Morgunblaðið - 02.09.1986, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1986
Athugasemd frá blaðafulltrúa KEA
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
blaðafulltrúa KEA á Akureyri:
Hr. ritstjóri.
Einn af þeim mönnum sem óneit-
anlega setur svip á Akureyri svona
öðru hvoru er Leifur Sveinsson, lög-
fræðingur í Reykjavík og húseig-
andi á Akureyri. Leifur kemur og
fer eins og farfuglamir, hann er
myndarlegur ásýndum, fyrirmann-
legur. Leifur hefur næmt auga fyrir
fegurð og sagnakunnátta hans er
vel þekkt af dálki sem hann annast
fyrir Lesbók Mbl. Þar hefur hann
sagt góðlátlegar grínsögur af
mönnum og málefnum og yfirleitt
tekst honum vel upp.
Leifur drap niður fæti á Akur-
eyri ekki alls fyrir löngu og rak
augun í skúr á lóðinni Hafnar-
stræti 92. Þessi skúr varð honum
tilefni í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu miðvikudaginn 6. ágúst.
í dálkum sínum í Lesbók Mbl.
hefur Leifur gætt þess vandlega
að vera umfram allt jákvæður og
skemmtilegur. Ekki hefur komið
fyrir í þeim dálkum, svo undirritað-
ur muni, að Leifur hafi hnjóðað í
nokkum mann eða málefni. Þess
vegna kom það á óvart er Leifur
skrifaði þá sérkennilegu ádrepu er
birtist í Morgunblaðinu. Greinin
kom einkum á óvart vegna þess að
hún var síður en svo í stfl við þá
hógvæm framkomu er Leifur sýnir
yfírleitt hér í bæ — eða í gamansöm-
um sagnabálkum í Lesbókinni. Vera
kann að samvinnuhreyfingin sé
Leifi þymir í auga og að hann ráði
ekki fyllilega við sig þegar hann
fjallar um hana. Slíkir menn em til
en illt er að ímynda sér Leif í þeim
hópi.
Það er útaf fyrir sig rannsóknar-
efni af hveiju Leifur beinir sjónum
að umræddum skúr, sem reyndar
er í eigu Akureyrarbæjar, en KEA
hefur á leigu. Ekki er það ætlun
undirritaðs að grafa ofan í sálar-
fræði Leifs, en honum skal til
fróðleiks bent á að leigutaki málar
yfirleitt ekki húseign þá er hann
hefur á leigu. í umræddu tilviki er
ekki um neitt slíkt samið milli Akur-
eyrarbæjar og KEA. Þaðan af síður
hefur KEA gefið í skyn við bæjar-
yfirvöld að húsið yrði málað á
kostnað félagsins — jafnvel þótt
KEA hafi átt 100 ára afmæli þann
19. júní sl.
Leifur gefur í skyn í fyrirsögn
að embættismenn bæjarins séu
beinlínis hræddir við KEA. Ekkert
er fjær sanni. Samskipti KEA og
embættismanna bæjarins hafa ætíð
verið með ágætum enda vinna báð-
ir aðilar að því sama: Að gera góðan
bæ betri og gott hérað betra. Þetta
hefur verið markmið KEA í heila
öld og verður áfram. Það fjármagn
sem myndast hjá KEA er notað til
enn frekari uppbyggingar og hverf-
ur ekki úr héraðinu. Sú staðreynd
hefur ætíð fallið sveitarstjómar-
mönnum við Eyjafjörð vel í geð.
Þá skal Leifi bent á að það er
illa gert af honum að líkja Gunnari
Ragnars, forstjóra Slippstöðvarinn-
ar, við öm. Sá fugl gerir sér hreiður
við Eyjafjörð og sést hér aldrei
nema sem flökkufugl og stundum
heldur óhijálegur. Gunnar Ragnars
er nýtur borgari sem hefur fasta
búsetu á Akureyri og KEA hefur
átt ágætis samstarf við Gunnar.
Vel má vera að Leifur hafi í
hyggju að fjalla eitthvað meira um
hús á Akureyri. í því tilfelli skal
honum bent á hús sem standa við
vestanvert Hafnarstræti, milli Ráð-
hússtorgs og Kaupangsstrætis.
Leifur uppgötvar fljótt við hvaða
hús er átt ef hann gengur norður
eftir göngugötunni og horfír til
vinstri. Vel má vera að Leifi sé
verr við að §alla um þessi hús af
þeirri ástæðu að þau eru ekki í eigu
KEA — og KEA leigir ekki einu
sinni part af þeim. En ef Leifur
ákveður aðskrifa um þau er sú von
látin í ljós að þær greinar verði
hógværar, rétt eins og dálkar hans
í Lesbókinni, og þar með höfundi
til sóma.
Kærkveðja,
Áskell Þórísson, blaðafull-
trúi Kaupfélags Eyfirðinga.
Pennavinir
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist.
MUd Yonekura
3—15 Kotobuki-machi zchome
Hakata-ku, Fukuoka City,
Fukudka
816 Japan.
Þrettán ára gamall piltur í Mala-
ysiu, hefur áhuga á hjólreiðum og
fótbolta.
Saifuc Azrin Fudlic
60, Jalan Wirawati 9
Taman Macuri
55100 Kuala Lumpur
Malaysia
Spánveiji sem hefur lengi haft
áhuga á að eignast pennavini á ís-
landi. Getur ekki um aldur segist
svara öllum bréfum.
German Franco Diaz
Calvo Sotelo, 52, 3-Izqda
27600 Sarría, Lugo,
Spain.
Það er ekki nóg að útsýnið
úr vinnupallinum sé gott
vinnupallar þurfa umfram allt að vera oruggir, vandaðir
og léttir í meðförum. Brimrás sf. býður sérlega
hagkvæm verð og kjör á níðsterkum áloöllum.
Vinnupallarnir frá Brimrás s/f eru búnir að vera á
markaðnum í þrjú ár og hafa reynst frábærlega vel.
Hönnunin er v-þýsk að grunni til en að öðru leyti
eru pallarnir íslensk gæðasmíði. Þeir eru smíðaðir
úr seltuvörðu áli sem hentar vel í íslenskri veðráttu.
Samsetningarkerfi pallanna gerir ráð fyrir „enda-
lausum“ viðbótarmöguleikum. Jafnframt býður
Brimrás s/f viðhaldsþjónustu fagmanna og sérsmíði
eftir þörfum hvers og eins.
Brimrásar-pallarnir bjóðast nú á greiðslukjörum
sem allir ráða við: 20% útborgun og eftirstöðvarnar
til allt að 12 mánaða eða 5% staðgreiðsluafsláttur.
Einnig býðst nú möguleiki á kaupleigusamningi til
2ja ára.
Dæmi um verð og kjör á vinnupöllum:
Dæmi I:
Vinnuhæð 5,60 m. Lengd 2,50 m. - breidd 70 cm. Verð kr. 73.970.-, útborgun 20%, eftirst. í 12 mán. Útborgun kr. 14.570.- Eftirst. kr. 4.950.- pr. mán. auk vaxta og kostn.
Dæmi II:
Vinnuhæð 3,60 m.
Lengd 2,50 m. - breidd 70 cm.
Verð kr. 48.594.-, útborgun 20%, eftirst. í 12 mán. ;0 O)
Útborgun kr. 9.714,- 3 ca
Eftirst. kr. 3.240.- pr. mán. auk vaxta og kostn.
VELDU VANDAÐ - VELDU BRIMRÁS Kaplahrauni 7 Hafnarfirði, sími 651960