Morgunblaðið - 02.09.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
13
danska þinginu vegna mengunar-
hættu í og umhverfís vinnslu-
svæðið. Öðru máli gegnir um
úrvinnslu á sandsteini, þar eð
mengunarhættan er talin tak-
mörkuð þó svo að um 100.000
tonn verði unnin úr fjallinu á ári.
Sandsteinsfjallið stendur við
fjörð einn í námunda við Nassaq.
Fjörðurinn er nægjanlega djúpur
til þess að flutningaskip, 5.000
tii 7.000 tonn að stærð, geti siglt
inn án þess að til verulegra dýpk-
unarframkvæmda þurfi að koma.
Er það von framkvæmdaaðila að
hægt verði að lesta skipin beint
frá vinnslusvæðinu með aðstoð
færibanda og þar til gerðrar
bryggju. Með þessu fyrirkomulagi
geta flutningamir farið fram án
þess að íþyngja bæjarbúum í
Nassaq og þeim takmörkuðu
hafnarmannvirkjum sem þar eru.
Þessi einfalda lausn í fíutningi
milli vinnslusvæðis og skips, nær-
vera nægjanlegs vinnuafls frá
íbúum byggðarlagsins gerir úr-
vinnsluna framkvæmanlega séð
frá tæknilegum og fjárhagslegum
sjónarhóli.
Hin stutta vegalengd milli
Nassaq og íslands gerir verkefnið
sérstaklega áhugavert fyrir Járn-
blendiverksmiðjuna þegar haft er
í huga að hluti af hráefni verk-
smiðjunnar kemur alla leið frá
Spáni. Kostnaður vegna hráefnis-
flutninga frá Grænlandi til Islands
er áætlaður að nemi aðeins um
helmingi þess kostnaðar sem
flutningarnir frá Spáni nema. Af
þessum sökum hefur Járnblendi-
verksmiðjan verið viljug til a
standa straum af Vs hluta kostn-
aðar vegna rannsóknanna í
sumar, en bæjarfélagið og Nor-
ræni iðnaðarsjóðurinn greiða
afgang kostnaðarins sem áætlað-
ur er að nemi um 5 milljónum
íslenskra króna.
Rannsóknunum í sumar er
þannig hagað að borkjamasýni
úr fjallinu eru rannsökuð jafnóð-
um á íslandi. Gæði sýnanna eru
síðan notuð til að ákvarða umfang
og svið komandi rannsókna. Ef
sýnin reynast jákvæð mun rann-
sóknunum ljúka í haust og hafist
verður handa við að útlista þau
íjárhags- og tæknilegu vandamál
sem vænta má í tengslum við
framkvæmdimar. Aftur á móti ef
niðurstöður sýnarannsóknanna
reynast neikvæðar munu frum-
rannsóknirnar stöðvast, jafnvel
nú í lok sumars.
Væntanlegir flutningar milli
Grænlands og íslands munu efla
reglubundnar siglingar milli land-
anna og e.t.v. opna möguleika á
auknu samstarfi og jafnvel aukn-
um viðskiptum. Grænlendingamir
eygja ennfremur von í að selja
kvartzsandstein til íslands til
vegagerðar, en kvartz er fremur
harðger steintegund og hentar vel
sem slitlag á vegum.
Byggt i frétt í vikublaði verk-
fræðiaga í Danmörku „Ingenar-
en“.
Japan:
Verkalýðs-
leiðtog'i bar-
inn til bana
Tókíó, AP.
Starfsmaður japönsku ríkisjám-
brautanna var barinn til dauða af
grimuklæddum mönnum, sem réð-
ust inn á heimili hans á mánudag-
snótt. Árásarmennimir létu til
skarar skriða á fleiri stöðum og
særðust alls átta manns. Þeir sem
urðu fyrir árásum eiga það sam-
merkt að vera í nýju verkalýðs-
félagi jámbrautarstarfsmanna,
sem berst fyrir því að ríkisjára-
brautimar verði seldar.
Maðurinn, sem hét Masaaki Maeda
og var 37 ára gamall, var barinn til
óbóta með málmstöngum og var eig-
inkona hans einnig særð alvarlega.
Tilkynnt var um svipaðar árásir á
fimm stöðum öðrum og voru þeir, sem
fyrir barðinu á árásarmönnum urðu,
allir félagar í nýju verkalýðsfélagi,
sem m.a. hefur það á stefnuskrá sinni
að járnbrautimar verði seldar úr
ríkiseigu.
Jámbrautirnar hafa verið reknar
með halla síðan 1963 og greiddu á
síðasta ári 1,22 milljarða jena í vexti
af þeim 23,6 milljörðum sem þær
skulda, en það jafngildir um 6 millj-
örðum íslenskra króna.
Áskriftarsiminn er 83033
Ííldshöfdi 14 • FAIMIMIR HF •
FRYSTIKISTUR
SPAÐU I VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
200 litra. kr. 22.900
250 litra kr. 24.490
300 litra kr. 25.690
350 lítra kr. 26.980
410 litra kr. 29.980
510 lítra kr. 33.690
* Afsláttarverð v/ smávægilegra útlitsáverka
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670
Q
Innrabyrði úr
hömruðu áli
Lok með ljósi,
læsingu, jafn-
vægisgormum
og plastklætt
Djúpfrystihólf
Viðvörunarljós
Kælistilling
Körfur
Botninn er
auðvitað frysti
flötur ásamt
veggjum