“
ALBERT Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra hefur ákveðið að taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins fyrir næstu alþingis-
kosingar. Þetta kom fram í
útvarpsviðtali Bylgjunnar við
iðnaðarráðherra.
„Að sjálfsögðu ætla ég í próf-
kjör," sagði Albert Guðmundsson í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, „það hefur aldrei hvarflað
að mér annað en taka þátt í próf-
kjöri. Stjómmál em mitt starf.“
Albert sagði jafnframt: „Ég hef
tekið þátt í öllum prófkjömm Sjálf-
stæðisflokksins hér í Reykjavík,
nema í prófkjöri síðustu borgar-
stjómarkosninga, og það er enginn
bilbugur á mér, hvað varðar af-
skipti af stjómmálum."
ríkt vegna mikillar verðbólgu um
árabil, hærri raunvaxta en gerðist
víðast hvar í heiminum og nú síðast
vegna óhagstæðrar gengisþróunar.
Þetta hefði valdið uppsöfnuðum
vanda víða í þjóðfélaginu og Sam-
bandið og fyrirtæki þess ættu sinn
hluta af þessum vanda sem nú yrði
að takast á við að leysa.
Guðjón B. Ólafsson réðst til Sam-
bandsins 1954 þegar hann hóf störf
við hagdeild þess að loknu námi í
Samvinnuskólanum eða um það
leyti sem Erlendur Einarsson varð
forstjóri Sambandsins. Guðjón var
síðan framkvæmdastjóri skrifstofu
Sambandsins í London á ámnum
1964 til 1968 en var síðan ráðinn
framkvæmdastjóri sjávarafurða-
deildar Sambandsins í Reykjavík.
Því starfí gengdi hann til ársins
1975 er hann varð framkvæmda-
stjóri Iceland Seafood Corp.
Guðjón er fæddur 18. nóvember
1935 í Hnífsdal og er því liðlega
fimmtugur að aldri. Eiginkona hans
er Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir
frá ísafirði og eiga þau fímm böm.
„VIÐ töldum ekki ástæðu til þess
að taka þátt i þessari ráðstefnu,
vegna þess að það er áður búið
að halda ráðstefnu þingflokka á
Norðurlöndum um þetta efni, þar
sem þetta mál var fullrætt og
við lýstum þar okkar sjónarmið-
um,“ sagði Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfstæðisflokksins,
er hann var spurður hvað hann
vildi segja um gagnrýni sem
fram hefur komið á Sjálfstæðis-
flokkinn vegna þess að flokkur-
inn sendi ekki fulltrúa á
ráðstefnu í Kaupmannahöfn um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
Þorsteinn sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði verið reiðubúinn
til þess að senda fulltrúa á svona
þing, ef umræðunum hefði verið
lyft upp úr því fari sem þær áður
voru í og menn hefðu verið reiðu-
búnir til þess að ræða í víðara
samhengi hvemig útrýma mætti
kjamorkuvopnum.
„Við höfum sett það sem algjört
skilyrði að menn ræddu þá um
Norður-Evrópu í heild, þ.e.a.s. frá
Úralfjöllum til Grænlands," sagði
Þorsteinn, „þannig að ef vinstri
flokkamir á Norðurlöndum hefðu
verið reiðubúnir til þess að ræða
þessi mál á þessum gmndvelli, þá
hefðum við séð einhvem tilgang í
þátttöku á ráðstefnunni. En við
sáum engan tilgang í því að endur-
taka þá skrafskjóðusamkomu sem
áður var búið að halda um efnið."
Þorsteinn sagðist þar að auki
telja að þær þjóðir á Norðurlöndum
sem helst hefðu frumkvæðið í þess-
um umræðum, mættu líta í eigin
barm, því þær réðu sumar hvetjar
yfír miklum kjamorkuverum. „Slys-
ið í Chemobyl segir okkur að okkur
stafar ekki minni hætta af slíkum
kjamorkuvemm en vopnum sem
ekki em fyrir hendi á Norðurlönd-
um. Þessar þjóðir mættu því byjja
á því að líta í eigin barm og hefj-
ast handa við að útrýma þeirri einu
kjamorkuhættu sem er þó fyrir
hendi á Norðurlöndunum, áður en
farið er að knýja á um að útrýma
því sem ekki er,“ sagði Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Útflutningstryggingar:
Opinn fundur með
forsljóra GIEK
HELGE Kringstad, forstjóri
GIEK, Garanti Instituttet for
Eksportkerdit í Noregi, flytur i
dag erindi um útflutningstrygg-
ingar á fundi er iðniánasjóður
gengst fyrir.
Fundurinn hefst kl. 16.00 og er
á Hótel Sögu (A-sal nýju álmu).
Helge Kringstad Qallar um reynslu
Norðmanna af útflutningstrygging-
um og hvaða þýðingu þær hafa
almennt fyrir útflutning landa. Að
ioknu erindi sínu svarar Helge fyrir-
spumum en fundurinn er öllum
opinn.
Kajakferð Bandaríkjamannanna á sér fordæmi:
Fyrsta hringferðin um landið
á kajökum farin sumarið 1977
„ÉG HEF fulla ástæðu til að
ætla að þeir Nigel Foster og
Geoff Hunter frá Bretlandi
hafi orðið fyrstir manna til að
sigla í kringum ísland á kajök-
um, en það gerðu þeir sumarið
1977,“ sagði Elías Jónsson,
fyrrverandi fréttaritari Morg-
unblaðsins á Höfn í Homafirði,
vegna frétta af ferð Banda-
ríkjamannanna Bauman og
House umhverfis landið i ágúst
síðastliðnum. í fréttaflutningi
af þeirri ferð hefur því m.a.
verið gerðir skórair að það
muni hafa verið i fyrsta sinn
sem róið var á kajökum um-
Foster og Hunter létu gera
merki í tilefni íslandssiglingar-
hverfis landið, en Elías taldi
það rangt.
„Ég hitti þessa ungu bresku
ævintýramenn, Foster og Hunter,
í júní 1977, en þá voru þeir í
Örlygshöfn, sem er vík á milli
Hvalsness og Hvaldals. Þeir kváð-
ust hafa komið með Smyrli til
Seyðisfjarðar og voru á leiðinni
suður og vestur með landi á kajök-
um. Mér leist ekki nema miður
vel á þessa fyrirætlun þeirra og
fékk þá til að lofa því að láta mig
vita af sér með vissu millibili og
við komum okkur upp tilkynning-
arskyldu, sem fól í sér að þeir
hefðu samband við mig þegar
þeir kæmu til hafnar.
Skömmu eftir að þeir fóru frá
Örlygshöfíi gerði brælu og ég
heyrði ekkert frá þeim í fjóra
daga. Ég lét Slysavamafélagið og
Landhelgisgæsluna vita og Gæsl-
an tók að sér að svipast um eftir
þeim og fann þá veðurteppta und-
ir Ingólfshöfða. Síðan heyrði ég
frá þeim er þeir komu til Reykja-
víkur og aftur þegar þeir komu
til Akureyrar. Þá kvörtuðu þeir
undan því hversu erfítt hefði ver-
ið að fara fyrir Homstrandir.
Síðan heyrði ég ekkert frá þessum
ágætu mönnum fyrr en ég fékk
Morgunbladið/Elías Jónsson
Nigel Foster og Geoff Hunter í Örlygshöfn sumarið 1977 við
upphaf hringferðar þeirra umhverfis landið i kajökum.
bréf frá þeim í október, þar sem
þeir báðu mig um að grennslast
fyrir um þijár fílmur sem höfðu
tapast hér í pósti.
Síðan fékk ég annað bréf í jan-
úar, þar sem þeir skrifuðu um
áhuga sinn á að koma siglingunni
inn í Heimsmetabók Guinness,
sem fyrstu hringferð umhverfís
ísland á kajökum. Ég hafði sam-
band við umboðsmenn heims-
metabókarinnar hér á landi, en
einhverra hluta vegna varð ekkert
úr neinu og ég veit ekki til að
ferð þeirra hafi verið skráð í
heimsmetabók Guinness. Það
breytir því hins vegar ekki að ég
tel að þeir hafí orðið fýrstir manna
til að róa á kajökum í kringum
ísland,“ sagði Elías.