Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
5
Frá æfingu tónlistarmannanna ungu í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Reykjavík 200 ára:
Morgunblaðið/Börkur
Ungl fólk frá höfuðborgum Norður-
landanna heldur tónleika í kvöld
Í TILEFNI AF 200 ára afmæli
Reykjavíkurborgar hefur und-
anfama daga verið haldið
tónlistarmót ungs fólks frá hðf-
uðborgum Norðurlandanna í
Reykjavík. Því lýkur með tón-
leikum í hátíðarsal Menntaskól-
ans við Hamrahlíð i kvöld,
þriðjudagskvöld klukkann
20.00. Aðgangur er ókeypis.
Hér hafa dvalist 22 ungir hljóð-
færaleikarar frá höfuðborgum
hinna Norðurlandanna, auk farar-
stjóra, og æft með meðlimum úr
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
undir stjóm Marks Reedman. Æfð
hafa verið tvö hljómsveitarverk,
Epitafíon, eftir Jón Nordal og
Karelia svítan eftir Sibelius. Bæði
verkin verða flutt á tónleikunum
í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Það var Elis Sella, einn yfir-
manna Menningarmiðstöðvar
Helsinkiborgar, sem upphaflega
átti hugmyndina að þessum mót-
um, en þetta er sjöunda mótið af
þessu tagi.
„Það var árið 1979, á stofnári
Menningarmálamiðstöðvarinnar,
sem ég fékk þá hugmynd að færa
út samstarf sem verið hafði um
nokkurt skeið á milli Stokkhólms
og Helsinki á þessu sviði undir
heitinu „Tráff med toner" til hinna
Norðurlandanna,“ sagði Elis Sella
í samtali við Morgunblaðið.
„Það sem við viljum meðal ann-
ars sýna fólki fram á með þessu
er að ekki eru allir unglingar
slagsmálahundar og eiturlytja-
neytendur, en það er sú mynd sem
oft er dregin upp. Það eru til
öðruvísi unglingar.
Fyrst um sinn voru það einungis
Danmörk, Svíþjóð, Noregur og
Finnland sem áttu þátttakendur
á þessum mótum. Talið var að
ísland væri of fjarlægt og þar af
leiðandi of kostnaðarsamt að fara
þaðan eða þangað. Þátttakendur
frá Islandi hafa tekið þátt í mót-
inu undanfarin tvö ár í Helsinki
og Kaupmannahöfn og nú er
mótið haldið hér í Reykjavík, í
fyrsta sinn, í tilefni af afmæli
borgarinnar. Hlutir sem þessir eru
grasrót hins norræna samstarfs
og það á sérlega vel við nú á frið-
arári Sameinuðu Þjóðanna, að
unglingar frá fimm löndum geti
komið saman í einni hljómsveit
og æft saman í sátt og sam-
lyndi," sagði Elis Sella að lokum.
Ný]u húsnæðislögin í gildi:
Geysilegt annríki á Hús-
næðismálastofnun í gær
„Hér hefur venð geysilegt
annríki i dag, eitthvert það mesta
í manna rninnum," sagði Katrín
Atladóttir, forstöðumaður lána-
deildar Húsnæðismálastofnunar,
er hún var spurð um viðbrögð
almennings í gær, daginn sem
nýju húsnæðislögin tóku gildi.
Katrín sagði að þeir sem sóttu
umsóknir um lán til Húsnæðismála-
stofnunar í gær hefðu skipt
hundruðum og hefði orðið að setja
allt starfsfólkið í afgreiðsluna. Ekki
hefðu þó orðið teljandi tafír á af-
greiðslunni og hægt hefði verið að
leysa úr flestum málum. Sam-
kvæmt nýju lögunum ber Hús-
næðismálastofnun skylda til þess
að svara umsækjendum skriflega
innan tveggja mánaða frá því að
þeir hafa skilað inn umsókn og er
því, að sögn Katrínar, ekki hægt
að svara fyrirspurnum fólks um það
hvenær það fái lánin nánar en það
á þessu stigi.
Til þess að kynna hin nýju lög
hafa Húsnæðismálastofnun, Al-
þýðusamband íslands og félags-
málaráðuneytið gefið út bækling,
sem liggur frammi í Húsnæðismála-
stofnun og hefur einnig verið dreift
á sýningunni Heimilið ’86 í Laugar-
dalshöll. Ber kjmningarbæklingur-
inn heitið „Lánsréttur þinn — Nýju
lögin um húsnæðislán". Er í honum
farið í helstu atriði laganna, s.s.
skilyrði, lánsfjárhæðir og kjör og
reynt að skýra þau á sem aðgengi-
legastan hátt. Sagði Katrín að til
stæði að þeir aðilar er að útgáfu
kynningarbæklingsins standa
sendu fulltrúa sína í fundarferðir
um landið til þess að kynna efni
hans þar sem eftir því yrði óskað.
Fráfall
Urho Kekkonens
Vegna fráfalls Urho Kekkonens fyrrverandi forseta Finn-
lands þann 31. ágúst 1986, mun samúðarkveðjubók liggja
frammi á heimili finnska sendiherrans í Reykjavík á Haga-
mel 4, á miðvikudaginn 3.9. og fimmtudaginn 4.9.1986
frá klukkan 10 til 12 f.h. og 14 til 16 e.h. Allir þeir sem
vilja heiðra minningu hans og votta samúð eru velkomnir
að rita nöfn sín í samúðarkveðjubókina.
m a
u r
Sagan af Nonna
íslenska
Almenn mólfrœðl - Þórunn Blöndol
Brennu-NJólssaga
Eddukvœði
Egilssaga
Frósagnarlist tyrri alda
í (óum dróttum
islenskor bókmenntlr tll 1550
íslensk móltrœði II - Krlstjón Árnason
íslenskar barnabœkur - Sllja Aðalslelnsdóttlr
islensk móltrœðl - BJörn Guðflnnsson
Laxdœla
Kóngollljur
Lestrarbók - Slgurður Nordal
Lestrarbók - Slgurður Nordol, skýringar
Moður og kona
RÍtgerðir
Sýnlsbók ísl. bókmennta
Sýnisbók ísl. bókmennta, skýrlngar
Straumar og stefnur (útg. '82 og síðar)
Snorra-Edda
Danska
Amatorerne
Bare de laber rundt
Dönsk mólfrœðl - Hafdís Ingvarsdóttir og Klrsten
Dönsk mólfrœðl - Haraldur Magnússon og
Erlk Sdnderholm
Gyldendals ordbog for skole og hjem
Dönsk-íslensk orðabók
Dansk uden problemmer
Den gule handsker
Fremmed
Finns Speborgs bedste
Hdfeber - Ponduro
Operator Cobra
Tag Fat
Ungkarlhuset
Zappa
námsmanni sem
Enska
Across the barricades
Alrport
A Vlew from Ihe Bridge
Cal
First Certificade Skllls
Intermediale Engllsh Practlce Book
Flowers for Mrs. Harrls
Loves, Hopes and Fears
Longmans / Oxford Dlcflonary
Llving English Structure for School
Ensk mólfrœðl - Sœvar Hilbertsson
Meaning Into Words
Now Read on
Of Mice and Men
Pygmallon
Scoltlsh Adventure
Storles of Detectlve and Mystery
The Catcher In the Rye
The Great Gatsby
The Pearl
The Secret Diary of Adrlan Mole
The Hobblt
The Words You Need
The Woman who Disappeared
Think in English
Twentleth Century Engllsh Short Storles
Ways to Grammar
Z for Zacharia
My World
Franska
C'est Qa 1
Etudes Frangalses
Frönsk málfrœðl - Herdís Vlgfúsdótlir
More Rapid French I
STI vous plait 1, 2 og 3
grœddi vel á gömlu námsbókunum
Þýska
Eðlis- og efnafrœði
Andorra
Deutsch als Fremdsprache I A
Deutsch aktlv I
Deutsch oktlv II
Der Richter und sein Henker
Novellen - Stefan Zweig
Þýsklr leskaflar - Baldur Ingólfsson
Þýsk málfrœði - Baldur Ingólfsson
Þýska fyrir framhaldsskóla - lestrarbók, orðasafn og
málfrœði.
Schuler duden - Orðabók
Saga og félagsfrœði
Frá elnveldl til lýðrceðls
Fró landnáml tll lúterstrúar
Frá samfélagsmyndun til sjálfstœðisbaráttu
(slandssaga - Egill Stardal
Mannkynssaga BSE tll 800
Mannkynssaga eftlr 1850 - A. Sween og
Sv. Aastad
Samfélaglð - J. Israel
Þœttir úr mannkynssögu - Sigurður Ragnarsson o.fl.
Þœttlr úr sögu nýaldar
Nútímastjórnmálastefnur
Félagsfrœði I - Robertsson
Stœrðfrœði
Algebra I - Carman/Carman
Algebra II - Carman/Carman
Rúmfrœði - Halla B.
Stœrðfrœðl 1 - Erstad o.fl.
Stœrðfrœðl 2 - Erstad o.fl.
Stœrðfrœði 1A - Jón H. Jónsson
Stœrðfrœðl 2C - Jón H. Jónsson
Tölfrœðl - Jón Þorvarðarson (nýja útgátan)
Gagnavlnnslur og tölvukynnl - Stefán Brlem
Pascal - Jón Þ. Ólafsson og Smárl Sigurösson
Afstœðlskennlngin
Eðllsfrœðl fyrir framhaldsskóla 1 A
Eðllsfrœði fyrlr framhaldsskóla 2 A
Eðlisfrœði tyrir framhaldsskóla 1 B
Eðlisfraeðl fyrlr framhaldsskóla 2 B
Eðllsfrœði fyrlr framhaldsskóla 2 C
Etnafrœðl 1 - Slgríður Theodórsdótflr og Slgurgelr
Jónsson
Efnafrœðl 2 - Slgríður Theodórsdóltir og Slgurgelr
Jónsson
Efnatrœði 3 - Sigríður Theodórsdóttir og Sigurgeir
Jónsson
Ýmislegt
Erfðafraeðl - Örnólfur Thorlaclus
Almenn vlstfrœðl - Ágúst Bjamason
Jarðfrœðl - Arl Traustl Guðmundsson
Jarðfrœði - Þorleifur Elnarsson (4. útg.)
Kennslubók I vélritun I og II - Sigrfður Þórðardóttir
Latnesk málfraeði og lestrarbók - Krtstinn Ármannsson
Ný kennslubók í vélritun - Þórunn Felixdóttlr
Rekstrarhagfraeði - Ársœll Guðmundsson
Veðurfrœði - Markús Elnarsson (3. útg.)
Vla Latlna
Þjóðhagfraeðl - Gylfi Þ. Gtslason
Lfffraeði - Colin Glegg
Sálarfrœðl - Atklnsson/Atklnsson
Núna er hœgt að skipta
þessum bókum og fá f
staðinn nýjar bœkur eða
skólavörur.
ALLT í EINNI FERÐ
Hallarmúla 2 - Sfml 83211
Hafnarstrœtl 18 - Sfmi 10130