Morgunblaðið - 02.09.1986, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
NM grunnskóla í skák:
Akureyringar
björguðu Seljaskóla
1 2 3 4 5 6 VINN RÖV
1 SeljAskóli^Reykja v!k. É r/z 1 3 3/z 3/2 m i
1 Elvtrvm Uct.sé, Uortpji 2/t m 1/z \ 3 H 1z
3 N.H&hles sk.,'Danr/nörku 2 1% i Zlz 1 3 IX 2-3.
H G'CLqn-fraiSaslt ftkureymr \ 2) r/z m % 1 11 H
5 &rÖJisst.iHaparanA2, Svjfo. /1 \ X •k § 3 7 5.
<0 Ruusuvuortn yh ínnnjaaji ‘k 0 1 X \ '///. Y/y/ H% (0.
Skák
Margeir Pétursson
Grunnskólamót Norður-
landa í skák fór fram um
helgina í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi í
Breiðholti. Sex sveitir tóku
þátt, þar af tvær íslenskar.
Baráttan um efsta sætið
var jöfn og hörð og það
var ekki fyrr en í síðustu
umferð að heimaliðinu,
Seljaskóla í Breiðholti,
tókst að síga fram úr þvi
norska. Það gerðist með
dyggri aðstoð hinnar
íslensku sveitarinnar frá
Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, sem vann norsku
sveitina óvænt 3—1 og Dan-
ir náðu aðeins 2—2 jafntefli
gegn Svíum.
Sigursveitina skipuðu þeir
Þröstur Ámason, Reykjavíkur-
meistari, Sigurður Daði Sig-
fússon, Sæberg Sigurðsson og
Snorri Karlsson, varamaður.
Fyrirliði var Guðmundur Guð-
jónsson, kennari í Seljaskóla.
Seljaskólinn þótti sigur-
stranglegur eftir að hafa unnið
íslandsmót grunnskóla með
miklum yfírburðum. Sveitin
byrjaði líka vel, vann Akur-
eyringa 3—1 og Svíana 31/*—V2
og var í efsta sæti. En þá kom
afar slæmur kafli, fyrst jafntefli
við Dani 2—2 og síðan tap í
mikilvægri viðureign við norsku
sveitina, IV2—2V2. Fyrir síðustu
umferð höfðu Norðmennimir 11
vinninga, en Seljaskóli og Danir
10 vinninga. Örlög Breiðholts-
drengjanna vom því í höndum
Akureyringanna og Norðlend-
ingamir bmgðust ekki. Jafntefli
gegn þessari öflugu norsku sveit
hefði verið góður árangur, en
3—1 sigur kom mikið á óvart.
Báðar íslensku sveitimar geta
mjög vel við úrslitin unað. Akur-
eyringunum virtist fara fram
með hverri umferð og þeir hefðu
jafnvel getað náð öðm sæti, ef
þeir hefðu ekki látið sér nægja
jafntefli við fínnsku sveitina sem
var greinilega slökust.
í sveit Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar vom þeir Tómas Her-
mannsson, Bogi Pálsson, Skafti
Ingimarsson, Rúnar Sigurpáls-
son og Auðunn Guðmundsson,
varamaður. Fyrirliði var Gylfí
Þórhallsson.
Jafnrétti kynjanna við skák-
borðið virðist heldur lengra
komið hjá frændum vomm en
hér heima, því danska stúlkan
Louise Fredericia tefldi á íjórða
borði fyrir N. Zahles-skólann í
Kaupmannahöfn. Hún náði bezt-
um árangri á fjórða borði, hlaut
fjóra vinninga af fímm möguleg-
um. Það vom bara íslensku
drengimir sem náðu jafntefli
gegn henni.
Mótið fór afar vel fram í vist-
legum salarkynnum menningar-
miðstöðvarinnar _ Gerðubergs.
Mótsstjórar vom Ólafur H. 01-
afsson, Ólafur Ásgrímsson,
Jóhannes Ágústsson, Georg Páll
Skúlason og Ríkharður Sveins-
son. Mótsblað með öllum
skákunum kom út strax eftir
hveija umferð, en slíkt er ómiss-
andi þáttur í alvarlegri skák-
keppni.
Gmnnskólamót Norðurlanda
hefur verið háð frá 1964 og ís-
lendingar hafa verið með frá
1977. Þetta er í sjötta sinn sem
sveitir frá okkur hafa náð að
sigra á mótinu. Álftamýrarskóli
sigraði 1978 og 1979 ogHvassa-
leitisskóli sigraði þijú ár í röð
frá 1983 til 1985 og er eini skól-
inn í sögu keppninnar sem hefur
náð þeim árangri.
Við skulum að lokum líta á
eina bráðskemmtilega skák frá
keppninni. Þar hefur hvítt Sig-
urður Daði Sigfússon, sem tefldi
á öðm borði fyrir Seljaskóla.
Hann hlaut 4V2 vinning, sem var
bezti einstaklingsárangur í
keppninni. Sigurður er greini-
lega í góðri æfíngu, í byijun
ágúst var hann með á alþjóðlegu
móti 16 ára og yngri í Gausdal
í Noregi og náði þar 3—5. sæti,
sem er mjög góður árangur. I
skákinni sem hér fer á eftir tefl-
ir hann mjög yfírvegað.
Hvítt: Sigurður Daði Sigfús-
son
Svart: Oystein Saether (Nor-
egi)
Enski leikurinn
1. Rf3 - c5, 2. c4 - Rf6, 3.
g3 - g6, 4. Bg2 - Bg7, 5. 0-0
Rc6, 6. Rc3 — d6, 7. e3
Reynslan hefur sýnt að eftir
7. d4 — cxd4, 8. Rxd4 — Bd7
nær svartur að jafna taflið. Nú
reynir svartur að ná sókn á
kóngsvæng, en hefur ekkert upp
úr krafsinu.
- Bg4, 8. h3 - Be6, 9. d3 -
Dc8, 10. Kh2 - H5?!, 11. Rg5
- Bf5, 12. Rd5 - h4?, 13. g4
- Bd7, 14. f4
Svartur er kominn í klemmu.
Hann getur t.d. ekki hrókað
vegna 15. Del.
- Rh7, 15. Rf3 - e6, 16. Rc3
- Rf8, 17. Bd2 - e5?!, 18. De2
- Re6, 19. Re4 - Dc7, 20. f5!
- gxf5, 21. gxf5 - Red8, 22.
f6 - Bg8, 23. a3
Stöðulega séð hefur svartur
beðið algjört afhroð, en hann er
þó með allt liðið í vöminni og
Sigurður fellur ekki í þá gryfju
að reyna að ljúka skákinni strax
með kóngssókn, en sýnir óvenju-
lega þolinmæði fyrir sinn aldurs-
flokk.
- a5, 24. Rc3 - Db8, 25. Khl
- Re6, 26. Hadl - Kd8, 27.
Df2 - Rc7, 28. d4!
- cxd4, 29. exd4 — exd4, 30.
Rxd4 - Re5, 31. De2
Hér hefðu margir fallið í þá
freistni að fóma peði með 31.
c5 — dxc5, 32. Rf5, en svartur
er svo illa beygður að slíkt er
óþarfí.
- Ha6, 32. Bf4! - Rg6, 33.
Bh2 - Dc8, 34. Hd3 - Re8,
35. Rdb5 - Be6, 36. b3 -
Dd7, 37. Re4 - Bf5, 38. Df3
- Bxe4, 39. Dxe4 — Kc8, 40.
Dd4 - Hh5?, 41. Bf3 - Hf5,
42. De4!
- Rxf 6
Eða 42. - Kb8, 43. Hfdl -
Rxf6, 44. Rxd6! og vinnur.
43. Dxb7+ - Dxb7, 44. Bxb7+
- Kxb7, 45. Hxf5 - Re4, 46.
Hxf7+ - Kc8, 47. Hfl - Kd7,
48. Kg2 - Be7, 49. Hfdl -
Rf8, 50. Hd4 - d5, 51. Hxe4
og svartur gafst upp.
Stöð 2 undirbúin
NÚ ÞEGAR hefur fyrsta út-
varpsstöðin i einkaeign hafið
útsendingar og óðum styttist i
að ný sjónvarpsstöð hefji göngu
sína. Stefnt er að því að stöð Is-
lenska sjónvarpsfélagsins hf.,
Stöð 2, hefji útsendingar um
mánaðamótin september — okt-
óber nk. og eru framkvæmdir
nú í fullum gangi í væntanlegu
húsnæði stöðvarinnar að Krók-
hálsi 6 í Reykjavík.
Á myndinni má sjá nokkra þeirra
er vinna að því að gera klárt fyrir
fyrsta útsendingardaginn, íslend-
inga og erlenda tækniráðgjafa. Þeir
eru, talið frá vinstri: Edgar Guð-
mundsson, verkfræðingur, stjómar-
formaður hjá vertökunum Mát hf.,
John Wallis, tækniráðgjafi hjá Stöð
2, Morris Thomas, fulltrúi Thomson
í Frakklandi, sem sjá mun um sendi-
búnað í Stöð 2, Bjame Pedersen,
tæknistjóri Sony í Danmörku,
Ragnar Guðmundsson, forstjóri ís-
lenska myndversins hf., og Þórarinn
Magnússon, verkfræðingur, verk-
efnastjóri hjá Stöð 2 að Krókhálsi 6.
Munchner Xylophoner
halda tónleíka víða um land
A NÆSTU vikum mun 5 manna
hópur þýskra hljóðfæraleikara
„MUnchner Xylophoniker“ halda
tónleika hér á landi. Þau leika á
ýmsar gerðir tréspila og á gitar
fjölbreytta efnisskrá, m.a. verk
eftir J.S. Bach, Franz Schubert og
Scott Joplin.
Tónleikar þeirra verða sem hér
segpr:
Þriðjudag 2. sept. kl. 20.30 í grunn-
skólanum á Þingeyri.
Miðvikudag 3. sept. kl. 20.30 I Fé-
lagsheimilinu í Bolungarvík.
Miðvikudag 10. sept. kl. 20.30 í
Þjóðkirkjunni í Hafnarfírði.
Fimmtudag 11. sept. kl. 20.30 í
Selfosskirkju.
Laugardag 13. sept. kl. 17.00 I
Langholtskirkj u.
Sunnudag 14. sept. kl. 17.00 í Safn-
aðarheimili Akraneskirkju.