Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
• ‘ • .
Veiðin í Leirvogsá hefur verið góð í sumar eins og víðast hvar annars staðar. Þó hefur hún nokkrum sinnum orðið ansi vatnsiítil og þá er
hún vandveidd. Hér er rennt f Helguhyl í kvöldsólinni fyrir nokkru.
NÚ dregur óðum að vertíðar-
lokum í laxveiðinni, veiði er
lokið í fjórum ám og veiði lýkur
i þeim síðustu 20. september,
en flestum þetta 5.—15. sept-
ember. Það eru Laxá í Aðaldal,
Þverá, Laxá á Asum og Norð-
urá, sem hafa lokað og lítum
nú á útkomuna:
Hæsta talan úr Aðal-
dal...
Klakveiði hófst í Laxá í Aðal-
dal um helgina, en aðalvertíðin
gaf 2.850 laxa. Talan gæti slagað
eitthvað lengra upp í 3.000 með
klaklöxum sem fara í veiðibókina
eins og aðrir stangarveiddir laxar
úr Laxá. Klakveiðin byrjaði vel,
margir laxar náðust, þar af einn
27 punda og annar miklu stærri
slapp eftir að hafa farið með
línuna um stein og slitið. Var tal-
að um 35—40 punda lax. Mikill
lax er í ánni og ef tíð hefði ekki
verið laxveiðimönnum erfið á
stundum hefði aflinn trúlega orðið
mun meiri. í fyrra veiddust 1.911
laxar í Laxá og 1.256 sumarið á
undan. Mikill fjöldi 20—27 punda
laxa veiddist, miklu fleiri en geng-
ur og gerist í seinni tíð.
Laxá á Asum best...
Veiði í Laxá á Asum lauk um
mánaðamótin og veiddust í þess-
ari furðulegu laxveiðiá 1.812
laxar á aðeins tvær stangir, en
það gera auðvitað 906 laxar á
hvora stöng, eða 9,8 laxar að
meðaltali á stöng á dag. Laxá er
því ekki bara besta íslenska áin,
heldur sú besta í heiminum, þar
sem Atlantshafslaxinn veiðist. í
fyrra veiddust 1.440 laxar í ánni
og þótti mjög gott, en sumarið
1984 veiddust 625 laxar og þótti
ördeyða þótt slík veiði í tveggja
stanga á þætti annars staðar
hreint afbragð. Ef talið er frá
árinu 1976 hefur aðeins eitt sum-
ar auk 1984 veiðst færri laxar
en 1.000, sumarið 1980, en þá
veiddust 956 laxar. Besta veiðin
á umræddu tímabili var sumarið
1978, en þá veiddust 1.854 laxar
í ánni. Umrætt sumar var met-
veiðisumar á Íslandi. Óvenju
margir 20—24 punda laxar veidd-
ust í sumar, flestir á flugu.
Þverá með næst-
flesta...
Þverá (og Kjarrá) gaf næst
mesta fjöldann, en enn er ekki
útséð um hvort einhver hinna
ánna ýtti henni úr öðru sætinu. í
ánni veiddust 2.040 laxar og var
veiðin þá orðin afar léleg mikinn
hluta ágústmánaðar vegna þurrka
og vatnsleysis. Ef skilyrði hefðu
verið betri, hefði veiðin örugglega
orðið miklu meiri, því enginn
skortur var á laxi nema síður sé.
1.550 laxar veiddust í ánni í fyrra
og 1.082 laxar sumarið 1984.
Norðurá bætti sig ...
Norðurá gaf 1.600 laxa sem
var mikið betri veiði en í fyrra,
en þá veiddist 1.121 lax, en 1984
aðeins 856 stykki. Norðurá er því
á uppleið. Framan af var veiði
með ágætum, laxinn í vænna lagi
og mikið af honum. Undir það
síðasta þjakaði vatnsleysi bæði
laxa og veiðimenn, laxar týndu
tölunni og eftir voru að sögn frek-
ar fáir og smáir. 20 punda lax
veiddist í Norðurá, en slíkt hefur
ekki hent í mörg ár.
Meira:
Næstu daga verða ferskar tölur
úr ánum hér á síðum, rigning um
helgina hleypti lífí í veiðina mjög
víða og útlit fyrir góðan enda-
sprett á góðri vertíð.
Söluskattur
og aðflutnings-
gjöld felld niður
af jarðborum
Albert Guðmundsson, iðnaðar-
ráðherra, hefur gert tillögu um
að söluskattur og aðflutnings-
gjöld verði felld niður af tækjum
til jarðborunar, sem einstakling-
ar flytja inn og reka. Jarðboranir
hf. hafa þegar slíka undanþágu.
í febrúarmánuði sl. var stofnað
fyrirtækið Jarðboranir hf. með
samruna Jarðborana ríkisins og
Gufubors ríkisins og Reykjavíkur-
borgar. Eiga ríkið og Reykjavíkur-
borg hið nýja hlutafélag og er
eignarhluti hvers um sig 50%. í
nýlegu yfírliti iðnaðarráðherra um
verkefni og stofnanir, sem heyra
undir iðnaðarráðuneytið, segir að
„nokkrir einkaaðilar hafí áhuga á
að hefja rekstur minni jarðbora
m.a. til ferskvatnsleitar". Því sé
eðlilegt að gera tillögu um frekari
útfærslu undanþáguákvæðis frá
söluskatti og aðflutningsgjöldum til
að jafna samkeppnisstöðuna.
Sjóefnavinnslan hf.:
Framleiðsla kol-
sýru, þurríss o g
kísils hefst brátt
Nú hillir undir að Sjóefna-
vinnslan hf. hefji framleiðslu á
kolsýru, þurris og kisli, að því
er fram kemur í skýrslu iðnaðar-
ráðuneytis um stofnanir og
verkefni, er undir ráðuneytið
heyra. Iðnaðarráðuneytið hefur
á síðustu misserum styrkt Sjó-
efnavinnsluna til að leita eftir
nýjum framleiðslusviðum.
Arangur styrksins er sá er að
framan greinir.
Ráðuneytið hefur nýlega veitt
Sjóefnavinnslunni viðbótarstyrk i
þessu skyni. Skal hann notast til
„alhliða könnunar og jafnframt
kynningar á notkunarmöguleikum
jarðhita til iðnaðar".
fltorjflitfiMiiftifo
Áskriftarsiminn er 83033
SKEMMHRÞÉR
HmiRFÓLK
Þaö er alltaf gaman aö heimsækja svona sýningu.
Þú röltir um og skoðar í rólegheitum, kynnist nýrri vöru
eða þjónustu. Bragöar jafnvel á spennandi réttum sem í
boöi eru. Þú gætir líka gert reyfarakaup, því mörg
hagstæð kynningartilboð eru í gangi.
Svo geturðu sest niður, fengið þér kaffibolla eða aðrar
veitingar meðan þú bíður eftir COMMODORE CABARET.
MARKAÐUR
SKEMMTUN
HeimiliÖlBó
Laugardalshöll